Morgunblaðið - 19.03.2000, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. MARS 2000 B 29
Skipun nýs yfírmanns Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
Sam-
staða um
Köhler
Washingfton. AFP, AP.
EFTIR fimm mánaða togstreitu
milli Evrópusambandsríkjanna,
Bandaríkjanna og Japans, hillir nú
undir að samkomulag sé að nást um
arftaka Michel Camdessus í emb-
ætti framkvæmdastjóra Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins (IMF).
Japanir, sem leggja bæði IMF og
systurstofnuninni Alþjóðabankan-
um til næstmest fé, drógu á fimmtu-
dag til baka sinn frambjóðanda í
starfið, Eisuke Sakakibara, og lýstu
stuðningi við nýjan frambjóðanda
ESB, Þjóðverjann Horst Köhler.
Hefð hefur komizt á um að Banda-
ííkjamaður fari fyrir Alþjóðabank-
anum en Evrópumaður fyrir IMF.
En Akitaka Saiki, talsmaður Keizo
Deilt um
„græna
korts“-
áform í
Þýzkalandi
Berlfn. AP.
ÁFORM, sem Gerhard
Schröder Þýzkalandskanzlari
kynnti í vikunni um útgáfu sér-
stakra atvinnuleyfa íyrir allt að
20.000 erlenda tölvusér-
fræðinga, hafa orðið stjómar-
andstæðingum og fulltrúum
verkalýðsfélaga tilefni harka-
legrar gagnrýni og opnað fyrir
nýja umræðu um það hve opið
Þýzkaland er útlendingum.
Meginröksemd gagnrýnenda
frumvarps ríkisstjómarinnar er
sú, að feikinógu margir atvinnu-
lausir Þjóðverjar biðu eftir að
stökkva á störf af því tagi sem
hugmyndin er að hinir erlendu
sérfræðingar tækju að sér, eða
að vera endurmenntaðir til að
gegna þeim.
I þessari deilu blandast sam-
an tvenns konar vandi: Annars
vegar að þýzkt efnahagslíf virð-
ist bregðast seint við netbylt-
ingunni og hins vegar hvemig
skuli taka á innflytjendamálum
i landi þar sem um fjórar millj-
ónir íbúa era atvinnulausar.
Þýzk tölvutækniíyrirtæki hafa
skorað á ríkisstjóm Schröders
að grípa til aðgerða þeim til
stuðnings; halda talsmenn fyrir-
tækjanna því fram að þau vanti
um 75.000 sérmenntaða starfs-
menn, ef þetta ört vaxandi og
framsækna svið þýzks efnahags-
lífs eigi að geta viðhaldið alþjóð-
legri samkeppnishæfni sinni.
Stjóm Schröders brást við þessu
með því að tilkynna í upphafi vik-
unnar að sérreglur yrðu lög-
leiddar sem byðu allt að 20.000
sérmenntuðum útlendingum at-
vinnuleyfi í allt að fimm ár. Er
fyrirmyndin að þessum reglum
sótt til bandaríska „græna korts-
ins“ svokallaða.
Innflytjendastefna
íbrennidepli
Gagnrýnendur úr röðum
kristilegra demókrata, sem era
í stjórnarandstöðu, sögðu að
stjórnvöld þyrftu að grípa til að-
gerða til að takmarka innflytj-
endaflæði til landsins, ekki ýta
undir það. Fólk t.a.m. frá Asíu
og A-Evrópu, sem yrði ráðið til
þýzkra fyrirtækja sem tölvu-
sérfræðingar, myndu ílendast
til langframa og taka störf frá
þýzkum launþegum með því að
vera tilbúið til að vinna fyrir
lægri laun. Talsmaður stjómar-
innar í málefnum útlendinga,
Marieluise Beck, varaði af til-
efni þessara ummæla við því að
spila í umræðunni á neikvæðar
tilfinningar í garð útlendinga.
Verkalýðsforkólfar sögðu
áformin vera til þess fallin að
létta þrýstingi af þýzkum at-
vinnurekendum að huga að
þjálfun eigin starfsmanna.
Obuchis, forsætisráðherra Japans,
sagði í gær að framboð Sakakibaras
hefði aðeins verið fyrsta skrefið.
„Við ætlum okkur ekki að láta okkur
lynda til lengdar að þessi staða sé
frátekin fyrir Evrópumann. (...)
Næst, þegar við getum teflt fram
góðum manni, munum við styðja
hann alla leið,“ sagði Saiki. Full-
trúar Kanada og Mexíkó lýstu í gær
einnig þeirri skoðun, að það væri
ekki sjálfgefið að Evrópumaður
skipaði þetta embætti.
Köhler, sem er bankastjóri Þró-
unarbanka Evrópu (EBRD) í Lund-
únum, sagðist bjartsýnn á að sú
spenna sem byggzt hefur upp yfir
Atlantshafið vegna deilna um arf-
taka Camdessus yrði fljótt úr sög-
unni. Köhler var fyrst tilefndur eftir
að Caio Koch-Weser, aðstoðarfjár-
málaráðherra Þýzkalands, hætti við,
aðallega vegna andstöðu Banda-
ríkjamanna við skipun hans í em-
bættið.
Samtök verslunar og þjönustu
Federation ofTrade & Services
AÐALFUNDUR
SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu
verður haldinn miðvikudaginn
29. mars nk. d Radisson SAS Saga
hótel, Ársal, 2. hæð, og hefst kl. 16.
Dagskrd:
1. Ræða formanns
2. Ávarp: Valgerður Sverrisdóttir
iðnaðar- og viðskiptaráðherra
3. Venjuleg aðalfundarstörf
Stjórnin
T0PPTU0B
PERTTI F’ALMROTH *
‘Efnið í stígvéCunum er
vatnsfráHríncCandi og
pofír regn, snjó, saCt og
IqiCcCa.
íPcegiCegt að þrífa, ein
stropa með röíqim Cfút
og stígvéCin verða
gCjáandi faCCeg.
Áður kr. 14.900
Nú kr.
8.995
oppskórinn
Veltusundi 1 við Ingólfstorg, sími 552 1212
Köttur úti í mýri...
...úti er ævintýri.
Átak til að fækka
flækingsköttum á
Kjalamesi og
\ Bústaðahverfi
í samræmi við samþykkt um
kattahald í Reykjavík tilkynnist hér
með að dagana 27. mars til 1.
april mun sérstakt átak gert til að
fanga fiækingsketti á Kjalamesi og
í Bústaðahverfi frá Kringlu-
mýrarbraut að Reykjanesbraut,
norðan Bústaðavegar og sunnan
Miklubrautar.
Kattaeigendur í hverfinu
em hvattir til að halda köttum
sínum inni á meðan á átakinu
stendur. Jafnframt eru katta-
eigendur minntir á að merkja ketti
sína með húðflúri (tattóveringu)
á eyrum og skrá upplýsingar
um eiganda, heimilisfang og
símanúmer. Jafngild er
örmerking skv. stöðlum
Alþjóða staðlaráðsins
(ISO 11784 eða 11785).
Oll handsömuð dýr
verða flutt í Kattholt.
Athugið
Kettir verða eingöngu
fangaðir frá kl. 20:00 að
kvöldi til kl. 07:00 að
morgni.
Hreinsunardeild Reykjavíkurborgar
HAND
CREAM
Með því að nota TREND naglanæringuna
færðu þínar eigin neglur sterkar og heilbrigðar
svo þær hvorki klofna né brotna.
TREND handáburðurinn
r^knt i framleiðslu 3
H! teygjanlegri, þétta'ri húð. íÉj
Sérstaklega græðandi. r.ý
EINSTÖK GÆÐAVARA \
Fást í apótekum og snyrti- W
vöruverslunum um land allt.
Ath. naglalökk frá Trend fást í tveimur stærðum
Vor naglalökkin eru komin í 6 nýjum bláum liturn
Þýskar förðunarvörur
Ekta augnahára- og augnabrúnalitur,
er samanstendur af litakremi og geli
sem blandast saman, allt í einum
pakka. Mjög auðveldur í notkun,
fæst í þremur litum og gefur frábær-
an árangur. Hver pakki dugir í 20
litanir.
Útsölustaðir: Apótek og
snyrtivöruverslanir
ATH. nú! Frá Tana Maskara Stone (Köku-maskari). Þessi (svarti) gamli
góði með stóra burstanum. Uppl. í smáblaði sem fylgir augnbrúnalitnum.
Vatnsþynnanlegt vax- og
hitatæki til háreyðingar. Vaxið
má einnig híta í örbylgjuofni.
Einnig háreyðingarkrem,
„roll-on“ eða borið á með
spaða frá
laboratorios byly S.A.
Útsölustaðir: Snyrtivöruverslunin Nana, Rvík, Hringbrautar Apótek, Rima Apótek,
Grafarvogs Apótek, Lyf & heilsa, Alfabakka, Lyf & heilsa, Háteigsvegi 1,
Borgarapótek, Álftamýri, Fína Mosfellsbæ, Sauöárkróks Apótek, Stykkishólms
Apótek, Fínar Línur, Vestmannaeyjum.
Dreifing: S. Gunnbjörnsson ehf. Sími 5§5 6317
Fasteignir á Netinu vfS> mbl.is
/\L.LT/\f= eiTTHXSAG IMÝ7T