Morgunblaðið - 20.05.2000, Side 38

Morgunblaðið - 20.05.2000, Side 38
38 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Sannfæring um eigið ágæti Sænsku leiklistardagarnir voru haldnir í Hallunda í Svíþjóð dagana 11.-15. maí. Hávar Sigurjónsson fylgdist með hátíðinni, sá sýningar og hlýddi á fyrirlestra og umræður. ÞAÐ ER Ríkisleikhúsið, Riksteat- em, sem skipuleggur Sænsku leik- listardagana og tilgangur þeirra er fyrst og fremst að kynna fyrir sænsku leikhúsfólki þær sýningar sem Ríkisleikhúsið sjálft hefur sett upp og einnig sýningar annarra leik- hópa víða að úr Svíþjóð sem stjóm Ríkisleikhússins þykir fengur að fá á hátíðina. Riksteatem er stór stofnun en þó ekki leikhús í þeirri merkingu sem alla jafna er lögð í íyrirbærið. Um 250 leiklistarsambönd um alla Svíþjóð eru aðilar að Ríkisleikhúsinu og höf- uðstöðvar þess eru í risastórri bygg- ingu í Hallunda, rétt utan við Stokk- hólm. Þar eru fjölmargir æfmga- og sýningasalir en megnið af sýningun- um er þó sýnt utan hússins þar sem sýningunum er ætlað að ferðast um Svíþjóð og nær hið eiginlega svið Rík- isleikhússins frá Ystad í suðri til Kar- esuando í norðri. Starfsemi Ríkisleik- hússins sænska er skipt upp í fjórar aðaldeildir sem hver hefur sinn list- ræna stjórnanda ásamt föstum hópi leikara, leikstjóra. Riks Drama sér um sýningar fyrir fullorðna, Cull- bergballetten sér um ballett- og danssýningar, Tyst Teater er sér- staklega skipulagt með sýningar fyr- ir heymarlausa í huga. Unga Riks sér um sýningar fyrir böm og unglinga frá 4-18 ára. Auk þess að framleiða sjálft um 20 leiksýningar á ári kaupir Riksteatem sýningar og sendir síðan útaf örkinni í sínu nafni. Sá hluti starfseminnar hefur aukist eftir nokkuð viðamiklar skipulags- breytingar sem gerðar vom á Riks- teatem fyrir fimm árum. Leikhúsmessa eða markaður Hátíðin hefur því á sér nokkuð yfir- bragð leikhúsmarkaðar, þama koma fulltrúar leiklistarsambandanna 250 alls staðar að úr Svíþjóð sem eru á höttunum eftir sýningum til að bjóða að koma til sín síðar á árinu. Á þeim fjóram dögum sem hátíðin stóð yfir vora um 30 leiksýningar í boði, og enginn vegur fyrir neinn að sjá þær allar enda var það ekki tilgangurinn, heldur að taka púlsinn á sænskri leiklist, hvað eru sænskir leikritahöf- undar að fást við þessa dagana og hvers konar leiklist er leikhúsfólkið að fremja. Varasamt er þó að alhæfa nokkuð útfrá þeim sýningum sem þarna buðust; þær era allar því marki brenndar að vera fámennar og ein- faldar í sniðum þar sem þeim er ætlað að vera á ferðinni um landið milli staða og því verður að leita annað eft- fr glæsilegum sviðsetningum og fjöl- mennum sýningum. Ekki skyldi þó draga þá ályktun að einfaldar og fá- mennar leiksýningar séu í einhverju síðri þeim fjölmennari og íburðai’- meiri. Síður en svo. Hin sænska alþýðuhetja Eftirminnilegasta sýningin á hátíð- inni var einmitt sú allra einfaldasta; einleikur leikarans Benny Haag, þar sem hann spjallar við áhorfendur og segir frá sér, listilega vel samið eintal sem blekkfr áhorfandann auðveld- lega til að halda að hann sé að segja frá eigin reynslu, rekja lífshlaup sitt af einlægni. Benny Haas er sjálfur höfundur textans og er enginn ný- græðingur á því sviði. Hann samdi einleik upp úr Illskunni, skáldsögu Jan Guillou, sýning sem varð feiki- vinsæl og gekk samfellt í fjögur ár. Benny skrifar af meðvituðu kæra- leysi því engu er líkara en að hann sé að semja textann á staðnum, þangað til h'ða tekur á, þá fer að renna upp fyrir manni hversu úthugsað þetta er í öllum smáatriðum. Working Class Hero er titill verksins og hinn enski titill er veikasti blettur sýningarinn- ar. Ekki verður með nokkra móti séð hvers vegna titillinn þurfti að vera á ensku; allt efnið er sænskt og vísar í sænska alþýðustétt á 7. áratugnum. í upphafi segir Benny áhorfendum frá því að hann sé nýbúinn að eignast dóttur. Hún er klukkutíma gömul þegar hann heldur á henni og játar henni skilyrðislausa ást sína og heitir því að vera alltaf til staðar, verða henni sá faðir sem faðir hans var hon- um ekld, klettur sem hún geti alltaf treyst og leitað til þegai’ eitthvað bjátar á. Hann hverfur síðan aftur til þess tíma er hann var 9 ára gamall og rifjar upp sársaukafulla sögu af drykkfelldum föður og beygðri móð- ur, samskiptaleysi og því að í tvö ár gengur hann með vaxandi heilaæxh sem heimihslæknar og skólalæknar greina alltaf sem slen og leti, skóla- leiða og kynþroskaeinkenni. „Ég var tíu ára, fjandinn hafi það og þjáðist af svo sterkum kynþroskaeinkennum að í heilt ár kastaði ég öllu upp sem lét ofan í mig og léttist um 13 kíló. Pabbi lamdi mig eins og harðfisk fyr- ir að vera síælandi. Letingja og væsk- il, kallaði hann mig.“ Loks fékk drengurinn rétta greiningu og þá var æxlið svo stórt að læknar töldu aðeins helmings líkur á að skurðaðgerð myndi heppnast. Hún tókst og nú 28 árum síðar stendur Benny á sama sjúkrahúsi með nýfædda dóttur sína í fanginu fullur fagurra fyrirheita um framtíðina. Eintal Benny Haag er einlæg og raunsæ lýsing á því hvemig fátækt og erfiðisvinna getur leikið fólk, skað- ar það á sálinni og veldur uppvaxandi kynslóðum sálarkvölum. Hann svipt- ir þeim dýrðarljóma sem sagður er stafa af alþýðunni, þar sem karlamir vora sagðir hlýir, harðir og sann- gjarnir og konumar ávallt glaðar og góðar. Karlar vora karlmenn og kon- ur vora mæður. „Þvílík blekking!“ segir Benny Haag. Þessi þarna kærasta Þessi þama kærasta reyndist for- vitnilegur leikþáttur eftir Daniela Kullman, ungan höfund sem er jafn- framt leikkona og skrifar fyrir eigin leikhóp Teater Scenario. Þetta er fyrsta verk Kullman og kannski dæmi um hvert ungir sænskir leikr- itahöfundar era að beina sjónum sín- um. Marika er ung ástkona Markúsar sem á sér aðra kærastu. Marika bíð- ur eftir honum og heldur einræður um hvemig hún ætli að taka á móti honum, setja honum stólinn íyrir dyrnar, krefja hann um að gera upp hug sinn, láta kærastuna róa. Sam- tímis kemur í ljós að henni hefur haldist illa á mönnum, þeir fara illa með hana og skilja hana eftir ein- mana og vonsvikna. En einsog hún segir sjálf þá elska þeir hana meðan á því stendur þó ástin sé fremur stund- argaman af þeirra hálfu. Marika daðrar, blaðrar og gefur Morgunblaðið/Hávar Teaterstudio Lederman flutti Mozart vs Salieri. Benny Haag er höfundur og leikari i eintali um hina sönnu sænsku alþýðuhetju. Gunnar Helgason (Amaldur) var glaðbeittur að lokinni sýn- ingu á Sölku - ástarsögu. ímyndunaraflinu lausan tauminn en tilvera hennar er tilgangslaus, hún á sér ekki neinn annan tilgang en að bíða og vona og láta Markús um framhaldið. Kullman skrifar af öryggi, beitir endurtekningum með góðum ára- ngri, hefur sterka tilfinningu fyrir leikrænum möguleikum í texta, hún skrifar út hugmyndir sínar og gefur þeim leikrænan búning. Hún hefur næma tilfinningu fyiir sársauka Mar- iku og tekst að gæða hann almennu gildi þó vafalaust eigi hann upprana sinn í persónulegii reynslu. Lotti Tömros í hlutverki Mariku spilaði á alla strengi sem hún fann verkinu, þó á köflum væri framsetn- ingin þannig að persónan minni frem- ur á gleðikonu en unga stúlku sem vill losna við samkeppnina og eiga piltinn ein. Mozart vs Salieri Úr allt annarri átt var sýningin Mozart vs Salieri sem flutt var af Teaterstudio Lederman sem hefur aðsetur í Stokkhólmi. Þessi sýning á sér sterkar rúss- neskar rætur, því höfundar hennar og tvefr aðalleikararnir Jurij Lederman og Michail Kazinik era rúsneskir að uprana þó sænskir ríkis- borgarar séu. Ledennan er leikstjóri og leikur Salieri en Mozart leikur ung mezzósópransöngkona Katarina Böhm. Sýningin hefst með því að leikin er 170 ára gamall leikþáttur eftir rússneska 19. aldar skáldið Púshkín. Sýningin dregur nafn sitt af leikþættinum sem Púshkín byggir á þeim orðrómi sem breiddist út um Evrópu í kjölfar dauða Mozarts að Salieri hefði byrlað honum eitur. Leikrit Peters Shaffers, Amadeus, byggðist einnig á sömu hugmynd. Viðfang Púshkíns er þó ekki að koma sök á Salieri heldur velta því upp hver sé tilgangur listarinnar í samfélaginu og hvert sé raunveralegt eðli snilli- gáfu. Púshkín gerir Salíeri að böðli yfirstéttarinnar sem sér ógnun í hylli Mozarts meðal alþýðunnar. Hann sé að færa listina „niður“ til fólksins; listina sem á þeim tíma var eign og viðfang aðalsins og yfirstéttarinnar. Fram að hléi er sýningin með nokkuð hefðbundnu sniði, en þá er áhorfandinn skilinn eftir í lausu lofti varðandi framhaldið þar sem leikriti Púshkins er lokið og ekki ljóst hvað gert verður í hálfan annan tíma til viðbótar. En þá springur sýningin út og verður að dásamlegri orðræðu um hlutverk listarinnar í samfélaginu, hlutverk listamannsins, tilgang tón- listarinnar og síðast en ekki síst hvemig samfélagið meðhöndlar Jussi Helminen, leikstjóri frá Finnlandi, taldi sænsku leikritin skorta dramatískan þunga. snilligáfu bæði þá og nú. Þetta er þó ekki bara leiksýning heldur fullgildir tónleikar þar sem Kazinik er aldeilis ágætlega frambærilegur fiðluleikari og Katarina Böhm prýðisgóður mezzosópran. Þó var greinilegt að ekki að Iíkaði öllum jafn vel hvemig sýningin þróaðist og gengu sumir út hristandi höfuðið er Kazinik hélt langar innblásnar ræður um stöðu lista- og menningar í Svíþjóð um leið og hann útskýrði tónlist Mozarts og sýndi með ótal tóndæmum hvernig hann gerði sitt síðasta verk, Sálu- messuna, að óði til lífsins þó viðfangs- efnið sé dauðinn. Kazinik er barns- lega einlægur í tjáningu sinni og skýring hans á snilligáfu Mozarts var sú að honum hefði verið leyft að þróa hana með sér frá blautu bamsbeini. „Samfélag okkar í dag leyfir ekki slíkt; allir era fæddir með snilligáfu en hún er kæfð í okkur áður en hún fær að njóta sín. Samfélagið dýrkar meðalmennskusagði Kazinik og var reiður. Salka fékk góðar viðtökur Hafnarfjai’ðarleikhúsið Hermóður og Háðvör sýndi Sölku-ástarsögu við góðar undirtektir. Margir höfðu á orði að sýningin væri mjög ólík þeim sænsku sýningum er þarna vora í boði. „Raunveralegt drama, þar sem persónur takast á og þróast í gegnum samskipti sín, “ sagði finnski leik- stjórinn Jussi Helminen sem taldi annars eitt megineinkenni á þeim sýningum er hann hafði séð á hátíð- inni að þær fjölluðu um hugmyndir en ekki persónur. „Á sviðinu era leik- arar sem vinna eingöngu útfrá hug- myndum og era sannfærðir um rétt- mæti hugmynda sinna. Þeir leggja engar spurningai’ fyrir áhorfendur og biðja ekki um skilning eða sam- kennd. Hugmyndaheimui’ þeirra er óhreyfanlegur og persónurnai- staðl- aðar,“ sagði þessi leikhúsmaður frá Finnlandi sem stundum hefur verið sagt líkast Islandi í leiklistinni. Hon- um hugnaðist í öllu falli vel sýningin á Sölku Völku og var reyndar ekki einn um það. Upprifin og bráð- drepandi kanína Teater Sálieri (engin tengsl við Mozart) er skipaður ungu fólki er lék sýningu er bar hið furðulega heiti Eins og íyrirsjáanleg, banvæn, upp- rifin kanína, eða eitthvað í þá áttina. Höfundur og leikstjóri er Kajsa Isak- son. UndiiTÍtaður braut heilann alla sýninguna hvað titillinn hefði með hana gera og komst ekki að neinni niðurstöðu en skemmti sér engu að síður ágætlega þó sýningin félli mjög vel að skilgreiningu Jussi Helminen um leikhóp sem væri fullkomlega sannfærður um ágæti verksins og beitti öllum ráðum til að sannfæra áhorfendur um það. Uppfinninga- semi, kraftur, hraði og óbifanleg sannfæring gerði þessa sýningu að góðri skemmtun þó hún minnti um margt á skandinavískar sýningar 8. áratugarins og væri því ekki ýkja framleg hvað framsetningu snerti. Leikaramfr 8 vora allir klæddir í hvíta búninga, fóra aldrei útaf sviðinu og bragðu sér í ótal hlutverk, töluðu stundum beint við áhorfendur og not- uðust eingöngu við hvítmálaða eld- hússtóla sem var staflað upp til beggja hliða í upphafi en í lokin vora þefr allir komnir í stóra hrúgu á svið- inu. Fyrirlestur um nýnasisma Meðfram þeim sýningum sem Riksteatem bauð upp á þessa daga var hægt að hlýða á fyrirlestra um ýmis málefni er tengdust leikhúsinu á einhvern hátt. Reyndar má færa gild rök fyrir því allt er snertir mannlega hegðun og reynslu geti tengst leik- listinni og ýmsir fyrirlestrar vora þess eðlis að teygja á þeim mörkum sem allajafna era sett um tengsl leik- húss og samfélags. Er það vel. Til að mynda flutti sænski blaðamaðurinn Anna-Lena Lodenius fróðlegan fyrir- lestur um uppgang nýnasismans í Svíþjóð. Hvemig hópunum hefði fjölgað og hversu vel skipulagðir þeir væra, bæði um innri starfsemi sína og einnig útgáfu starfsemi. Hún benti á að það væri algengur misskilningur að telja að unglingar sem ættu við fé- lagslega erfiðleika að etja væra gin- keyptastir fyrir þátttöku í nýnasista- hreyfingunni. Þróunin síðustu ár benti tO þess að böm og unglingar sem stæðu sig ágætlega í skóla og byggju við góðar félagslegar aðstæð- ur sæktust ekki síður eftir þátttöku. „Það er alvarlegt mál þegar allt að 10 prósent sænskra unglinga á aldrinum 12-18 ára sveija samtökum á borð við nýnasista hollustu sína og heita því að taka þau fram yfir allt annað, bæði lögin í landinu og fjölskyldutengsl,“ sagði Anna Lena Lodenious. Mun fleiri unglingar hlusta síðan á tónlist hljómsveita sem flytja óheftan áróður fyrir málstað nýnasismans þar sem titlar laganna bera innihaldinu órækt vitni. White Pride, White People Awake, Aryan Pride og Kick to Kill svo einhver séu nefnd af þeim sem Anna-Lena Lodenius nefndi og gaf dæmi um. Ein af þeim hljómsveitum sem hún tiltók ber heitið Rahowa sem lætur ekki mikið yfir sér fyrr en í Ijós kemur að þetta er skammstöfun á orðunum Racial Holy War. Þá hoifir málið nokkuð öðravísi við. Var undfr- ritaður vafalaust ekki einn um að vera nokkuð skekinn eftir að hlýða á mál Anna-Lena Lodenius sem er höf- undur fjölda greina og einnig bóka um nýnasismann og hreyfingar hægri öfgamanna í Norður-Evrópu. Dramatúrgía í hávegum Norræna leikhús- og dansnefndin stóð einnig að röð fyrirlestra um di’amatúrgíu sem vora vel sóttir enda full ástæða til að gera þeirri starfs- grein innan norrænna leikhúsa hæraa undir höfði en verið hefur. Verður nánar sagt frá því síðar í sér- stöku viðtali sem blaðamaður átti við Sverre Rodahl framkvæmdastjóra nefndarinnar um hlutverk og starf- semi Norrænu leiklistar- og dans- nefndarinnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.