Morgunblaðið - 20.05.2000, Side 8

Morgunblaðið - 20.05.2000, Side 8
8 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Íslandsbanki-FBA metinn á 58 milljarða: Nei, Orri minn, við náum ekki þessum, þetta er ekki villtur lax, þetta er eldislax. NYTT A iSLANDl IÉm ® Dr. Edwards Bach Upplýsingamidstöð myndlistar Inn eru komnir 290 listamenn Katrín Guðmundsdóttir Upplýsingamiðstöð myndlistar hóf starfsemi 1995. Aðalhlutverk hennar er að safna saman í gagnabanka upplýsingum um feril og verk allra myndlistar- manna á Islandi fyrr og síðar. Miðlun þessara upp- lýsinga fer fram á Netinu. Katrín Guðmundsdóttir veitir Upplýsingamiðstöð myndlistar forstöðu - hún var spurð hvernig gengi að koma þessu verkefni áfram. „Starfinu hefur miðað mjög vel. Við fengum Margmiðlun hf. til þess að útbúa upplýsingakerfi sem er grundvallað á Lot- us Notes, sem er gagna- grunnur. Samhliða þessu var farið safna upplýsingum um listamennina og það starf er auð- vitað enn í gangi.“ -Hvað eruð þið komin með upplýsingar um marga iistamenn inn á kerfíð? „Við erum komin með upplýs- ingar um 290 listamenn en að vísu vantar eitthvað af upplýsingum um suma þeirra. Alltaf bætast fleiri við. Meðal annars stendur til að leikmynda- og búningahöfund- ar verði með í þessum hópi lista- manna. Við erum líka að vinna að því að skrá feril látinna íslenskra myndlistarmanna. Það er gífurleg vinna, það vantar svo miklar upp- lýsingar og einnig þarf að huga að höfundarrétti og öðru slíku, út- vega myndir og margt fleira.“ - Birtið þið myndir eftir iista- mennina á Netinu? „Hver og einn myndlistarmað- ur fær myndir af sex verkum inn á sína skráningu og einnig eru birtar myndir af listamönnunum sjálfum. Síðan er sagt frá námi listamannsins og helstu störfum tengdum myndlist sem hann hef- ur innt af hendi, t.d. í sambandi við kennslu og félagsmál. Einnig er rakinn sýningarferill viðkom- andi, bæði einkasýningar og sam- sýningar eftir því sem upplýsing- ar eru til um. Þá er sagt frá ef viðkomandi listamaður hefur fengið styrki, verðlaun eða annað slíkt. Ennfremur er talið upp hvaða söfn og stofnanir eiga verk eftir listamanninn. Siðast en ekki síst er reynt að tíunda umfjöllun um viðkomandi listamann sem hann hefur fengið í fjölmiðlum, svo sem viðtöl og gagnrýni.“ - Er fólk viljugt að útvega ykk- ur upplýsingar? „Já, það hafa yfirleitt langflest- ir mikinn áhuga á að vera með í þessu. Við byrjuðum á að senda öllum sem eru í Sambandi ís- lenskra myndlistarmanna kynn- ingu á þessu verkefni og þeim var boðið að senda inn upplýsingar og myndir af verkunum. Mest kom fyrst en enn eru að berast upp- lýsingar, það líður ekki svo vika að ekki bætist við safnið." - Hvað með erlent samstarf? „Það hefur ekki ver- ið mikið hingað til en hingað eru þó oft að berast fyrirspurnir um einstaka listamenn og verk þeirra. Svo hafa sýningarstjórar sem eru að velja inn á sýningar not- fært sér vef okkar til þess að skoða og velja verk eftir íslenska listamenn. Þetta er enda eitt af markmiðunum með þessari starf- semi - að auðvelda val á lista- mönnum og verkum þeirra t.d. til sýningahalds og kynninga.“ - Hvaða önnur markmið lögðu þið upp með? ► Katrín Guðmundsdóttir fædd- ist á Húsavík 26. október 1961. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1981 og prófi í bókasafns- og upplýsingafræði frá Háskóla ís- lands 1987. Prófi frá Myndlista- og handíðaskóla íslands lauk hún 1991. Hún hefúr unnið sem auglýsingastjóri um árabil en starfar nú sem forstöðumaður á Upplýsingamiðstöð myndlistar. Katrín er gift Arna Frey Sigur- laugssyni kennara og eiga þau tvær dætur. „Að hafa upplýsingar um alla íslenska myndlistarmenn fyrr og síðar aðgengilegar á einum stað, þannig að hver sem er geti kynnt sér íslenska listamenn og verk þeirra. Ekki síst er þetta mikil- vægt fyrir skóla og menntastofn- anir og alla þá sem stunda rann- sóknir eða vinna að einhverjum verkefnum tengdum myndlist. Þetta jafnar líka aðstöðu mynd- listarmanna til þess að kynna sig og sín verk og koma sér á fram- færi, þetta er mikilvægt fyrir t.d. listamenn sem búa fjarri höfuð- borginni. Frá upphafi var ákveðið að gagnabankinn yrði aðgengileg- ur á Netinu og miðlun efnis færi fyrst og fremst fram þar, sem þýðir að allir hafa aðgang að hon- um hvar sem þeir búa og hvenær sem er sólarhringsins. Vefslóð okkar er www.umm.is" - Hvernig hefur gengið að fjár- magna þessa starfsemi? „Fjármagnið er fyrst og fremst komið frá menntamálaráðuneyt- inu sem er einn af þremur aðilum sem standa að Upplýsingamið- stöð myndlistar, hinir tveir eru Myndstef, sem er samtök mynd- höfunda, og SÍM (Samtök ís- lenskra myndlistarmanna). Þeir tveir síðastnefndu leggja til hús- næði og aðstöðu." - Hvernig er gagnagrunnurinn uppbyggður? „Hann er tvískiptur. Annars vegar eru upplýsingar um mynd- listarmenn svo sem fyrr greinir en hins vegar eru svo upplýsingar sem einkum eru ætlað- ar myndlistarmönnun- um sjálfum. Þar eru t.d. upplýsingar um sýningarstaði, styrki, vinnustofur og skóla, Framtíðarsýnin er að hægt verði að finna upplýsing- ar um alla íslenska myndlistar- menn fyrr og síðar á einum stað og um öll verk þeirra. Einnig er stefnt að því að opna allsherjar myndverkabanka. Þar yrði hægt að skoða verk íslenskra myndhöf- unda, kaupa afnotarétt til ákveð- inna umsaminna verkefna og allt færi þetta fram á Netinu." Stefnt að opn- un allsherjar myndverka- banka

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.