Morgunblaðið - 22.08.2000, Page 4

Morgunblaðið - 22.08.2000, Page 4
4 ÞRIÐ JUDAGUR 22. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Menningarnótt í miðbæ Reykjavfkur Umferðartafír að lokinni flugeldasýningu MIKLAR umferðartafir urðu í Reykjavík eftir að skipulagðri dag- skrá menningarnætur lauk um mið- nætti aðfaranótt sunnudags. Þegar flugeldasýningunni, sem var loka- atriði menningamæturinnar, lauk tóku við umferðartafir sem ekki tókst að greiða úr fyrr en um kl. 2.30. Lögreglan telur að um 50 þúsund manns hafi safnast fyrir í miðborg- inni til að fylgjast með flugeldasýn- ingunni sem var lokaatriði menning- arnæturinnar. Karl Steinar Valsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að aðgerðir lögreglunnar hafi tekið mið af menningarnóttinni í fyrra og 17. júní hátíðarhöldum. Karl Steinar segir lögregluna, líkt og skipuleggjendur hátíðarhaldanna hafa gert ráð fyrir svipuðum mann- fjölda og í fyrra. Þátttakendur hafi hins vegar verið mun fleiri að þessu sinni. Lokaatriði menningarnæturinnar, glæsileg flugeldasýning, dró að sér mikinn fjölda áhorfenda. Að henni lokinni hugðust margir aka heim. „Gatnakerfið þolir ekki þennan bílafjölda," segir Karl Steinar. Hann bendir á að möguleikar lögreglunn- ar til umferðarstjórnunar séu á margan hátt takmarkaðir af gatna- kerfínu. Hún hafi helst einbeitt sér að umferðarstjómun á Sæbrautinni þar sem umferð á greiðari leið um en t.d. á Hringbrautinni. Heldur fleiri lögreglumenn vom á vakt aðfaranótt sunnudags en venju- lega. „Eftir á að hyggja hefði ég vilj- að vera með fleiri lögreglumenn á mótorhjólum. Það er sá lærdómur sem við munum draga af þessu,“ segir Karl Steinar. Hann segir þá sem hafi lagt bíln- um sínum utan miðborgarinnar hafi átt auðveldara með að komast til síns heima en aðrir. Sjö lögreglumenn þreyttuViðeyjarsund í gær Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Sundkapparnir þreyttir en sælir að loknuViðeyjarsundi. Stakk karlana af INGIBJÖRG Sigurðardóttir lög- reglumaður kom fyrst að landi er hún ásamt sex öðrum þreytti Við- eyjarsund í gærmorgun. Sex aðrir Iögreglumenn úr Sjósundfélagi lög- reglumanna - allt karlmenn - þreyttu sundið en þetta mun vera í fyrsta sinn, sem kona úr þeirra röð- um tekur þátt í því. Ingibjörg var um 35 mínútur að ná landi en sá fé- lagi hennar sem lengst var í sjónum var um 45 mínútur. „Hún var svo hraðsynt, hún Ingi- björg, að hún stakk okkur alveg af,“ sagði Jón Otti Gíslason lög- reglumaður, einn sundmanna, þar sem þau sátu að snæðingi á kjúkl- ingastað, þreytt en sæl eftir volkið. Að hans sögn voru aðstæður til sunds nokkuð góðar, sléttur sjór en kaldur á kafla. Sagði hann að um miðbik sundsins hefðu þau lent í köldum streng sem legið hefði inn Viðeyjarsund. Hefði það verið veru- lega óþægilegt en sjórinn hefði hlýnað aftur þegar þau nálguðust Sundahöfn. Höfðu fylgdarsel Ingibjörg hefur starfað þijá mán- uði í lögreglunni. Aðspurð sagðist hún hafa æft sund sem barn og vera vön sjónum þar sem hún stundaði seglbrettasiglingar þegar hún var yngri. Hefur hún æft reglulega með sjósundfélagi lögreglumanna í Nauthólsvík. Ekki var nóg með að sundköpp- unum væri fylgt af tveimur bátum heldur synti selur einn þeim til sam- lætis. „Ég held að Snorri selur hafi verið fyrstur," sagði Ingibjðrg og gerði lítið úr afreki sínu. Hún ætlar svo sannarlega að halda sjósundinu áfram. „Maður er orðinn alveg háð- ur þessu, þetta er svo gaman." Lögreglan á Húsavík Fjöldi umferðar- óhappa ÓVENJU tíð umferðaróhöpp voru í umdæmi lögreglunnar á Húsavík um helgina. Engin alvarleg slys urðu þó á fólki en fjöldi bifreiða er stór- skemmdur eftir helgina. Á föstudagskvöldið valt fólksbif- reið með fimm ungmenni innanborðs út af veginum við rætur Hvamma- brekku. Okumaður virðist hafa misst stjórn á bíl sínum í lausamöl með fyrrgreindum afleiðingum. Ekki urðu slys á fólki en bíllinn er mikið skemmdur. Að morgni sunnudags ók 17 ára ökumaður á ofsahraða um Raufar- höfn og ók m.a. niður brunahana. Með honum í bílnum voru þijú ung- menni. Hann er grunaður um ölvun við akstur. Tvær bflveltur urðu á sunnudag- inn á hringveginum við Másvatn. í fyrra skiptið valt bíll íslenskrar konu. Hún gaf þær skýringar á slys- inu að ær hefði gert sig líklega til að hlaupa yfir veginn. Konan slapp óm- eidd, en bfllinn er talinn ónýtur. Um fjórum klukkustundum síðar hafnaði fólksbifreið með tveimur þýskum konum utan vegar á sama stað. Öku- maðurinn var að mæta bfl og brems- aði til að hægja ferðina. Við það missti hún vald á bifreiðinni sem valt a.m.k. tvær veltur. Konurnar sluppu báðar með skrámur. Lögreglan á Húsavík telur bílinn vera ónýtan. Sama dag fékk lögreglan tilkynn- ingu um að bifreið hefði verið ekið út af þjóðvegi 85 skammt frá Ásbyrgi. Þar voru á ferð tvær bandarískar konur. Ökumaður virðist af einhveij- um ástæðum hafa misst stjóm á bíln- um og lent utan vegar. Bíllinn er mikið skemmdur en konumar em báðar ómeiddar. Þjónusta númer eitt! Til sölu VW Vento GL 1600 nýskráður31. 1. 1997 4ra dyra, 5 gíra, ekinn 48.000. Ásett verð 1090 þ. Nánari uppl. hjá Bflaþingi Heklu, sími 569 5500. Opnunartfmi: Mánud. - föstud. kl. 9-I8 laugardagar kl. 12-16 . BÍLAÞINGflEKLU Nvmc-r ciff í nofvPvryi bíhinl Laugavegi 174,105 Reykjavfk, sími 569*5500 www.bUathiiig.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is Morgunblaðið/Jim Smart Þátttakendur í Reykjavíkur- maraþoni voru um 2.800 talsins og vom þeir ræstir á hádegi á laugardag. Reykjavík- urmaraþon í blíðskap- arveðri UM 2.800 manns á öllum aldri tóku þátt f Reykjavíkurmaraþoni á laug- ardag í blíðskaparveðri. Þátttaka var heldur meiri en í fyrra og segir Ágúst Þorsteinsson, starfsmaður Reykjavíkur- maraþons, það líklega vegna þess að hlaupið var haldið á laugardegi f stað sunnudags og einnig vegna tengsla þess við menningarnótt. Um 200 manns kepptu í sjálfu maraþonhlaupinu, sem er 42 kíló- metrar og var sigurvegari þess Bandaríkjamaðurinn Charles Fólk á öllum aldri tók þátt í Reykjavíkurmaraþoni. Hubbard, en tími hans var 2:34:12. Fyrstur íslendinga var Lárus Thor- lacius, en tími hans var 2:48:33. Þá var einnig keppt í hálfmara- þoni, tfu kflómetra hlaupi og tfu kflómetra Ifnuskautahlaupi, og um helmingur þátttakenda hljóp þriggja eða sjö kílómetra skemmti- skokk. ■ Líf/B13 Andlát SOFFIA IN G Y ARSDÓTTIR LÁTIN er í Reykjavík frú Soffía Ingvarsdótt- ir, fyrrum borgarfull- trúi, 97 ára að aldri. Fullu nafni hét hún Oddný Soffía Ingvars- dóttir. Hún fæddist að Gaulverjabæ í Flóa, dóttir sr. Ingvars G. Nikulássonar, prests í Gaulveijabæ og síðar á Skeggjastöðum við Bakkafjörð, og konu hans Júlíu Guðmunds- dóttur, hreppstjóra að Keldum. Soffía ólst upp á Skeggjastöðum, stundaði nám við Gagnfræðaskólann á Akureyri 1916-1917 og braut- skráðist úr Kvennaskólanum í Reykjavík 1921. Soffía var húsfreyja í Reykjavík en lét þjóðfélagsmál sig miklu varða. Hún var borgarfulltrúi í Reykjavík fyrir Alþýðuflokkinn 1938-1953 og sat um hríð á Alþingi. Soffía var rit- ari Kvenfélags Alþýðuflokksins í Reykjavík frá stofnun 1937 og for- maður þess 1943-1967 og var kjörin heiðursféj lagi þess. Soffía áttí sæti í miðstjórn Al- þýðuflokksins 1938- 1967 og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrii* flokkinn. Hún sat S stjórn Sjúkrasamlag| Reykjavíkur 1954+ 1974, í stjórn Kvenréttí indafélags íslandf 1948-1956 og í stjórí Bandalags kvenna í Reykjavík 1962-1976. Hún ritstýrði kvenna- síðu AlþýðublaðsinS um skeið og samdi nokkrar smásögf ur sem birst hafa í tímaritum. Soffía giftist Sveinbirni Sigurjóns- syni magister er lengi var skólastjóri Gagnfræðaskóla Austurbæjar. Hann andaðist 26. mars 1990. Þau eignuð; ust tvær dætur, Júlíu, leiðsögumanr^ er lést 21. október 1984, gift Baldvifl Tryggvasyni sparisjóðsstjóra Qg Guðrúnu, viðskiptafræðing, gift dr. Amþóri Garðarssyni, prófessor.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.