Morgunblaðið - 20.05.2000, Side 34
34 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuters
Mike Tyson í ham.
Skotar mótmæla
landvistarleyfi
Tysons harðlega
Vilja koma í
veg fyrir
bardagann
London. Reuters.
BRESKA stjórnin stóð í gær af sér
harða gagnrýni stjómarandstæð-
inga vegna ákvörðunar sinnar um
að leyfa bandaríska hnefaleika-
kappanum Mike Tyson að koma til
iandsins og keppa í Skotlandi í
næsta mánuði. Tyson hefur verið
dæmdur fyrir nauðgun í Banda-
ríkjunum og hafa stjómarandstæð-
ingar í Skotlandi sagst munu gera
allt til að koma í veg fyrir að af bar-
daganum verði.
Keppnishaldarar hafa tilkynnt að
Tyson muni berjast í Glasgow þann
24. næsta mánaðar og að um 15.000
manns hafí þegar keypt aðgöngu-
miða að Hampden Park höliinni og
að ekkert geti komið í veg fyrir bar-
dagann en þingmenn og kvenrétt-
indahreyfingar hafa mótmælt fyrir-
ætlununum harðlega. í gær sagði
Alex Salmond, ieiðtogi Skoska þjóð-
emisflokksins (SNP), að ákvörðun
Jacks Straw, innanríkisráðherra
Bretlands, um að veita Tyson land-
vistarleyfí væri „óörugg". Við gagn-
rýni Salmonds biandaði Tony Blair
forsætisráðherra sér í málið og
sagði talsmaður hans að Blair styddi
ákvörðun Straws algerlegaþótt
stjómin fordæmdi að sjálfsögðu of-
beidi gegn konum. En Straw hefði
tekið ákvörðunina og þar við sæti.
Tyson var árið 1992 dæmdur í sex
ára fangelsi fyrir að nauðga átján
ára stúlku sem var þátttakandi í
fegurðarsamkeppni. Þá var hann
ákærður fyrr í mánuðinum fyrir að
kýla fatafeilu í Las Vegas.
Bresk lög kveða á um að einstakl-
ingar sem hafa verið dæmdir til
lengri en eins árs fangelsisvistar fái
ekki landvistarleyfí nema sérstakar
ástæður kreíjist þess. Á fimmtudag
sagði Straw að efnahagslegur
ávinningur og góð hegðun Tysons
er hann keppti í Manchester í jan-
úar sl. hefði ráðið úrslitum um
landvistarleyfíð.
Stjórnvöld í Perú hafna kröfu um að forsetakosmngum verði frestað
Hvatt til götumótmæla
til að „veria lýðræðið“
Lima. Reuters, AP.
YFIRKJÖRSTJÓRN Perú neitaði
í gær að fresta síðari umferð for-
setakosninganna, sem hefur verið
boðuð 28. þessa mánaðar, þótt
frambjóðandi stjórnarandstöðunn-
ar, Alejandro Toledo, hefði lýst því
yfír að hann drægi framboð sitt til
baka ef kosningunum yrði ekki
frestað um þrjár vikur.
Toledo skoraði á stuðningsmenn
sína að efna til götumótmæla í
stærstu borgum landsins til að
„verja lýðræðið“ og knýja stjórn-
völd til að fresta kosningunum eftir
að kjörstjórnin hafnaði kröfu hans
um að kosningarnar færu fram 18.
júní.
Alberto Fujimori forseti sakaði
Toledo um uppgjöf og sagði hann
gera sér grein fyrir því að hann
myndi bíða ósigur í kosningunum.
Skoðanakannanir benda þó til þess
að enginn marktækur munur sé á
fylgi þeirra.
„Við getum ekki breytt regl-
unum á miðri leið,“ sagði Fujimori
í sjónvarpsávarpi. Skömmu áður
Keppinautur Fujimoris hótar að
draga framboð sitt til baka
grýttu tugir stjórnarandstæðinga
bifreið forsetans og hrópuðu „farðu
burt, harðstjóri!" þegar honum var
ekið af kosningafundi nálægt Lima.
Lífverðir forsetans hleyptu af
byssum upp í loftið í viðvörunar-
skyni.
Atkvæðin miklu fleiri
en kjósendurnir
Toledo óttast að stjómvöld hag-
ræði úrslitum kosninganna og
krefst þess að þeim verði frestað
vegna ýmissa brotalama í fram-
kvæmd þeirra, m.a. hludrægni fjöl-
miðla og ófullnægjandi tölvuforrita,
sem notuð eru við talningu at-
kvæða. Toledo setur þau skilyrði
fyrir þátttöku í síðari umferðinni
að tryggt verði að kosningarnar
fari heiðarlega fram, hann fái
t.a.m. meiri tima til að kynna
stefnu sína í sjónvarpi og stjómin
hætti að nota opinbert fé í ölmusur
handa fátækum landsmönnum í því
skyni að auka fylgi forsetans. Fuji-
mori var fyrst kjörinn forseti árið
1990 og sækist nú eftir endurkjöri í
annað sinn. Hann fékk ekki tilskilið
fylgi, hreinan meirihluta atkvæða,
til að ná kjöri í fyrri umferð kosn-
inganna 9. apríl og vantaði þá að-
eins 20.000 atkvæði. Fujimori fékk
49,87% fylgi og Toledo 40,24%.
Talning atkvæðanna í aprfl tók
fjóra daga vegna slæmrar skipu-
lagningar og tölvuvandamála.
Stjórnarandstæðingar efndu til
fjölmennra götumótmæla meðan á
talningunni stóð af ótta við að úr-
slitunum yrði hagrætt. Eftirlits-
menn Samtaka Ameríkuríkja fengu
ekki að fylgjast með talningunni,
sem þótti mjög grunsamleg, meðal
annars vegna þess að í ljós kom að
talin atkvæði voru um milljón fleiri
en kjósendurnir.
Eftirlitsmennimir sögðu í fyrra-
dag að þeir myndu ekki styðja
kosningarnar nema stjórnin gerði
ráðstafanir ekki síðar en á mánu-
daginn kemur til að bæta það sem
miður hefur farið í undirbúningi
kosninganna. Þeir kvörtuðu meðal
annars yfír því að nýtt forrit, sem
á að nota við talninguna, hefði ekki
enn verið prófað og að þjálfun
hálfrar milljónar talningarmanna
hefði hafist of seint. Þeir mæltust
því til þess að síðari umferðinni
yrði frestað.
Stjórnarandstaðan segir að síð-
ari umferðin eigi að fara fram inn-
an 30 daga eftir að öll úrslit kosn-
inganna 9. aprfl lágu fyrir, m.a.
úrslit þingkosninganna sem fóru
fram sama dag, en þau voru ekki
tilkynnt fyrr en í vikunni sem leið.
Kjördagurinn var hins vegar
ákveðinn 29. apríl þegar lokatöl-
urnar í fyrri umferð forsetakosn-
inganna lágu fyrir. Stjórn Fujimor-
is heldur því fram að samkvæmt
stjórnarskránni eigi að miða við
þann dag og kjósa að nýju 28. maí.
Samningrir Kína og Evrópusambandsins um viðskiptamál
Tollar verða
lækkaðir
Reuters
Pascal Lamy, meðlimur framkvatmdastjórnar ESB, og Shi Guangsheng,
viðskiptaráðherra Kína, skála í kampavíni við undirritun samningsins.
Ný veira veldur tölvusýki
New York. AP, Reuters.
TÖLVUVEIRA sem dreifír sér með
sama hætti og „ástarveiran" sk. olli
víða í heiminum tjóni á hugbúnaði
tölva í gær. Sérfræðingar segja að
veiran, sem þeir kalla „NewLove-A“,
sé mun skæðari en ástarveiran þar
sem hún reyni að eyðileggja öll skjöl
á hörðum diski tölvu sem smitast.
Bandaríska alríkislögreglan (FBI)
tilkynnti í gær að hún hefði hafíð
rannsókn á uppruna veirunnar. Ekki
lágu í gær fyrir tölur um útbreiðslu
veirunnar í öðrum heimshlutum.
Líkt og ástarveiran, sem olli mikl-
um skaða um víða veröld í síðustu
viku, dreifir nýja veiran sér á sama
hátt og sk. „tölvuormar" gera.
Tölvuormar berast frá einni tölvu til
annarrar með því að senda afrit af
sjálfum sér til allra netfanga sem
skráð eru í þeirri tölvu sem þeir
sýkja.
Astarveiran olli einungis skaða á
tilteknum tegundum skjala í minni
þeirra tölva sem hún sýkti en nýja
veiran er sögð gera tilraun til að
eyðileggja öll skjöl í tölvunni. Veiran
berst, líkt og ástarveiran, í viðhengi
með tölvupósti og villir á sér heimild-
ir með aðlaðandi nafngift. Efnislýs-
ing ástarveirunnar var þannig setn-
ingin „I LOVE YOU“ en efnislýsing
nýju veirunnar tekur sífelldum
breytingum. Veiran breytir efnislýs-
ingunni í hvert sinn í nafn skjals sem
nýlega hefur verið keyrt í tölvunni.
Ef ekkert skjal hefur nýlega verið
keyrt í tölvunni velur nýja veiran orð
eða setningu af handahófí og skeytir
bókstöfunum „FW“ framan við. Með
þessu móti er viðtakanda talin trú
um að netbréfið sé sent áfram vit-
andi vits af eiganda sýktu tölvunnar.
Viðhengið sem inniheldur nýju veir-
una stækkar að umfangi í hvert sinn
sem það er sent og er eftir að hafa
farið gegnum þijá viðtakendur orðið
um 800 kílóbæti.
Sérfræðingar binda vonir við að
nýja veiran muni ekki valda jafn
miklum skaða og ástarveiran þar
sem fólk sé almennt orðið varara um
sig nú. Líkt og í tilviki ástarveirunn-
ar eru það einungis notendur
Microsoft Outlook hugbúnaðarins
sem eiga á hættu að veiran valdi
þeim skaða. Notendur annars konar
póstkerfa verða ekki fyrir barðinu á
þessum veirum.
Peking, Brussel, Genf, Washington. AP, AFP, Reuters.
SAMNINGAVIÐRÆÐUM Evrópu-
sambandsins (ESB) og Kína lauk í
gær með undirritun viðskiptasamn-
ings sem mun stórauka viðskipti
þeirra á milli og greiða fyrir aðild
Kína að Heimsviðskiptastofnuninni
(WTO). Smáatriði samningsins hafa
ekki verið gerð opinber en í megin-
atriðum felur hann í sér að reglur
um fjárfestingar og eignarhald á fyr-
irtækjum verða rýmkaðar og tollar á
innflutningsvörum verða minnkaðir.
Kínversk stjórnvöld munu m.a.
gefa út starfsleyfi fyrir sjö evrópsk
tryggingarfélög, nema úr gildi höml-
ur á rekstri verslana í erlendri eigu
og afnema einokun ríkisins á olíuinn-
flutningi í áföngum. Kínyerjar munu
lækka tolla á 150 evrópskum vörum
niður í 8-10% og opna fjarskipta-
markað sinn fyrir evrópskum fyrir-
tækjum. Evrópusambandið lagði
mikla áherslu á síðastnefnda atriðið
en tókst ekki að fá Kínverja til að
fallast á ítrustu kröfur sínar. Kín-
versk stjórnvöld féllust á að leyfa
eignarhlut Evrópumanna í farsíma-
fyrirtækjum að vaxa í áföngum, úr
25% við upphaf samningstímans í
49% þremur árum eftir að Kína fær
aðild aðWTO.
Betri en samningnr
Bandaríkjanna
Paseal Lamy, sem fer með við-
skiptamál í framkvæmdastjóm
ESB, lýsti í gær mikilli ánægju með
samninginn og sagði að hann væri
betri en hliðstæður samningur sem
Bandaríkin gerðu nýlega við Kína.
„Það sem ég sagði í nóvember um
bandaríska samninginn var að hann
fæli í sér 80% leiðarinnar og að við
ættum eftir að fara 20%. Ég myndi
segja að við hefðum fengið á bilinu
16-17%,“ sagði Lamy.
Evrópskir stjómmálamenn og
forkólfar í viðskiptalífi fögnuðu í gær
samningnum. „Sú staðreynd að þeir
hafa náð samkomulagi er góð frétt.
Þetta er risavaxið skref í þá átt að
gera Kína að þátttakanda í efna-
hagslífi heimsins," sagði Dirk Hud-
ig, framkvæmdastjóri UNICE, sam-
taka atvinnurekenda í Evrópu.
Forseti framkvæmdastjórnar ESB,
Romano Prodi, sagði að samningur-
inn markaði tímamót og myndi
skapa nýja markaði og tækifæri fyr-
ir evrópsk fyrirtæki. Með samning-
num væri unnt að skapa ný störf í
álfunni.
Mike More, framkvæmdastjóri
WTO, sagði að samningurinn færði
Kína nær því að geta fengið aðild að
stofnuninni en sagði þó að mikilvæg
verkefni væm enn óunnin í því sam-
bandi.
Aukinn þrýstingur
á bandaríska þingið
Kínverjar hafa í 14 ár reynt að fá
aðild að Heimsviðskiptastofnuninni
og mun samningurinn frá því í gær
auðvelda þeim að ná því markmiði.
Eftir að ESB hefur gert tvíhliða við-
skiptasamning við Kína eiga aðeins
fimm aðildarríki WTO eftir að gera
slíkan samning. Samkvæmt reglum
WTO verða Kínverjar að ná við-
skiptasamningum við alla aðila
stofnunarinnar áður en hægt er að
veita því inngöngu.
Samningur ESB og Kína er talinn
munu hafa áhrif á atkvæðagreiðslu í
næstu viku á Bandaríkjaþingi um
hvort veita eigi Kínverjum aukinn
aðgang að bandarískum markaði.
Bandaríkjamenn og Kínverjar gerðu
með sér viðskiptasamning í nóvem-
ber á síðasta ári sem hafði í för með
sér að landamæri Kína voru opnuð
fyrir bandarískum innflutningi. Hins
vegar hafa Kínveijar hótað því að
eftir að þeir fái inngöngu í WTO,
muni þeir samkvæmt reglum stofn-
unarinnar loka fyrir innflutning aft-
ur nema bandarísk stjórnvöld fallist
á að veita Kína sk. viðvarandi við-
skiptafríðindi. Stjórnendur fyrir-
tækja og frammámenn í bandarísku
viðskiptalífi hvöttu í gær þingmenn
til að samþykkja tillögu þess efnis
sem liggur fyrir þinginu.