Morgunblaðið - 22.08.2000, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 22.08.2000, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000 55 Verður stefnu- breyting í skattamálum? UMRÆÐUR sem hafa farið fram undan- farna daga um skatta- mál gefa tilefni til að vekja athygli á þeirri skattastefnu sem nú- verandi stjómvöld hafa rekið. Sjálfstæðisflokk- urinn hefur notað áhrifaaðstöðu sína í valdastólum á undan- fömum árum til að skara eld að köku stór- eignamanna og þeirra sem hafa arð af við- skiptum með einhverj- um hætti. Óréttlæti og mismunun skattþegna hefur vaxið hröðum skrefum á valda- tíma þeirra og er orðið óþolandi. Launamenn verða að borga fulla skatta af hverri krónu og há- tekjuskatta ef þeii' hafa góð laun, en þeir sem sitja yfir verðbréfa- og hlutabréfaskránum til að grípa tæki- færin borga einungis fjármagns- tekjuskatt af sínum eyðslueyri. Hér geta menn í viðskiptalífinu rakað saman auðæfum á skömmum tíma án þess að greiða nokkum skatt til sam- félagsins. Frestunar- ákvæði skattalaganna vegna hagnaðar duga fullkomlega til að gefa þeim sem hagnast vel í viðskiptalífinu tækifæri til að fjárfesta í nýjum ábatasömum kostum. Mestu auðmenn lands- ins virðast jafnvel ekki eiga málungi matar ef marka má tekjur þeirra í skattskrá. Menn geta haft mikinn arð af við- skiptum og notað hann til framfæris án þess að borga nema fjármagnstekjuskatt af þeim hluta tekna sinna. Betra samræmi og réttlátara skattkerfí Ákæra á hendur stjómvöldum vegna skerðingar barnabóta og við- brögð fjármálaráðherra við henni benda til þess að eitthvað verði krukkað í skattkerfið á komandi vetri. Það er fagnaðarefni því það Jóhann Ársælsson Landssamband eldri kylfínga - LEK -15 ára NÚ í ágústmánuði (8. ágúst) em samtök eldri kylfinga á íslandi fimmtán ára. Þau voru stofnuð í Borgamesi föstudaginn 9. ágúst 1985. Fyrstu stjómina skipuðu: formaður Sveinn Snorrason, meðstjórnendur: El- ísabet Möller, Svan Friðgeirsson, Ragnar Steinbergsson, Ólafur Ág. Ólafsson, Gyða Jó- hannesdóttir og Her- mann Magnússon. Fyrsta verkefni nýskipaðar stjómar var að undirbúa þátttöku í Evrópu- móti seníóra í Portúga) þá strax um haustið. Eitt aðalverkefni stjórnar LEK hefur síðan verið að undirbúa og standa að úrtökumótum til vals í landslið öldunga. I fyrstu voru ein- göngu karlar sendir, tvö sex manna iið, annað keppti án forgjafar en hitt með forgjöf. Síðar vora konur send- ar til að etja kappi við kynsystur Golf Næstvinsælasta íþrótt á Islandi, segir Ríkarður Pálsson, hlýt- ur ekki þá umfjöllun, sem hún á skilið. sínai- á meginlandi Evrópu. Nú í september fara öldungar 70 ára og eldri til Spánar á Evrópumót „mast- er seniors" (Campeonata Europeo master senior de golf) en nú er hald- ið slíkt mót í fyrsta skipti í sögunni. Stjórn LEK hefur árlega skipu- lagt og staðið að yfir tug öldunga- móta um land allt en þó mest á Stór- Reykjavíkursvæðinu. Aðsóknin hef- ur verið afar góð og eldri kylfingum til mikils sóma. Tekjur LEK af mótsgjöldum hafa að nokkru leyti staðið undir kostnaði við utanfarir landsliða. I mótum þessum hafa kylfingar 50-54 ára spilað í svokall- aðri bleyjudeild þar sem kylfingar öðlast skilning og þroska til þess að spila með full- þroskuðum öldungum. Mót þessi eru skemmtilegur vett- vangur fyrir félagana úr hinum ýmsu klúbbum og kærkomið umhverfi til að i-ifja upp gömul kynni og kynnast hver öðram. Nú er að byrja ný mótaröð eldri kylfinga. Næsta Evrópumót fer fram í Tékklandi (Karlsbad og Marien- bad) í júní 2001. Fyrstu tvö úrtöku- mótin verða á Akureyri 19. og 20. ágúst en hið þriðja verður á Leir- unni 10. september. Hin mótin verða haldin í vor. Það er kunnugra en frá þurfi að segja að áhugi fyrir golfi er geysi- mikill og fer sívaxandi. Samkvæmt opinberam tölum er fjöldi skráðra félaga í golfklúbbum um 8.500 en ætla má að 1.000 til 1.500 manns í viðbót stundi í einhverjum mæli íþróttina. Aðeins knattspyrnan er vinsælli, 12-13 þúsund. Golfið er eina íþróttagreinin utan hnits og skíða, í litlum mæli, sem eldri borgarar stunda. Eldri kylf- ingar, karlar og kpnur, eru um 1.700 í golfklúbbum á íslandi. Stór hluti fólks þessa hefur hætt vinnu og hef- ur því tök á að stunda íþróttina um miðjan dag. Heilsufarslega er golfiðkunin mjög æskileg. Hreyfingin er mátu- leg og jöfn. Atján holu spil er áætlað 8-10 km gangur. Okkur sem stöndum fyrir mótum í golfi er óskiljanleg tregða íþrótta- fjölmiðla að birta úrslit úr golfmót- um þó svo að mót þessu séu auglýst í blöðum þeirra. Næstvinsælasta íþrótt á íslandi hlýtur ekki þá um- fjöllun sem hún á skilið. Að lokum óska ég öllum eldri kylfingum skemmtunar og velfarn- aðar á golfvellinum á þessu gróður- ríka síðsumri. Höfundur er forseti Landssam- bands eldri kylfinga. Ríkharður Pálsson hlýtur að vekja umræðu um skatt- kerfið í heild og þær leikreglur sem hið opinbera hefur, með ákvæðum skattalaga og hinum ýmsu reglum sem snerta efnahag heimila og ein- staklinga, búið þegnum landsins. Kerfið er orðið alltof flókið. Það þarf bókstaflega sérfræðiþekkingu á hverju heimili til að ekki tapist af rétti til bóta eða tækifæram til að spara skattgreiðslur. Þörf er á grandvallarbreytingu á skattheimtunni. Þar þarf fyrst og fremst að leggja áherslu á samræm- ingu skatta. Það ber að líta á allai’ framfærslutekjur manna sömu aug- Skattamál Heildarendurskoðun á skattkerfinu, segir Jóhann Arsælsson, og öllum hinum flóknu bótakerfum hins opin- bera er nú orðin knýj- andi nauðsyn. um. Verður er verkamaður launa sinna var eitt sinn sagt. Nú væri þetta máltæki betur orðað með því að segja að verður sé verkamaður skatta sinna, því að sá sem þiggur laun sín fyrir að moka skurð er skattlagður um 38,37 en sá sem tekur arð af hlutabréfaeign sér til framfæris um 10%. Þetta geta ekki verið eðlilegar leikreglur. Eðlilegast væri að með- höndla atvinnutekjur, tekjur af eign- um og fjármagnstekjm- með með sama hætti. Hátekjuskattur er tæki til jöfnun- ar sem Sjálfstæðisflokkurinn vill af- nema. Framsóknarflokkurinn og aðr- ir flokkar hafa ekki tekið undir þá kröfu. Þegar hátekjuskatturinn er metinn með tilliti til samanburðar á launatekjum virðist hann sanngjarn og eðlilegur. En ef horft er yfir skatt- kerfið í heild og það haft í huga að aflafé þeirra sem græða í viðskiptum er einungis skattlagt um 10% (þegar og ef það er skattlagt) þá standast rökin fyrir því, að þeir sem hafa hærri laun fyrir sína vinnu borgi hærri skattprósentu en 38,37% ekki. Það má segja að hátekjumönnum sé mis- munað í skattlagningu eftir því hvort þeir þiggja tekjur sínar sem laun eða taka þau út úr sínum atvinnurekstri (hér ætti að líta á öll fjármagnsumsvif til tekjuöfiunar sem atvinnurekstur) sem fjármagnstekjur. Þessi mismunun er nú þegar farin að hafa þau óhrif að hátekjumenn semja við þau fyrirtæki sem þeir vinna hjá um að taka hluta launa sinna í formi hlutabréfa. Hér er ekki lagt til að hátekjuskattur verði af- lagður en það verður að horfa yfir öll hin margbreytilegu litbrigði skatt- heimtu og bóta hins opinbera til að gæta samræmis og réttlætis. Heildarendurskoðun á skattkerf- inu og öllum hinum flóknu bótakerf- um hins opinbera er nú orðin knýj- andi nauðsyn. I þeirri endurskoðun verður grandvöllurinn að vera rétt- læti, jöfnuður og einfaldar og skýrar leikreglur. Það verður fróðlegt að sjá hvort tillögur um réttlátara skatt- kerfi nái fram að ganga eða hvort Framsóknarflokkurinn er tilbúinn að bera áfram ábyrgð á þeirri hróplegu mismunun sem Sjálfstæðisflokkurinp hefur haft forystu um að koma á við skattheimtu í landinu. Höfundur er alþingismaður. Tvö góð fyrirtæki Vínbar með dansgólfi Vínbar til sölu sem tekur 190 manns og er aðeins opinn um helgar og er þá með lifandi músík. Snyrtileg og góð aðstaða. Oft er þarna mikið fjör og mikið dansað. Hægt að hafa mun fjölbreyttari starfsemi en nú er gert. öll leyfi til staðar. Heildverslun Lítil heildverslun með gjafavörur og leikföng. Flytur inn frá Eng- landi. Mikil og góð álagning. Laus strax enda besti tíminn fram- undan. Mikið af litlum og stórum fyrirtækjum á skrá. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni. F.YRIRTÆKIflSALAN SUÐURVE R I SÍMAR581 2040 OG 581 4755. REYNIR ÞORGRÍMSSON. STAPRÆNN LJÓSMYNDALEIKUR á mbl.is Taktu þátt í sumaraiyndaleik sem CaJion og <0>NÝHERJI standa fyrir á mbl.is og sendu myndirnar þínar inn. Glæsilegir vinningar eru í boði fyrir skemmtilegustu myndirnar. ÞÍNAR MYNDIR Á mbl.is Eiguleg borðstofuhúsgögn Sígild og falleg í miklu úrval á frábæru verði. húsgögn Ármúla 44 simi 553 2035
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.