Morgunblaðið - 20.05.2000, Page 18
18 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
í i ; W T~í
—L
Frá kynningarfundinum. Bæjarbúar sýndu verkefninu mikinn áhuga.
Kjartan Valgarðsson frá Vistmðnnum og Gísli Gislason bæjarstjóri und-
irrita samninginn. Hrafnkell Proppé garðyrkjustjóri fylgist með.
500 fjölskyldur
á Akranesi í
heimajarðgerð
Akrancsi. Morgunblaðið.
Á DEGI umhverfisins, 25. aprfl sl.,
var skrifað undir samning milli
Akranesbæjar og Vistmanna ehf.
um kaup bæjarfélagsins á 500
Green Line Master jarðgerðar-
tönkum á næstu fimm árum.
Það er stefna bæjarins að eftir
fimm ár munu 25% fjölskyldna
jarðgera sinn lífræna úrgang
heima. Það er gert til að minnka
kostnað bæjarins af sorphirðu og
urðun og minnka einnig þá meng-
un sem lífrænn úrgangur veldur á
urðunarstað. Lífrænn úrgangur er
einnig verðmæti sem fólki er
meira og meira að verða Jjóst að
ástæðulaust er að urða, heldur er
hægt að nota hann til garðyrkju,
uppgræðslu og annarra landbóta.
Allar matarleifar, þ.m.t. kjöt og
fiskur, rotna í jarðgerðartönkun-
um og verða að kraftmiklum
áburði. Afurðin er á litinn eins og
mold, lyktar eins og mold og er
viðkomu eins og mold. Engin lykt-
arvandamál koma upp og jarð-
gerðin er öll mjög einföld og auð-
veld í vinnslu, segir í frétta-
tilkynningunni.
Garðyrkjustjóri Akranessbæjar,
Hrafnkell Proppé, boðaði áhuga-
samar fjölskyldur á kynningarfund
í íþróttahúsinu laugardaginn 29.
apríl sl. og þar gafst fólki tækifæri
til að skrifa undir samning við
bæinn, greiða 2.000 kr. leigugjald
og fá jarðgerðartank heim til sín.
Fyrstu 100 tankarnir kláruðust á
tveimur tímum og eru um 35 fjöl-
skyldur á biðlista. Kjartan Valga-
rðsson hjá Vistmönnum ehf.
kynnti heimajarðgerð og útskýrði
hvernig best væri að standa að
henni.
Evrópusambandið hefur ákveðið
að árið 2006 verði aðildarríkin (og
þar með talin EES-ríkin) að vera
búin að minnka urðun lífræns úrg-
angs um 25% miðað við urðun árið
1995. Þetta átak Akranesbæjar er
m.a. liður í að bregðast við sí-
harðnandi kröfum sem gerðar eru
til meðhöndlunar á lífrænum úr-
gangi.
Litlu lömb-
in skoðuð
Egilsstöðum - Nemendur úr 2. bekk
í Grunnskólum Eiða og Egilsstaða
fóru í heimsókn í fjárhúsin og fjósið
hjá bændum á Hjartarstöðum í
Eiðaþinghá. U.þ.b. helmingur ánna
var borinn og gátu nemendur
klappað og strokið nýbornum
hrokkinkroppum.
Svo var farið í fjósið og talað við
kýrnar en þær töluðu að sjálfsögðu
á sínu máli og voru dálftið háværari
en gripir ijárhússins. Hlaðan var
einnig rannsökuð og sumir veltu
sér og stukku um í heyinu en fyrst
og fremst voru það dýrin sem áttu
hug barnanna. Á leiðinni í rútunni
voru svo rjúpukarrarnir taldir sem
trónuðu hér og þar á þúfum og
klöppum og vörnuðu óvinum með-
an rjúpan var í hreiðurgerð.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
Það var eins og sumar kýrnar langaði til að bragða á börnunum.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason
Á myndinni eru nemendur í söngdeild Tónlistarskólans sem héldu tónleika í Stykkishólmskirkju og með þeim
eru undirleikarar og skólastjóri.
36. starfsári Tónlistarskóla
Stykkishólms að ljúka
Stykkishólmi - Starfsári Tónlistar-
skóla Stykkishólms er að ljúka.
Skólinn var stofnaður 1964 og hef-
ur starfað 36 ár. í vetur hafa 130
nemendur stundað tónlistarnám á
hljóðfæri og söng. AIls störfuðu sjö
kennarar við skólann.
Mest eftirspurn er eftir söng- og
píanónámi. í söngdeild stunduðu 18
nemendur nám og héldu þeir tón-
leika um daginn og var vel látið af
söng þeirra. Einn nemandi lauk 6.
stigi í söng og annar 5. stigi. Marg-
ir nemendur tóku stigspróf i ýms-
um hljóðfæraflokkum og tónfræði.
AIls luku 44 nemendur stigsprófi á
þessu skólaári. Hæstu stigin voru
6. stig 1 söng og píanóleik.
Nemendur hafa haldið marga
tónfundi í vetur þar sem foreldrum
er boðið að hlusta á árangur þeirra
og þeir venjast að koma fram. Sú
nýbreytni var tekin upp í vetur að
hvetja nemendur til að sækja tón-
leika sem í boði voru á vegum bæj-
arfélagsins og skólans. Var boðið
upp á ferna tónleika og var mæting
nemenda góð í þessari fyrstu til-
raun.
Skólastjóri Tónlistarskólans í
Stykkishólmi er Daði Þór Einars-
son, sem hefur starfað hér í tæp
tuttugu ár.
Tveir Vestfírðingar á sjötugsaldri gefa út geisladisk
Eyrnakonfekt frá Villa
Valla og Ola málara
MARGUR djassgeggjarinn hefur
komið frá Vestfjörðum í gegnum tíð-
ina auk þess sem þetta landsvæði
hefur alið af sér marga helstu tón-
listarmenn seinni tíma. Margir þess-
ara manna hafa löngum leikið af
fingrum fram í félagsheimilum og
nokkrir hafa látið pressa afrakstur-
inn á vínilplötu eða geisladisk. Nú
hafa tveir þekktir Vestfirðingar gert
slíkt hið sama, en það eru þeir Vil-
berg Vilbergsson, hárskeri á ísafirði
eða Villi Valli eins og hann er jafnan
kallaður og Ólafur Kristjánsson,
bæjarstjþri í Bolungarvík eða Óli
málari. Útgáfutónleikar Ólafs verða í
Víkurbæ í Bolungarvík á föstudag í
næstu viku, 26. maí, og geisladiskur
Villa Valia kemur út sama dag, á 70
ára aftnæli kappans.
„Það voru krakkarnir mínir sem
ýttu mér út í þetta. Ég ætlaði aldrei
að spila inn á geisladisk, en þau voru
á annarri skoðun. í dag er ég þeim
mjög þakklátur fyrir að færast þetta
í fang,“ sagði Villi Valli í samtali við
blaðið. Hjálparkokkar Villa Valla á
disknum eru ekki af verri endanum
því fjöldi landsfrægra tónlistar-
manna tekur þátt í gerð plötunnar.
„Margir mjög færir hljóðfæraleik-
arar spiluðu með mér. Eyþór Gunn-
arsson stjórnaði upptökum auk þess
sem hann spilaði á nokkur hljóðfæri.
Þá má nefna þá Eðvarð Lárusson
sem spilar á gítar og mandólín, Árna
Scheving, son hans Einar Val Schev-
ing, Birgi Baldursson, Þórð Högna-
son og Veigar Margeirsson svo fáir
séu nefndir. Þá syngur Egill Ólafs-
son eitt lag og Ylfa Mist Helgadóttir
annað.“
Diskur Óla afmælis-
gjöf til Villa
Plata Ólafs bæjarstjóra kemur út
sama dag og plata Villa Valla og seg-
ir Ólafur hana vera afmælisgjöf sína
til Villa Valla. „Við gömlu vinimir
bíðum spenntir eftir plötunni hans
en á henni eru eingöngu lög eftir
hann sjálfan. Ég er búinn að heyra
flest lögin og eru þau öll gullfalleg og
afskaplega hugljúf eins og Villi Valli
er sjálfur. Ég spái þessari plötu
miklum frama og vinsældum. Ég
held að allir sem heyra þessi lög læri
þau um leið, svipað og með lög Sig-
fúsar Halldórssonar, sem renna
mjög Ijúflega í gegn,“ sagði Ólafur
Kristjánsson.
„Hvað varðar plötuna mína, þá
kom hún þannig til að Hrólfur
Vagnsson, sem er með stúdíó úti í
Hannover í Þýskalandi og var í
nokkuð mörg ár nemandi hjá mér í
Tónlistarskólanum í Bolungarvík,
vildi endilega að ég spilaði inn á disk
fyrir sig og hann ber því alla abyrgð
á því að gefa þennan disk út. í fyrra-
sumar hringdi hann í mig og sagðist
vera kominn með upptökutæki og
því þyrfti ég að redda bassaleikara
og trommuleikara. Það gerði ég og
fékk tengdason minn, Bjama Svein-
björnsson, bassaleikara og Pétur
Grétarsson á trommur. Þá fékk ég
Eddu Borg dóttur mína til að syngja
tvö lög á disknum. Við fórum niður í
félagsheimili í Bolungarvík og
renndum í gegnum ein sautján lög á
tveimur eftirmiðdögum. Síðan hófst
eftirvinnslan og diskurinn kemur út í
næstu viku,“ sagði Ólafur.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjömsson
Ólafur Kristjánsson við pianóið og Villi Valli með nikkuna.
Ef alþingismenn
lærðu á hljóðfæri...
Ólafur segir Villa Valla ekki þurfa
kvíða því að diskur hans fái sam-
keppni af sínum diski. „Mín plata er
allt annars eðlis en plata Villa Valla.
Þar er ekki um að ræða neinar tón-
smíðar af minni hálfu, heldur eru
þetta frekar svona gamlar minning-
ar og frekar gert til að gleðja mig en
aðra djassáhugamenn.“
Ólafur er líkt og margir á þeirri
skoðun að músíkin hafi læknandi
áhrif. „Ég held að allir sem læra á
hljóðfæri njóti þess alla ævi. Þegar
menn eru glaðir setjast þeir niður
við hljóðfæri og spila. Sömu sögu er
að segja þegar menn eru sorgmædd-
ir. Ég hef aldrei heyrt hljóðfæraleik-
ara rífast. Ég held þess vegna að ef
alþingismenn lærðu á hljóðfæri,
myndi ganga betur í þjóðfélaginu."