Morgunblaðið - 20.05.2000, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
# Morgunblaðið/Árni Sæberg
Olafur Ragnar Grímsson, forseti fslands, skoðaði sýninguna í Perlunni í gær og fór vel á með honum og gestum.
Sölusýning á framleiðslu íbúa Sðlheima í Perlunni
Innsýn í líf á Sólheimum
Kjaradeilan í fískimjölsverksmiðjum
Sáttafundur
boðaður í dag
ÍBIJAR Sólheima í Grímsnesi halda
sölusýningu á eigin framleiðslu í
Perlunni um helgina; Ólafur Ragn-
ar Grímsson forseti íslands opnaði
sýninguna formlega í gær, en hún
er liður í hátíðahöldum vegna 70
ára afmælis Sólheima sem fagnað
er í ár.
„Við erum að flytja alla okkar
starfsemi eina helgi til Reykjavíkur
til að gefa fólki tækifæri á að sjá
hvað við erum að gera dags dag-
lega fyrir austan og til að veita
fólki innsýn í líf og störf á Sólheim-
um. Þetta er líka tækifæri til að
koma vörunum okkar á framfæri
og þeirri þjónustu sem við bjóðum
upp á,“ sagði Guðmundur Ármann
Pótursson, forstöðumaður atvinnu-
sviðs Sólheima, í samtali við Morg-
unblaðið.
Fjölbreytt og sérstök
starfsemi kynnt
Á Sólheimum er fjölbreytt starf-
semi og á sýningunni gefur að líta
flcst sem staðurinn hefur upp á að
bjóða. Fimm fyrirtæki eru á Sól-
heimum; lífræn garðyrkjustöð og
skógræktarstöð, gistiheimili, versl-
un og listhús. Einnig eru þar nokkr-
ar vinnustofur og er fyrirhugað að
bæta við keramikstofu og vinnust-
ofu þar sem unnið verður með jurt-
ir. Þá verður fljótlega opnaður
höggmyndagarður á Sólheimum.
Trjáplöntur, sumarblóm, kerti og
málverk og alltþar á milli er til
sýnis og sölu á sýningunni, að sögn
Guðmundar. Hann segir vörurnar
mjög forvitnilegar. „Þetta eru
meira og minna allt vörur sem eru
mjög sérstakar, sama hvert er litið,
þú færð þær hvergi annars staðar,"
sagði Guðmundur.
Hann bendir á að öll sumarblóm-
in séu lífræn, smfðavörurnar séu
einstakar og kertin finnist hvergi
annars staðar á markaði.
Opið og gott samfélag
Guðmundur segir stefnt að þvi að
láta draum rætast um að opna litla
verslun með framleiðsluvörur Sól-
heima í borginni innan fárra ára.
IÐNAÐAR- og viðskiptaráðherra,
Valgerður Sverrisdóttir, telur að það
myndi efla og styrkja starfsemi Raf-
magnsveitna ríkisins ef höfuðstöðvar
þeirra væru á Akureyri. Engar
ákvarðanir verði þó teknar fyrr en að
lokinni úttekt á hagkvæmni og áhrif-
um hugsanlegs flutnings. Kom þetta
Fram til þessa hafa vörurnar hins
vegar nær eingöngu verið seldar á
Sólheimum.
Guðmundur segir fólk í auknum
mæli leggja leið sína austur á Sól-
heima til að njóta þess sem þar er f
boði en vonast til að sýningin skili
því að fleiri sjái að Sólheiinar eru
opið og gott samfélag sem hefur
Qölbreyttar vörur og þjónustu á
boðstólum og velkomið er að sækja
heim.
Ókeypis er á sýninguna sem er
opin frá klukkan eitt til sex í dag og
á morgun.
fram í erindi ráðherra á fjórða árs-
fundi Rarik sem haldinn var á Hótel
Borgarnesi í gær.
Á ársfundi Rarik var meðal annars
fjallað um fyrirhugaðar breytingar á
skipan raforkumála og aðlögun Rar-
ik að þeim en hugmyndirnar ganga
út á að koma á samkeppni í vinnslu
og sölu raforku. Iðnaðar- og við-
skiptaráðherra sagði í ávarpi sínu að
í ráðuneytinu væri verið að ljúka við
endanleg drög raforkulagafrum-
varpsins. Stefnt væri að því að end-
urskoðun frumvarpsins lyki í sumar
og það lagt fyrir Alþingi næsta haust
þannig að ný raforkulög verði sam-
þykkt á næsta vetri.
Uppstokkun á Rarik
nauðsynleg
Kristján Jónsson, rafmagnsveitu-
stjóri, sagði í ræðu sinni að breyting-
amar hefðu í for með sér að gera
þyrfti algera uppstokkun á flestum
sviðum fyrirtækisins. Hann gat þess
meðal annars að skipta þyrfti fyrir-
tækinu upp í þijár sjálfstæðar aðal-
deildir um framleiðslu, flutning,
dreifingu og sölu á rafmagni. Að-
greina þyrfti óarðbæra hluta flutn-
ings- og dreifikerfa í bókhaldi.
Rekstur þjónustu- og stoðdeilda yrði
að vera óháður aðaldeildum. Breyta
þyrfti rekstrarformi fyrirtækisins í
hlutafélag. Þá þyrfti að efia mark-
aðs- og sölustarfsemi Rarik svo fyr-
irtækið gæti haslað sér völl á stærsta
og arðbærasta orkumarkaðnum þeg-
ar samkeppnin héldi innreið sína.
Fram kom hjá rafmagnsveitustjóra
SÁTTATILRAUNIR í kjaradeilu
starfsmanna fiskimjölsverksmiðja á
Norður- og Austurlandi og vinnu-
veitenda hefjast að nýju hjá ríkis-
sáttasemjara kl. 11 í dag. Sigui’ður
Ingvarsson, formaður Alþýðusam-
bands Austurlands, var í gær ekki
sérlega bjartsýnn fyrir fundinn en
verkfall u.þ.b. 200 starfsmanna í
fiskimjölsverksmiðjum í 8 byggðar-
lögum norðan- og austanlands hefur
nú staðið yfir frá því á þriðjudag.
Sigurður sagði að mikið hefði borið
á milli deiluaðila þegar viðræðum var
hætt sl. mánudag. „Það var líka mikil
stífni en það kemur í ljós á morgun
hvort það hefur breyst. Eg er ékki
bjartsýnn nema menn komi að þessu
með öðru hugarfari,“ sagði hann.
Hvergi virðist hafa komið til að-
gerða eða átaka vegna löndunar
skipa í verkfallinu að sögn Sigurðar.
Hann sagði að þau skip sem hófu
veiðar áður en verkfallið kom til
framkvæmda fengju að landa aflan-
um en gripið yrði til aðgerða ef skipin
færu aftur til veiða og reyndu löndun
úr þeim veiðitúr.
Sagði hann verkalýðsfélög starfs-
manna sem eru í verkfalli nytu
stuðnings víða en sagði að sér væri
ekki kunnugt um að útgerðir ætluðu
að senda skip á veiðar og reyna lönd-
un úr þeim.
Alþýðusambandið hafði samband
við systursamtök sín í Færeyjum
með ósk um að ekki verði landað úr
íslenskum skipum meðan á verkfall-
inu stæði. Færeyingarnir urðu strax
við þeirri beiðni og ætluðu sl.
fimmtudag að koma í veg fyrir lönd-
un úr Jóni Kjartanssyni og Sunnu-
að unnið er að undirbúningi þessara
breytinga.
Fram kom hjá Kristjáni og Sveini
Þórarinssyni, stjórnarformanni Rar-
ik, að jöfnun orkuverðs í landinu hafi
að mestu leyti farið fram í gegnum
þrjú fyrirtæki, Landsvirkjun, Rarik
og Orkubú Vestfjarða. Birtist hún
sem hallarekstur á þeim fyiirtækj-
um sem annast raforkudreifingu í
strjálbýli, það er að segja Rarik og
Orkubúi Vestfjarða, og bitnaði á við-
skiptavinum þeirra. Fram kom hjá
Sveini að bein útgjöld vegna þessa
óarðbæra þáttar í rekstri fyrirtækis-
ins væri talinn nema um 500 milljón-
um króna á ári. Kristján fagnaði hug-
myndum sem fram hafa komið um að
dreifa þessum byrðum sem jafnast á
alla landsmenn.
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, sagði að margt
benti til þess að staða Rarik verði
sterkari í nýju skipulagi raforkumála
en verið hafi til þessa. Hún gat þess
að miðað væri við að fyrirtækin í
greininni yrðu gerð að hlutafélögum.
Þá minnti hún á niðurstöður nefndar
um raforkuflutning þar sem lagt er
til að jöfnun kostnaðar við rafoi’ku-
flutning svo og óarðbærar fram-
kvæmdir í flutningskerfinu verði
gerð með skatttekjum.
Mótvægi við sterku
orkufyrirtækin
Iðnaðarráðherra fjallaði um hug-
myndir bæjarstjórans á Akureyri
um sameiningu Rarik og Orkuveitu
Akureyrar og flutning höfuðstöðv-
bergi, sem komu til Færeyja með
fullfermi af kolmunna til löndunar.
Sigurður sagði að ekki hefði staðið til
að Færeyingar kæmu í veg fyrir los-
un úr þessum skipum þar sem þau
hefðu hafið veiðiferð áður en verk-
fallið hófst.
Áhafnir 11 skipa mótmæla því
að dragast inn í kjaradeiluna
Áhafnir sjómanna á Jóni Kjartans- ;
syni, Óla í Sandgerði, Hákoni,
Bjarna Ólafssyni, Hólmaborg, Beiti,
Berki, Sveini Benediktssyni, Sunnu-
bergi, Ásgrími Halldórssyni og Gull-
bergi hafa sent frá sér yfirlýsingu
með mótmælum um að vera dregnir
inn í kjaradeilu starfsfólks í fiski-
mjölsverksmiðjum og vinnuveitenda.
„Lagður er steinn í götu sjómanna
með því að stöðva losun úr íslenskum
skipum í verksmiðjum sem ekki eru 1
verkfalli og í erlendum verksmiðjum. I
Þetta eykur ekki á samheldni launa-
manna til sjós og í landi. Fyrir nokkr-
um árum voru íslenskir sjómenn í
verkfalli og þá lönduðu erlend fiski-
skip síld í íslenskar verksmiðjur, að-
allega í þær verksmiðjur þar sem
verkfall stendui- yfir núna. Hver er
munurinn á?“ segir m.a. í yfmlýsingu
áhafnanna.
„Við teljum að þeir séu ekki að
beina þessu að réttum aðilum," sagði
Sigurður Ingvarsson um yfirlýsingu .
sjómannanna. „Við teljum okkur
hafa farið mjög mildilega í þessai’ að-
gerðir svo þær röskuðu sem minnstu
en það fylgir verkfóllum að þau bitna
gjama á þriðja aðila og það skapar
reyndar þrýsting á lausn deilunnar,“
sagði hann.
anna til Akureyrar. Ríkisstjórnin
samþykkti fyrr á árinu að hefja við-
ræður um málið. „Ég tel það mjög
áhugavert að efna til þessa samstarfs
við Akureyrarbæ. Fyrri athuganú’
bentu til þess að sameining myndi
skila verulegri hagræðingu og það er
verðugt athugunarefni hvort ekki
væri skynsamlegt og hagkvæmt að
koma á fót nokkuð öflugu orkufyrir-
tæki norðanlands til að skapa eitt-
hvað mótvægi við hin sterku orku-
fyiirtæki sem eru að eflast á
höfuðborgarsvæðinu auk
Landsvirkjunar,“ sagði Valgerður og
bætti við; „Og ég tel að það mynd efla
og styrkja starfsemi fyrirtækisins ef
höfuðstöðvar þess væru á Akureyri."
Hún gat þess þó að engar ákvarðanir
yrðu teknar um þetta fyrr en að lok-
inni úttekt á hagkvæmni og áhrifum
hugsanlegs flutnings.
Fram kom hjá Sveini Þórarinssyni
að sex aðilar hefðu lýst áhuga á að
taka að sér það verkefni að gera út-
tekt á málinu fyrir ríkið og Akureyi'-
arbæ en endanlegt val á þeim aðila
hefði enn ekki farið fram. Gert er ráð
íýrir að úttektinni verði lokið fyrir 1.
október næstkomandi. Lýsti Sveinn
skilningi á áhyggjum starfsfólks
Rarik í Reykjavík en þar vinna 59
starfsmenn af um 230. Hann sagði að
allai’ ákvarðanir um framvindu máls-
ins hlytu að markast af almennum
arðsemissjónarmiðum. „Leiði hugs-
anlegar breytingar til lægri kostnað- i
ar, bættrar þjónustu og betri nýting-
ar á mannafla og mannvirkjum munu
þær ná fram að ganga,“ sagði Sveinn.
BM-VALLÁ
Söludeild í Fomalundi
Breiðhöfða 3 • Sími 585 5050
Borgarskífa
Þakskífur með 25 ára ábyrgð
fegra húsið þitt.
Kynntu þér málið á
www.bmvalla.is.
www.bmvalla.is
Breytingar á skipan raforkumála ræddar á ársfundi Rarik
Myndi efla Rarik að
flytja til Akureyrar