Morgunblaðið - 19.03.2000, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
Kolaburður í Reykjavík 1919. Mynd eftir Mugg. Verkakonur bera kol
upp eftir Smithsbryggju (Thomsenbryggju) á leið 1 Kolasund.
leg refsing sem Salvör lagði á þennan
drjúgmontna og sjálfhælna Norðling.
Pað er hreint ótrúlegt minnið hans
Guðmundar Thorlacius. Hann sem er
fæddur á fyrsta ári heimastjómar
1904 man atburði frá fyrsta áratug
aldarinnar sem leið.
Hver getur sagt mér frá því þegar
Tryggvi Gunnarsson, athafnamaður-
inn mikli bjó í Kolasundi? Ég reyni að
hringja til Guðmundar Thorlacius,
sjómanns á Nýlendugötunni. Hann
man ótrúlega margt frá liðinni öld.
Það brást ekki. Guðmundur svaraði
glaðlega í símann. Mér komu í hug
orð sem höfð voru eftir öldruðum
Vestur-íslendingi þegar vel lá á hon-
um: „Það er gaman að vera maður.“
Svo ungleg og hress var rödd Guð-
mundai'. Eg spyr: „Manstu eftir
Tryggva Gunnarssyni þegar hann
átti heima í Kolasundi?" „Hvort ég
man,“ sagði Guðmundur. „Eg fór einu
sinni með reikning til hans. Það var
frá Jámsteypunni. Það var hann Ámi
Jónsson sem sendi mig með reikning-
inn. Tiyggvi var í öllum félögum og
fyrirtækjum." Manstu hvað reikning-
urinn var hár, spyi' ég Guðmund. „Já,
hann var 12 krónur. Og ég man hvað
mér fannst vera margir peningar í
buddunni þegar hann borgaði mér
reikninginn." Sigurbjörn í Vísi segir
að Tryggvi hafí verið í stjómum og
nefndum svo margra félaga að hann
hafi þurft að hafa manninn með sér til
þess að minna á nefndar- og stjómar-
fundi.
Ludvig Hansen bankaassistent var
afi Ludvigs Hjálmtýssonar. Hann vai-
að sögn Ludvigs talinn launsonur
Maitins Smiths, kaupmanns og kons-
úls. Haft var eftir bakaradótturinni
Maríu, dóttur Bemhöfts bakara:
„Það vildi ég hann Hansen kom og á
mig.“
Maríu varð að ósk sinni. Hún var
frú María Hansen, traust ættmóðir
og amma margra þjóðkunnra Reyk-
víkinga. Greinarhöfundur hefir oft
rómað glaðlyndi Bemhöftanna og
ekki mun framlag Ludvigs Hansens
faktors og framtaksmanns hafa vegið
léttara, þegar horft er til félagslyndis
og mannlegra samskipta. Ludvig
Hansen var í stjóm Verslunarmanna-
félags Reykjavíkur og lagði þar sem
annars staðar gott til mála. Ludvig
Hansen stendur keikur í dyrum í
Kolasundi. Húseign Martins Smith,
Hótel Alexandra, er í næsta nágrenni.
Það veit að Hafnarstræti og er númer
16 við þá götu. Ludvig Hansen sómir
sér vel í húsdymm sínum í Kolasundi.
„Ekki er blankur Islandsbanki.
Eggert Claessen með troðna vasa“
segir í gamanbrag sem kveðinn var
á þriðja áratug liðinnar aldar.
Eggert Claessen málaflutnings-
maður og bankastjóri Islandsbanka
var þjóðkunnur maður og umdeildur
á sinni tíð. Hann var harður andstæð-
ingum. Fylginn sér og sókndjarfur.
Fór jafnan í fylkingarbijósti. Halldór
Laxness hefir vísast haft Eggert
Claessen í huga þegar hann nefnir
Kláus Hansen, bankastjórann „sem
hafði kr. 133,33 í kaup fyrir hvem
virkan dag ársins sem bánkastjóri, og
hafði tekið að sér þá stöðu í gustuka-
skyni þegar hann fór úr ráðherra-
sessi, seinast“. Hér fer sem fyrr. Hall-
dór Laxness beitir þeirri tækni að
gera eina sögupersónu sfna úr tveim
fyrirmyndum. Sigurður Eggerz ráð-
herra skipaði sjálfan sig bankastjóra
íslandsbanka. Hann og Eggert
Claessen vora samtímis bankastjórar
íslandsbanka um skeið. Seinna í kafl-
anum í Sölku Völku segir um Kláus
Hansen: „...var í almælum haft að
hann væri einn gáfaðasti lögfræðing-
ur á Norðurlöndum og ynni allflest
mál, einkum fyrir æðstu dómstólum".
Greinarhöfundur minnist þess frá
unglingsáram er hann sat þing Al-
þýðusambandsins að þeir Jón Bald-
vinsson, bankastjóri Utvegsbankans,
er settist í sæti Eggerts Claessens,
Héðinn Valdimarsson, forstjóri Olíu-
verslunar íslands og formaður Dags-
brúnar og Guðmundur G. Hagalín
sungu saman í lokahófi:
Þama stendur Stenka Rasin,
Stenka Rasin vinur minn,
ekkert líkur Eggert Claessen,
elsku hundakroppurinn.
I röðum verkalýðs var Eggert
Mánaðarlega getur þú komið í Apótekið þar sem
hjúkrunarfræðingur og lyfjafræðingur verða til ráðgjafar
Hugaé ad
heilsunni
Blóðsykursmæling
Kólesterólmæling
BMI mæling
^ Þyngdarmæling
ölóðþrýstings
i: /p.úlsmælinq
Vefjafitumæíing
f Ráðgjöf við
. „ *~-l*yfjanotkun
Hollráð við
háþrýstingi
20. mars, verður hugað að
heilsunni í Apótekinu Smóratorgi
fró 14.00 til 18.00
21. mars, verður hugað að
heilsunni í Apótekinu í Nýkaupi
Kringlunni fró 14.00 til 18.00
22. mars, verður hugað að
heilsunni í Apótekinu ó
Smiðjuvegi fró 14.00 til 18.00
Mælingar sem eru fram undan:
23. mars í Apótekinu í Hafnarfirði, 24. mars i Apótekinu Iðufelli, 27. mars í Apótekinu Suðurströnd,
28. mars í Apótekinu Spönginni, 29. mars i Apótekinu í Mosfellsbœ, 30. mars í Apótekinu Skeifunni.
Mœlingar eru alltaf fró klukkan 14.00 til 18.00
Allar mælingar verða skráðar í þína eigin bók sem afhent verður við fyrstu heimsókn
Vinsamlegast geymið auglýsinguna
Apótekið er á eftirtöldum stöðum:
Smáratorgi 1, Kópavogi * Smiðjuvegi 2, Kópavogi • Kringlunni 8-12, Nýkaupi * Spönginni 13, Grafarvogi
Iðufelli 14, Breiðholti • Skeifunni 15, Hagkaupi • Suðurströnd 2, Selt|arnarnesi * Fjarðargötu 13-15,
Firði í Hafnarfirði • Þverholti 2, Nýkaupi í Mosfellsbœ * Furuvöllum 17, Hagkaupi Akureyri
Hugum saman að heilsunni þinni
a
SUNNUDAGUR 19. MARS 2000 B 27
------------------------V
Clæssen talinn helsti bi-imbrjótur og
erfiðasti andstæðingur í samningum.
Meðal starfsfólks Islandsbanka var
hann mikilsvirtur. Mér er í minni frá-
sögn Margrétar Steindórsdóttur er
lengi var starfsmaður í Utvegsbanka
|slands, en hafði áður starfað í
íslandsbanka. Ég hljóðritaði á sínum
tíma samtöl við allmarga fyrrverandi
starfsmenn íslandsbanka.
Margrét bar mikið lof á Eggert
Claessen. Taldi hann framúrskarandi
húsbónda og öndvegismann.
Þegar Eggert Claessen var banka-
stjóri íslandsbanka mun hann hafa
átt Ford-bifreið sem hann ók frá
heimili sínu Reynistað við Skerja-
fjörð. Hann naut þeirra forréttinda að
geta lagt bifreið sinni í Kolasundi, ná-
lægt starfsmannainngangi bankans.
Claessen var snyrtimenni. Hafði jafn-
an með sér ábreiðu sem hann breiddi
yfir bifreið sína og hlífa skyldi fyrir
veðrum og verja skemmdum. Gam-
ansamur vegfarandi sem átti leið um
Kolasund er Claessen breiddi ábreið-
una yfir bifreið sína kallaði til banka-
stjórans: „Það þýðir ekkert að breiða
yfir bílinn. það vita allir að þetta er
Ford.“
Páll Stefánsson frá Þverá var
þjóðkunnur maður. Hann réðst til
verslunarstarfa hjá Ditlev Thomsen í
svokölluðu Thomsens-Magasíni. Páll
var deildarstjóri þar, hugmikill og
dugmikiU, enda stundum kallaður
Sveitti-Páll vegna atorku sinnar. Páli
tókst að afla sér umboðs fyrir Ford-
bíla þrátt fyrir andstöðu keppinauta.
PáU rak fyrirtæki sitt, bflasölu og bif-
reiðaverkstæði af miklum dugnaði og
harðfylgi. Hann festi kaup á Mel-
stedshúsi, eign KFUM við Lækjair-
torg og reisti síðar stórhýsi er snéri
að Lækjartorgi. Þar vora sýndar
Ford-bifreiðar í gluggum stórhýsis
þess er Páll reisti. Kolasundsmegin
var verkstæði Páls.
Sigfús í Heklu keypti fyrirtæki
Páls Stefánssonar. Sigfús var dreng-
skaparmaður, sem lét gamla starfs-
menn fyrirtækisins njóta dyggrar
þjónustu og reyndist þeim í hvívetna
hinn besti drengur. Finnbogi Eyjólfs-
son, starfsmaður Heklu, hefir af góð-
vild sinni látið í té gögn og myndir
sem segja meira en mörg orð um
Ford-umboðið. Eyjólfur, faðir Finn^.
boga var einn af stofnendum BSR og
lengi kunnur bflstjóri í Reykjavík.
Fyrir þá sem hafa ánægju af ætt-
fræði: Eggert Claessen var afi séra
Lára Guðmundsdóttur, Ludvig Han-
sen var langafi Sigrúnar Hjálmtýs-
dóttur og Páls Óskars, „Salla“ var
langamma ívars Bjömssonar gull-
smiðs og Elínar Hansdóttur.
Höfundur er fyrrverandi þulur.
FRÁ
REYKJAVÍK
Við vorum
að fá þessa
vinsælu
útiarna
frá Mexikó
Notaðu sólpallinn í vetur
BÆJARLIND 6 200 KÓPAVOGI
Sími: 554 6300 Fax: 554 6303