Morgunblaðið - 27.05.2000, Qupperneq 84
ijtr-
Netþjónar
og tölvur
COMPAd
Hefur þitt fyrirtæki
efni á aö eyða tíma
starfsfólksins í bið?
Það er dýrt að láta starfsfólkið bíða!
Tölvukerfi sem virkar
563 3000
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA5691122, NETFANG: RITSTJIgMBL.IS, AKUREYRI: KAUFVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2000
VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK.
Oánægja með lokun tollskoðunarstöðva fyrir sjávarafla
Skapar óhagræði og
skekkir samkeppnisstöðu
Morgunblaðið/Kristján
Nótaskipið Harpa VE hélt
til sfldveiða í gær en áður
en lagt var úr höfn var nót-
in tekin um borð við
Slippkantinn á Akureyri.
Sildin
ljónstygg
SELEY SU landaði í gær
fyrstu síldinni úr norsk-ís-
lenska síldarstofninum á ver-
tíðinni, alls 350 tonnum, á
Pórshöfn. Um 20 skip eru að
veiðum austast í lögsögu Jan
Mayen. Veiði hefur verið
dræm en þó fékk Oddeyrin
EA um 400 tonna kast í fyrra-
kvöld.
Ólafur Einarsson, skipstjóri
á Faxa RE, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að veiði
væri mjög dræm. „Það er lítið
að sjá af síld á þessu svæði,
hún er dreifð, í smáum torfum
og ljónstygg. Sfldin sem við
fáum er hinsvegar falleg, stór
og feit en það er alltof lítið af
henni. Við höfum fengið fréttir
af betri veiði í nót hjá fær-
eyskum skipum norðaustast í
Smugunni, austur undir
norsku landhelgislínunni, og
landa Færeyingarnir í norsk
verksmiðjuskip á miðunum.
Ég á von á að íslensku skipin
sigli þangað ef ekki fer að
rætast úr veiði á þessu svæði.“
■ Fækkað í/10
Morgunblaðið/Kristinn
Konungshjónin ræddu við íslensk börn á Bessastöðum, sem veifuðu fánum Jórdaníu og íslands.
Konungshjón Jórdaníu
í opinberri heimsókn
KONUNGUR Jórdaníu, Abdullah II,
sagðist í gær binda miklar vonir við
samstarf íslenskra og jórdanskra
fyrii-tækja á sviði hátækni. Hans
hátign, sem er í opinberri heimsókn
á Islandi ásamt Raníu drottningu,
kynnti sér í gær starfsemi f slenskr-
ar erfðagreiningar og nokkurra ís-
lenskra hugbúnaðarfyrirtækja.
Konungshjóniu lentu á Keflavík-
urflugvelli um kl. 11 í gær og
snæddu hádegisverð á Bessastöðum
í boði forseta Islands. Konungur
ræddi stuttlega við fréttamenn á
Bessastöðum og þakkaði þar meðal
annars stuðning Islendinga við frið-
arferlið i Miðausturlöndum. Hann
sagði einnig að Islendingar og Jórd-
aníumenn ættu það sameiginlegt að
standa framarlega í ýmsum há-
tæknigreinum og hvatti fyrirtæki í
löndunum tveimur til að koma á
tengslum og samvinnu sín á milli.
Ranía drottning heimsótti m.a. ís-
lensk börn á leikskólanum Jörfa við
Hæðargarð og naut hún fylgdar
Dorrit Moussaieff, heitkonu forseta
Islands.
í gærkvöld þáðu konungshjónin
kvöldverðarboð forseta Islands á
Bessastöðum.
■ Konungur lýsti/26
Samkvæmt reglum Evrópusam-
bandsins verður sjávarafli sem kem-
ur inn til landsins frá svokölluðum
„þriðju ríkjum" inn á Evrópska efna-
hagssvæðið að fara um sérstakar
landamærastöðvar. Þetta á m.a. við
um tollskoðun á Rússafiski og rækju
af Flæmingjagrunni sem flutt er til
vinnslu hérlendis. Sex slíkar stöðvar
hafa verið settar upp á innflutnings-
höfnum hér á landi; í Reykjavík,
Hafnarfirði, á Keflavíkurflugvellþ
ísafirði, Akureyri og Eskifirði. I
tengslum við landamærastöðvarnar
hafa einnig verið reknar skoðunar-
stöðvar í Bolungarvík, á Skagaströnd,
Siglufirði, Húsavík, Þórshöfn, Rauf-
arhöfn og Vopnafirði.
Lokað vegna
ágreinings innan ESB
Skoðunarstöðvunum hefur nú ver-
ið lokað og verður því allur sjávarafli
að fara um innflutningshafnir þar
sem eru landamærastöðvar. Að sögn
Þórðar Asgeirssonar fiskistofustjóra
er ágreiningur innan Evrópusam-
bandsins um hvemig eigi að túlka
reglur um slíkar skoðunarstöðvar,
sem og milli ESB og Eftirlitsstofnun-
ar EFTA. Sjávarútvegsráðherra hef-
ur því tekið ákvörðun um að loka um-
ræddum skoðunarstöðvum
tímabundið meðan verið er að greiða
úr ágreiningnum. Þórður vonast þó tfl
að skoðunarstöðvarnar verði opnaðar
fljótlega, enda Ijóst að lokanirnar
koma sér illa fyrir þá staði sem
byggja á vinnslu Rússafisks og rækju
af Flæmingjagrunni.
Hækkar hráefnis-
kostnað um allt að 5%
A síðasta ári var heimilt að skoða
t.d. rækju af Flæmingjagrunni, sem
flutt er til vinnslu hérlendis, um borð í
flutningaskipum í fyrstu innflutnings-
höfn, oftast Bolungarvík eða ísafirði,
en skipa henni ekki upp fyrr en á við-
komandi vinnslustað, s.s. á Hólmavík,
Skagaströnd og Siglufirði. Nú hefur
starfsreglum hinsvegar verið breytt
og er flutningaskipunum ekki lengur
heimilt að sigla með rækjuna á aðrar
hafnir en innflutningshafnimar.
Vinnslustöðvamar verða því að sækja
rækjuna á viðkomandi landamæra-
stöð, með tilheyrandi geymslu- og
flutningskostnaði. Ætla má að flutn-
ingskostnaður sé um 4 krónur á hvert
kfló en geymslukostnaður um 1 króna
ákíló.
Gunnlaugur Sighvatsson, fram-
kvæmdastjóri Hólmadrangs ehf. á
Hólmavík, segir að breyting á reglum
um innflutning hráefnis og breyttar
aðferðir Fiskistofu við úttekt á
rækjufarmi af Flæmingjagrunni
hækki hráefnisverð um allt að 5%.
Hann segir slíkan umframkostnað
veikja samkeppnisstöðu þeirra fyrir-
tækja sem séu utan innflutningshafn-
anna. „I fyrsta lagi er ekki veitt leyfi
fyrir skoðunarstöðvum í dag, þannig
að alla rækju upprunna utan EÉS þarf
að tolla á landamærastöðvum. Þá eru
skoðunaraðferðir Fiskistofu með þeim
hætti að þess er krafist að allri vörunni
sé skipað upp áður en flutningur er
leyfður. Þetta kallar á flutning farms-
ins í frystigeymslu, með tilheyrandi
kostnaði við umsýslu vörunnar, og síð-
an flutning landleiðina með enn meiri
aukakostnaði. Með þeim liðlegheitum
að skoða vöruna um borð í flutninga-
skipinu gæti skipið haldið áfram með
vöruna til Hólmavíkur og þannig
mætti losna við allan þennan auka-
kostnað sem felst í flutningi, geymslu
og umsýslu með vöruna."
Jóel Kristjánsson, framkvæmda-
stjóri Skagstrendings hf. á Skaga-
strönd, segir lokun skoðunarstöðv-
anna skapa óhenyu óhagræði og ekki
sé á það bætandi í því ástandi sem
rækjuiðnaðurinn búi við í dag.
LOKUN tollaeftirlitsstöðva og hertar
starfsreglur varðandi skoðun á inn-
flutningi sjávarafla til vinnslu hér-
lendis hefur í för með sér mikið óhag-
ræði og skekkir samkeppnisstöðu
fiskvinnslufyrirtækja. Dæmi eru um
að hráefniskostnaður vegna flutnings
og geymslu rækjufarms hafi hækkað
um 5% vegna þessa. Stöðvunum var
lokað vegna ágreinings um túlkun
starfsreglna innan ESB en gert er
ráð fyrir að þær verði opnaðar á ný
innan tíðar.
A
MITSUBISHI
- demantar í umferö
niðurstöðu verður skipaður gerðar-
dómur og skuldbinda báðir aðilar
sig til að fara eftir niðurstöðu hans.
Tillögurnar gera ráð fyrir að ASI
haldi ársfund í stað þinga á fjög-
urra ára fresti. Gert er ráð fyrir að
ársfundirnir verði fámennari en
þingin, en einnig er stefnt að því að
fækka í miðstjórn. Afram er gert
ráð fyrir að félög verði aðilar að
ASI í gegnum landssambönd, en
hins vegar verður landsfélögum
heimilt að eiga beina aðild að sam-
bandinu. Skilyrði er að starfssvæði
slíkra félaga sé allt landið.
Unnið að stofnun nýs
landssambands „ófaglærðra"
Verkamannasamband íslands
heldur framhaldsþing sitt nk.
þriðjudag og verður þar tekin fyrir
tillaga um að VMSI, Landssamb-
and iðnverkafólks og Þjónustu-
samband Islands stofni eitt lands-
samband. Hervar Gunnarsson,
varaformaður VMSÍ, segir að þetta
landssamband, sem verður lang-
stærsta landssambandið innan ASI,
verði landssamband „ófaglærðra“.
Hann segir stefnt að því að stofna
þetta nýja landssamband í haust.
Hann segir sérstaklega ánægjulegt
að verkamannafélögin á höfuðborg-
arsvæðinu, sem mynda svokallað
Flóabandalag, hafi ákveðið að taka
þátt í þessari undirbúningsvinnu.
Vinnan sé hins vegar ekki komin
það langt að ljóst sé hvernig skipu-
lagi nýja sambandsins verði háttað.
MITSUBISHI
ðRomifftjiufJffiþctnna
SAMBANDSSTJÓRNAR- og for-
mannafundur Alþýðusambands Is-
lands lýsti yfir stuðningi við tillögur
í skipulagsmálum sem forsetar ASÍ
lögðu fram í gær. Tillögurnar gera
ráð fyrir þeirri nýjung að stéttar-
félögin, sem aðild eiga að ASÍ, geri
með sér samstarfssamning þar sem
m.a. verði fjallað um starfssvið.
Drög að slíkum samstarfssamn-
ingi voru lögð fyrir fundinn og gera
þau ráð fyrir að stéttarfélögin skili
til forseta ASI skilgreiningu á
samningssviði sínu fyrir 1. júlí nk.
Verði ágreiningur milli félaga um
'*wte,starfssvið er gert ráð fyrir að þau
reyni að leysa hann. Takist það ekki
eiga félögin að óska eftir aðstoð
ASÍ. Leiði sáttatilraunir ekki til
Stuðningur við skipulagstillögur ASÍ
Félög semji um
samstarfssvið