Morgunblaðið - 19.03.2000, Page 30
30 B SUNNUDAGUR 19. MARS 2000
DÆGURTONLIST
MORGUNBLAÐIÐ
V
Sá besti
RAPPARINN WiIIiam Griffin,
sem flestir þekkja sem Rak-
im Allah, var í fremstu röð
mmmmmmmmmmmm rappsins fyrir
margt löngu
með félaga sín-
um Eric B. Und-
ir lok níunda
áratugarins
sendu þeir félag-
ar frá sér hverja
metsöluskifuna
á fætur annarri
en þegar upp úr samstarfinu
slitnaði héf Eric B. sóléferil en
lítið heyrðist til Rakims. Hann
var þé fráleitt hættur að rappa
þótt fímm ára bið hefði verið eft-
ir plötu.
Fyrir tveimur árum sneri Rak-
im aftur í sviðsljósið eftir langt
hlé. Á sínum tíma var hann talinn
eftir Áino
Matthíosson
með frcmstu rapphetjum og
sannaði á fyrstu skífunni eftir
fríið, The 18th Letter, að hann
hefði engu gleymt og miklu bætt
við. Þegar þeir félagar Eric B og
Rakim voru upp á sitt besta fér
orð af mikilli orðfimi Rakims og
á 18th Letter sýndi hann gamla
sniildartakta. Undir lok siðasta
árs kom svo út önnur séléplata
Rakims, The Master.
Á The Master minnir spuninn
hjá-Rakim á gamla daga og
stingur nokkuð í stúf við spennu-
þrunginn uppskrúfaðan texta-
flutning ung-tyrkjánna, en Rak-
im Sýnir hvernig á afffara að í
flæði og stemmningu. Ólíkt fyrri
J
skifunni fær hann ýmsa gesti til
liðs við sig, ýmist lærisveina í
rappi eða ténsmiði úr fremstu
röð. Meðal þeirra fyrrnefndu eru
þeir Canibus, Rahzel og Kauryn
Hill, cn seinni flokkinn fylla DJ
Premier, Ron lawrence, Jaz-0 og
Clack Kent.
I vali rapptímarits vestan hafs
á sfðasta ári var Rakim valinn
besti rappari sögunnar sem sýnir
hvaða mætur rappvinir hafa á
honum og víst vérður The Mast-
er talin með helstu rappskffum
þegar árið v^rður gert upp.
Bone Thugs-N-
Harmony snýr aftur
^ V FRÁ CLEVELAND er einn sérkennilegasti rapp-
flokkur seinni tíma, Bone Thugs-N-Harmony, sem
hefur notið gríðarlegra vinsælda, ekki síst fyrir sér-
kennilegan spuna á margföldum hraða. Undanfarin
tvö ár hafa þeir félagar fengist við ýmis hliðar-
verkefni, en sendu fyrir stuttu frá sér nýja skífu.
Bone Thugs-N-Harmony-félagar eru frá Cleveland, en þeir
Layzie, Krazyie, Flesh, Wish og Bizzy komu undir sig fót-
unum í Los Angeles með dyggri aðstoð hins alræmda
Eazy-E, sem lést úr alnæmi fyrir nokkrum árum.
Fyrsta platan kom út fyrir sex árum og gekk prýðilega, en
sú næsta, E. 1999 Etemal, seldist í bílförmum. Síðan hafa þeir
félagar fengist við ýmis hliðarverkefni, sent frá sér safnskífur
og gefið út aðra listamenn frá Cleveland. Það var því
vonum seinna að þeir gáfu sér tíma til
að halda í hljóðver að taka upp nýja
skífu, en sú kom út fyrir mánuði og
kallast Btnhresurrection.
Undanfarið hefur gengið fjöll-
um hærra að leiðir þeirra
Bone Thugs-N-Harm-
ony-bræðra hafi skilið,
enda komið út sólóskíf-
ur með tveimur þeirra,
en þeir segja glað-
beittir að allt hafi það
verið nauðsynlegt til
að styrkja samstarfið;
að allir fengju að gera
það sem þeir vildu í
stað þess að vera sí-
fellt fastir á klafa
hljómsveitar. Upp-
tökustjórar eru ýmsir
á skífunni, helstir LT
Hutton, sem hefur meðal
annars starfað með Snoop,
DJ U-Neek, Jimmy JT
Thomas og Darren Vega.
Þeir sem um skífuna hafa
fjallað hafa lofað spunann
hjá þeim félögum og segja
greinilegt að fríið hafi gef-
ið þeim auldnn kraft, en
svona rétt til að tryggja
umtal taka þeir einnig
fyrir í textum umdeild
mál, þar á meðal er lof-
söngur til e-pillunnar.
Safn óútgef-
inna Elvis-laga
ENGINN hefur selt fleiri plötur en Elvis Aron Presley sálugi og enn koma
út plötur með nýju efni þó hann hafi legið í gröfmni í á þriðja áratug. Fyrir
nokkru hóf fyrirtækið sem á útgáfuréttinn að upptökum Elvis, BMG, að gefa
út viðhafnarútgáfur verka hans og bætti við grúa af áður óútgefnu efni, þar á
meðal á safnskífu sem kom út fyrir skemmstu.
Askífunni, sem kallast Such a
Night, eru tuttugu lög, þar af
nítján óútgefin og vekur væntanlega
sterkar tilfinningar í brjóstum Elv-
is-vina sem kannski dvína eitthvað
við að öll eru þau aðrar útgáfur af
frægum lögum hans. Elvis var fræg-
ur fyrir fullkomnunaráráttu sína og
átti það til að taka lög upp í tugum
útgáfna til að vera viss um að allt
væri sem best úr garði gert. Þrátt
fyrir það vann hann hratt og vel og
var fljótur að finna réttu leiðina í
túlkun og flutingi þannig að flestar
eru útgáfurnar nánast eins og sú
sem á endanum komst á plast. Inni á
milli eru þó efnistök, hraði og fras-
eríng öðruvísi, jafnvel allt öðruvísi.
Helstu verk Elvis eru flokkuð í
þrjá hluta, fyrst Sun-upptökurnar,
þá frábæra upptökulotu hans í Am-
erican hljóðverinu og skilaði sér í
Memphis-plötunum, og loks það
sem hann hljóðritaði í Nashville frá
1960 til 64, en þá tók hann upp í næt-
urlotum, alls ellefu slíkum. Ur þeim
ellefu upptökulotum kom 81 lag í út-
gáfu, sem fáir myndu eftir leika og
flest klassísk. Lög eins og Such a
Night, Make Me Know It, Fever,
Girl of My Best Friend, Suspicion
og Please Don’t Drag That String
Around þekkja vísast allir sem á
annað borð þekkja kónginn en þau
eru einmitt á meðal laganna á diskn-
um sem hér er sagt frá. Athygli vek-
ur hvað þeir félagar Dac Pomus og
Mort Schulman áttu mörg lög í
pakkanum, en á þessum tíma voru
þeir sjóðheitir í popplagasmíðinni
og ruddu frá sér hverju afbraðslag-
inu af öðru fyrir Elvis, Fabian,
Bobby Darin og Dion, svo dæmi séu
tekin.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Sigur Rós á siglingu í Lundúnum.
Ný smáskífa
Sigur Rósar
FYRSTU smáskífu Sigur Rósar
ytra, Svefn-g-englar, var vel tekið
og vakti á sveitinni mikinn áhuga.
Næst á dagskrá er takmörkuð út-
gáfa af smáskífu númer tvö sem á
eru fjögur lög, þar af eitt sem ekki
hefur áður heyrst.
Smáskífan Ný batterí kemur
út á morgun, en á henni eru
fjögur lög, eins og getið er.
Fyrst er lagið Rafmagnið búið
sem er endurhljóðblöndun á
hluta úr Nýjum batteríum. Þá
kemur lagið Ný batterí og síðan
lögin tvö sem einnig er að finna
á disknum með tónlistinni úr
Englum alheimsins, Bíum bíum
bambaló og Dánarfregnum og
jarðarförum.
Af Sigur Rós er það annars að
frétta að hljómsveitin heldur til
Bretlands í vikunni til tónleika-
halds með kanadísku sveitinni
Godspeed You Black Emperor!
Fyrstu tónleikarnir verða í
Aberdeen 27. mars, þá í Glasgow
28. og Belfast 30. Ferðin heldur
áfram í apríl, en þá leika sveit-
irnar í Dyflinni 2. apríl, Lundún-
um 3., Wolverhampton 4., Man-
chester 5., Bristol 6. og loks á
tónlistarhátíðinni All Tomorrows
Parties á Camber Sands 9. apríl.