Morgunblaðið - 20.05.2000, Page 4

Morgunblaðið - 20.05.2000, Page 4
4 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Aukin notk- un á örygg- isbtínaði barna í bílum NOTKUN á öryggisbúnaði barna í bflum hefur aukist um 18% á fimm ára tímabili, að því er fram kemur í nýlegri könnun Arvekni, Lands- bjargar og Umferðarráðs á notkun öryggisbúnaðar í bílum. Könnunin var gerð fyrir framan 63 leikskóla í 31 sveitarfélagi og var öryggisbún- aður 1.840 barna skoðaður. í könnuninni kemur einnig fram að 10% bamanna voru laus í bflnum og 18% leikskólabarna voru ein- göngu í bflbelti. Árið 1996 voru 28% barna laus í bflunum í samskonar könnun, en 72% notuðu öryggisbún- að. Það er sama hlutfall og er í nýj- ustu könnuninni, en nokkuð hefur færst í vöxt að börn séu í bílbeltum. Þá kemur í ljós í könnuninni að 59 börn á aldrinum 1-6 ára sátu í fram- sæti bfla andspænis öryggispúða, en slíkir öryggispúðar eru lífshættuleg- ir bömum sem era innan við 140 sm á hæð og 40 kg eða léttari. í Banda- ríkjunum er talið að 150 börn hafi látist af völdum öryggispúða í fram- sætum, þar sem lítil börn þola ekki höggið sem púðinn veldur þegar hann blæs upp á örskotsstundu. Oryggisbúnaður barna skoðaður í Ijós kom að töluverð brögð era að því að barnabflstólar séu ekki rétt frágengnir í bflum, bæði eru þeir ekki á réttum stað og oft ekki rétt festir. Allar bifreiðaskoðanir á land- inu, Aðalskoðun, Athugun og Fram- herji, munu í vikunni 22.-26. maí skoða sérstaklega öryggisbúnað barna í bflum sem koma í skoðun. ---------------------- Ákærður fyrir nauðg'un og líkamsárás Ákærði far- inn tír landi TUTTUGU og þriggja ára gamall maður, sem ríkissaksóknari hefur ákært fyrir nauðgun og líkamsárás, er farinn af landi brott og ekki vitað um ferðir hans. Af þeim sökum hefur ekki verið unnt að birta honum ákær- una en þingfesting hennar í héraðs- dómi hefur verið reynd í tvígang, síð- ast 10. maí. Gefín var út ákæra á hendur mann- inum í febrúar eða rúmum fimm mánuðum eftir að atburðurinn átti sér stað í sumarbústað í Helgafells- sveit í lok ágúst á síðasta ári. Brota- þolinn var tæplega tvítug stúlka sem flutt var á sjúkrahús í Reykjavík eftir árásina sem var alvarlegs eðlis. Hinn granaði var handtekinn fljótlega eftir að stúlkan tilkynnti um atburðinn og rannsókn hafin á málinu sem leiddi til útgáfu ákæra á hendur manninum. Háskólafundur felldi mótmæli við gjaldtöku í MBA-námi HÁSKÓLAFUNDUR felldi í gær tillögu full- trúa stúdenta um að leggjast gegn gjaldtöku fyrir MBA-nám við viðskipta- og hagfræðideild. „Tillaga stúdenta til ályktunar var borin undir atkvæði og felld eftir mikla og uppbyggilega umræðu," sagði Magnús Diðrik Baldursson, að- stoðarmaður rektors. Eiríkur Jónsson, formaður stúdentaráðs, sagði í samtali við Morgunblaðið að mestur tími fundarins hefði farið í að ræða um MBA-námið sem viðskipta- og hagfræðideild áformar að taka upp í haust og hvort skilgreina ætti það sem endurmenntun, sem eðlilegt væri að taka skóla- gjöld fyrir, eða sem venjulegt framhaldsnám. Frávísunartillaga felld Stúdentar lögðu til að í stað þess að skilgreina MBA-námið sem endurmenntun og taka fyrir það gjald myndu háskólayfirvöld leita annarra leiða til að treysta fjárhagslegan grundvöll námsins án þess þó að slíkt bitnaði á fjárfram- lögum til annars náms við skólann. Eiríkur sagði að Guðmundur Magnússon, forseti við- skipta- og hagfræðideildar, hefði lagt til að til- lögu stúdenta yrði vísað frá. Á fimmta tug manna hafði atkvæðisrétt á fundinum og var frávísunartillagan felld með 17 atkvæðum gegn 11 en aðrir sátu hjá, að sögn Eiríks. Hann sagði að stúdentar hefðu lagt áherslu á að málið fengi efnislega afgreiðslu á fundinum. Háskólafund- um var komið á með nýjum háskólalögum í fyrra og segir Eiríkur að þeir eigi að vera æðsti sam- ráðsvettvangur háskólans þar sem teknar eru mikilsverðar ákvarðanir. Þetta hafi verið annar háskólafundurinn og starfshættir samkomunnar séu enn í mótun. Stúdentar hafi því lagt áherslu á að mál af þessu tagi yrðu ekki svæfð þegar þau kæmu fyrir fundinn. Eiríkur sagði að eftir heitar og gagnlegar um- ræður hefði tillaga stúdenta síðan verið tekin til atkvæðagreiðslu og hefðu 20 greitt atkvæði gegn henni, 9 verið henni hlynntir en aðrir greiddu ekki atkvæði. „Þannig að þrátt fyrir að tillagan hefði verið felld var það innan við meiri- hluti fundarmanna sem greiddi hugmyndinni um skólagjöld atkvæði," sagði Eiríkur. Sveltir til hlýðni „Auðvitað var niðurstaðan vonbrigði fyrir okkur og við teljum þetta áhyggjuefni. Að okkar mati er þetta merki um það hvernig háskólinn hefur verið sveltur til hlýðni; menn virðast ekki sjá aðrar leiðir út úr fjársveltinu en að heimta skólagjöld af nemendum." Eiríkur sagði að stúdentar mundu berjast áfram gegn skólagjöldum í MBA-námi og nota sumarið til að ganga á fund alþingismanna enda hafi komið fram sterkar efasemdir um gjaldtök- una í umræðum á AJþingi. „Við munum spyrja þá hvort Alþingi ætli að sitja undir því, ári eftir að sett hafa verið lög um að innheimta ekki skólagjöld, að sveigt sé framhjá lögunum á þennan hátt,“ sagði Eiríkur. Morgunblaðið/Áskell Þórisson Brúin lætur undan ánni ÞEGAR vora tekur fara göngumenn á kreik og halda upp í óbyggðir Iandsins. Þá koma í Ijós ýmsir miskar sem veturinn hefur valdið mannvirkjum göngumanna, eins og reyndin varð með þessa brú yfír Lambá í Glerárdal. Þar voru þeir Áskell Þóris- son og Hilmar Baldvinsson á dögunum að ganga að kofanum Lamba, sem Ferðafélag Akureyrar á, og voru þeir fyrstu gestir sumarsins þar samkvæmt gestabók. Áð sögn þeirra félaga var magnað að sjá hvernig þessi „spræna“ hefur kastað níðþungum steinum upp á brúna í vatnavöxtum eftir veturinn, en framundan biður það starf að endurreisa brúna. Það er Hilmar sem þarna prflar yfir grjótið sem straumurinn hefur kastað upp á brúna. Hlutur Flugleiða lækkað um 697 milljón- ir króna í MORGUNPUNKTUM Kaupþings í gær var sagt frá því að gengi félags- ins Equant, sem Flugleiðir eiga hlut í, hafi lækkað veralega á síðustu vik- um. Markaðsvirði eignarhlutar Flugleiða var 1.095 milljónir króna um síðustu áramót en við lokun markaða í gær hafði þessi hlutur lækkað um 64%, eða sem nemur 697 milljónum króna. Equant er að sögn Einars Sig- urðssonar, framkvæmdastjóra hjá Flugleiðum, fyrirtæki í hátækni- geira sem þjónar alþjóðlegum fyrir- tækjum með sérstakar fjarskipta- þarfir. Segir hann að um sölu á eignarhlut Flugleiða í fyrirtækinu gildi strangar reglur og að Flugleiðir geti ekki keypt og selt nema á tfl- teknum tímapunkti sem fyiirtækið geti ekki endilega vitað um fyrir- fram. Ennþá mikil dulin verðmæti í desember gafst Flugleiðum færi á að selja síðast og gat félagið þá inn- leyst söluhagnað upp á 430 milljónir króna með sölu á 34% af hlut félags- ins í Equant. Að sögn Einars er Equant aðeins bókfært á örfáar milljónir króna í reikningum Flug- leiða, þannig að enn séu mjög mikfl dulin verðmæti í þessari eign. Myníiskreytt rílfra'ðibók - stórvirki fyrir náUuruunnendur VAKA-HELGAFELL Siðumúki 6 • Sími SSO BOOt) V ir kj anasamningar voru undirritaðir RAFIÐNAÐARSAMBANDIÐ, Samiðn og Verkamannasambandið gengu frá kjarasamningi við Samtök atvinnulífsins og Landsvirkjun vegna starfsmanna á virkjanasvæð- um hjá ríkissáttasemjara í íyrrinótt. Samningarnir era sambærilegir örðum kjarasamningum á almenna vinnumarkaðinum hvað varðar prós- entuhækkanir og gildistíma. í samn- ingunum felast einnig breytingar á vaktavinnufyrirkomulagi o.fl. 154 þúsund kr. lágmarkslaun tryggð Rafiðnaðarsambandið hafði sett fram þær kröfur að ekki yrði gengið til endumýjunar á virkjanasamningi nema tryggð yrðu lágmarkslaun í samræmi við meðallaun á almennum markaði vegna erlendra verktaka við virkjanaframkvæmdir. Á heima- síðu Rafiðnaðarsambandsins kemur fram að fallist hafi verið á þessar kröfur og í nýgerðum samningi séu lágmarkslaun rúmlega 154 þúsund kr. að meðtalinni desember- og or- lofsuppbót og verkfærapeningum. Samið við flugumsjónarmenn og flugfreyjur hjá FI Gengið var frá tveimur öðram kjarasamningum í húsnæði ríkis- sáttasemjara í fyrrakvöld og fyrri- nótt. Náðust samningar á milli Flugfreyjufélags íslands og Flugfé- lags íslands og Flugumsjónarmenn hjá Flugleiðum og viðsemjendur þeirra skrifuðu einnig undir nýjan kjarasamning. Nokkrir viðræðufundir hjá sáttasemjara í gær Viðræður Samiðnar og Reykja- víkurborgar héldu áfram í gær og era taldar góðar líkur á að samning- ar muni nást. Þá vora samninga- nefndir Félags íslenskra atvinnu- flugmanna og Flugskóla íslands í viðræðum hjá ríkissáttasemjara í gær og samninganefndir Eflingar og ríkisins héldu héldu einnig við- ræðum sínum áfram í gær án þess að drægi til sérstakra tíðinda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.