Morgunblaðið - 20.05.2000, Blaðsíða 92
Hefur þitt fyrirtæki
efni á aö eyöa tíma
starfsfólksins í bið?
Það er dýrt að láta starfsfólkið biða!
Tölvukerfi sem virkar
lltargtifiMjiMfr
Netþjónar
og tölvur
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREWSLA 5691122, NETFANG: RITSTJlSMBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 20. MAI 2000
VERÐI LAUSASOLU150 KR. MEÐ VSK.
A
Ahrifa hækkunar ávöxtunarkröfu húsbréfa gætir víða
Landsbankinn hækkar vexti
Heimilislána um 1,20%
LANDSBANKI íslands hf. hækkaði í gær vexti
Heimilislána í öllum flokkum úr 6,25% í 7,45%,
eða um 1,2%. Astæðan fyrir vaxtahækkuninni er
hækkun ávöxtunarkröfu húsbréfa að undan-
förnu.
Ávöxtunarkrafa húsbréfa lækkaði nökkuð í
gær en veltan var áfram lítil. Ávöxtun húsbréfa-
flokksins 98/2 var 5,90 við lok viðskipta í gær en
var 6,12 á fimmtudag þegar afföll á húsbréfum
höfðu ekki verið hærri síðan árið 1993.
í gær tilkynnti SPRON að viðskiptavakt með
húsbréf, spariskírteini og ríkisbréf yrði hætt en
á fimmtudag sendu Íslandsbanki-FBA og
Landsbankinn frá sér yfirlýsingu um að þeir
-“Tnyndu einnig hætta viðskiptavakt með ríkisbréf.
Framboð húsbréfa meira en eftirspurn
Birgir ísleifur Gunnarsson seðlabankastjóri
segir uppsögn fjái-málastofnana áhyggjuefni því
það sé mjög mikilvægt fyrir íslenskt fjármála-
kerfi að hér sé öflugur skuldabréfamarkaður og
með eðlilegri vaxtamyndun.
Að hans sögn er ein af ástæðunum fyrir því að
skuldabréfamarkaðurinn hefur ekki náð að
þróast eðlilega sú að útgáfa húsbréfa hafi aukist
mjög mikið á undanförnum mánuðum og fram-
boð hafi verið mun meira en eftirspurn. Öflug-
ustu kaupendur húsbréfa, lífeyrissjóðirnir, hafa
að mestum hluta ráðstafað fjármunum sínum í
innlend og erlend hlutabréf og hlutabréfasjóði.
Getur leitt til harkalegrar
lendingar efnahagslífsins
I morgunpunktum Kaupþings í gær er bent á
að áhrifa muni gæta mun víðar en eingöngu á
fasteignamarkaði þar sem vextir á skuldabréfum
miðist við vexti á ríkisskuldabréfum í formi þess
að það er visst álag ofan á ávöxtunarkröfu ým-
issa markílokka húsbréfa. Til að mynda hafi eng-
in viðskipti verið með skuldabréf fyrirtækja og
sveitarfélaga í langan tíma. „Þessir aðilar hafa
þurft að leita til banka og lánastofnana um lán í
bæði erlendum og innlendum gjaldmiðlum sem
skýrir að stórum hluta mikla útlánaaukningu
bankanna síðustu misserin. Ef svo fer fram sem
horfir kann að fara af stað atburðarás sem gæti
leitt til þess að efnahagslífið kæmi til harkalegr-
ar lendingar, enda fæst þá ekki fjármagn til at-
vinnuveganna, þar sem skuldabréfamarkaður og
vaxtastig er í raun ekki til og bankakerfið of
þanið til að mæta eftirspurn eftir fjármagni frá
atvinnulífinu. Fjármagnskostnaðurinn er nú orð-
inn mjög hár og þetta raunvaxtastig er ekki
æskilegt til lengri tíma en til skamms tíma litið
mun þetta væntanlega hafa þau áhrif að draga
úr þenslu og í kjölfarið má gera ráð fyrir að
verðbólga minnki. Þessi mikli vaxtamunur mun
einnig hafa áhrif á frekari styrkingu krónunnar.“
■ Skuldabréfamarkaður/26
Stóra
fíkniefnamálið
Aðalmeð-
ferð máls-
ins hefst í
lok maí
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavík-
ur hefur ákveðið að aðalmeð-
ferð í stóra fíkniefnamálinu
svokallaða skuli hefjast mánu-
daginn 29. maí næstkomandi.
Til hafði staðið að hefja með-
ferð málsins í haust en Hæsti-
réttur ógilti þá ákvörðun dóm-
ara og lagði að dóminum að
hefja málsmeðferðina fyiT.
Þrjátíu menn kærðir
Að minnsta kosti 30 manns
eru ákærðir í málinu, þar af
19 af hálfu ríkissaksóknara
fyrir sölu, dreifingu og inn-
flutnig fikniefnanna og yfir 10
af hálfu efnahagsbrotadeildar
ríkislögreglustjóra fyrir pen-
ingaþvætti. Ekki hefur fengist
uppgefið hversu margir ná-
kvæmlega sæta ákæru efna-
hagsbrotadeildar, en yfir 100
milljónir í peningum og verð-
mætum hafa verið gerðar upp-
tækar í tengslum við þetta
mál.
Gæsluvarðhald þeirra níu
sakbominga, sem setið hafa í
gæsluvarðhaldi í rúma átta
mánuði, rennur út 28. júní
næstkomandi.
Von und-
ir Jökli
ÞETTA listaverk mun í framtíð-
inni setja svip á umhverfið við
Hellissand undir Jökli. Það heitir
Von og listamaðurinn Grímur
Marínó Steindórsson. Unnið er að
uppsetningu verksins um þessar
mundir.
Morgunblaðið/RAX
Morgunblaðið/Guðm. Guðjónsson
Stálpaður arnarungi í hreiðri
við Faxaflóa í fyrrasumar.
Góðar
horfur með
arnarvarp
ALLS er vitað um 33 arnarhreiður
sem orpið hefur verið í og nokkur
pör að auki sem ekki er vitað um
hvort hafi orpið að þessu sinni, að
sögn Rristins Hauks Skarphéðins-
sonar, fuglafræðings hjá Náttúru-
fræðistofnun íslands, en nú er að
mestu lokið hefðbundnu eftirliti
með arnarvarpi Fuglaverndarfé-
lags íslands, sem Kristinn hefur
stjórnað síðustu árin.
Kristinn sagði að enn vantaði
upplýsingar frá fáeinum stöðum en
líklegt er að álíka mörg arnarpör
hafi orpið í ár og i fyrra, en þá
gekk arnarvarp óvenjuvel og 20
pör komu upp 27 ungum. „Það er
mesti ungafjöldi sem upp hefur
komist síðan farið var að fylgjast
reglulega með arnarstofninum árið
1959,“ sagði Kristinn.
Eitt hreiður eyðilagt
Eitt arnarhreiður hefur verið
vísvitandi eyðilagt af mannavöldum
í vor svo vitað sé og sagði Kristinn
það mál í höndum viðkomandi
sýslumanns. „Ernir eru afar við-
kvæmir fyrir truflunum á varptíma
og næstu 2-4 vikur munu skera úr
um hvernig varpið heppnast. Norð-
anáhlaup eins og þau sem ríkt hafa
undanfarna daga geta komið illa
við erni eins og fleiri fugla, einkum
ef þau verða um mánaðamót maí og
júní. Á þeim tíma eru ernir að
klekja út eggjum sínum og ung-
arnir eru veikburða í fyrstu og
verða ekki fleygir fyrr en um miðj-
an ágúst,“ sagði Kristinn.
Úrvalsvísitalan hefur lækk-
að um 19% á 3 mánuðum
MITSUBISHI
HITSUBISHI
dcmantar í umferö
ÚRVALSVÍ SITALA Aðallista Verð-
bréfaþings íslands hélt áfram að
lækka í gær og var við lok viðskipta
1.523,6 stig. Lækkun frá fyrra degi
nam 1,23%.
Heildarviðskipti með hlutabréf á
VÞÍ námu 134 milljónum króna í
gær, mest með bréf Tryggingamið-
stöðvarinnar fyrir 26,4 mOljónir í 4
viðskiptum. Gengi TM lækkaði um
7,8% og var það mesta lækkun á VÞÍ
í gær. Viðskipti með hlutabréf í
Eimskipafélagi Islands námu 14,8
milljónum og lækkaði gengi þeirra
um 1,4% og endaði í 10,35. Gengi ís-
landsbanka-FBA hf. lækkaði um
2,4% í gær og var í lok dagsins 4,95.
Viðskipti með bréfin námu tæpum 13
milljónum.
Hlutabréf fimm félaga hækkuðu í
gær. Hlutabréf Baugs hækkuðu um
1,7% eftir 6,3 milljóna króna viðskipti
og bréf íslenska hugbúnaðarsjóðsins
um 0,4% eftir 10,4 milljóna króna við-
skipti. Lítil viðskipti voru að baki
ÚRVALSVÍSITALA
HLUTABRÉFA
frá áramótum
1900
1850
1800
1750
1700
1650
1600
1550
1500
31. des. 1997 = 100
íii
1
i.523,e 00 tl
Jan. Feb. Mars April Maí
2,8% hækkun á bréfum Tæknivals,
0,5% hækkun á Bakkavör Group og
1,8% hækkun á bréfum Sæplasts.
Úrvalsvísitalan hefur lækkað um
19,3% frá 17. febrúar sl. þegar hún
náði hámarki, 1.888,7 stigum. Úr-
valsvísitalan lækkaði aftur niður fyr-
ir 1.700 stig í mars en náði 1.851,5
stigum 3. apríl sl. Lækkunin síðan þá
nemur 17,7%.
Lækkunin á gengi hlutabréfa ein-
stakra félaga hefur verið umfram
lækkun úrvalsvísitölunnar á tímabil-
inu. Gengi hlutabréfa í Eimskipafé-
lagi Islands var 14,3 hinn 17. febrúar
sl. en lokagengi í gær var 10,35.
Lækkunin á þessu tímabili nemur
27,6% en lækkunin frá 3. apríl nemur
15,9%. Lækkun á bréfum Útgerðar-
félags Akureyringa frá 17. febrúar er
30,7% en frá 3. apríl 23%. Lokageng-
ið í gær var 5,7.
Gengi bréfa Flugleiða hefur lækk-
að um 33% frá 17. febrúar þegar það
var 5. Lokagengið í gær var 3,35.
Hlutabréf Tæknivals hafa lækkað
um 20% frá 3. apríl og gengi bréfa
Landsbankans um 19,2%.