Morgunblaðið - 22.08.2000, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 22.08.2000, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000 ;43 lokið. Þú sem varst svo ungnr og þó við skiljum það ekki núna þá skiljum við það kannski betur seinna að Drottinn hefur haft önnur verkefni fyi-ir þig. Okkur Sigrúnu langar að minnast þín í örfáum orðum og þakka þér fyrir allar samverustundirnar sem við áttum saman. Alltaf var nú stutt í gleðina og stríðnina á þeim bænum en eftirminnilegast þó þegar gít- arinn gamli, sem alltaf var skammt undan, var dreginn fram. Þá fengu tónlistarhæfileikar þínir að njóta sín. Mér er það sérstaklega minnisstætt þegar þú komst með gítarinn í þrí- tugsafmælið mitt og spilaðir og söngst fyrir mig. Þakka þér fyrir það. Þú varst ekki bara frændi minn heldur líka einn besti vinur minn. Og þó við hefðum ekki sést um tíma, vegna búsetu minnar í Bandaríkjun- um, þá héldum við nú alltaf sam- bandi. Skarðið sem nú var hoggið í vinahóp minn er stórt og það verður skrítið að koma til íslands og hitta þig ekki. Þú varst hörku duglegui- sjómað- ur og alltaf varstu aðal „gleðipinn- inn“ þar sem þú varst, hvort sem þú varst með fjölskyldu þinni eða félög- um. Þar vitum við að þín verður sárt saknað. Þú barðist eins og hetja í veikindum þínum, en svo kom kallið. Góða nótt frændi og Guð geymi þig. Elsku Ása, Þorvaldur, Ema, Haddý, Jonni, Ragna, Björgvin, börnin og amma og afi, megi Guð gefa ykkur styrk í þessari miklu sorg. Skafti Fanndal og fjölskylda, Bandarikjunum. Sunnudagsmorguninn 13. ágúst hringdi síminn klukkan að ganga ell- efu. Móðir mín var í símanum og til- kynnti mér að þá nótt hefði hann elsku Bjössi frændi okkar dáið. Eg er enn að vona að ég eigi eftir að vakna af þessum skelfilega draumi. Það er mjög erfitt að sætta sig við þetta og mikið er maður nú bitur og reiður. Stundum er lífið svo órétt- látt. Elsku Ása mín, þú sem stóðst við hlið hans þessa mánuði og sýndir okkur í fjölskyldunni hvað þú elsk- aðir hann mikið, já hann var heppinn að hafa eignast svona góða konu. Þorvaldur, Erna, Haddý, Jonni, fjölskyldur þeirra og amma og afi, þetta er erfitt tímabil. Ég mun alltaf minnast þín Bjössi minn með mikilli hlýju. Þú varst hetjan í mínum aug- um þessa síðustu mánuði er við heimsóttum þig á spítalann. Eins er ég og Óli komum til þín á Karlagöt- una, þú varst svo bjartsýnn og dug- legur að maður hughreystist við að sjá þig og heyra hvað þú varst bjartsýnn. Ég á margar góðar minn- ingar af þér á Fellsbrautinni hjá ömmu og afa. Við sátum oft og spil- uðum og töluðum saman. Allar þess- ar minningar varðveiti ég vel í hjarta mér, elsku Bjössi minn. Það er falleg og góð mynd af þér eins og þú varst. Þín frænka, Valdís, Hlíðar og böm. Elsku Bjössi. Mig langaði til að kveðja þig með örfáum orðum. Ég er búinn að þekkja þig í rúm þrjú ár og þegar ég hugsa til baka, finnst mér eins og ég hafi þekkt þig alla mína ævi. Þú varst svo sérstakur og frá- bær persóna. Minningin sem ég hef af þér er björt og góð. Þú varst ætíð með bros á vör og einlægni skein úr augunum þínum og hvað sem bjátaði á leistu alltaf á björtu hliðarnar. Þú varst ótrúlega sterkur persónuleiki og í mínum augum varstu hetja. Það er svo sárt að fá aldrei að sjá þig aft- ur, en í staðinn geymi ég þig í hjarta mínu og hugsa fallega til þín. Það sem veitir mér hugarró er að ég veit að þú ert á góðum stað og þér líður vel. Það var yndislegt að fá að kynn- ast þér og ég vil þakka þér fýrir að hafa verið til og það sem mér þykir vænst um hve góður þú reyndist systur minni. Minningin er mild og góð man ég alúð þína stundum getur lítið Ijóð látið sorgir dvína. (Höf. ók.) Fjölskyldu, vinum og vandamönn- um votta ég mína innilegustu samúð. Elsku systir, guð veri með þér. Erla Súsanna Þórisdóttir. Elsku Bjössi minn, takk fyrir að ég fékk að kynnast þér í þessu lífi og takk fyrir að kenna mér svona mikið á trommurnar og píanóið. Ég veit að við hittumst aftur í næsta lífi. Það komu þrumur og eldingar í Mosfells- bæ um daginn þá vissi ég að náttúr- an var að kveðja þig. Kertið mitt, kertið mitt, þú ert svo ljúft og gott. Þú kveikir ljós og loginn brennur alveguppíloft. Stjaman mín, stjaman mín, þúertsvoljúfoggóð. Og geislinn þinn hann lýsir umallavegaslóð. (Fanney Ósk Þórisdóttir.) Vertu sæll, Bjössi minn. Fanney Ósk. Kæri Guð. Viltu hvíla hann Bjössa hjá hinum hetjunum þínum því þar á hann heima. Takk fyrir að leyfa mér að kynn- ast honum. Elsku Ása mín, fjölskylda og ást- vinir, á eftir rigningunni kemur regnboginn. Herdís (Dísa). í dag langar mig með örfáum orð- um að kveðja vin minn, sem hefur þurft að glíma við erfið veikindi og stóð sig sem hetja, en þurfti að lok- um að lúta ílægra haldi. Ég trúði varla mínum eigin eyrum þegar Ása vinkona mín hringdi til mín og sagði mér að Bjössi væri dá- inn. Margs er að minnast þar sem ég sit hér og velti fyrir mér hvers vegna sumir þurfa að ganga í gegnum meira en aðrir. Mér er hugsað til síð- asta skiptis sem ég hitti þig og þú sagðir mér að þú værir ekki tilbúinn að gefast upp, það væri svo margt sem þú og Ása ástin þín ættuð eftir að gera og minntist þú sérstaklega á blæjubjölluna sem þið hjónin höfðuð keypt og ætluðuð að gera upp. Þessi bíll hafði verið ykkar draumur frá því að þið byrjuðuð að vera saman. Tónlistin átti mikinn hlut af þínu lífi og ekki voru það ófá skiptin sem þú sast í græna sófanum í Víkurásn- um með gítar í hönd og lést okkur Ásu syngja fyrir þig og skemmtir þér vel. Einnig minnist ég þess þeg- ar ég var að flytja í nýju íbúðina mína í maí, ólétt og unnusti minn á sjónum hversu harður þú varst að flytja með mér og slóst hvergi af fyrr en allt var búið þó svo að þú haf- ir verð svona mikið veikur. Svona varst þú þrjóskur en alltaf stutt í grínið hjá þér. Ég man þegar þú og Ása sáuð hvort annað með öðrum augum en bara sem vinir, þetta var á Skagast- rönd daginn eftir sjómannadag árið ’97 og sagði ég við Ásu að þetta gengi sennilega ekki, en það var rangt því önnur eins ást hefur senni- lega sjaldan kviknað. Þið áttuð svo vel saman, voruð svo flott. Þið voruð sérstök. Elsku Bjössi, ég vil þakka þér fýr- ir þessi ár sem ég átti kost á því að vera vinur þinn. Lengi lifi minning um góðan vin. Elsku Ása og aðrir aðstandendur. Megi guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Svanhildur. Það er ekki á hverjum degi að maður kynnist fólki eins og Sigur- birni. Hann var enginn venjulegur vinur, hann var minn sáluvinur. Sama hvað ég hugsa, þetta er ekki til að skilja að þú sért hér ekki meira, en Guð veit hversu mikið ég sakna þín. En allar mínar góðu minningar um þig, geymi ég í hjarta mínu. Minningarnar getur enginn tekið frá mér, aldrei. í þau tíu ár, sem ég var svo heppin að þekkja þig höfum við upplifað svo margt saman. Og þó að ég flytti til Danmerkur og langt liði stundum á milli að vð hefðum samband urðum við alltaf að fylgjast með - hvað gerðist í hvort annars lífi. Elsku Sigurbjöm, ég kveð með þessu litla versi: Margs er að minnast, margterhéraðþakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margseraðminnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V.Briem) Elsku Ása þú varst konan í hans lífi, megir þú fá þann styrk til að yf- irvinna söknuðinn og sársaukann. Kveðja, Linda Gunnarsdóttir og börnin í Heming. Mig langar að minnast besta vinar míns, og frænda, Sigurbjöms F. Þorvaldssonar, sem lést langt fyrir aldur fram eftir erfið veikindi. Kynni okkar Bjössa, eins og hann var alltaf kallaður, hófust fyrir 12 ámm er við vomm saman á sjó á Hrafni Svein- bjarnarsyni. Um leið tókst með okk- ur mjög góður vinskapur og fljótlega komumst við að því að við væmm frændur og eftir það kallaði hann mig alltaf frænda. Margar góðar minningar koma upp í hugann frá þeim áram er við voram saman á sjó. Bjössi var mjög góður sjómaður og var farinn að leysa af sem bátsmaður um tvítugt. Sjómennska var hans aðalstarf þar til fyrir 3 áram þá hóf hann vinnu í landi til að geta verið meira heima hjá Ásu sinni. Þau höfðu keypt gam- alt hús á Karlagötu 1 og gert það mjög smekklega upp. Bjössi hafði mikinn áhuga á að gera upp gamla fallega hluti og ber heimili þeirra þess merki og í sumar eignaðist hann draumabílinn, blæju VW-bjöllu sem hann langaði að gera upp. Ann- að áhugamál Bjössa var tónlist. Snemma byrjaði hann í hljómsveit á Skagaströnd en lá þetta áhugamál í dvala á meðan hann var úti á sjó en strax og hann kom í land byrjaði hann aftur og var einn af stofnend- um hljómsveitarinnar Sólon. í mars ’99 veiktist Bjössi mjög al- varlega og var fram í júní að jafna sig að fullu. En Bjössi hafði alla tíð verið mjög heilsuhraustur. Síðasta gamlárskvöld hringdi Bjössi í mig og sagði mér þær hörmulegu fréttir að hann hefði greinst með æxli í brjóst- holi. Síðan er hann búinn að berjast hetjulega við sjúkdóminn. Kæri vin- ur, ég þakka fyrir yndislegar sam- verastundir sem engin orð fá líst. Elsku Ása mín, ég sendi þér, for- eldram, systkinum og öðram ástvin- um mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Elvar Hreinsson og fjölskylda. Þann 13. ágúst hringdi hún Ása til okkar með sorgarfréttir: Hann Bjössi er dáinn. Við höfðum fylgst með honum í veikindum hans en samt var svo sárt að heyra að öllu væri lokið og við ættum ekki eftir að sjá hann aftur eða heyra hann spila á gítarinn sinn. Þegar maður sest nið- ur og hugsar um Bjössa kemur eitt strax upp í hugann og það er tónlist- in. Tónlist var mikið áhugamál hjá honum og einnig hljóðfæri, gömul og ný, og ekki er langt síðan hann sýndi okkur eldgamalt banjó sem hann hafði keypt á einhverri bílskúrssölu hér í bæ, og var mjög ánægður með. Hann spilaði með hljómsveit áður en hann veiktist og vora samskipti okk- ar mest þá og var gaman að fylgjast með Bjössa þá því hann hafði ákveðnar skoðanir á því sem hann var að spila og oftast varð honum rfisdrykkjur í Veislusalnum Sóltúni 3, Akógeshúsinu, fyrir allt að300 manns. EÍNNIG LETTIJR HADEGISMATUR IXI AEF MEÐKAFFI OG TERTU A EFTIR - SAMA VERD . SkoSij lCY0,««o Wu7 ó n®h‘nu/ VEISLAN G3 Glœsilegar veitingar frá Veislunni Auslurströnd 12 »170Sótjnmames » Simi: 561 2031 »Fox: 561 200B VEITINGAELDHÚS www.veislan.is og hvergi hnikað, svo stundum sauð uppúr hjá öðram meðlimum, en allt- af leystust deilumar og allir vora þeir vinir í dag. Eftir að hann veikt- ist og hætti að spila vora þau ófá matarboðin sem við fórum í upp á Karlagötu og áttum við alltaf nota- lega kvöldstund með þeim Ásu, og nú þegar við getum farið að launa þeim greiðann er Bjössi fallinn frá, en ég vona að við Ása höldum þessu áfram og minnumst hans þá og höf- um minningu hans í heiðri. Nóg er til að rifja upp og mörg era þau lögin sem minna okkur á hann og ekki síst með John Lennon og Bítlunum. Minning hans verður alltaf með okk- ur. Elsku Ása, við vonum að Guð gefi þér, fjölskyldu þinni og tengdafjöl- skyldu, styrk í sorg ykkar og til að takast á rið næstu rikurnar. Okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Lilja og Þúrir (Tóti). Mig langar að kveðja góðan dreng með nokkram orðum. Bjössi var fyrir mér sérstakur maður; nærgætinn, hlýr og réttsýnn. Þó að kynni okkar hafi verið stutt finnst mér eins og ég hafi þekkt hann miklu lengur en þau þrjú ár sem nú era liðin frá þri ég kynntist honum fyrst. Bjössi var sterkur persónuleiki, ungur maður sem hafði mikið að gefa. Það veitti mér hlýja tilfinningu að dóttir mín hafði eignast svo traustan, og umfram allt, góðan mann sem lífsförunaut. Um síðustu áramót stóð Bjössi frammi fyrir alvarlegum veikindum. Ég kom í heimsókn til Bjössa á spítalann eftir stutta rannsókn. Þau Ása og Bjössi sátu á setustofu og biðu eftir lækni. Mér verða alla tíð minnisstæð riðbrögð Bjössa rið um- búðalausum orðum læknisins. Hann brást rið af einstöku hugrekki ungs manns. Tónlistaráhugi Bjössa var mikill og var hann góður gítarleikari. Það var gaman að sjá hann spila með hljómsveit sinni og sjá og heyra hvað þeir vora góðir. Á vordögum hringdi ég í Bjössa og sagði rið hann að komið væri trommusett í bílskúrinn. „Hvað seg- irðu maður,“ sagði hann, „er þetta satt? Ég kem strax og ég get.“ Skömmu síðar birtist Bjössi og átt- um rið margar ánægjustundir í skúmum eftir þetta. í skúrnum sá ég nýja hlið á Bjössa. Hann var með mjög óþolin- móðan nemanda sem ég er. Þegar þolinmæði mín var á þrotum var honum mjög skemmt og hló hann mikið. Þolinmæði hans var óþrjót- andi rið kennsluna. Bjössi minn, ég kveð þig nú í hinsta sinn. Megi Ijós lífsins fylgja þér um alla eilífð. Elsku Ása Lára mín, þú sem alltaf stóðst eins og klettur rið hlið Bjössa- ég veit að þú býrð yfir þeim styrk sem þið áttuð saman. Kæra Þorvaldur, Erna, Hafdís, Jónas og aðrir vandamenn; ég votta ykkur mína innilegustu samúð. Þórir Bjarnarson. Elsku rinur. Ég ætla að kveðja þig með nokkram orðum. Þú stóðst þig svo vel í þessum miklu veikindum að ég hélt að þú fengir að vera lengur hjá okkur og ungu fallegu konuni þinni henni Ásu sem stóð eins og hetja rið hlið þér, ég ber mikla virðingu fyrir henni. Þakka þér fyrir allt. Ég geymi mfnn- inguna um þig í hjarta minu, ég veit að þú ert laus rið þjáningar núna og ert öragglega á fallegu hritu skýi og sérð um tónlistina þar, þú getur áreiðanlega spilað á hörpu. Maðurinn með ljáinn sló þig til jarðar en eftir stendur konan þín og fjölskylda harmi slegin. Vertu sæll elsku vinur og far þú í friði. Elsku Ása, Érna, Þorvaldur, Hafdis og Jónas, afar og ömmur, innilegar samúðarkveðjur í þessari miklu sorg. Anna Skaftadóttir og íjölskylda. £ia*43shom v/ T-ossvogskiVkjwgci^ð Sími: 554 0500 Erfisdrykkjur H H H H H H H H Sími 562 0200 i inimuiiiii: Varanleg minning er meitlub ístein. S S.HRfiASONHF STEINSMIÐJA Skemmuvegi 48, 200 Kop. Sími: 557-6677 Fax: 557-8410?- Netfang: sh.stone@vortex.is " Vesturhlíð 2 Fossvogi Sími 551 1266 www.utfor.is Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar. Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins meg þjónuStU allan sólarhringinn. 7 Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður « Kistur og krossarf Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja £ § UTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF. ^
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.