Morgunblaðið - 27.05.2000, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2000 67
Krökkum í Hamraskóla var boðið í siglingu niður Hvítá
í viðurkenningarskyni.
Hamraskóli reyklaus
ÞAÐ er yfirlýst stefna Hamra-
skóla að hann sé reyklaus. „Það
er sjáanlegur munur frá ári til
árs að reykingar hjá nemendum
eru á undanhaldi og er það gleð-
iefni. Það hefur þó aldrei gengið
jafn vel og í vetur þar sem ekki
hefur þurft að hafa afskipti af
nemendum vegna reykinga á
skólatíma,“ segir í frétt frá skól-
anum.
„Nemendur í 8. og 9. bekk eru
taldir alveg reyklausir.
I viðurkenningarskyni var
nemendum úr 9. bekk boðið í
siglingu niður Hvítá og síðan í
pizzuveislu á Selfossi. Það voru
foreldrar og skólinn sem buðu en
nutu fjárstyrks nokkurra fyrir-
tækja í hverfinu. Það voru Bún-
aðarbankinn, íslandsbanki, Gull-
nesti, G.I.M. auglýsingastofa,
Sorpa og Olís sem veittu styrki.
Ferðin heppnaðist á allan hátt
mjög vel og verður vonandi
hvatning til yngri nemenda að
stefna að reykleysi í 9. bekk og
helst líka í 10. bekk. Þetta er
annað árið í röð sem 9. bekkjum
er boðið í svona ferð.“
Fjölskyldu-
hátíð í
Elliðaárdal
SÖFNUÐIRNIR í Breiðholti og Ár-
bæ efna til fjölskylduhátíðar í sam-
vinnu við ÍTR, félagsstarfið í Gerðu-
bergi, íþróttafélögin, skátafélögin,
kvenfélögin og foreldrafélög skól-
anna í þessum hverfum sunnudaginn
28. maí nk.
Staðsetning hátíðarinnar verður
við skíðabrekkuna í Ártúnsholtinu
fyrir ofan gömlu rafstöðina. Fyrir-
hugað er að fólk safnist saman við
Árbæjarkirkju, Breiðholtskirkju í
Mjóddinni og Hólabrekkuskóla í
Efra-Breiðholti kl. 13:15 og gangi
síðan fylktu liði að hátíðarsvæðinu,
þar sem skrúðgöngurnar sameinast
undir lúðrablæstri Skólalúðrasveitar
Árbæjar- og Breiðholts.
Hátíðin hefst með fjölskylduguðs-
þjónustu kl. 14, þar sem sr. Guð-
mundur Þörsteinsson dómprófastur
mun prédika og kirkju- og bamakór-
ar safnaðanna syngja ásamt Gerðu-
bergskórnum.
Eftir guðsþjónustuna hefst síðan
skemmtidagskrá þar sem ýmsir aðil-
ar úr hverfunum koma fram. Einnig
verður farið í leiki og er m.a. stefnt
að reiptogi milli Árbæjar og Breið-
holts og pokahlaupi presta. Þá verða
ýmis leiktæki á staðnum og sömu-
leiðis þrautabrautir á vegum skát-
anna og íþróttafélaganna. Einnig
verður boðið upp á klettasig í Ind-
íánagili. Síðast, en ekki síst, verður
svo grillað og boðið upp á kaffi í boði
ýmissa aðila í hverfunum.
----------------
Dansað á
Ingólfstorgi
SAMTÖKIN Komið og dansið
standa fyrir dansleikjum á Ingólfs-
torgi í miðborg Reykjavíkur sunnu-
dagana 28. maí og 4. júní kl. 14-16
báða dagana.
Markmiðið með dansleikjunum er
að glæða líf í miðborginni og auka
ánægju þeirra sem leið eiga um Ing-
ólfstorg. Dansaval er við allra hæfi
og öllum heimil þátttaka í dansinum.
Sveifla, línudansar og gömlu dans-
amir í hávegum hafðir. Enginn að-
gangseyrir.
Gallerí Fold
gefur málverk
GALLERÍ Fold gefur nú í þriðja
sinn heppnum brúðhjónum málverk
eftir Heklu Björk Guðmundsdóttur
að verðmæti 70.000 kr. í brúð-
kaupsleik Bylgjunnar. Verðandi
brúðhjón geta skráð sig til þátttöku
með því að senda tölvupóst á bylgj-
an@bylgjan.is.
í dag, laugardaginn 27. maí,
standa yfir dekurdagar Kringlunn-
ar. Þar er þemað brúðkaup og allt
sem því fylgir. Verðandi brúðhjón
geta skráð sig í gjafalistaleik
Kjringlunnar við þjónustuborð
Kringlunnar á fyrstu hæð. Dregið
verður í leiknum eftir helgi og það
eru nokkur fyrirtæki í Kringlunni
sem gefa vinningana. Gallerí Fold
gefur verk eftir Ingu Elínu.
Þeir sem koma í Gallerí Fold í
Kringlunni í dag átt von á góðu.
Boðið verður upp á konfekt og ýms-
ar uppákomur, segir í fréttatilkynn-
ingu. Frí gjafakort fylgja öllum
gjöfum og verðandi brúðhjón geta
skráð sig á gafalista Gallerís Foldar
og verða þá um leið sjálfkrafa skráð
í Brúðkaupsleik Bylgjunnar og
gjafalistaleik Kringlunnar.
------------------
Fhigmenn
vilja aukið
áburðarflug
FÉLAGSFUNDUR Félags ís-
lenskra atvinnuflugmanna, sem hald-
inn var að Grand Hótel í Reykjavík
hinn 10. maí sl, ályktaði eftirfarandi:
„Félag íslenskra atvinnuflug-
manna áréttar á nýrri öld vilja fé-
lagsmanna og samþykkt félagsfund-
ar frá 1971. Landgræðsluflugvélin
Páll Sveinsson var tekin í notkun við
landgræðslustörf 1973. Sá áhugi og
vilji sem fram kemur í ályktun frá
1971 er enn til staðar um flug á Páli
Sveinssyni endurgjaldslaust á næstu
árum ef starfsgrundvöllur flugvélar-
innar verður tryggður.
Áríðandi er að Ríkisvaldið tryggi
þann rekstrargrundvöll með rífleg-
um áburðarkaupum svo halda megi
áfram þeim uppgræðslustörfum og
áburðargjöf sem duga megi til að
halda í skefjum uppblástursvæðum
og gróðureyðingu sem viða á sér stað
á há- og láglendi íslands."
HRISTIR
212
Summer Cocktail
FULLKOMIN BLANDA TIL
AÐ KOMA SÉR I
FULLKOMIÐ
SUMARSKAP, LÉTTUR
SUMARILMUR
assífc.
FÆSTI BETRI SNYRTIVÖRUVERSLUNUM OG APÓTEKUM UM LAND ALLT!
strokur.
undai
inudd.
verið orsök
iri vanlíðan.
Nýbýlaveg! 24 - Kópavogl
Slmi 564 1011 ■ spa@meccasp
www.meccaspa.is
Stefania B. Sigfusd
N'tiddarr