Morgunblaðið - 19.03.2000, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 19.03.2000, Blaðsíða 17
16 B SUNNUDAGUR19. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. MARS 2000 B 17 + Spor genginna kynslóða eru geymd en ekki gleymd. Myndir: RAGNAR AXELSSON Texti: GUÐNI EINARSSON FOLKIÐ H VER kynslóðin tekur við af annarri, líkt og séra Matthías Jochumsson minnir á í sálmi sínum, Fögur er foldin. Kynslóðirkoma, kynslóðir fara, allar sömu ævigöng Æviskeiðið renna allir hvort sem þeim líkar betur eða ver. Þótt ævi- gangan sé mislöng og liggi um ólíkar slóðir þá eru allir á sömu kjörum. Um leið og við fæðumst tökum við að eldast, sumir hratt og aðrir hægar. Það eina sem við eigum nokkum veg- inn örugglega fyrir höndum er að kveðja lífið dag einn. Mörgum stend- ur ógn af þeirri vissu og vilja lítið til þess hugsa. Aðrir eru annars sinnis og meira með hugann hinum megin en héma megin. Hverfulleiki lífsins hefur löngum verið mönnum hugleikinn. Davíð konungur líkti tilvera mannsins við hverfult gras, jurt sem blómgast að morgni en fölnar og visnar að kvöldi. Hann hefur einnig hugleitt það hvað maðurinn skilur eftir sig, líkt og kemur fram í 103. Davíðssálmi: Dagar mannsins eru sem grasið, hann blómgast sem blómið á mörk- inni, þegar vindur biæs á hann er hann horfínn, og staður hans þekkir hann ekki framar. Sumir eiga erfitt með að sætta sig við það að hverfa af yfirborði jarðar án þess að skilja nokkuð eftir sig. Falla í gleymsku. Þau verða samt ör- lög langflestra - eða hvað? Höfundur Hávamála hugleiðir óumflýjanlegan dauðadóm alls sem lifir og kemst að þeirri niðurstöðu að gott orðspor deyi aldrei: Deyrfé, deyja frændur, deyrsjálfuriðsama. En orðstá deyr aldregi hveim er sér góðan getur Ekki virðast allir treysta á að orð- stírinn muni einn halda minningu þeirra á lofti. Það er ríkt í mönnum að reisa sér einhvem minnisvarða, gera eitthvað sem varðveitir minn- ingu þeirra - að minnsta kosti um stundarsakir. Ef til vill á það sinn þátt í ríkulegri ævisagnaritun okkar Islendinga. Þó er næsta víst að for- feður okkar hafa síður fallið í gleymsku en áar fólks af ýmsu öðra þjóðerni. Það má þakka linnulitlum ættfræðiáhuga og ættrakningum sem hér hafa verið stundaðar af sannri íþróttamennsku um langa hríð. Vísindin hafa nú bætt um betur. Rannsóknir á erfðaefni mannsins leiða í ljós að þar er rituð er sú ætt- ernisskrá sem er ólygnust. Hver kynslóð setur þar sitt mark og minn- ir á sig svo lengi sem ættartréð skýt- ur nýjum sprotum. Ættfræðiáhuginn og kostgæfið ætternisbókhald genginna kynslóða, hvort sem er í kirkjubókum eða ætt- artölum, kemur til góða við hagnýt- 3www.snds.ora NC RDIC PHOT36RaPHIC DOCUMENT - X t .,:*.• * s **■ 5+% . - ■í? ' :■ :V’+‘í ':+•- ’ f.' ::v"/ *s „ ^ x Morgunblaðið/RAX NÝBURI - Þessi litla stúlka fæddist á Landspítalanum 23. febrúar síðastliðinn og var ekki nema fárra mínútna gömul þegar mynd- in var tekin. Óvenjulega mörg börn fæddust nokkrum dögum síðar eða 29. febrúar. Hlaupársbörnin árið 2000 urðu t.d. fímm á Ak- ureyri og tólfíReykjavík. Undanfarin árhafa fæðst á fímmta þúsund börn á íslandi á hverju ári. AFTURGÖNGUR - Félagarnir Einar Karl Valdi- ingu hinnar vísindalegu þekkingar. framsækin fyrirtæki sem hafa verið marsson (t.v.) ogJón Ingvar Jónsson klæddu sig Einangran íslands og löng ritunar- stofnuð undanfarið um rannsóknir á upp í tilefni öskudags. MóðirJóns Ingvars bjó til hefð þykir gera þjóðina sem hér býr erfðaþáttum og mögulegum tengsl- búninginn hans. „Það var mikið hlegið hvar sem einkar eftirsóknarverða fyrir slíkar um þeirra við ýmsa krankleika. við komum og sumum brá,“ sagði Jón Ingvar. rannsóknir. Til dæmis um það era — • • ?• : JARÐVÍSINDI - Guðrún Sverrisdóttir jarðfræðingur og dr. Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur viðjaðar hraunsins sem rann í Heklugosinu á dögun- um. Myndin var tekin í hávaðastormi sem reif ígosmökkinn ogþreytti öskunni yfír svæðið. Askan skerpti gárurnar í snjónum. ERFÐARANNSÓKNIR - Valgerður Backman sameindaerfðafræðingur (t.v.) og Kristbjörg Jónsdóttir meinatæknir starfa hjá íslenskri erfðagreiningu, einu þeirra fyrirtækja sem fást við rannsóknir á erfðaefni íslendinga. Einangrun þjóðarinnar um aldir og skráðar heimildir um skyldleika fólks koma til góða í leitinni að tengslum erfðaþátta og tiltekinna sjúkdóma. Erfðaefnið hljótum við í arf frá forfeðrum okkar. Þannig berum við í okkur og með okkur ætt- arskrá þarsem hvergengin kynslóð forfeðranna hefurlagt sitt af mörkum. STÓRIÐJA - Einar Hannesson (t.v.) ogÁrni Aðalsteinsson voru í Járnblendi- verksmiðjunni á Grundartanga að fóðra deiglur með múrhúð. Þeir vinna í deild sem sér um viðhald, fyrír ofn-vaktina, á eldfastrí steypu. Árni hefur unnið þama frá 1986 og Einar frá 1983, með múrskeið og skóflu íhendi. ÖLDUNGUR - Steindór Jónsson erfæddur árið 1908. Þrátt fyrir háan aldur er hann hress ogfer sinna ferða á gamla Trabantinum. „Þetta er ættbundið," segir Steindór um það hversu heilsuhraustur hann er. Systir hans náði 96áraaldri ogbróðirhans varð 103 ára gamall. „Ég er með sterkt hjarta. Meðan þaðdanglar, þá er Iíf,“ sagði Steindór. Hann hefur átt margar tegundir af bílum um dagana og nokkra Trabanta. „Mér fínnst hann ágætur, “ segir Steindór um bílinn. „Hann er alltaf eins og tíkin; tilbúinn.“ Steindór starfaði ífjölda ára hjá Landleið- um. Stundum skreppur hann þangað og teflir við gamla vinnufélaga. Eins þykir Steindórí gott að hlusta á hljóðbækur. „Það er alltaf þægilegt að hlusta á góðar raddir lesa sögur.“ HJÓNIN - Anna Guðrún Halldórsdóttir og Höskuldur Bjarnason búa nú á Hrafnistu í Reykjavík. Áður bjuggu þau á Drangsnesi við Steingrímsfjörð þar sem Höskuldur stundaði sjóinn til fer- tugsaldurs. Eftirþað fór hann í frystihúsið og vann til 78 ára aldurs. Þau eignuðust sjö böm. Eftir að bömin flugu úr hreiðrinu fórAnna að vinna í rækjuvinnslu. +

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.