Morgunblaðið - 20.05.2000, Page 81
MORGUNBLAÐIÐ
ÍDAG
BRIDS
llmsjón (Inílmundiir
Páll Arnarson
„HEFUR þú einhvern tíma
heyrt talað um trompútspil
gegn alslemmu?" Þessi at-
hugasemd austurs lætur
ekki mikið yfir sér, en er
ótrúlega kvikindisleg í því
samhengi sem hún á
heima: Norður * AG105 v G6 ♦ K105 + 5432
Vestur Austur
♦84 +932
VD873 VK105
♦ G94 ♦ 72
+KDG10 +Á9876
Suður
*KD76
»Á942
♦ ÁD863
+-
Eftir nánast óskiljanleg-
ar sagnir varð suður sagn-
hafi í sjö spöðum. Með
KDGIO í laufi taldi vestur
óhætt að hefja leikinn þar
og suður trompaði fyrsta
slaginn. Sagnhafi taldi um
stund á fmgrum sér, en
lagði svo af stað: Spilaði
tígli á tíuna (!) og trompaði
lauf.
Fór svo inn í borð á tíg-
ulkóng og trompaði enn
lauf. Hann átti eitt tromp
eftir heima og spilaði þvi
yfir á blindan og aftromp-
aði vörnina. Lagði síðan
upp: sjö á tromp, einn á
hjarta og fimm á tígul.
Samtals þrettán slagir.
Sagnhafi þurfti að svína
fyrir tígulgosann tii að
geta trompað þrjú lauf
heima, en auðvitað hefði
það dugað skammt ef ekki
hefði gefist tækifæri til að
trompa lauf í fyrsta slag.
Það fór ekki framhjá
vestri, en austur gat ekki
stiilt sig um að nefna það í
framhjáhlaupi.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyi-ir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Árnað heilla
O p' ÁRA afmæli. í dag,
ö O laugardaginn 20.
maí, verður áttatíu og fimm
ára Lilja Jóhannsdóttir,
Sólvöllum 15, Akureyri.
Hún er stödd á Hotel Bahia
Grande, Cala Millor á Mall-
orca.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman í Fríkirkjunni í Hafn-
arfirði af sr. Einari Eyjólfs-
syni Hafdís Viðarsdóttir og
Jón Ingimundarson.
SKAK
Umsján llelgi Áss
Grétarsson
í MEÐFYLGJANDI stöðu
áttust við ensku skákmenn-
irnir David Friedgood,
hvítt, (2244) og James Dale
(2239) í síðustu helgi bresku
deildakeppninnar sem fram
fór í lok apríl. 12.Rg6+!!
hxg6 13.h5 Rg8 Svartur er
að því er virðist
hjálparlaus
gagnvart sókn
hvíts meðfram
h-línunni. T.d.
eftirl3...bxc4
ber sókn hvits
ávöxt: 14.hxg6+
Kg8 15.Bxf6
Hxf6 16.Hh8+!
Kxh8 17.Dh5+
og svartur er
óverjandi mát.
Jafnframt geng-
ur 13...Rh7 ekki
upp sökum
14. Bxe7 Dxe7
15. hxg6 bxc4
16.Hxh7+ Kg8 17.Dh5 og
hvítur mátar. 14.hxg6+
Rh6 15.Bxh6 gxh6 16.Dh5!
og svartur gafst upp enda
óverjandi mát. Byrjunar-
leikirnir í þessari stuttu
skák voru eftirfarandi: l.c4
e5 2.Rc3 f5 3.d4 e4 4.Rh3
Rf6 5.Bg5 c6 6.RÍ4 Be7 7.e3
00 8.c5 d5 9.cxd6 Dxd6
10.Bc4+ Kh8 11.h4 b5?? og
nú höfum við stöðuna á
stöðumyndinni.
Raddir framtíöar
Hvað er loft?
Maöurgetur kafaö meö því.
Súrefni, maðurgetur eytt því þegar
maður andar.
Himnaríki.
Börn frá Heiðarborg.
UOÐABROT
SKAFLAR
Er geng ég eftir götunum,
þá gín við augum mínum
svo margt af jarðlífs misfellum,
að mér er spurn í huganum:
Skal sær ei hækka senn?
Því sekkur land ei enn?
Æ, til hvers eru allir þessir menn?
Ég horfi í fólksins augu inn,
og á mig kulda leggur
frá anda, sem er uppgefinn
að elta gæfuvinninginn;
hans þrá er tapað tafl
við tómlátt skapaafl.
Við fátíð upprof dyngir skafli á skafl.
Af ryði ískra heimsins hjól,
og hatast flestar stéttir.
Um fegri menning, meiri sól
er messað, en í snjáðum kjól
vor göfgi gengur lút.
Mörg gleði er borin út,
en eftir verður kuldi, sorg og sút.
Hví syrtir yfir sálu manns
á sömu vorsins stundu
sem geislar stiga í dalnum dans
og daggir tindra á blómum hans?
Því sigi'ar ekki sól
þann sorta, er hugann fól?
Ó, sól, sem ert þó aUs hið eina skjól.
Jakob Thomrensen.
STJÖRJVUSPÁ
eftir Franees Ilrake
NAUT
Afmælisbarn dagsins: Með
láthragði þfnu gefur þú ljós-
lega til kynna hver þú ert og
hvað það er, sem þú vilt.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Það er einhvern veginn eins
og allt sé nýtt úr kassanum i
dag. Njóttu ferskleikans til
hins ýtrasta og uppgötvaðu
þér áður óþekkta hluti.
Naut
(20. apríl - 20. maí) i**
Fjármálin virðast eitthvað
þung í skauti þessa dagana.
Þá er bara að setjast niður,
fara í gegn um málin og
koma skikki á hlutina.
Tvíburar . f
(21. maí-20.júní) Aa
Þig vantar félaga til þess að
framkvæma það sem þig
dreymir um. Kannaðu hvort
einhver úr vinahópnum eða
fjölskyldunni vill slá til.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú hefur látið aðra ganga
fyrir og nú er kominn tími til
þess að þú sinnir sjálfum þér.
Mundu að ekkert er dýrmæt-
ara í heimi hér en heiisan.
Ljón
(23. júh - 22. ágúst) m
Þú skuidar góðum vini sendi-
bréf og ættir að inna þá
skuld af hendi fyrr en síðar.
Vináttan er nefnilega ekki
bara einstefna heldur þarf
tvo tU.
Mnyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þér finnast allir á hraðferð í
kring um þig og það veldur
þér áhyggjum. Láttu þær
lönd og ieið og haltu þínu
striki. Þú kemst í mark eins
og aðrir.
Vog m
(23.sept.-22.okt.)
Fegurð hlutanna er ekki
fólgin í stærð þeirra. Lærðu
að sjá undir yfirborðið og
upplifðu þá föiskvalausu
gleði sem svo oft felst í því
smáa.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ekki falla í þá freistni að
kaupa hluti bara af því að þú
átt eitthvert fé handbært.
Hugsaðu þig vandlega um
áður en þú velur fjárfesting-
logmaður
Í2. nóv. -21. des.) Xf)
eyfðu öðrum að njóta gleði
innar og gamansemi. Heim-
rinn er nógu erfiður, þótt
kki sé allt upp á alvarlega
látann. Hláturinn lengir líf-
Steingeit ,
(22. des. -19. janúar) A
Mörkin milli draums
veruleika liggja ekki allta
augum uppi. En það get
reynzt erfitt ef menn ge
ekki greinarmun á þes
tvennu.
Vatnsberi
(20. jan. -18. febr.) kjfr:
Nú á tímum er hægur vandi
að bæta við þekkingu sína
svo þú hefur enga afsökun
fyrir því að láta ekki undan
þessari Iöngun þinni. Byrj-
aðu strax.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars) M»*>
Vertu vakandi fyrir því sem
er að gerast í kring um þig.
Þér er beinlínis hættulegt að
ana svona áfram í blindni svo
sperrtu upp augu og eyru.
Stjörnuspána A að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki bygeðar á traustum
grunni vísindafegra staðreynda.
LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2000 81
Afmælistilboð frá 13.—21. mai.i
Ekta pelsar og leðurflíkur - Satín rúmföt.
Handunnin rúmteppi og púðaver.
Handunnin húsgögn.
Gamaldags klukkur og
öðruwfsi Ijós.
Opið Vifka daga kl. 11—18oglau. kl. 11—15 Fákafeni (Bláu húsin), s. 588 4545
Sigurstjama
Lausir einkatímar í heilun og ráðgjöf
Frjáls eins og fuglinn í Camp-let tjaldvagni
Einföld tjöldun, mikið pláss, áfast eidhús og fortjald, auk frábærrar
endingar eru atriði sem gera Camp-let að einstökum tjaldvagni. Ef allir
vagnar eru skoðaðir sést vel af hverju Camp-let nýtur vinsælda ár eftir ár.
I^ÍSLI JÓNSSON ehf
Bíldshöfða 14 112 Reykjavík S. 587 6644
Reiki-y heilunar- og sjálfctyrkingamámskeið
Skrántng á tiámskeið í sima 553 3934 kl. 10-12 virka daga.
Guðrím Óladóttir, reikimeistari.
HvaófáþáttMkmdurút^
slíkmn námskeiSunt.
Læra að nýta sér orku til að lækna sig
(meðfæddur eiginleiki hjá öllum)
og/eða koma sér í orkulegt og tilfmningalegt jafhvægi.
^Læra að beita hugarorkunni á jákvæðan og uppbyggilegan
hátt í staðinn fyrir að beita henni til niðurrifs.
^Læra að hjálpa öðmm til þess sama.
Námskeið í Reykjavík
23.-25. maí.......... I. stig kvöldnámskeíð.
27.-28. maí..........II. stig helgamámskeið.
5.-7. júní......... I. stig kvöldnámskeið.
ÍTlOUfÍCG lOCfOÍX
Switzerland
------------ ÚTSÖLUSTAÐIR; --------------
Jón & Óskar Klukkan Georg V. Hannah Meba
Laugavegi 61 Hamraborg j Keflavík j Kringlunni