Morgunblaðið - 20.05.2000, Side 42
42 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Læknisfræði
Sagt frá arfgengum
beinstökkva
Sykursýki
Verður skurðaðgerðum
beitt?
Krabbamein
Ný lækningaaðferð vekur
athygli
Meðganga
Nýjar rannsóknir á
morgunógleði
Byltingarkennd nýjung kann að breyta lífí margra sykursýkisjúklinga
Verða sprauturnar
óþarfar eftir skurðaðgerð?
The New York Times Syndicate.
VERA kann að skurðaðgerðir eigi
eftir að gjörbreyta lífi fjölmargra
sykursýkisjúklinga. Þessi er að
minnsta kosti von vísindamanna,
sem starfa í Kanada og þróað hafa
nýja tegund skurðaðgerða, sem
vakið hafa vonir um að sykursýki-
sjúklingar geti lifað eðlilegu lífi án
insúlín-notkunar og sérstaks mat-
aræðis.
Greint var frá þessari nýju að-
ferð fyrr í vikunni. Nýja aðferðin
felst í því að frumur sem framleiða
insúlín eru græddar í sjúklingana.
Frumurnar eru hins vegar teknar
úr briskirtlum heilbrigðs fólks. Að-
ferðin hefur verið reynd á átta
sjúklingum sem allir þjáðust af
viðvarandi („krónískri"), insúlín-
háðri sykursýki (sjá meðfylgjandi
grein).
Breskur skurðlæknir, James
Shapiro að nafni, greindi frá þess-
ari nýjung á mánudag á þingi
skurðlækna í Chicago í Bandaríkj-
unum. Shapiro, sem starfar við Al-
Sykurmagnið mælt í blóðinu.
Sykursýki er sjúkdómur, sem gerir
það að verkum að sykurmagnið
(þrúgusykur/glúkósi) í blóðinu er
meira en venjulega.
Til eru tvö afbrigði af sykursýki:
• Insúlínháð sykursýki, eða týpa
1, sem er algengari hjá ungu fólki
ogbömum.
• Insúlínóháð sykursýki eða
týpa 2, sem er algengari hjá eldra
fólki.
Þar að auki eru til önnur af-
brigði:
• meðgöngusykursýki er kemur
í kjölfar þungunar og hverfur yfir-
leitt eftir fæðingu og
• sykursýki í kjölfar t.d. bris-
Hvað er
sykursýki?
kirtilsbólgu og í tengslum við vissar
lyfjameðferðir.
Hver er orsök sykursýki?
Sykur er brennsluefni líkamans.
Blóðsykurstjómun er flókið ferli
þar sem margir þættir hafa áhrif,
s.s. líkamsáreynsla, fæði, geta lifrar
til framleiðslu á blóðsykri og ýmis
önnur hormón en insúlín. Til að
blóðsykurinn nýtist sem orkugjafi
þarf hann að fara úr blóðinu inn í
frumur líkamans fyrir tilstuðlan
insúlíns, sem er framleitt í bris-
kirtlinum. Blóðsykurinn hækkar ef
briskirtillinn framleiðir ekki insúlín
(insúlínháð sykursýki) og þegar
briskirtillinn framleiðir nóg insúlín
en það nýtist ekki frumum líkam-
ans (insúlínóháð sykursýki).
Sykursýki er oft í tengslum við
offitu og hreyfingarleysi.
Helstu einkenni sykursýki eru:
þorsti, tíð þvaglát, þreyta, lystar-
leysi og þyngdartap, kláði umhverf-
is kynfæri, sýkingar í húð og slím-
húð.
• Nánar á Netinu: www.net-
doktor.is
berta-háskóla í Kanada, sagði að
sjúklingarnir sem gengist hefðu
undir aðgerðina, lifðu nú allir eðli-
legu lífi.
Fmmurnar voru teknar úr heil-
brigðum einstaklingum. Frumun-
um var haldið lifandi auk þess sem
þær vom „hreinsaðar". Því næst
vom þær græddar í lifur sjúkling-
anna þar sem þær ná að framleiða
insúlín þótt þær séu ekki tengdar
briskirtlinum þar sem sú fram-
leiðsla fer fram í heilbrigðum
mannslíkama.
Kom fram í máli læknisins að ef
til vill myndi ný vitneskja á sviði
einræktunar gera að verkum að
framboð á slíkum fmmum yrði
nægilegt.
Að sögn James Shapiro em
sjúklingarnir átta á aldrinum 29 til
53 ára. Fljótlega eftir aðgerðina
gátu þeir látið ógert að taka inn
insúlín en sumir þeirra höfðu þurft
á allt að 15 sprautum á dag að
halda. Hafa þeir nú að meðaltali
verið án insúlíns í rúma sex mán-
uði. Fólkið hefur þjáðst af syk-
ursýki í 18 til 50 ár.
Talsmaður samtaka breskra
sykursýkisjúklinga sagði nýju
meðferðina „mjög spennandi" og
að hún gæti átt eftir að gjörbreyta
lífi fjölmargra sjúklinga. Fylgst
yrði grannt með framvindu mála
en ráðlegt væri að gæta hófs í öll-
um yfirlýsingum þar til frekari
rannsóknir hefðu farið fram.
Dr. Gordon Weir, bandarískur
læknir sem starfar við Joslin syk-
ursýkimiðstöðina í Boston í
Bandaríkjunum lagði áherslu á að
með þessu væri ekki fundin lækn-
ing við sykursýki auk þess sem
nýja aðferðin myndi aðeins henta
ákveðnum sjúklingum.
Morgun-
ógleði
góð fyrir
fóstrið
New York. Reuters.
ÞÓTT morgunógleði sé verð-
andi mæðrum til óþæginda
kann hún að vera aðferð nátt-
úrunnar til þess að tryggja að
fóstrið fái næga næringu, með
því að halda magni tiltekinna
hormóna stöðugu. Kemur
þetta fram í skýrslu í maíhefti
Obstetrics and Gynecology.
Rachel R. Huxleya, við
Heilbrigðisvísindastofnunina í
Oxford í Bretlandi, segir að
konur sem þjáist af morgun-
ógleði séu síður líklegar til að
missa fóstrið, fæða fyrir tím-
ann eða eignast of létt barn.
Þá segir Huxleya að rann-
sóknir á dýrum hafi leitt í ljós
að insúlínframleiðsla í líkam-
anum aukist á fyrstu stigum
meðgöngu. Eftir því sem
meira er borðað því meiri er
framleiðsla insúlíns og insúl-
ínvaxtarþáttar-1 (IGF-1) og
þá eykst niðurbrot fitu í
líkamanum, sem kemur niður
á fóstrinu. Morgunógleði hef-
ur hemil á fæðuneyslu og þar
með magni þessara hormóna
og tryggir þannig að fóstrið
fái næga næringu.
Huxleya telur að ein
ástæða þess að morgunógleði
hverfur þegar líður á með-
göngu sé sú, að IGF-1 fer
smám saman að gegna lykil-
hlutverki í þroska fóstursins,
og þá er ekki lengur neitt
unnið með því að hafa hemil á
magni þess og insúlíns.
• Tenglar
Meðganga og fæðing:
www.netdoktor.is/heilsa
Hvað er beinstökkvi?
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spurning: Þekktur mun vera á ís-
landi arfgengur sjúkdómur sem
lýsir sér í stökkum beinum er
brotnað geta mjög auðveldlega.
Hvað er vitað um þennan sjúk-
dóm, hversu útbreiddur er hann
og hvað veldur honum?
Svar: Sjúkdómurinn sem hér um
ræðir er stundum kallaður bein-
stökkvi (stökk bein) en á erlend-
um málum heitir hann m.a. fragil-
itas ossium eða brittle bones.
Þessi sjúkdómur veldur mikilli
rýrnun beinmassans og þar með
verða beinin stökk og brotna auð-
veldlega. Honum fylgja gjarnan
bláar augnhvítur, óeðlilegar eða
lélegar tennur, léleg heyrn og ætt-
arsaga um sjúkdóminn.
Beinstökkvi er oft flokkaður í 4
afbrigði sem eru misalvarleg. Al-
varlegustu afbrigðin valda fóstur-
dauða, dauða við fæðingu eða
skömmu eftir fæðingu.
Mildari afbrigði sjúkdómsins
hafa gang sem er mismunandi eft-
ir einstaklingum. Sumir virðast
eðlilegir við fæðingu en versnar
síðan stöðugt það sem eftir er æv-
innar. Sumir fá fjöldann allan af
beinbrotum sem börn, lagast við
kynþroska en fara svo aftur að
brotna síðar á ævinni. Konur með
sjúkdóminn fá oft beinbrot á með-
göngu og eftir tíðahvörf. Sumar
konur með væg afbrigði sjúk-
dómsins fara ekki að brotna fyrr
en eftir tíðahvörf og getur verið
erfitt að greina sjúkdóminn frá
beinþynningu sem oft verður á
Rýrnun
beinmassa
þeim aldri.
í Evrópu og N-Ameríku er talið
að um 1 af hverjum 20.000 sé með
beinstökkva, en hin ýmsu afbrigði
sjúkdómsins eru misalgeng. Tíð
beinbrot valda aflögun beina og
beinagrindar sem smám saman
getur valdið meiri eða minni fötl-
un.
Hvíta augnanna getur verið
eðlileg en er oft bláleit eða jafnvel
skærblá. Þessi blái litur augnanna
stafar sennilega af bandvefsbreyt-
ingum sem eiga skylt við breyt-
ingarnar í beinunum án þess að
hafa áhrif á sjónina (til er annar
arfgengur kvilli þar sem hvítur
augnanna eru bláar en beinin eðli-
leg).
Tennurnar geta verið eðlilegar
eða aflagaðar og brún- eða bláleit-
ar, þær eru oft brothættar eins og
beinin, hættir til að brotna og þá
getur þurft að fjarlægja þær. Oft
fer að bera á skertri heyrn eftir 10
ára aldur og um 9 af hverjum 10
eru komnir með einhverja heyrn-
arskerðingu þegar komið er yfir
þrítugt. Heyrnin heldur oftast
áfram að versna það sem eftir er
ævinnar.
Ýmsir aðrir kvillar geta fylgt
þessum sjúkdómi.
Ekkert er vitað um orsakir
beinstökkva annað en að flestir
sjúklinganna eru með erfðagalla
(stökkbreytingu) í genum sem
geyma upplýsingar um kollagen
sem er hluti af bandvef. Bandvef-
ur, og þar með bein, þessara ein-
staklinga er þess vegna afbrigði-
legur og það getur e.t.v. skýrt eðli
og einkenni sjúkdómsins.
Margir þessara sjúklinga geta
lifað næstum eðlilegu lífi þrátt fyr-
ir mismikla fötlun. Ekki er um að
ræða neina sérstaka meðferð aðra
en nauðsynlegar aðgerðir vegna
beinbrota og afmyndunar beina
ásamt sjúkraþjálfun. Verið er að
gera tilraunir með lyf sem notuð
eru við beinþynningu en ekki er
enn vitað hvort þau hjálpa. Sums
staðar hefur þessum sjúklingum
verið gefið vaxtarhormón, með
einhverjum árangri að því er virð-
ist. Heyrnartap er stundum hægt
að laga með aðgerð á miðeyra.
• Á NETINU: Nálgast má skrif
Magnúsar Jóhannssonar um
læknisfræðileg efni á heimasíðu
hans á Netinu. Slóðin er: http://
www.hi.is/~magjoh/
• Leaendur Morgunblnðeinii geta npurt
Imknlnn um það nem þclm llgguri hjnrln.
Teklð er i mðtl npurnlnpum i vlrkum
döniim mllll klukknn 10 og 17 /uíma
5691100 og bnWum eða nmibrð/tim merkti
Vlkulok. Fax 5601992. Einnlgecta lea-
endur nent fyrtrspurnir nlnar með tölv-
upðatl i netfang Maunilnar Jðbannasonari
elmag(S>hotmail.com