Morgunblaðið - 20.05.2000, Síða 60
80 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Bókasafni slátrað í
'v.
menningarveislunni
MENNING, menn-
ing, menning. Það er
menningarveisla og
ekkert til sparað. Ein
lítfl leið tfl spamaðar
hefur þó fundist og
læðst inn á menningar-
ári hjá Reykjavíkur-
borg. Litla bókasafns-
útbúið í Vesturbænum
verður lagt niður svo
lítið beri á, ekki opnað
aftur eftir sumarleyfi.
Spamaðurinn er einn
maður í þrjá tíma fjóra
daga vikunnar, kl. 2-5,
og til kl. 7 á föstudög-
um, og safnið lokað á
sumrin þegar hann
Tryggvi fer í frí. Húsnæðið á Reykja-
víkurborg, svo og útbúnaðinn, m.a.
litla barnahornið þar sem maður sér
böm grúska og velja sér bækur þeg-
ar fram hjá glugganum er gengið.
Þótt safnið sé ekki stórt bætir hann
Tryggvi það upp með því að fletta
upp í tölvunni og koma iðulega dag-
Inn eftir með umbeðna bók.
Þegar byggðir vom verkamanna-
bústaðir fyrir fjölskyldur láglauna-
manna í Reykjavík við Asvallagötu
þótti ástæða tfl að opna þar árið 1936
útibú Borgarbókasafns (þá Alþýðu-
bókasafns) þai' sem bamafjöldinn var
svo mikill og í nánd mikið af eldra
fólki.
Þessu litla safni í
leiguhúsnæði kynntust
flest börn, sem ólust
upp í Vesturbænum
næstu 50 árin. Fyrir um
áratug, þegar bama-
fjöldinn hafði færst
vestur undir Granda
með nýrri byggð, eins
og þörfin á skólum og
barnaheimilum á því
svæði sýnir, og í bygg-
ingu vom stórar blokk-
ir fyrir aldraða með
þjónustumiðstöð í einu
þeÚTa, er gerði öðrum
öldraðum fært að halda
áfram að búa heima,
var keypt húsnæði mið-
svæðis við Grandaveg og safnið flutt
og stækkað, enda hafði íbúum fjölgað
mikið, ekki síst eldra fólki. Var sér-
staklega lögð áhersla á að hafa góða
bamadeild í þessu safni, sem hefur
heppnast vel, enda geta krakkamir
komið sjálfir og óhultir, gangandi eða
hjólandi, eftir göngustígunum sem
við hönnun hverfisins vora gerðir, því
stórar umferðai-æðar era í kring.
Hvers vegna verður safninu lokað?
spyr hver annan. Svarið er að nú,
þegar aðalsafnið í Þingholtsstræti
verður flutt í nýtt húsnæði í safnahúsi
í Hafnarstræti, góðu heilli, þvl fyrir
aðalsafni með allri vinnuaðstöðu sem
slíkt safn þarfnast hefur verið barist í
Sparnadur?
Ég trúi því enn að það
skipti máli að laða börn
að bókum, segir Elfn
Pálmadóttir, og leyfa
þeim að kynnast bóka-
söfnum sem eðlilegum
þætti í tilverunni.
áratugi, geti fólk úr öllum Vestur-
bænum bara farið þangað. Ef ekki,
þá út á Seltjarnames. Vísast getur
fullorðið fólk á bíl ekið þangað, ef það
finnur þá nokkurt bílastæði í Hafnar-
strætinu sem þarf auðvitað að borga
fyrir, nú með hótunum um að stór-
hækka stöðumælagjöld og sektir í
miðborginni. Fer þá lítið fyrir ára-
tugalöngum ívilnunum á bókasafns-
skírteininu svo að aldraðir þurfi ekki
að neita sér um bók. Það dugar
skammt ef þeir komast ekki á stað-
inn. Og hvað bömin varðar, þá vona
ég sannarlega að foreldrar hvetji þau
ekki út í þessa gífurlegu umferð sem
er um Hringbrautina og Grandaveg-
inn og niður í miðbæinn. Ég hefi
nefnt þetta bæði við borgarstjóra og
borgarbókavörð, því mér hefur verði
Elín
Pálmadóttir
annt um Borgarbókasafnið síðan ég
var þar stjórnarformaður um árabfl,
og tiúi því enn að það skipti máli að
laða börn að bókum og leyfa þeim að
kynnast bókasöfnum sem eðlilegum
þætti í tflveranni. Þegar 4-5 ára
hnáta heimsækir mig er orðin föst
regla, sem hún vill ekki sleppa, að
fara í bókasafnið á Grandavegi, þar
sem hún grúskar í mjög aðgengileg-
um bókum í bamahorninu, velur eina
og við föram heim og lesum hana
saman. Þetta kemur heim og saman
við það sem Ragnheiður Ti-yggva-
dóttir, framkvæmdastjóri Rithöf-
undasambandsins, sagði um daginn í
viðtali vegna úthlutunar úr bóka-
safnssjóði, þar sem með tölvuvæðing-
unni er hægt að sjá hvaða einstakar
bækur era lánaðar út. Aðspurð hvaða
hópar það væra sem mest fengju lán-
aðar bækur í söfnunum svaraði hún
ákveðið: Börnin!
Nú segja bæði borgarstjóri og
borgarbókavörður að verið sé að tala
um að lengja
e.t.v. viðdvöl bókabílsins úr einum
klukkutíma í viku við aldraðrablokk-
ina við Aflagranda í tvo tíma. Og að
krökkum þyki gaman að koma í bóka-
bíl. Það var víst misskilningur þegar
sumir héldu að hætt hefði verið við
þennan menningarsparnað er borg-
arbókavörður, eftir að hafa í útvarps-
viðtali sagt stefnu safnsins að hafa
útibú í öllum hverfum, var spm-ður
hvort önnur bókasöfn en Þingholts-
safnið fengju að halda sér og svaraði
því játandi. Grandasafnið mun sem-
sagt ekki opna aftur eftir sumarlok-
un.
Mér rann til rifja þegar ég var
stödd í safninu um daginn og gömul
kona sagði með trega í röddinni: ,A-
virkilega að loka hér? Þá verð ég að
hætta að lesa! Ég kemst ekki svo
langt!“ Hún er 82ja ái-a, komin vel yf-
ir þann aldur sem tekinn er með í
könnunum um bókanotkun í söfnun-
um, en hann nær ekki til nema til 65
eða 70 ára, að því er fram kom í fyrr-
nefndu viðtali. Varla er það af því að
aldraðir eigi að hætta að lesa á þessu
ákveðna aldursári, miklu líklegra er
að þar sé farið í fótspor stjórnvalda,
sem í rökum um lífeyrisgreiðslur
veifa tölum um tekjur fólks frá 67
ára, þegar 60% eru enn í launaðri
vinnu og hættir við 75 ára aldurinn til
að sanna að allir ellilífeyrisþegar til
100 ára aldurs hafi það svo gott að
meðaltali.
Hvað er til ráða? Það er aðal-
ástæða þess að ég lét verða af því að
vekja á
þessu athygli. í Borgarbókasafni
er mjög góð þjónusta: Bókin heim!
Nú vil ég benda lesendum í Vestur-
bænum sem þá verða fjarri bókasafni
- og raunar í Austurbænum líka - á
að nota þessa ágætu þjónustu Borg-
arbókasafnsins. Það þarf bara að
hringja í Borgarbókasafn og fá sam-
band við réttan aðila, ræða við hann
og biðja um bækur og þá era þær
sendar heim. Engin sérstök skilyrði
era fyrir því að fá bækur sendar
heim.
Það fer víst ekki á milli mála, að
mér finnst þessi litla spamaðarleið
dálítið lágkúruleg í allri menningar-
súpunni, sem ég nýt af alhug, enda
vel ferðafær, bílfær og vinnufær til að
geta borgað. Mest af þessum stór-
kostlegu viðburðum era þó einnota
atburðir, sem lýkur þegar árið renn-
ur út. En þá verður litla bókasafnið,
sem notað er til menningarneyslu í
daglega lífinu, horfið.
Höfundur er blndamadur og
rithöfundur.
CVftamin
▼ Sockcifíf le
máá*)
Apótekin
rHUSASKILTI
|f
10% afsláttur ef pantað er
fyrir 15. maí.
PIPAR OG SALT
Klapparstíg 44 ^ Sími 562 3614 |
Bylting
¥
Fjölnota byggingaplatan
sem allir hafa beðið eftir!
V1R0C byggingaplatan er fyrir veggi, loft og gólf.
VIR0C byggingaplatan er eldþolin, vatnsþolin,
höggþolin, frostþolin og hljóöeinangrandi.
VIR0C byggingaplatan er umhverfisvæn.
VIR0C byggingaplatan er platan sem
verkfræðingurinn getur fyrirskrifað nánast blint.
Staðalstærð: 1200x3000x12 mm.
Aðrar þykktir: 8,10,16,19,22, 25, 32 & 37 mm.
Mesta lengd: 305 cm. Mesta breidd: 125 cm
Vlroc utanhússklæðning
ÞP
&CO
Leltlð upplýsinga
Þ.ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚIA 29 S: S53 8640 8 568 6100
Go eykur ferða-
frelsi Islendinga
í Morgunblaðinu 19.
maí sl. skrifar Tómas
Jónsson, íþróttanudd-
ari, grein um lágfar-
gjaldaflugfélagið Go í
eigu British Airways,
sem er að hefja áætlun-
arflug milli London og
Reykjavíkur nú í sum-
ar. Hann ásakar Go um
„að hafa íslendinga að
fíflum“ vegna þess að
flest ódýrastu fargjöld-
in seldust á stuttum
tíma.
Þetta er í fyrsta sinn
um nokkurt skeið sem
erlent áætlunarflugfé-
lag hefur reglubundið
íslandsflug. Go er eitt af þremur
lágfargjaldaflugfélögum Breta, sem
hafa haslað sér völl í áætlunarflugi í
Jón Hákon
Magnússon
r
IM V LITAPRENTVEL
HAGÆÐA FILMUUTKEYRSLA
HÖNNUN OG UMBROT
FLJÓT OG GÓÐ AFGREIÐSLA
FILMUGERÐ:
• mjög hraövirk útkeyrsla
• stæröir allt aö 550 mm x 609 mm
• Rastaþéttni allt aö 200lpi
• upplausn allt aö 3000 dpi
• útskot i A2 stæröum
• útskotnar filmur geta komiö tilbúnar
punchaöar
• styöur PostScript Level 1 og 2,
PostScript 3. PDF 1.2, TIFF 6.O. EPS
og JPEG
• möguleiki é útkeyrslu I slembirasta
PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA
ACCCCTDDCMT_______
UrrOC I rnOM I EHF.
AUÐBREKKU 8 • 200 KÓPAVOGUR • SÍMAR 564 6020 - 564 6021 • FAX 564 6022
Evrópu með undra-
verðum árangri. Þessi
félög hafa skapað ótrú-
legum fjölda fólks
möguleika á að ferðast
mun ódýrara með flugi
en áður þekktist. Go
hefui- flutt yfir 2,5
milljónir farþega milli
18 borga f Evrópu frá
því að það var stofnað
fyrir tveimur áram,
sem segir sína sögu.
Forráðamenn Go
fengu augastað á Is-
landi þegar þeim varð
Ijós mikill áhugi Breta
á að ferðast til fslands,
en í hugum þeirra er
Reykjavík „eool“ staður. Þeir ákváðu
því að hefja flug tfl íslands nú í sum-
ar til að svara eftirspurn í Bretlandi
eftir ódýru flugi til íslands. Yfir
4.000 breskir ferðamenn tryggðu sér
fljótt lægstu fargjöldin til Islands og
á áttunda hundrað íslendinga hefur
þegar bókað far á sama gjaldi frá
Keflavík. í fyrsta sinn njóta íslend-
ingar betra verðs en Bretar á þessari
flugleið.
Héðan kostar lægsta fargjaldið
með flugvallarskatti um £80 meðan
Bretar verða að greiða um £120.
Go mun fljúga fjóram sinnum í
viku með Boeing 727-þotum sem
taka 148 farþega í hverri ferð. Þetta
þýðir að a.m.k. 6.000 erlendir ferða-
menn koma til landsins í sumar, sem
annars hefðu sennilega ekki lagt
land undir fót og komið hingað. Þessi
viðbót er mikil búbót fyrir ferðaþjón-
ustu landsmanna og skapar auknar
tekjur af ferðamönnum.
I auglýsingum Go er boðið upp á
fargjöld frá 10.000 krónum. Flest
sæti era seld á þessu verði en ekki
öll. Go rétt eins og önnur áætlunar-
flugfélög býður upp á mismunandi
fargjöld í hverri ferð, en nærri lætur
að um helmingur sæta sé boðinn á
lægsta fargjaldi, sem er miklum mun
hærra hlutfall en tíðkast hjá eldri
áætlunarflugfélögum. Dýrasta far-
gjaldið er um 24 þúsund krónur sem
er helmingur af apex-fargjaldi ann-
Flugferðir
Go, rétt eins og önnur
áætlunarflugfélög, býð-
ur upp á mismunandi
fargjöld í hverri ferð,
segir Jdn Hákon Magn-
ússon, en nærri lætur að
um helmingur sæta sé
boðinn á lægsta far-
gjaldi, sem er miklum
mun hærra hlutfall en
tíðkast hjá eldri áætlun-
arflugfélögum.
arra félaga. Tómas Jónsson sakar Go
um að „sigla undir fölsku flaggi“ og
„að hafa Islendinga að íifium“ vegna
þess að hann fékk ekki það fargjald
sem hann vildi af því að aðrir urðu á
undan honum. Ef maður fær ekki
miða á vinsælt leikrit í Þjóðleikhús-
inu vikum saman af því að það er
uppselt, er þá leikhúsið „að hafa Is-
lendinga að fíflum“? Ef stór verslun-
arkeðja býður ótrúlegt tilboð á kjöti
á föstudegi og ekkert er til þegar
maður kemur úr vinnu klukkan 5, er
þá verslunin að „að hafa íslendinga
að fíflum“? I markaðssamfélagi fer
allt eftir framboði og eftirspurn og
fyrstir koma - fyrstir fá.
Það væri nær að þakka Go fyrir að
auka ferðafrelsi íslendinga og fyrir
það eitt að hefja hingað reglubundið
áætlunarflug. Það er rétt sem höf-
undur segir, að ef ekki er til heppi-
legt fargjald hjá einu fyrirtæki má
leita til annarra ferðasala, sem þegar
era nokkrir fyrir. Go hefur nú bæst í
þennan hóp okkur Islendingum til
hagsbóta.
Höfundur er talsmaður Go á Islandi.