Morgunblaðið - 20.05.2000, Page 78

Morgunblaðið - 20.05.2000, Page 78
78 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Grettir EG EiTá KAFI í 6NÝmGJU?p ,jtóu. W-v vS Ljóska Ferdinand ,,..en Davíð vann orrustuna þegar hann hitti Golíat i höfuðið með steini...“ Og hvað sagði mamma Golíats um það? BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Silfur Egils á SkjáEinum Frá Áslaugu Huldu Jónsdóttur: SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 26. mars vildi svo til að sendir hjá Landssím- anum bilaði með þeim afleiðingum að útsending SkjásEins féll niður í eina og hálfa klukkustund. Við þetta raskaðist endursýning á umræðu- þættinum Silfur Egils svo mjög að ekki var byrjað að senda þáttinn út fyrr en klukkan tíu mínútur fyrir miðnætti, fimmtíu mínútum síðar en vani er. Eins og sjónvarpsáhorfend- ur SkjásEins vita er Silfur Egils í beinni útsendingu klukkan 12.30 á sunnudögum og er þátturinn endur- sýndur klukkan 23 að kvöldi sama dags. Þetta hefði kannski ekki komið svo mjög að sök nema vegna þess að sömu viku stóð yfir hin stóra fjöl- miðlakönnun Gallups, dagbókar- könnunin svonefnda þar sem er mæld notkun á nær öllum fjölmiðlum á íslandi. í fyrri dagbókarkönnun frá því íoktóber hafði komið í ijós að frumsýningin og endursýningin á Silfri Egils voru nær jafnvígar - reyndar horfðu ívið fleiri á endur- sýninguna um kvöldið en beinu út- sendinguna um daginn. Skýringin er vísast sú að hádegi á sunnudegi er ekki sérlega hefðbundinn tími til að horfa á sjónvarp. í ljósi þess að endursýningin á Silfri Egils féll nánast niður umrætt sunnudagskvöld þótti einsýnt að mælingin væri ónákvæm. Þvi tók SkjárEinn það ráð að gera nýja könnun og staðfestist þar rækilega að áhorf á Silfur Egils er mun meira en lesa mátti úr dagbókarkönnun- inni. Þessi seinni könnun var gerð af Gallup dagana 17. apríl til 7. maí og var hringt samkvæmt tilviljunarúr- taki úr þjóðskrá í 1200 einstaklinga á aldrinum 16-75 ára. Niðurstöðumar komu í gær og eru í stuttu máli þær að á Faxaflóasvæðinu, áhorfssvæði SkjásEins, er uppsafnað áhorf á Silf- ur Eglis 20,5 prósent. Það segir okk- ur að rúmlega 28 þúsund manns höfðu horft á Silfur Egils á SkjáEin- um. Þátturinn reyndist vera sterk- astur í aldurshópnum 40-49 ára, en þar fylgdust 28,6 prósent með hon- um. I aldurshópnum 35-39 ára var áhorfið 26,4 prósent. Þátturinn nýtur einnig talsverðra vinsælda meðal ungs fólks, sem hlýt- ur að teljast ánægjulegt í ljósi þess að hér er um pólitískan umræðuþátt að ræða. I aldurshópnum 16-19 ára horfðu 12 prósent á þáttinn, en í ald- urshópnum 20-24 ára voru það 14,7 prósent. Sökum þess að fyrri könnunin misfórst eins og áður er rakið taldi SkjárEinn rétt og skylt að koma þessum upplýsingum á framfæri. F.h. íslenska sjónvarpsfélagsins/ SkjásEins, ÁSLAUG HULDA JÓNSDÓTTIR, kynningarstjóri. Hvar stendur þjóðin í dag? Frá Magnúsi Guðmundssyni: ALLIR þeir sem sjá og geta lesið, vil ég að lesi þessar línur og hug- leiði þær vel. Ég vona að þjóðin vakni og átti sig á því hvar hún stendur í dag. Það er ekki nóga að eiga - Hreint land, Fagurt land - ef allt annað er óhreint og að þeir óhreinu berjast við það að eyði- leggja fegurðina, sköpunarverkið. Arið 2000 er gengið í garð fyrir nokkru og fer vel á því að rita þessi orð núna. Ég hélt raunar, að ég væri hætt- ur að skrifa, en það er ekki svo, raunar kemst ég ekki hjá því. I ár heyri ég sagt að höfuðborgin okkar Reykjavík sé svokölluð „menning- arborg“, en alltaf þegar ég hefi heyrt Reykjavík nefnda „menning- arborg“, hefur fylgt á eftir, já Só- dóma og Gómorra. Það er sorglegt að höfuðborginni okkar skuli vera líkt við Sódómu og Gómorru, sem Drottinn eyddi vegna saurlifnaðar og syndar. En því miður er Reykja- vík orðin borg allskyns spillingar svo sem kláms, samkynhneigðar, ráns, nauðgana og morða og fl. fl. Klám er á heimilum þegar verkast vill og því er dreift um borgina í klámritum. Hvað um börnin sem al- ast upp við þennan saurlifnað og synd, guðlast og stóryrði? Það er rétt að lesa í heilagri bók Biblíunni hvað þar er skráð um homma og lesbíur. Orðrétt úr Bibl- íunni: „Leggist maður með karlmanni sem kona væri, þá fremja þeir báðir viðurstyggð; þeir skulu líflátnir verða; blóðsök á þeim." Þetta eru ekki mín orð heldur Drottins, en þetta er viðurstyggð í augum Guðs. Það er því alvarlegt þegar allir þingmenn á Alþingi okkar leggja blessun sína yfir samkynhneigð. Rétt er þó að taka fram, að aðeins einn þingmaður andmælti þessu, en það var Árni Johnsen, hann fær gyllta stjörnu fyrir það. Af þessu tilefni bið ég þig, sem lest þetta að vera með mér í bæn. „Drottinn er beðinn að fara inn í þingsali Alþingis Islendinga og hreinsa þar til, og útvelja þá, sem þar eiga að vera að vilja Guðs.“ Það er nú augljóst að Alþingi Is- lendinga með öllum sínum trúðum og rollum í dag, er óhreint í augum Drottins. Það er því nauðsynlegt að ger- breyta hugsunarhætti þjóðarinnar og leysa hana undan bölvun villu þeirrar, sem hún hefur gengið í, ef hún vill og leita lausnar sinnar til Guðs síns. Hér læt ég staðar numið, en sendi fljótlega línur frá mér. MAGNÚS GUÐMUNDSSON, Strandgötu 3, Patreksfirði. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskiiur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.