Morgunblaðið - 20.05.2000, Page 16
16 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
h
AKUREYRI
Garðyrkjustöðin Grísará í Eyjafirði
með umfangsmikla starfsemi
• /
Stjupurnar
langvinsælustu
sumarblómin
STARFSFOLK í Garðyrkjustöð-
inni Grísará í Eyjafjarðarsveit hef-
ur í nógu að snúast þessa dagana en
sala á sumarblómum er nú að hefj-
ast og þá er oft mikið að gera.
Starfsemi stöðvarinnar hefur vaxið
jafnt og þétt á þeim 50 árum sem
liðin eru frá því hún hófst og nú eru
þar framleiddar garðplöntur, sum-
arblóm, tré og runnar, grænmetis-
plöntur bæði til eigin nota og sölu
og þá er framleiðsla á skógarplönt-
um umfangsmikil. Félagið framleið-
ir plöntur m.a. fyrir svonefnda
Norðurlandsskóga en í ár er magn-
ið um 300 þúsund plöntur. Þetta er
þriðja árið sem skógarplöntur eru
framleiddar fyrir Norðurlands-
skóga að sögn Eiríks.
HunangsflugTirnar á ferð og
flugi innan um runnaplöntur.
8*/
Best að planta
sem fyrst
Sala sumarblóma og plantna er
nú að hefjist af fullum krafti og
sagði Eiríkur að þeir væru margir
sem vildu kaupa sumarblómin
snemma. „Það eru einkum þessir
reyndari sem koma snemma, það er
betra að setja sumarblómin niður
seinni hlutann í maímánuði, ef veðr-
ið er gott á þeim tíma þola blómin
alveg þó komi frostnætur í byrjun
júní eins og oft er,“ sagði Eiríkur.
Hann benti einnig á að betra
væri að planta sumarblómunum áð-
ur en þau færu að blómstra, þá
yrðu þau sterkari og fallegri, en
margir vildu kaupa blómin blómstr-
andi.
„Það eru alltaf einhverjir sem
planta ekki út sumarblómunum
fyrr en um 17. júní og þá eru þau
vitanlega blómstrandi, en þessi
blóm verða aldrei eins falleg og
Sumarblómin seld
víða um land
Hádegisverðarfundur með Valgerði
Sverrisdóttur iönaðar- og viðskiptaráðherra
á Fiðiaranum, Skipagötu 14,
miðvikudaginn 24. maí frá kl. 12.00 til 13.00
1 Á aö beita sértækum lausnum í byggðamálum?
1 Hve langt á að ganga í að halda öllu landinu í byggð?
1 Er ekki höfuðborgin aö springa?
1 Er það ekki byggðastefna að lofa henni að vaxa með eðlilegum
hraða?
1 Hvað þarf til að fólksfjölgun á Akureyri verði yfir meðaltali
landsins?
Er í vændum einhver stefna í því að flytja ríkisstofnanir út á land?
Er byggðakvóti lausnarorð fyrir sjávarþorp sem hafa misst frá sér
aflaheimildir?
’ Eigum við yfirleitt að horfa til orku/stóriðju þegar við hugum að
uppbyggingu svæðisins eða einbeita okkur að öðrum lausnum?
1 Eða er virkjun og stóriðja forsenda framtíðaruppbyggingar á
svæðinu?
' Enn frekari uppbygging háskólamenntunar á landsbyggðinni?
1 Getur stórfellt laxeldi orðið stóriðja Eyjafjarðar?
Þetta, og ýmislegt fleira, mun Valgerður fjalla um og
svara spurningum fundarmanna.
Fjölmennum á síðasta fundinn „í sóknarhug" að sinni.
Verð kr. 1.000 (léttur hádegisverður innifalinn)
Allir velkomnir
Skráning hjá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar i síma 461 2740
eða á netfangi benedikt@afe.is.
Morgunblaðið/Kristján
Margrét Sigurðardóttir með
vínberjaplöntu í einu af gróður-
húsunum á Grísará.
standa líka styttra," sagði Eiríkur.
Stjúpurnar eru langvinsælustu
sumarblómin og hafa verið lengi,
„sennilega af því þær eru fallegar
þó að viðri illa og þær þola kuldatíð
ágætlega," sagði Eiríkur en hann
gerði ráð fyrir að um helmingur af
allri sumarblómaframleiðslu fyrir-
tækisins væri einmitt stjúpur. „Svo
koma alltaf upp einhverjar tísku-
bylgjur en mér finnst þær meira
snúast um liti en tegundir,“ sagði
Eiríkur og kvaðst hafa heyrt að
tískulitirnir færu eftir því hver
hefði verið aðalliturinn í kvenfata-
tísku ársins á undan.
til að kaupa sumarblómin sín sem
og heimamenn í sveitinni, en fyrir-
tækið seldi blóm og plöntur víða um
land, m.a. aila leið vestur á ísafjörð
og austur á firði. Þá væri farið í
söluferðir til þéttbýlisstaða út með
Eyjafirði, til Grenivíkur, Dalvíkur
og Ólafsfjarðar svo eitthvað væri
nefnt.
„Sumarblómin eru alltaf jafnvin-
sæl, en það eru líka til þeir sem
bara vilja fjölær blóm og við bjóð-
um upp á þau líka,“ sagði Margrét.
Uppskerutíminn
skemmtilegur
Stöllurnar Margrét Sigurðar-
dóttir og Jóhanna Kjartansdóttir
sem starfa á Grísará sögðu að fram-
leiðslan væri um 100 þúsund plönt-
ur á ári og tegundimar fjölmargar.
Margrét sagði að Akureyringar
væru duglegir að renna fram í fjörð
Heldur kalt var í veðri daginn
sem Morgunblaðsmenn voru í
heimsókn á Grísará og þær Mar-
grét og Jóhanna sögðu að vitanlega
væri skemmtilegra í vinnunni þegar
sólin skini, „en vorverkin er samt
alltaf skemmtileg, sama hvernig
viðrar. Það er alltaf nóg að gera á
vorin, mikið líf og fjör,“ sögðu þær.
Reyndar kváðu þær ekkert síður
skemmtilegt að starfa á gróðrar-
stöðinni þegar kæmi að uppskeru-
tíma. „Við byrjum á að taka upp
rófurnar, svona um miðjan júlí og
svo tekur hver tegundin við af ann-
arri allt fram í október, þegar rauð-
rófurnar eru teknar upp, þær eru
síðastar í röðinni."
Óvíst hvað verður um rússneska
togarann Omnya
Ekki lengur
greidd hafna-
gj'öld af skipinu
ALLS er óvíst hvað verður um rúss-
neska verksmiðjutogarann Omnya,
sem legið hefur við bryggju á Akur-
eyri frá því í september 1997. Marel
Trading, fyrirtæki í eigu Marels,
Stáltaks (Slippstöðvarinnar), Kælis-
miðjunnar Frost og Hampiðjunnar,
sem greitt hefur hafnagjöld af skip-
inu, hefur sagt sig frá öllum afskipt-
um af því frá 1. desember sl. Frá
þeim tíma hafa engin hafnagjöld
fengist greidd og að sögn Harðar
Blöndals, hafnarstjóra Hafnasam-
lags Norðurlands, er ekkert vitað
um áform eiganda skipsins, Karel-
RybFlot A/O í Murmansk.
Hörður sagði að hafnagjöld vegna
skipsins væru um 145 þúsund krón-
ur á mánuði og því hafa verið
greiddar um 3,9 milljónir króna í
hafnagjöld, frá því skipið kom árið
1997 og fram til 1. desember sl. Úti-
standandi skuldir frá þeim tíma eiu
um 800 þúsund krónur.
Hann sagði að ýmissa leiða hafi
verið leitað til að finna lausn á mál-
inu, m.a. pólitískra leiða en án
árangurs. Undanfai-na mánuði hafi
verið reynt að innheimta skuld íúss-
neska fyrirtækisins en að ekki hafi
fengist nein viðbrögð við erindi
Hafnasamlagsins. Hörður sagði að
ef ekki yrði breyting þar á, væri
næsta skref að afhenda málið lög-
manni og því gæti komið til þess að
skipið yrði hreinlega boðið upp.
Marel Trading gerði samning við
rússneska útgerðarfyrirtækið árið
1997, um viðamiklar endurbætur á
tveimur togurum þess, auk viljayfir-
lýsingar um sams konar verk til við-
bótar á fjórum öðrum togurum fé-
lagsins en alls gerir fyrirtækið út
um 30 togara. Hjá Slippstöðinni
voru gerðar þessar breytingar á
tveimur skipum fyrirtækins, Opon
og Olenty og sagði Ingi Björnsson,
aðstoðarframkvæmdastjóri Stál-
taks, að þar hefði verið um að ræða
upp undir 200 milljóna króna verk-
efni í hvoru skipi. Greiðslur fyiár
verkefnin voru í formi afurða af
skipunum en greiðslur hafa skilað
sér hægar en upphaflega var gert
ráð fyrir en þær eru þó að skila sér,
að sögn Inga.
Vonast enn eftir stóru
verkefni í Omnya
„Meiningin var alltaf að halda
áfram að gera upp skip fyrir þetta
félag en svo kom nú upp þessi krísa í
Rússlandi sem setti strik í reikning-
inn,“ sagði Ingi og bætti við að þó
málið hefði frestast og greiðslum
seinkað hefðu menn ekki gefið sam-
starf við Rússana upp á bátinn.
Menn horfi því enn til þess að um
stórt verkefni geti verið að ræða í
Omnya.
Togarinn lá lengi við Torfunefs-
bryggju á Akureyri og veturinn
1997-1998 voru nokkrir rússneskir
skipverjar þar um borð. Eftir að
þeir fóru til síns heima vorið 1998,
hefur skipið verið mannlaust. Skipið
var svo fært í Fiskihöfnina en hefur
legið við Slippkantinn undanfarna
mánuði.
Skipið er 62 metra langt og tekur
því nokkurt pláss við Slippkantinn.
Hörður hafnarstjóri sagðist vel geta
hugsað sér að losna við skipið, ef
ekki kemur til þess að ráðist verður
í endurbætur á því. Rússneska fyr-
irtækið hefur fengið að vita af því en
ekki hafa fengist viðbrögð við því
frekar en öðru.
Myndlistarskólinn á Akureyri
Vorsýning um helgina
VORSÝNING Myndlistarskólans á
Akureyri verður haldin um helgina,
en hún verður opnuð kl. 14 í dag-
Jaugardag 20. maí. Hún verður í
húsakynnum skólans að Kaup-
vangsstræti 16 en þetta er í tuttug-
asta og sjötta sinn sem skólinn efn-
ir til vorsýningar.
Sautján nemendur ljúka eins árs
fornámi frá listfræðsludeild og sex
þriggja ára námi í sérnámsdeildum,
einn úr fagurlistadeild, málun og
fimm úr listhönnunardeild, graf-
ískri hönnun. Nemendur útskrifast
úr sérnámsdeildum eftir þriggja
ára nám með því að vinna lokaverk-
efni innan sérgreinarinnar.
Öllum er velkomið að koma á
sýninguna og að kynna sér starf-
semi Myndlistarskólans á Akur-
eyri, en á sýningunni gefst gestum
kostur á að skoða úrval verka sem
nemendur skólans hafa unnið í vet-
ur.
Sýningin verður opin á laugardag
og sunnudag, frá kl. 14 til 18.
Kirkjustarf
4
n # # y a
Mmmmj I f
f
Símenntunarstjóri RHA
Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri óskar að
ráða í starf símenntunarstjóra. Símenntunarstjóri
hefur umsjón með og skipuleggur símenntun og
ráðstefnuhald innan Rannsóknastofnunar. Auk þess
sinnir hann rannsóknavinnu. Krafist er háskóla-
menntunar.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf, skulu sendar
RHA, Sólborg, 600 Akureyri.
Umsóknarfrestur er til 5. júní nk. Laun samkvæmt
kjarasamningum Starfsmannafélags ríkisstofnana.
Upplýsingar gefur
Trausti Þorsteinsson, framkvæmdastjóri.
AKUREYRARKIRKJA: Messa i
kirkjunni kl. 11 á morgun, sunnudag.
Sr. Guðmundur Guðmundsson hér-
aðsprestur messar. Morgunsöngur í
kirkjunni kl. 9 á þriðjudag. Aðalsafn-
aðarfundur Akureyrarsóknar verður
í Safnaðarheimilinu kl. 20 næsta mið-
vikudagskvöld. Kynúar- og fyrir-
bænastund kl. 12 í hádeginu á
fimmtudag og hefst hún á orgelleik.
GLERÁRKIRKJA: Messa kl. 11 á
sunnudag. Fundur æskulýðsfélagins
verður kl. 20 um kvöldið. Kyrrðar- og
tilbeiðslustund verður í kirkjunni kl.
18.10.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Almenn
samkoma kl. 20 á sunnudagskvöld,
ath. breyttan tíma. Á miðvikudag kl.
19 verður stund þar sem boðið verður
upp á súpu, brauð og biblíufræðslu.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Brauðs-
brotning og safnaðarfundur á eftir í
kvöld, laugardagskvöld. Samkoma
verður kl. 11.30 á morgun, sunnudag.
Kristinn Birgisson starfsmaður Sam-
hjálpar predikar. Vakningasamkoma
verður kl. 16.30 þar sem G. Theodór
Birgisson forstöðumaður predikar.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í
dag, laugardag, kl. 18 og á morgun,
sunnudag, kl. 11 í kirkjunni við Eyr-
arlandsveg 26.
------ha--------
Handtekinn í Ólafsfírði
Með 35 grömm
af maríjúana
KARLMAÐUR um tvítugt var
handtekinn í Ólafsfirði í gærmorgun,
en það var rannsóknardeild lög-
reglunnar á Akureyri í samvinnu við
löere.p-liina f OlnfRfírrii com ctnö að