Morgunblaðið - 22.08.2000, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000 11
Mikil aukning
umferðarlaga-
brota frá 1997
Engin sjáanleg merki um
bætta umferðarmenningu
Fjöldi umferðarlagabrota 1997-1999 skipt eftir yfirflokkum 1997 1998 1999
Reglur fyrir alla umferð 1.912 2.768 3.219
Umferðarreigur fyrir ökumenn 1.458 4.410 2.236
Ökuhraði 3.348 6.451 3.990
Um ökumenn 3.785 10.235 8.050
Um notkun öryggis- og verndarbúnaðar 633 1.367 471
Um fébætur og vátryggingu 1.223 1.251 626
Umferðaróhapp 2.874 3.475 4.232
Aðrir yfirflokkar 444 966 1.038
Samtals 15.677 30.923 23.862
Hlutfallsleg skipting eftir kyni
og aldri þeirra sem fengu 1
eða fleiri umferðarpunkta á
landinu öllu árið 1999
o J
Aldur 15-20
21-30 31-40 41-50 51-60 61 og eldri
í REYKJAVÍK verður haldið
umferðarátak næstkomandi
fimmtudag að frumkvæði lög-
reglunnar í Reykjavík undir yfir-
skriftinni „slysalaus dagur í um-
ferðinni í höfuðborginni". Mun
fjölga í lögregluliðinu á götum
borgarinnar til mikilla muna og
eftirlit verða hert. Lögreglan í
Reykjavík leggur samt áherslu á
að átakið sé ekki átak lögreglunn-
ar einnar heldur átak almennings.
Almenningur verði að hugsa sinn
gang og íhuga ábyrgð sína varð-
andi öryggi í umferðinni. Hvetur
lögreglan ökumenn til að taka þátt
í átakinu, fara að umferðarreglum
og stuðla þannig að slysalausum
degi í umferðinni.
Óvenjumikið
eftirlit 1998
Samkvæmt upplýsingum, sem
fram koma í væntanlegri árs-
skýrslu lögreglunnar í Reykjavík
um fjölda og eðli umferðarlaga-
brota árið 1999, voru brot færri
það ár en árið á undan. Varlega
verður að fara í túlkun þessara
talna þar sem að árið 1998 var
lögð sérstök áhersla á eftirlit með
umferð sem hefur aukningu á
skráningum brota í för með sér.
Segir enda í skýrslunni að færri
umferðarlagabrot 1999 megi að
einhverju leyti útskýra með minni
áherslu á eftirlit en 1998. Brotum
fjölgar hins vegar verulega árið
1999 miðað við 1997.
Aukning í flestum
flokkum
Samtals eru skráð umferðar-
lagabrot 1997 15.677 talsins en
23.862 árið 1999.
Fjölda brota er skipt eftir yfir-
flokkum í skýrslu lögreglunnar.
Tilkoma löggæslumyndavéla við
gatnamót veldur m.a. aukningu í
flokknum „reglur fyrir alla um-
ferð“. Þar fjölgar brotum úr 1.912
árið 1997 í 3.219 árið 1999. Hrað-
akstursbrotum fjölgaði um 642 á
milli 1997 og 1999, voru 3.348 árið
1997 en 3.990 á síðasta ári.
Skráð brot, sem heyra undir
flokkinn „umferðarreglur fyrir
ökumenn“, voru 1.458 árið 1997 en
2.236 á árinu 1999.
Umferðaróhöppum fjölgaði á
milli ára. Hér má kannski segja að
það sé réttlætanlegt að taka árið
1998 með í samanburðinn þrátt
fyrir þá fyrirvara sem áður var
minnst á þar sem aukið eftirlit
hefur tæplega áhrif á tilkynningar
um óhöpp. Árið 1997 voru skráð
óhöpp 2.874, 1998 voru þau 3.475
og í fyrra 4.232. í skýrslu lög-
reglunnar er bent á að þessa aukn-
ingu frá árinu 1998 megi að ein-
hverju leyti skýra með því að
borgarar virðast í auknum mæli
kalla eftir aðstoð lögreglu þegar
umferðaróhapp á sér stað frekar
en að fylla út tjónstilkynningu
sjálfir.
Athygli vekur að í flokknum
„um notkun öryggis- og verndar-
búnaðar" fækkar tilfellum tálsvert
1999 miðað við 1997. í fyrra voru
brotin 471 en árið 1997 633. Hlýtur
maður að vona að það sé vísbend-
ing um aukna bílbelta- og barna-
stólanotkun. Einnig fækkar í
flokknum „um fébætur og vá-
tryggingu". Þar voru tilfellin 1.223
árið 1997 en 626 í fyrra. Helgast
það af færri málum þar sem kom
til brottflutnings ökutækja, t.d.
þar sem var ólöglega lagt, en einn-
ig kom sjaldnar til bráðabirgða-
sviptingar ökuréttinda vegna hrað-
aksturs.
Helst yngstu
ökumennirnir
Mjög afgerandi niðurstöður fást
þegar skoðuð er hlutfallsleg skipt-
ing þeirra, sem fengu einn eða
fleiri umferðarpunkta á landinu
öllu á árinu 1999, eftir aldri og
kyni.
Hlutfallslegur fjöldi brotlegra í
hverjum aldursflokki er nánast
hinn sami hvort sem litið er til
karla eða kvenna. Ef tölurnar fyrir
bæði kynin til samans eru gaum-
gæfðar kemur í ljós að 19 af
hundraði þeirra, sem fengu
punkta, voru á aldrinum 15-20 ára.
Þetta er mjög hátt hlutfall í ljósi
þess að hér er í raun aðallega um
að ræða ökumenn á aldrinum 17-
20 ára. Næsti aldurshópur er fjöl-
mennastur en hann nær yfir mun
stærra aldursbil eða 21-30 ára.
34,7 af hundraði þeirra, sem fengu
punkta, komu úr þessum hópi.
Þaðan í frá fer hlutfall þeirra, sem
fengu punkta, síminnkandi með
hverjum aldurshópi. 4,8 af hundr-
aði komu úr aldurshópnum 61 árs
og eldri.
Hvað kynjahlutfallið varðar voru
79 af hundraði þeirra, sem fengu
punkta á árinu 1999, karlar en 21
af hundraði konur. 48 manns voru
sviptir ökuréttindum á grundvelli
punktafjölda og voru 96 af hundr-
aði karlar.
Árstíð og færð
hafa áhrif
Árstíð og færð hafa klárlega
bæði áhrif á tíðni umferðaróhappa
og of hraðs aksturs.
Fjöldi tilkynninga um umferðar-
óhöpp er mestur yfir vetrarmán-
uðina, frá október og fram í mars.
Hefur þeim tilvikum fjölgað veru-
lega þar sem ökumenn stinga af
frá vettvangi. Voru 726 slík tilvik
tilkynnt árið 1999 á móti 243 árið
þar á undan.
Öfugt við umferðaróhöppin er
fjöldi hraðakstursbrota mestur yf-
ir sumarmánuðina. Á síðasta ári
var um að ræða fjölgun mála frá
apríl til júlí en síðan fækkaði mál-
um jafnt og þétt með haustinu og
fram í desember. Voru árin 1997
og 1998 sambærileg að þessu leyti.
I I
KAMÍNUR
Vandaðar, fallegar.
Ótrúlega hagstætt verð.
-MIKIÐÚRVAL-
PFAFF
cHeimilistœkjaverslun
Grensásvegur 13 -108 Reykjavík - Sími 533 2222
Brandtex fatnaður
5
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður.
Nýbýlavegi 12, sími 5544433
Nú þegar haustið lætur á sér kræla og daginn tekurað stytta
eru Ljósasklpti í Lumex. Þá seljum við nokkra sýningargripi
og fleira á sérlega hagstæðu verðl f nokkra daga. Komdu og
skoðaðu fallega hluti sem lýsa upp heimitið / skammdeginu.
Skipholtl 37
Sími 568 8338