Morgunblaðið - 20.05.2000, Qupperneq 40
40 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2000
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
BÓKASALA í apríl
RoðVar Titill/ Höfundur/ Útgefandi
1 Harry Potter og leyniklefinn/ Joanna Rowling/ Bjartur
2 Rétt mataræði fyrir þinn blóðflokk/ Peter J. D’Adamo/ Leiðarljós
3 íslensk orðabók/ Ritstj. Árni Böðvarsson/ Mál og menning
4 íslensk samheitaorðabók/ Ritstj. Svavar Sigmundsson/ Mál og menning
5 Ensk-íslensk skólaorðabók/ Ritstj. Jón Skaptason/ Mál og menning
6 Sagan af bláa hnettinum/ Andri Snær Magnason/ Mál og menning
7 Stúart litli/ E. B. White/ Mál og menning
8 Sálmabók íslensku þjóðkirkjunnar/ Róbert A. Ottóssonvaldi/ Skálholt
9 Ljóð Tómasar Guðmundssonar/ / Mál og menning
f 0 ísl.-ensk/Ensk-ísl. orðabók/ Ritstj. Sigurður Ö. Bogas. og Arngrímur Sigurðss./ M & m
Einstakir flokkar. ÍSLENSK OG ÞÝDD SKÁLPVEBK
1 Englar alheimsins/ Einar Már Guðmundsson/ Mál og menning
2 Djöflarnir/ Fjodor Dostojevskíj/ Mál og menning
3 Hobbitinn/ J. J. R. Tolkien/ Fjölvi
4 Góðir íslendingar/ Huldar Breiðfjörð/ Bjartur
5-6 Glataðir snillingar/ William Heinesen/ Mál og menning
5-6 Uppvöxtur litla trés/ Forrest Carter/ Mál og menning
7 Smásögur/ Halldór Kiljan Laxness/ Vaka-Helgafell
8 Ljúf er sumarnótt í Færeyjum/ Jógvan Isaksen/ Mál og menning
9 Auga Evu/ Karin Fossum/ Mál og menning
10 Saga af stúlku/ Mikael Torfason/ Forlagið
ÍSLENSK QG ÞÝDP LJÓÐ
1 Sálmabók íslensku þjóðkirkjunnar/ Róbert A. Ottósson valdi/ Skálholt
2 Ljóð Tómasar Guðmundssonar/ / Mál og menning
3 Passíusálmar/ Hallgrimur Pétursson/ Mál og menning
4 Spámaðurinn/ Kahlil Gibran/ Muninn
5 Hávamál og Völuspá/ / Bjartur
6 Gullregn úr Ijóðum Hallgríms P./ Þorsteinn frá Hamri tók saman/ Forlagið
7-8 Fegurstu Ijóð Jónasar/ Kolbrún Bergþórsdóttir valdi/ Stofnun Jóns Þorlákssonar
7-8 Gimsteinar: Ljóð 16 höfunda/ Ólafur Haukur Árnason valdi/ Hörpuútgáfan
9-10 Ljóðasafn Steins Steinars/ / Vaka-Helgafell
9-10 Perlur úr Ijóðum ísl. kvenna/ Silja Aðalsteinsdóttir valdi/ Hörpuútgáfan
ÍSLENSKAROG ÞÝDDAR BARNA- OG UNGLINGABÆKUR
1 Harry Potter og leyniklefinn/ Joanna Rowling/ Bjartur
2 Sagan af bláa hnettinum/ Andri Snær Magnason/ Mál og menning
3 Stúart litli/ E. B. White/ Mál og menning
4 Landnámsmennirnir okkar/ Stefán Aðalsteinsson/ Mál og menning
5-6 Galdrastafir og græn augu/ Anna Heiða Pálsdóttir/ Mál og menning
5-6 Vísnabók iðunnar/ Myndskr. Brian Pilkington/ Iðunn
7 Tarzan og Terka/ Walt Disney/ Vaka-Helgafell
8 Stafrófskver/ Sigrún Eldjárn. Þórarinn Eldjárn Ijóðskreytti/ Forlagið
9 Palli var einn í heiminum/ Jens Sigsgaard/ Björk
10 Gettu hve mikið ég elska þig/ Sam McBratney/ Mál og menning
ALMENNT EFNI OG HANDBÆKUR
1 Rétt mataræði fyrir þinn blóðflokk/ Peter J. D’Adamo/ Leiðarljós
2 íslensk orðabók/ Ritstj. Árni Böðvarsson/ Mál og menning
3 Islensk samheitaorðabók/ Ritstj. Svavar Sigmundsson/ Mál og menning
4 Ensk-íslensk skólaorðabók/ Ritstj. Jón Skaptason/ Mál og menning
5 ísl.-ensk/Ensk-l'sl. orðabók/ Ritstj. Sigurður Ö. Bogas. og Arngrímur Sigurðss./ M & m
6 Drykkja - Ástarsaga/ Caroline Knapp/ Mál og menning
7 Biblían/ / Hið íslenska biblíufélag
8 Bókin um London/ Dagur Gunnarsson/ Mál og menning
9 Ensk-enskorðabók m. ísl. lykilorðum/(slenskþýðingGeirSvansson/M&m
10-11 Líkami fyrir lífið/ Bill Phillips og Michael D’Orso/ Hvítt og svart
10-11 Tilfinningagreind/ Daniel Goleman/ Iðunn
Bókabúðir sem tóku þátt í könnuninni
Höfuðborgarsvæðið:
Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi
Bókabúð Máls og menningar, Síðumúla
Bókabúðin Hlemmi
Bókabúðin Mjódd
Bóksala stúdenta, Hringbraut
Eymundsson, Kringlunni
Penninn-Eymundsson, Austurstræti
Penninn, Kringlunni
Bókabúðin Hamraborg, Kópavogi
Penninn-Eymundsson, Hafnarfirði
Utan höfuðborgarsvæðisins:
Bókabúð Keflavíkur, Keflavík
Bókval, Akureyri
KÁ, Selfossi
Samantekt Félagsvísindastofnunar á sölu bóka í apríl 2000. Unnið fyrir Morgunblaðið,
Félag íslenskra bókaútgefenda og Félag bóka- og ritfangaverslana. Ekki eru taldar með þær
bækur sem seldar hafa verið á mörkuðum ýmiss konar á þessu tímabili, né kennslubækur.
Óreimaðir skór
orsök fímm slysa
Morgunblaðið/Kristinn
Það er í tísku hjá börnum og unglingum að hafa reimarnar lausar.
Þetta eru skómir hans Elíasar.
Vitað er um fimm slys,
þar af eitt alvarlegt,
sem komið hafa upp á
skömmum tíma í grunn-
skóla á höfuðborgar-
svæðinu vegna þess að
börn og unglingar reima
ekki skóna sína. Komið
hefur í ljós að það er í
tísku að hafa reimarnar
lausar.
HERDÍS Storgaard, fram-
kvæmdastjóri Arvekni, segir að
skólahjúkrunarfræðingur hafi haft
samband við sig, sem vissi um
fimm atvik, þar af eitt alvarlegt,
þar sem slys hefðu orðið vegna
þess að reimar hefðu verið lausar.
„Ekki er eingöngu um strigaskó
að ræða heldur þunga skó eins og
kuldaskó. Skólahjúkrunarfræðing-
urinn vildi koma þessu á framfæri
til foreldra, enda sagðist hann hafa
tekið eftir því í vetur að það væri
áberandi að börn og unglingar
hreinlega nenntu ekki að reima
skóna sína og einnig að þetta væri
orðið tískufyrirbrigði," segir Her-
dís.
Aðspurð segir Herdís að í stað
þess að reima skóna eins og venju-
lega stingi börnin og unglingarnir
reimunum einhvern veginn ofan í
skóna. „Skólahjúkrunarfræðingur-
inn fór að taka eftir þessu þegar
hann fór að gera að sárum barn-
anna og heyra slysasögur þeirra,"
segir Herdís.
Tískufyrirbrigði
að reima ekki
„Við viljum beina því til foreldra
sem og barnanna og unglinganna
að þeir reimi skóna sína, en það
tekur enga stund,“ segir Herdís.
Aðspurð segir hún að skóla-
hjúkrunarfræðingurinn hafi talað
við krakkana og þá kom í ljós að
það þótti flott að hafa reimarnar
lausar og þetta væri tískufyrir-
brigði.
„Yfirleitt eru meiðslin ekki al-
varleg, skrámur á andliti eða togn-
un, en þetta alvarlega slys sem átti
sér stað segir okkur að þetta mál
þurfi að skoða enn frekar.
Það er kannski ekki tími til að
vera ræða um hálkuna núna, en
það tengist þessu samt. Embætti
Gatnamálastjóra Reykjavíkur bað
Borgarspítalann fyrir nokkrum ár-
um um tölulegar upplýsingar um af
hverju fólk væri að detta og meiða
sig í hálkunni þrátt fyrir allan þann
sand sem borinn væri á göturnar.
Þá kom í ljós að yfirleitt voru það
ungir einstaklingar sem meiddu
sig en ekki gamla fólkið. Það er
alltaf verið að tala um gamla fólkið
í hálkunni en þetta er flest ungt
fólk sem er að brjóta sig, gamla
fólkið fer yfirleitt ekki út í hálku
nema þá helst á mannbroddum. Þá
kom líka í ljós að mörg þessara
meiðsla áttu sér stað innan lóðar-
marka fólks því það var t.d. að fara
út á inniskónum," segir Herdís.
Morgunblaðið/Svernr
Nýtt húsnæði
VERSLUNIN Djásn og grænir flutningnum hafa nýjar vörur
skógar hefur nú flutt í nýtt hús- bæst í hópinn, meðal annars nátt-
næði á Laugavegi 64. Samfara úruvænar baðbombur.
• •
Orbylgju-
franskar
DREIFING ehf., umboðsaðili
McCain, hefur hafið innflutning
á örbylgjufrönskum. Kartöfl-
urnar koma í tveimur tegund-
um, rifflaðar og sléttar, og eru
seldar í 4x100 gramma öskjum.
Hitunin á kartöflunum tekur í
kringum 3 mínútur.
Nýtt
Úttektir með
krítarkortum
úr hraðbönkum
Europay
helming'i
ódýrara
en VISA
ÚTTEKT reiðufjár með krít-
arkorti úr hraðbönkum hér-
lendis er mishá eftir kortafyr-
irtækjum. Hjá Europay
ísland kostar ein færsla úr
hraðbanka með Mastercard,
50 krónur auk þess sem 1,5%
leggjast ofan á úttektarupp-
hæðina. Hjá VISA ísland
kostar hver færsla hins vegar
75 krónur auk þess sem 1,5%
leggst ofan á úttektarupphæð-
ina.
Munurinn á úttekt reiðufjár
með krítarkortum í hraðbönk-
um er því 50%.
Sama gjald í útlöndum
Þegar krítarkort Europay
og VISA, eru notuð í erlend-
um hraðbönkum er verðið það
sama hjá báðum fyrirtækjum.
2,5% leggjast ofan á úttektar-
upphæð og lágmarksupphæð-
in er fjórir Bandaríkjadalir.
Sparikort í Bónus
Bónus hefur um nokkurt
skeið boðið Sparikort til við-
skiptavina sinna sem unnt er
að nota í verslunum Bónuss.
Úttektargjaldið er 20 krónur
auk þess sem 1,2% bætast við
heildarreikninginn.