Morgunblaðið - 20.05.2000, Page 52

Morgunblaðið - 20.05.2000, Page 52
52 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ HARALDUR HANNESSON + Haraldur Hann- esson, útgerðar- maður og skipstjóri, fæddist á Stokkseyri 24. júní 1911. Hann lést í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja á lokadaginn 11. maf síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Hannes Jónsson, skipstjóri á Stokkseyri og Sess- elja Sigurðardóttir. Haraldur átti átta hálfsystkini og þrjú alsystkini. Aðeins ein alsystir Haraldar er enn á lífi, Sigríður, f. 1920, sem býr í Danmörku ásamt manni sín- um Herberti Nielsen. Haraldur kvæntist 24. nóvem- ber 1933 Elínborgu Sigbjörnsdótt- ur frá Ekru í Vestmannaeyjum, f. 3. september 1911, d. 11. ágúst 1995. Foreldrar hennar voru Sig- björn Bjömsson frá Ekru og Þór- anna Guðrún Jónsdóttir. Haraldur og Elínborg bjuggu alla sína bú- skapartíð í Vestmannaeyjum. Þeim varð fimm bama auðið og eru íjögur þeirra á lífi. Þau eru: 1) Unnur, f. 27.10. 1933, gift Magnúsi B. Jónssyni og eiga þau Qögur böm. 2) Ásta, f. 28.11. 1934, hennar maður var Óskar Haralds- son, en Óskar lést árið 1985 og eignuðustþau fjögur börn. 3) Hann- es, f. 4.10. 1938, kvæntur Magneu G. Magnúsdóttur og eiga þau þrjú börn. 4) Sig- urbjörg, f. 2.10. 1939, d. 11.7.1942. 5) Sigurbjörg, f. 1.10. 1945, gift Friðriki Má Sigurðssyni og eiga þau tvo syni. Haraldur hóf snemma að sækja sjóinn, lauk mótornámskeiði að- eins átján ára og ári síðar lauk hann prófi frá Stýrimannaskólan- um í Vestmannaeyjum. Haraldur hóf störf sem stýrimaður á mb. Öl- veri sem gerður var út frá Stokks- eyri árið 1930. Skipstjómarferil sinn hóf hann árið 1932 á mb. Hilmi VE og útgerð hóf hann ári síðar þegar hann keypti fjórða hlut í Hilmi VE, og var Haraldur skipstjóri á þeim báti til 1939. Það sama ár eða 1939 keypti hann mb. Baldur VE 24 í félagi við Jónas Jónsson og Rögnvald Jónsson, en á Baldri var Haraldur skipstjóri til ársins 1972 er sonur hans Hannes tók við skipstjórninni. Hannes eignaðist síðan þriðjungshlut í út- gerð Baldurs VE á móti fóður sín- um. Frá 1972 vann Haraldur í landi við útgerð skipsins og er Baldur VE enn gerður út. Har- aldur hafði því gert Baldur VE út í 61 ár og verið útgerðarmaður í 67 ár er hann lést. Haraldur lét að sér kveða í ýmsum félögum og má þar nefna Björgunarfélagið, Lifrar- samlag Vestmannaeyja, TJtvegs- bændafélagið og skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðanda. Hann var einn af stofnendum Vinnslustöðvarinnar hf. og sat þar í stjórn frá 1952-1986 og sat einnig í stjórn tveggja dótturfyrirtækja Vinnslustöðvarinnar um árabil, Gunnars Ólafssonar & Co hf. og Fiskimjölsverksmiðjunnar í Vest- mannaeyjum hf. Þá sat hann í stjórn Bátaábyrgðarfélags Vest- mannaeyja í tæpa þijá áratugi. Haraldur verður jarðsunginn frá Landakirkju í Vestmannaeyj- um í dag og hefst athöfnin klukkan 10.30. Afi minn, Haraldur Hannesson, útgerðarmaður og skipstjóri, er nú látinn, tæplega 89 ára að aldri. Það var táknrænt að afi skyldi kveðja okkur á hinum forna lokadegi, 11. maí, en við þennan dag voru lok vetr- arvertíða miðuð hér á árum áður. Afi var ættaður frá Stokkseyri og snemma varð ljóst hver yrði starfs- vettvangur hans á lífsleiðinni því ungur fór hann að vinna við sjávar- síðuna og innan við tvítugt lauk hann stýrimannaprófi frá Stýrimanna- skólanum í Vestmannaeyjum. Afi hóf störf sem stýrimaður á Ölveri frá Stokkseyri árið 1930. Árið 1931 reri hann á Þorgeiri goða með Sighvati Bjarnasyni, en skipstjórn hóf hann á Hilmi VE árið 1932, var skipstjóri þar til ársins 1939 og síðan á Baldri VE frá 1939-1972. Afi var því skip- stjóri í 40 ár og var ætíð farsæll og fengsæll og stýrði fleyi ávallt heilu til hafnar. Afi hóf útgerð er hann keypti hlut í Hilmi VE árið 1933. Rétt áður en síðari heimsstyijöldin hófst keypti hann ásamt félögum sínum Baldur VE og til Eyja kom þetta mikla happafley 29. júní 1939 og enn þann dag í dag er hann í fullum rekstri, tæplega sjötugur að aldri, en Baldur VE var smíðaður í Danmörku 1931. Á Baldri VE hefur verið stund- aður ýmiss veiðskapur, netaveiðar, togveiðar og einnig nótaveiðar. Ekki var ég orðinn hár í loftinu þegar ég fór að fylgjast grannt með aflabrögð- um Baldurs VE og ég minnist þess að hafa lengi vel haldið nákvæmt bókhald yfir aflabrögðin á Baldri og þá einkum í samanburði við Suðurey VE. Þetta var nú fyrir daga kvóta- kerfisins. Afi hélt um skipstjórnina á Baldri VE til 1972 en þá tók Hannes sonur hans við, en hann hafði eignast hlut félaga afa í útgerðinni. Hannes er enn við stjómvölinn á Baldri og nú hefur sonur Hannesar og alnafni afa öðlast skipstjórnarréttindi og hafið störf á bátnum. Afi fór að vinna við útgerðina í landi og sinnti því hlut- verki af samviskusemi. Utgerðin hjá afa gekk alltaf vel og til marks um það sagði hann mér að hann hefði aldrei tekið víxil eða lán á sínum út- gerðarferli. Það var mjög gaman að spjalla um sjóinn við afa og ófáir kaffibollamir vom drukknir yfir spjalli um sjávarútveginn. Ekki var afi minni gæfusmiður í sínu einkalífi því 1933 kvæntist hann eyjarósinni Elínborgu Sigbjöms- ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. mt mf JB Sverrir WPrtffrWm J/4: gm Einarsson Sverrir útfararstjóri, ^ AH Olsen sími 896 8242 mLulÆW útfararstjóri. Baldur Frederiksen útfararstjóri, sítni 895 9199 Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogí. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www .utfarars tof a .ehf. is Vesturhlíð 2 Fossvogi ifmi 551 1266 www.utfor.is Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar. Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins með þjónustu allan sólarhringinn. % ’y 8BnV« Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF. dóttur frá Ekra og varði hjónabandið í 62 ár. Amma var góð kona og skemmtileg og var afa mikill félagi. Það var því mikill missir fyrir okkur öll og sér í lagi afa þegar amma kvaddi okkur tæplega 84 ára að aldri árið 1995. Afi átti við nokkur veikindi að stríða síðustu árin, en hann tókst á við þau af æðraleysi og aldrei kvart- aði hann við nokkurn mann. Nú síð- ustu vikurnar hafði heilsu hans hrak- að veralega og afi var því tilbúinn að takast á við ferðina miklu og kveður hann þetta jarðneska líf eftir farsælt og fengsælt æviskeið. Ég er hins vegar sannfærður um að hann er ekki hættur í útgerð og nú verður ró- ið á ný mið. Afi og amma voru einkar viðkunn- anleg og hlýleg og var annt um sína. Þau tóku ávallt vel á móti manni og alltaf vora einhverjar veitingar í boði. Fagurlyst, en svo nefndist hús þeirra, var einskonar fjölskyldumið- stöð og þangað vora allir alltaf vel- komnir. Einnig þótti börnunum mín- um mjög gaman að heimsækja ömmu og afa, enda var alltaf eitthvert góð- gæti í boði. I gömlu Fagurlystina var alltaf gaman að koma og um langt árabil bjó hjá þeim Jónas Jónsson frá Stokkseyri, en hann átti og gerði út Baldur VE með afa. Jónas var ein- stakur maður og bamgóður og því var tvöfalt tilefni til að líta við í Fag- urlystinni. í jarðeldunum á Heimaey 1973 fór Fagurlystin undir hraun og þegar afi og amma komu aftur eftir gos bjuggu þau fyrst á Heiðarvegi 46 og síðan í Birkihlíð 5, sem afi nefndi Fagurlyst. Afi tók hin síðari ár virkan þátt í félagslífi eldri borgara, einkum þó á meðan ömmu naut við. Mynduðu þau góð vinatengsl við margt fólk á sínu reki í gegnum þetta félagslíf með eldri borguram. Meðal annars má nefna að afi fór ásamt þeim Einari heitnum Sigurjónssyni og Bergi El- íasi Guðjónssyni í daglegar göngur og var oft mikið spjallað og sagði hann mér að þessar göngur hefði fært sér mikla gleði og ánægju. Síðan má nefna að afi hóf að stunda sund- GARÐHEIMAR BLÓMABÚÐ • STLKKJARBAKKA 6 SÍMI 540 5320 ^ laugina nær daglega eftir áttrætt þegar heilsan leyfði. Að leiðarlokum vil ég og fjölskylda mín þakka afa og ömmu fyrir ára- langa samfylgd og skemmtileg kynni. Missir okkar er mikill og við munum sakna þess að geta ekki kom- ið við í Birkihlíðinni og fengið í kaffi- bollann og rætt málin við afa. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimirkveðja vininn sinn látna er sefur hér hinn síðsta blund. (V. Briem.) Elsku mamma, Unnur, Sibba og Hanni, ég bið almáttugan Guð um að styrkja ykkur og fjölskylduna alla á þessum tímamótum því söknuður okkar er mikill. Genginn er mikill heiðursmaður og hafi hann þökk fyr- ir allt og allt Hörður Óskarsson og fjöiskylda. Látinn er ástkær afi minn, Halli á Baldri, tæplega 89 að aldri. Það er margs að minnast frá samverustund- um okkar afa í gegnum árin. Ungur fékk ég að fara með honum til sjós eða dvelja með honum löngum stund- um í Baldurskrónni, en svo nefnist veiðarfærahús Baldurs VE við Heið- arveg. Þetta vora ógleymanlegar og lærdómsríkar stundir og víst er að afi kenndi manni margt. Fyrir tilstilli afa fór ég nokkur sumur í sveit að Þúfu í Landsveit, þar sem hálfbróðir hans Dagbjartur og kona hans Sigríður vora ábúend- ur. Sveitadvölin var mjög gefandi og mikið ævintýri. Hápunktur sumar- dvalarinnar var þegar afi og amma komu í heimsókn að Þúfu og stund- um tóku þau mig með í stutt ferðalög um landið. Afi og amma bjuggu um langt ára- bil í einkar reisulegu húsi við Urðar- veg sem nefnt var Fagurlyst. Þangað leitaði maður mikið sem krakki og oft fékk maður að gista. Segja má að um tíma hafi þau verið mér sem fóstur- foreldrar því frá fermingu og þar til ég sjálfur fór að búa bjó ég hjá þeim, fyrst í gömlu Fagurlystinni, síðan eftir gos á Heiðarveginum og síðan í Birkihlíðinni. Þetta vora góð ár og amma og afi reyndust mér sérstak- lega vel og þeim á ég margt að þakka. Það var mikill missir fyrir okkur öll þegar amma kvaddi þetta líf 84 ára gömul árið 1995. Mestur var þó missir afa og í hönd fóra erfiðir tímar hjá honum. Um leið og hann tókst á við sorgina fór heilsan að bresta en afi tókst á við þetta af sinni alkunnu hógværð. Þrátt fyrir ýmis áföll á undanfömum áram kvartaði hann aldrei. Þeir voru ófáir kaffibollamir sem við drakkum saman og bíltúr- amir sem við fóram og mikið var spjallað, einkum um bátana, afla- brögð, veðrið. Afi fylgdist vel með skipinu sínu Baldri VE og alltaf gat maður fengið nýjustu upplýsingar um gang mála þar um borð. Mér era einkar minnisstæðir okkar síðustu bíltúrar þegar heilsu afa hafði hrak- að svo að hann gat ekki lengur keyrt. Afi skynjaði vel að hverju stefndi og því var sem aldrei fyrr spjallað um sjóinn og aflabrögðin, svona rétt eins og við væram að gera þetta allt upp. Að leiðarlokum vil ég fyrir mína hönd, konu minnar og sona þakka þér elsku afi fyrir samfylgdina sem hefur reynst mér og minni fjölskyldu mikið og gott vegnanesti á lífsleið- inni. Nú sameinist þið amma á ný í guðs blessun. Megi algóður guð blessa minningu afa og almættið styrkja okkur í minningu um látinn heiðursmann. Haraldur Óskarsson og Qölskylda. Nú hafa landfestar verið leystar. Afi minn hefur lagt upp í sína hinstu ferð. Minningarnar streyma og af nógu er að taka. Ur bernsku man ég vel eftir stóra og fallega húsinu þeirra afa og ömmu, Fagurlyst. Þar var stór garð- ur sem gaman var að leika sér í og í minningunni var alltaf svo gott veð- ur. Bíltúrarnir í gamla sjógræna V-37 Taunusinum vora skemmtileg- ir, þar sem mesta sportið var að sitja á milli afa og ömmu frammí. Eftir gos hefur Birkihlíðin verið staður margra góðra stunda, þar sem fjöl- skyldan hefur komið saman, enda afi og amma sérlega góð heim að sækja. Það verður því skrýtið fyrir mig og mína að geta ekki komið við og fengið mola og djús hjá afa. Afi hefur í rúm 60 ár gert út Bald- ur VE 24. Útgerðin hefur alla tíð ver- ið farsæl og hún verið hans líf og yndi. Hann var sjálfur skipstjóri á Baldri í rúm 30 ár eða allt til ársins 1972, er faðir minn tók við skip- stjórninni. Frá þeim tíma sat hann ekki auðum höndum. Króin eða „hús- ið“ eins og fjölskyldan kallaði það varð hans vettvangur. Þar vann hann við viðgerðir og viðhald á ýmsu er laut að bátnum. Afi var nýtinn og henti aldrei neinu sem hugsanlega yrði hægt að nota síðar. Þetta má vel sjá þegar komið er inn í „hús.“ Líf afa breyttist mikið við snöggt fráfall ömmu í ágúst 1995. Það tók á að finna lífstaktinn aftur eftir 62 ára gæfuríkt hjónaband. Árin síðan hafa þó verið góð þótt veikindi hafi sett þar nokkurt mai'k á. Haustið 1998 var tekinn af honum vinstri fóturinn. Það var honum nokkuð áfall, enda kannski ekki auð- velt að koma sér aftur á stjá þá 87 ára gamall. En þá sýndi hann mikinn dugnað og lífskraft og kom sér á ný á gott ról. Með stuðningi fjölskyldunn- ar tókst honum að búa áfram í Birki- hlíðinni og ég veit að það var honum mikils virði. Seinna akkeri Fagur- lystarfjölskyldunnar er fallið. Minn- ingamar era góðar og þær mun ég geyma vel. Far þú í friði elsku afi minn. Hafdis Hannesdóttir. Mig langar að minnast hans afa í örfáum orðum. Það era margar minningar sem koma upp í hugann, er ég hugsa til baka um samverastundir okkar afa. Mér þótti alltaf spennandi að fá að þvælast um með afa á mínum yngri áram, fara á bryggjurnar, upp í veið- arfærahús og hjálpa til með það sem ég gat hjálpað til með, hvort sem það var heima við eða tengdist útgerð- inni. Þegar ég varð eldri urðu heim- sóknimar ekki færri, þvert á móti þótti mér alltaf jafngaman að heim- sækja ömmu og afa og þess vegna tók ég kannski enn frekar eftir því, að það var eins og hluti af afa hyrfi á braut þegar amma dó, en það lýsti best þeirra hjónabandi, að þau vora ekki aðeins hjón heldur allra bestu vinir. En nú undir það síðasta þegar afi átti í sínum veikindum, skynjaði maður það ekki nema að litlu leyti, því alltaf þegar ég spurði hann um líðanina, þá svaraði hann á þá lund að hann væri eldsprækur og aldrei verið hressari og þar fram eftir götunum. En nú þegar komið er að leiðarlokum og afi er horfinn á braut, finn ég ekki eingöngu fyrir söknuði, sorg og tóm- leika, heldur líka fyrir vott af gleði, því ég veit að nú situr afi með ömmu sér við hlið uppi hjá almættinu og þau tvö munu áfram halda vemdar- hendi yfir sinni stóra fjölskyldu. Ég lifi’ og ég veit hve löng er mín bið, ég lifi’ uns mig faðirinn kallar, ég lifi’ og ég bíð, uns ég leysist í frið, ég lifi sem farþegi sjóinn við, uns heyri ég, að Herrann mig kallar. Ég ferðast og veit, hvar mín för stefnir á, ég fer til Guðs himnesku landa, ég fer, uns ég verð mínum frelsara hjá og framar ei skilnaðarsorgin má né annað neitt ástvinum granda. Ég dey og ég veit, nær dauðann að ber, ég dey, þegar komin er stundin, ég dey, þegar ábati dauðinn er mér, ég dey, þegar lausnin mér hentust er og eilífs lífs uppspretta’ er fundin. Ég lifi nú þegar í Drottni í dag, ég dey, svo að erfi ég lífið, ég ferðast mót eilífum unaðarhag. Hví er þá mín sál ei með gleðibrag? ég á þegar eilífa lífið. (Þýð.Stef.Thor.) Elsku mamma, Ásta, Unnur og Hanni. Guð styrki ykkur og okkur öll í þeirri sorg sem við göngum í gegnum þessa dagana en minnumst þess að

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.