Morgunblaðið - 27.05.2000, Page 23

Morgunblaðið - 27.05.2000, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2000 23 VIÐSKIPTI Morgunblaðió/Golli Ákvæðið um heimild einstaklinga og hjóna til að fresta skattlagningu hagn- aðar af sölu hlutabréfa var bætt inn í frumvarp til breytinga á tekju- og eignarskattslögum árið 1996. Var það gert að tilstuðlan meirihluta efna- hags- og viðskiptanefndar Alþingis. stefnubreyting hefði átt sér stað hjá meirihluta nefndarinnar. Hann vitn- aði í Pétur Blöndal, alþingismann: „... Pétur Blöndal, sem er allra manna fróðastur um innviði þessa kerfis, segir mér að það sé sennilega enginn íslendingur svo ríkur að hann muni rekast á þessi þök enn sem komið er a.m.k.“ Steingrímur bætti því við að þeir einstaklingar væru ekki margir, a.m.k. fyrsta kastið, sem hefðu meira en þriggja milljóna króna hreinar tekjur af arði, hlutabréfum, vöxtum eða söluhagnaði. ,Af söluhagnaði gæti það gerst. En síður af hinu enn sem komið er.“ Fjárfestum refsað aftur og aftur Pétur Blöndal, alþingismaður, tók til andsvara í sömu umræðu frum- varpsins. Hann tók dæmi um hvem- ig þágildandi skattalög væru gagn- vart atvinnulífinu: „... Steingrímur J. Sigfusson kaupir sér tvö hlutabréf fyrir hundrað þúsund kall í tveim fyrirtækjum. Aiinað fer á hausinn. Þá segir ríkissjóður: Þetta kemur mér ekki við, gleymdu þessu bara. En hitt gengur alveg glimrandi vel. Þremur árum seinna selur Stein- grímur J. Sigfússon hlutabréfin fyrir tvö hundruð þúsund kall og þá á hann aftur tvö hundruð þúsund kall- inn sem hann lagði upphaflega í þetta, þ.e. launin sín. Engar verð- bætur og enga vexti, ekkert svoleið- is. En þá segir ríkissjóður: Þama ertu með hagnað, vinurinn. 100.000 kr. í hagnað. Þú keyptir hlutabréfin á hundrað þúsund kall og selur þau á 200.000 kr. 100.000 kr. skulu skatt- lagðar og háttvirtur þingmaður borgar 42.000 kr. í skatt af engum tekjum því að hann á ekki annað en tvö hundmð þúsund kallinn sem hann lagði upp með. En nú þarf hann að borga 42.000 kr. í skatt, hugsan- lega 47.000 kr. ef hann fer yfir mörk- in. Hann er með sem sagt 158.000 kr. út úr dæminu. Hann er búinn að tapa á öllu saman, en ekki samkvæmt skattinum. Svona era skattalögin í dag. Svona era þau vinsamleg atvinnulífinu eða þeim sem era að fjárfesta í atvinnu- lífinu. Það er allt annar hlutur en skattlagning fyrirtækjanna sjálfra. Þeim sem fjárfesta í atvinnulífinu er refsað aftur og aftur. Enda gerir það ekki nokkur óvitlaus maður. Menn gera þetta af einhverri hugsjón," sagði Pétur. Óbreytt ákvædi eda afnám þess? Vilji löggjafarvaldsins árið 1996 stóð sem sagt til þess að styrkja ís- lenskt atvinnulífið og þátttöku í því. Nú þegar ákvæðið hefur verið við lýði í um fjögur ár er ríkisskattstjóra spurn hvort það hafi verið upphaf- lega verið ætlun löggjafans að ís- lenskir aðilar nýttu sér frestunina með fjárfestingum í gegnum eignar- haldsfélög í Lúxemborg. í áður- nefndu viðtalið við Morgunblaðið sagði hann að oftar en ekki endaði það með því að skattgreiðslan, sem frestað væri, væri ekki greidd eða rynni til erlendra ríkja. Hann taldi nauðsyn á að ákvæðið yrði endur- skoðað. Geir H. Haarde, fjármálaráð- herra, er ósammála ríkisskattstjóra, að því er fram kom í viðtali Morgun- blaðsins við hann tveimur dögum síð- ar. Hann sagði ekki koma til greina að afnema frestunarheimildina, slíkt væri alltof róttæk breyting. Heimild- in væri í dag mjög mikilvægur þáttur í því starfsumhverfi sem hlutafélög og eigendur þeirra störfuðu í. En er hugsanlega hægt að binda frestunarákvæðið við endurfjárfest- ingu í íslenskum hlutafélögum ein- göngu? Fjármálaráðherra segir slíkt ekki standast skuldbindingar sem á íslendingum hvíla og vísar þar til meginreglna EES-réttar um frjálst fjármagnsflæði. Umræður um ákvæði 7. mgr. 17. gr. tekju- og eignaskattslaga hljóta af þeim sökum að snúast um hvort að halda eigi því óbreyttu í lögunum eða afnema það í Ijósi breyttra aðstæðna. Ragnar Birgisson framkvæmdastjóri Skífunnar Umboð MGM kærkomin búbót RAGNAR Birgisson, framkvæmda- stjóri Skífunnar, segir að umboðið fyrir Metro-Goldwyn-Meyer, sem Skífan fékk nýlega, sé kærkomin búbót fyrir fyrirtækið. Hann segir að markaðshlutdeild Skífunnar muni vaxa með dreifingu ó myndum MGM. Að sögn Ragnars er MGM dreift af Twentieth Century Fox um allan heim. „Skífan er einnig með umboð á fs- landi fyrir Fox. Við eram nú þegar búnir að fá umboðið fyrir myndbönd MGM og fyrsta kvikmyndin á myndbandi er komin út hjá okkur. Sú næsta er nú á leiðinni. Kvik- myndahluta umboðsins fáum við svo í hendur í nóvembermánuði næst- komandi." Skífan rekur tvö kvikmyndahús, Regnbogann og Stjörnubíó, og í lok september á næsta ári opnar fyrir- tækið nýtt kvikmyndahús í Smáran- um. „Skífan fær það mikið af myndum á hverju ári í gegnum kvikmynda- umboð sín að við náum ekki að sýna þær allar. Því dreifum við myndum í önnur kvikmyndahús, m.a. í Sambíó- in. En þessir aðilar sem fá kvik- myndir frá okkur til sýninga era auðvitað ekki með umboðið fyrir þær, þeir markaðssetja ekki mynd- imar, þeir fá ekki dreifingarþóknun, heldur einungis sýningarþóknun. Það er því mikill munur á því að sýna myndina eða dreifa henni,“ segir Ragnar. Aðspurður segist hann ekki úti- loka að kvikmyndir sem Skífan dreif- ir í gcgnum umboð sitt verði áfram seldar til sýninga í öðram kvik- myndahúsum eftir að bíóið í Smár- anum hefur tekið til starfa. Sérstak- lega þá aðsóknarmiklar myndir. Á Kringludekri bjóða versianir eg þjónustuaðilar Kringlunnar eitthvað sérstakt i tengslum við brúðkaupið. Fjölbreyttar kynningar og sýningar ffara ffram ó göngugetunum. Til mikils að vinna l Verðandi brúðhjón geta skráð nöfn sín í pott og unnið veglega vinninga. KriKCtL CsJ\

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.