Morgunblaðið - 20.05.2000, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2000 41
Sportbúð Títan > Seljavegi 2-101 Reykjavík
Netfang: titan@isa.is - Vefsíða: wwvv.isa.is/titan
Hvítar skyrtur
Hvernig á að halda skyrtum
hvítum?
„Hvítar skyrtur úr bómull þarf
helst að sjóða við og við,“ segir Guð-
rún Þóra Hjaltadóttir, fram-
kvæmdastjóri Leiðbeiningarstöðv-
ar heimilanna. „Húðfita sem sest í
skyrtur og annan þvott fer ekki fyrr
en þvegið er við 60 gráður á Celsíus.
Hægt er að leggja bómullar-
skyrtur í klórblöndu reglulega.
Einnig eru til þvottaefni sem eru
sterkari, en þau slíta trúlega meira
þvottinum og geta í sumum tilfell-
um gefið ofnæmisviðbrögð. Hvað
varðar skyi’tur úr bómullarefni vilja
þær oft grána og það er eins með
nærfötin okkar, þau grána líka með
tímanum. Þá er hægt að lita þau
hvít og það getur enst einhverja
þvotta,“ segir Guðrún Þóra.
Auglýsingar hjá Go
Hvers vegna er breska flugfé-
lagið Go að auglýsa ferðir á tíu
þúsund krónur ef allt er uppselt?
„Það er búið að selja hátt í fimm
þúsund sæti með Go á lægsta far-
gjaldi, þar af hafa Bretar keypt um
fjögur þúsund og íslendingar af-
ganginn," segir Jón Hákon Magn-
ússon, talsmaður Go á Islandi.
„Þetta þýðir að lítið er eftir af tíu-
þúsund króna sætum fyrri hluta
sumars en enn eru til sæti þegar líð-
ur á sumarið. Þá er til talsvert af
sætum á sparverði sem er um fjórt-
án þúsund krónur með flugvallar-
skatti, tveggja nátta fargjöld á um
19.000 krónur með skatti og á dýr-
asta fargjaldinu sem er 24.000 krón-
ur, en það gefur farþegum meðal
annars kost á að breyta dagsetning-
um og hætta við ferðina.
Eftirspurnin eftir tíu þúsund
króna sætunum er miklu meiri en
forráðamenn Go gerðu sér í hugar-
lund þegar þeir ákváðu að fljúga tO
Islands fjórum sinnum í viku í sum-
ar, en í hverri vél eru aðeins 148
sæti.
Forráðamenn Go stefndu upphaf-
lega að því að fjölga fyrst og fremst
breskum ferðamönnum hér á landi
og það kom þeim á óvart hve mikil
eftirspum er eftir flugi héðan fyrir
Islendinga. Þeir eru nú að velta fyr-
ir sér hvemig eða hvort hægt sé að
bregðast við eftirspurninni.
Rétt er að geta þess að Go auglýs-
ir sæti fram og til baka frá Keflavík
frá tíu þúsund krónum en ekki á tíu
þúsund krónur," segir Jón Hákon.
Fjölbreytt fæði hollt
Hversvegna er pasta talið hollt?
Er hollustan ekki svipuð og í
franskbrauði? Hvemig er hollusta
mæld?
„Pasta er unnið úr hveiti og vatni
og er því ekki ósvipað franskbrauði
hvað næringargildi varðar," segir
Laufey Steingrímsdóttir, forstöðu-
maður Manneldisráðs. „Eiginleikar
pastans sem næringargjafa felast í
því að þetta er fitulítil afurð og kol-
vetnarík. Pasta inniheldur hinsveg-
ar lítið af hollustuefnum á borð við
grænmeti, ávexti, fisk eða mjólkui'-
afurðir. Þannig að eitt og sér verður
pasta varla talið sérstök hollustu-
vara en sem hluti af máltíð, t.d. með
grænmeti eða fiski, þá getur verið
um bráðholla máltíð að ræða.
Það er í rauninni erfitt að flokka
einstakar fæðutegundir sem hollar
eða óhollar, það er heildarsamsetn-
ingin sem skiptir máli og þar á pasta
rétt á sér eins og svo margar aðrar
fæðutegundir.
Orðspor pastans sem hollustu-
vara er fyrst og fremst áhrifarík
markaðssetning þeirra sem em að
selja það, ekki síst pasta fyrir
íþróttamenn. Mælt er með því að
fólk sem stundar íþróttir borði hlut-
fallslega meira af kolvetnaríku fæði
og minna af fituríku fæði. Það er
nánast engin fita í pasta og þess
vegna hefur þessi fæða fengið þenn-
an hollustustimpil.
Það sem er hollt er einfaldlega
fjölbreytt fæða,“ segir Laufey.
Rangar umbúðamerkingar
Heppilegur
Blákornsskammtur
fylgir hverjum
stjúpubakka
Nýkaupi. Á 0,25 cl umbúðum
stendur hálfur lítri. Þá hefur saf-
inn hækkað í verði.
„Það hefur verið mikil vinna að
geta boðið viðskiptavinum upp á
nýkreistan appelsínusafa," segir
Finnur Ámason, framkvæmda-
stjóri Nýkaups. „Þessi vara var fá-
anleg hjá okkur og þá eingöngu í
hálfslítra flöskum. Framleiðandi
vildi ekld halda framleiðslunni
áfi-am vegna þess að hann tapaði á
þessari framleiðslu enda magnið lít-
ið og framleiðslan dýr. Við leituðum
víðar að framleiðanda en það var
enginn tilbúinn að gera þetta vegna
þess að magnið er svo lítið og fyrir-
höfnin mikil. Á endanum útveguð-
um við okkur litla vél sem við erum
með bakvið hjá okkur í nýrri að-
stöðu og framleiðum safann sjálf.
Hvað varðar röngu umbúða-
merkingamar þá erum við að nota
miðana sem við áttum fyrir og höf-
um dagsetningamerkt yfir stærð-
ina. Þessi framkvæmd hefur farist
fyrir í þessu tilfelli.
Hvað varðar hækkunina þá hefur
varan ekki verið til í um 6 mánuði og
hefur hækkað aðeins frá þeim tíma,
en það má koma fram að við seljum
þessa vöru á kostnaðarverði.
Við þurfum til að mynda allt að
800 grömm af appelsínum í þessar
litlu flöskur sem nú em eingöngu
seldar í 0,25cl umbúðum," segir
Finnur.
30 Stjúpur
í bakka
„999
Blandaðir litir
grem
50% afsfattur
40-50sm
947
Verb ábur kr. T895
Utanborðsvélar
Vatna-
bátar
Spurt og svarað um neytendamál
Rangar umbúðamerkingar eru á
nýkreistum appelsfnusafa hjá