Morgunblaðið - 20.05.2000, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913
115. TBL. 88. ARG.
LAUGARDAGUR 20. MAI2000
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Fjölmenni við minningarathöfn í Enschede
Annar eigenda
vöru:
ge:
Enschede, Amsterdam. AFP, Reuters.
HOLLENSK lögregluyfirvöld til-
kynntu í gær að Wilhelm Pater,
annar eigenda flugeldageymslunn-
ar í Enschede sem sprakk í liðinni
viku með þeim afleiðingum að
a.m.k. sautján manns fórust og
hundruð slösuðust, hefði verið
handtekinn. Maðurinn gaf sig fram
við lögreglu síðdegis í gær en fyrr
um daginn hafði alþjóðleg hand-
tökutilskipun á hendur tveimur eig-
endum vörugeymslunnar verið gef-
in út af hollenskum saksóknurum.
Hins eigandans, sem sagður er
heita R. Bakker, var enn leitað í
gær en tvímenningarnir eru grun-
aðir um að hafa sniðgengið örygg-
isreglur varðandi geymslu eldfímra
efna í vörugeymslum.
Talið er að um 100.000 manns
hafi safnast saman í Enschede í gær
og minnst fórnarlamba sprenging-
arinnar. Wim Kok, forsætis-
ráðherra Hollands, og Willem Al-
exander krónprins fóru fyrir
syrgjendum í þögulli göngu um
götur bæjarins. „Hollendingar allir
eru skelkaðir og sorgmæddir
vegna þessara ógnaratburða,"
sagði Kok við fólkið sem var sam-
ankomið á aðaltorgi bæjarins.
Yfirvöld sögðu í gær að sautján
hefðu farist í sprengingunni í stað
átján eins og talið hafði verið áður.
Þá var sagt að þrettán einstaklinga
væri enn saknað og þar á meðal
væru ung hjón og fjögurra ára barn
þeirra.
Bretar afhenda stjórn Sierra Leone uppreisnarforingja
Friðargæsluliðum SÞ í
landinu verður fjölgað
Freetown, Monroviu, Genf. AP, The Daily Telegraph, Reuters.
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti í gær að fjölga frið-
argæsluliðum samtakanna í Vestur-
Afríkuríkinu Sierra Leone úr 11.000
í 13.000 eftir að tillögur Kofi Ann-
ans, framkvæmdastjóra SÞ, þess
efnis voru lagðar fram. Munu m.a.
Rússar vera reiðubúnir að leggja
fram 115 hermenn og fjórar bryn-
varðar Mi-24-þyrlur. Uppreisnar-
menn í Sierra Leona halda enn yfir
300 gæsluliðum, aðallega Zambíu-
mönnum, föngnum á afskekktum
stað austarlega í landinu og hunsuðu
í gær tilmæli Jesse Jacksons, sér-
legs sendifulltrúa Bandaríkjastjórn-
ar, um að sleppa gíslunum lausum.
Geoff Hoon, varnarmálaráðherra
Bretlands, skipaði í gær breskum
Karlmaður, sem liðsmenn uppreisnarforingjans
Fodays Sankohs í Sierra Leone aflimuðu í átökunum,
við miðstöð fyrir stríðshrjáða borgara í Freetown.
Þúsundir Hollendinga tóku þátt í minningarathöfn um fórnarlömb sprengingarinnar í Enschede
sem varð a.m.k. sautján manns að bana sl. laugardag.
sérsveitarmönnum sem sendir voru
til Sierra Leone að afhenda lög-
gæsluyfirvöldum í landinu uppreisn-
arleiðtogann Foday Sankoh er
stjórnað hefur einni af mörgum
vopnuðum hreyfingum í landinu,
RUF, er fjármagnar stríðsrekstur-
inn með demantasmygli.
Er Hoon sagður hafa ráðgast við
lögfræðinga sem töldu herliðið ekki
hafa neinn rétt á að hafa manninn í
varðhaldi. Bretarnir handtóku San-
koh á miðvikudag. Almenningur í
höfuðborginni Freetown fagnaði
ákaft þegar fregnir bárust af hand-
töku hans og mai-gir kröfðust þess
að hann yrði samstundis tekinn af
lífi. Liðsmenn hans
hafa meðal annars
aflimað lítil börn,
drýgt fjöldamorð
og nauðgað fjölda
kvenna.
Hoon ræddi sím-
leiðis við Ahmed
Tejan Kabbah, for-
seta Sierra Leone,
og tjáði ráðherr-
ann honum að
„mjög óæskilegt"
væri að Sankoh
yrði leystur úr
haldi. Ríkisstjórn
Kabbah hefur ekki
ákveðið hvað gert
verður við fangann
en sagðist í gær ætla að fara vel yfir
mál hans. Óljóst er hvort sakarupp-
gjöf hans sem samið var um er enn í
gildi.
Fyrr í þessum mánuði reyndi
Sankoh á ný að steypa stjórn lands-
ins. Liðsmenn hans hafa ekki tjáð
sig um handtöku leiðtogans en gert
er ráð fyrir að næstráðandi hans,
Sam Bokarie, er gengur undir heit-
inu Moskító, taki við völdum. Fyrr-
um breskur ráðherra, Peter Kilf-
oyle, hefur hitt Moskító. „Hann er
mjög óárennilegur, trylltur náungi,
var hlaðinn vopnum og skotfærum
og virtist vera siðblindur,“ sagði
Kilfoyle.
Giuliani hættir
við framboð
New York. Reuters.
RUDOLPH Giuliani, borgarstjóri
New York, tilkynnti í gær að hann
myndi ekki bjóða sig fram til öld-
ungadeildar Bandaríkjaþings og
batt þar með enda á vangaveltur um
framtíð kosningaslags þeirra Hill-
ary Clinton, forsetafrúar og fram-
bjóðanda Demókrataflokksins til
öldungadeildar fyrir New York-ríki.
Giuliani berst við krabbamein í
Bleiuklædd
hross í Vín
Vín. Reuters.
EF fyrirætlanir borgaryfir-
valda í Vín ná fram að ganga
verða þeir ferðamenn sem kjósa
að skoða borgina úr hestvagni,
einu aðalsmerkja Vínar, að láta
sér lynda að vera dregnir áfram
af bleiuklæddum hestum.
Fyrir borgarráði Vínar ligg-
ur tillaga sem kveður á um að
vagnhestar í Vín verði búnir
sérstökum poka sem kemur í
veg fyrir að þeir ati sögufrægar
göturnar taði. Dýraverndunar-
samtök hafa mótmælt tillög-
unni harðlega og segja að um-
ræddur poki geti valdið bólgum
og núningssárum á afturenda
hrossa, sem sé vart viðunandi.
Valdaránstilraun hersveita í Paragvæ kveðin niður
Stöðugleika komið á
Asuncion. Reuters.
LUIS Gonzalez Macchi, forseti Para-
gvæ, lýsti því yfir í gær að stöðug-
leika hefði verið komið á í landinu að
nýju eftir misheppnaða valdaránstil-
raun hersveita sem eru hliðhollar
Lino Oviedo, útlaga og fyrrverandi
höfuðsmanni í her Paragvæ.
Aðfaranótt föstudags tóku fyrrver-
andi herforingjar og lægra settir of-
urstar í her Paragvæ völdin í stærstu
herdeild landsins og nutu til þess að-
stoðar fjölmennra lögreglusveita og
var markmiðið með aðgerðunum að
steypa stjórn Macchis af stóli.
Fyrr um daginn ríkti mikil spenna
í höfuðborginni er brynvarðir her-
vagnar óku hjá þinghúsinu, gerðu
árás og sprengdu gat í þak bygging-
arinnar. Hermenn hliðhollir stjórn-
völdum náðu þó fljótt að yfirbuga þá
hermenn sem fylgdu valdaræningj-
unum að máli og hafa flestir þeirra
gefist upp og eru nú í höndum yfir-
valda. Yfirmaður hersins vildi þó ekki
segja til um hve margir hermenn
hefðu gefist upp en sagði að í þeim
hópi hefðu verið „nokkrir liðsforingj-
ar og einn fyrrverandi höfuðsmað-
ur“.
í sjónvarpsávarpi í gær sagði for-
setinn að friði hefði verið komið á að
nýju og hét því að færa vitorðsmenn
Oviedos fyrir dómstóla þar sem þeir
yrðu ákærðir fyrir landráð. Forseti
þingsins sagði við fréttamenn að
valdaránsmennirnir hefðu ætlað sér
að fremja fjöldamorð á stjórnarlið-
um, þ.á m. sjálfum sér og forsetan-
um.
Síðdegis í gær samþykkti þing
landsins neyðarlög sem kveða á um
að forsetanum sé heimilt að láta
handtaka hvem þann sem hann
grunar um að hafa tekið þátt í valda-
ránstilrauninni. Gilda lögin í þrjátíu
daga og var þeim þegar hrint í fram-
kvæmd er fjórir þingmenn sem grun-
aðir eru um aðild voru handteknir.
Rudolph
Giuliani
blöðmhálskirtli
og sagði í gær
það vera megin-
ástæðu þess að
hann hefði hætt
við framboðið.
„Ég hef ákveðið
að setja heilsuna
fremst í for-
gangsröðina og
einbeita mér að
því að finna bestu
lækninguna og því mun ég ekki
bjóða mig fram,“ sagði Giuliani á
blaðamannafundi í ráðhúsi New
York í gær. „Þetta er ekki rétti tím-
inn til framboðs.“
Talið er að arftaki Guilianis í
framboði Repúblikanaflokksins til
öldungadeildarinnar verði annað-
hvort Rick Lazio eða Peter King, en
báðir eru þingmenn í fulltrúadeild-
inni og hafa lýst áhuga á að berjast
við Hillary Clinton í kosningunum í
haust. Ráðgert er að halda þing
Repúblikanaflokksins í New York-
ríki hinn 30. þessa mánaðar og þar
verður ákveðið hvaða frambjóðandi
hlýtur útnefningu flokksins.
MORGUNBLAÐIÐ 20. MAÍ 2000
5 69
0 090000