Morgunblaðið - 19.03.2000, Blaðsíða 23
Taktu þátt í að velja öndvegishús og merkileg mannvirki
Listahátíð í Reykjavík,
ásamt Morgunblaðinu,
Arkitektafélagi íslands
og byggingarlistadeild
Listasafns Reykjavíkur,
efnir til Ijósmyndasýningar þar sem við-
fangsefnið verður íslensk byggingarlist.
Reynt verður að velja úr og gera skil þeim bygg-
ingum og mannvirkjum sem framar öðrum
hafa sett svip sinn á íslenska byggingarlist. Nefnd
fagmanna mun vejja 50 byggingar og mannvirki
sem hún telur skara fram úr.
Öflum íslendingum er boðið að taka þátt
með því að tilnefna hús eða mannvirki sem
á einhvern hátt hafa vakið athygli þeirra. Hver
og einn má tilnefna eina til þrjár byggingar
eða mannvirki hvaðanæva af landinu og frá
hvaða tíma íslenskrar byggingarsögu sem er.
Æskilegt er að tilnefningunni fylgi rökstuðn-
ingur þar sem útskýrt er I stuttu máli hvað
byggingin hefur sérstakt til að bera. Einnig
þarfað koma fram nafn og staðsetning bygg-
ingarinnar, og ef fyrir liggja, upplýsingar um
höfund hennar og byggingarár. Æskilegt er
að Ijósmynd eða stafræn mynd fylgi með ef
byggingin er ekki þeim mun þekktari.
fltftVgtlltMafeÍto mun birta myndir af til-
nefndum byggingum í apríl og maí. Dómur
almennings verður síðan kynntur samhliða
dómi faglegu nefndarinnar á sýningunni
„Öndvegishús og merkileg mannvirki"
sem verður opnuð á Listahátíð 21. maí nk. í
nýjum húsakynnum Listasafns Reykjavfkur í
Hafnarhúsinu.
Tilnefningum skal skila fyrir 1. apríl nk.
Utanáskriftin er:
Öndvegishús og merkileg mannvirki,
Listahátíð í Reykjavík,
Pósthólf 88, 121 Reykjavík
YDDA/SlA