Morgunblaðið - 22.08.2000, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 22.08.2000, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000 31 Djassilmur á menning- arnóttu DJASS VI e n n í n o a r n ó f t Rune Gustafsson og Odd Arne Jackobsen, gftardúett, Norræna húsið. Óskar Guðjónsson og félagar, djasstríóið Solea og Stórsveit Reykjavíkur undir stjórn Sæbjarnar Jónssonar ásamt Ragnhildi Gísladóttur. Laugardagur 19. ágúst. RUNE Gustafsson er einn þekktasti gítaristi í norrænum djassi og hafa verk hans sett mik- inn svip á sænskan djass, aftur á móti er félagi hans, norski gítarist- inn Odd Arne Jackobsen, ekki eins þekktur djassleikari, en því þekkt- ari meðal gítargeggjara. Hann er eini norræni gítaristinn sem haldið hefur einleikstónleika í Carnegie Hall og hann hefur unnið mikið með asískum djassleikurum og hefur þá ekki alltaf farið troðnar slóðir. Þess gætti þó ekki á tón- leikunum nema í eina frumsamda laginu sem þar var leikið. Þá lék Odd Ai’ne einn á tólf strengja gít- ar og sótti innblástur í indverska tónlist. Þeir félagar voru hér í boði Nor- ræna hússins og voru hluti af menningarnóttinni þótt um há- bjartan dag væri og annað forskot á Jazzhátíð Reykjavíkur er hefst 2. september. Dagskrá sína nefndu gítaristarnir „As Time Goes By“ og upphófst hún að sjálfsögðu á þessu þekkta lagi úr Casablanca og í kjölfarið fylgdi „Autumn Leaves“. Rune og Odd Arne eru ólíkir gítarleikarar og mætt helst líkja dúó þeirra við dúó Jóns Páls Bjarnasonar og Björns Thorodd- sens. Einsog Jón Páll hefur Rune hinn klassíska rafgítardjasstón, sem rekja má til eftirmanna Char- lie Christian, s.s.Jimmys Raneys, Tals Farlows og Barneys Kessels. Hann er þó mjög persónulegur í tónmyndun sinni og þrátt fyrir að andlit hans sé nær steingert er hann spilar eru blæbrigðin í spili hans þrungin tilfinningu. Odd Arne er á órafmögnuðu nótunum í tóni með vænum django-hljómi. Fyrstu fímm iögin léku þeir á rafgítara og var Rune ráðandi í sólóum. Sérílagi var mögnuð túlk- un hans á „Sweet Lorrien", fyrsta laginu er Nat King Cole söng á plötu, jafnt laglínuspilið og spun- inn. Odd Ai’ne svíngaði vel í hryn- slættinum og átti tilfinningaríka sólóa í „Willow Weep For Me“ og „Beautiful Love“. Odd tók upp óprafmagnaðan gít- ar í þjóðlegri syrpu sem römmuð var inn í Taube og Jobim. Þar bar af túlkunin Rune á sænska þjóð- laginu „Emigrantvisa", sem Jan Johansson lék öllum öðrum betur. Rafgítararnir réðu að nýju ríkj- um í „Indian Summer" og annað lag sem Nat King Cole gerði frægt, „Natuer Boy“, var fallega leikið og svo var endað á bossan- ova valsi eftir Bengt Hallberg, sem hvorki var fugl eða fiskur: „Valsnova." Helst mátti fínna að þessum tónleikum að þeir voru full einhæf- ir, tempóin lík og lítil ævintýra- mennska í spunanum. Heldur bet- ur var þó brugðið út af þessu í aukalögunum. Hið fyrra var blús eftir Rune, „Afton Blues“, og þar lék hann einsog ekta rýþmablús gítaristi, enda getur Rune brugðið sér í allra kvikinda líki ef því er að skipta, annars væri hann varla einn eftirsóttasti stúdíómúsíkant í Svíþjóð. Svo kom klassísk „Topsy“ eftir basiegítaristann Eddie Dur- ham - og þar ríktu riffin eins og í basie-bandinu. Eftir að hafa hlustað á tónleika Rune Gustafsson og Odd Ai-ne Jacobsens hélt ég á vit ævintýr- anna á menningarnóttu Reykjavík- ur. Fyrsti viðkomustaður var Jóm- frúartorgið þarsem Óskar Guðjónsson og félagar voru að leika „But Not For Me“. Óskar dvaldi í London síðasta vetur og mun gera það á vetri komanda. Eg hef ekki heyrt hann leika hér heima síðan hann kom að utan nema í sjónvarpi frá Kristnitöku- hátíð. Drengurinn er samur við sig, leitar víða fanga og fer lítt troðnar slóðir. Tenórtónninn var nokkuð mattur sem oftar en fullur lífgleði. Eiríkur Orri Ólafsson blés í trompet með Óskari í „But Not For Me“ og tóku þeir Mulligan/ Baker samspilsfúgu undir lokin. Edvard Lárusson sló bassa á gít- arinn og Mattías M.D. Hemstock trommur. Píanistinn Davíð Þór hafði blásið með þeim í altósaxófón áður en mig bar að en lokalagið léku þeir Oskar, Eddi og Matti. Það var söngur Mikka refs úr Dýrunum í Hálsaskógi, en tónlist Torbjörns Egners er Oskari mjög hugleikin. Var túlkun þeirra ævin- týralega skemmtileg. Listasafn íslands var næsti áfangastaður, en þar lék þýska tríóið Soela í tvígang, rammað inn í Kjarval og Scheving. Það skipa píanistinn Markus Horn, sem m.a. hefur leikið með Albert Mangels- dorf, rafbassaleikarinn Lars Han- sen og trommarinn Dieter Schmig- elok. Fyrirtæki Hrólfs Vagnssonar harmonikusnillings, CordAria, hef- ur gefið út disk með þeim félögum. Fyrstu fjögur lögin voru eftir Soela og leikur tríósins í stjörnu- merki Keith Jarrets. Tríóið er vel samspilað og lögin ágætlega samin og mjög vel leikin. Það var sosum ekkert sem kom á óvart í leik tríósins fyrren fjórða lagið var kynnt, valsinn víðkunni eftir Jón Múla, Vikivaki. Það var greinilegt að tríóið hafði ekki haft lagið lengi á efnisskránni en túlkunin var skemmtileg þó og dálítið ólík því sem við höfum vanist hjá píanist- um á borð við Eyþór Gunnarsson og Ole Koch Hansen. Tónhending- arnar voru ekki skýrt afmarkaðar heldur leið lagið áfram í jarretísk- um draumi. Lokalagið á þessum fyrri tónleikum Soela tríosins á menningarnóttu var „Beatrice" eftir saxófónleikarann Sam Rivers og fannst mér það hápunkturinn í leik þeirra félaga, rýþminn sterkur og píanóleikur Horns leikandi létt- ur en þó markviss og sterkur. Áður en flugeldasýningin mikla hófst við höfnina lék Stórsveit Reykjavíkur þar og Ragnheiður Gísladóttir söng. Sveitin lék lög af efnisskrám Bennys Goodmans og Glenns Millers m.a. „Pennsylvania 6-5000“. Þetta lag er eitt hið elsta sem varðveitt er með íslenskri stórsveit, hljómsveit Bjarna Böð- varssonar, og þá blésu Kjartan Runólfsson og Ólafur Pétursson trompet- og tenórsaxófónsólóana, en við hafnarbakkann voru það Snorri Sigurðarson og Ólafur Jónsson. Ragnhildur Gísladóttir sómdi sér vel í íslenskum karl- mönnum en djasssöngur hennar í „Stormy Weather“ og „Ain’t Mis- behaving11 var hálfgert mjálm. Eftir stórkostlega flugeldasýn- ingu var ljúft að ljúka menningar- nóttu á Bókakaffi Súfistans þar- sem Óskar Guðjónsson og félagar léku lög Jóns Múla. Vernharður Linnet Menningarborgir eru skapandi borgir Síðastliðinn laugardag, á meðan borgarbúar streymdu í bæinn til að njóta menningarnætur, hélt breski menningarfræðingurinn Charles Landry erindi um hlutverk og þýðingu menningarborga í Ráðhúsi Reykjavíkur. Fríða Björk Ingvarsdóttir hlustaði á fyrirlesturinn og tók svo Landry tali. Morgunblaðið/Jim Smart Charles Landry í Ráðhúsi Reykjavíkur. „BORGIR hafa alltaf verið hjarta siðmenn- ingarinnar, menningar- lífins og þess athafnalífs er skapar auð þeirra. I dag standa borgarsam- félög frammi fyrir ótrú- legum breytingum um leið og efnahagsleg og félagsleg vandamál auk- ast og grunngerð borg- arinnar breytist," segir í kynningu bókarinnar „The Creative City“ eða „Skapandi borg“ eftir Charles Landry. I er- indi sínu, sem hann flutti í borgarstjórnar- sal Ráðhúss Reykjavík- ur, fjallaði hann um menningarborgir, hlut- verk þeiri’a og þau vandamál sem þær standa frammi fyrir á meðan á menningarár- inu stendur og eftir að því lýkur. Viðstaddir voru fulltrúar menningarborganna í ár auk ann- arra gesta og bauð borgarstjórinn í Reykjavík, Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, gestina velkomna. Charles Landry er fæddur í Bret- landi og hlaut menntun í hagfræði í Þýskalandi, á Ítalíu og í heimalandi sínu. Hann hefur ferðast víða um heim, tekið að sér verkefni á sviði menningar og flutt fyrirlestra um stefnumótun, eðli menningariðnað- arins og framtíð og þróun borgar- samfélaga. Fyrirlesturinn í Ráðhúsinu nefndi Landry „How to Stay a Creative Cultural City“ eða „Hvernig hægt er að halda áfram að vera menningar- borg“. Hóf hann mál sitt með því að skilgreina hugtakið „menning“ á mjög víðan máta: „það sem fólk gerir og hugsar, því allt sem við aðhöfumst er mettað af menningunni sem mót- ar okkur - og öfugt.“ Hlutverk markviss átaks á borð við menningarborg er að hans mati tvíþætt. Annars vegar að flokka þá arfleifð sem fyrii’ er, beina athygli að ákveðnum þáttum hennar og móta þannig bæði tilurð hefðarinnar og framtíðina, og hins vegar að sinna sköpunarkraftinum sjálfum í því sem er að gerast í samtímanum. „Sú sköpun sem á sér stað í samtímanum er menning framtíðarinnar," sagði hann. Menningin er meginstoð umræðu og upplýsingar Charles Landry vék nokkuð að hlutverki menningarinnar í borgar- samfélaginu almennt, en að hans mati er það ekki síst falið í því að vera meginstoð umræðu og upplýs- ingar - vettvangur til að njóta þess sem vitsmunh’ og sköpunarkraftur mánnsins hafa upp á að bjóða. f stuttu samtali við blaðamann gaf Landry nokkuð ítarlegri skýringu á þessu hlutverki: „Ég stilli hinu gamla og því nýja í menningunni upp hlið við hlið af því að þessir tveir þættir móta framtíðina. Hluti af því sem ég hef kallað flokkunarferli er svo einnig það að ræða saman um menninguna í fortíð og samtíð og áhrif hennar á okkur öll.“ Landry sagðist reyna að forðast „að hefja máls á menningarumræðu með orðinu „list“. Ég vil gera tilraun til að nálgast sjálfan kjarna menn- ingarinnar og þá hugsun sem hún sprettur úr. Ein birtingarmynd hennar er listin og hún er auðvitað mjög áhugaverð. Samt sem áður get- ur menningin einnig hreinlega falist í athyglisverðu samtali manna á milli. Ég vil ekki gera listamönnum of hátt undh’ höfði, þó mér finnist þeir oft sinna hlutverki sínu með ágætum.“ „Ég lít ekki á listina sem kjarna menningarinnar,“ segir hann, „list hefur það hlutverk innan hennar að útskýra íyrir okkur hvað menningin er, hvað það er sem við eram að reyna að skapa. List er bara eitt af því sem menningin endurspeglast í.“ Þó erindi Landry hafi verið al- menns eðlis fjallaði hann nokkuð ít- arlega um mikilvægi menningarinn- ar fyrir íbúa borgarsamfélagsins. „Ef menningarumræðu er stjórnað á réttan hátt getur hún orðið til þess að almenningur verði sáttur við breytingar. Menningin skapar grundvöll til samræðna þar sem eng- um þarf að stafa ógn af skoðunum annarra," sagði hann. „Mig langar til að skapa umhverfi þar sem fólk veit að því er óhætt að hafa sína skoðun og vera á öðru máli - þar sem því er sýnd virðing. Það er á þann máta sem menningin skapar grundvöll til vitsmunalegrar umræðu og sköpun- ar.“ Menningarborgir ættu að leggja áherslu á séreinkenni sín I umfjöllun sinni um menningar- borgir kom fram að Landry telur hagsmunum einstakra borga best þjónað með því að þær leggi áherslu á sín eigin séreinkenni í stefnumótun sinni. Þannig sé hægt að draga jað- armenningu inn á miðjuna og gefa henni aukið vægi í samhengi við um- heiminn. Hann benti á mikilvægi þess að samtvinna ólíka þætti alþjóð- legrar og þjóðlegrar menningar. Að öði-um kosti telur hann hættu á að hárfín séreinkenni smænn menning- arheilda glatist, þar sem tilhneiging- in til að einfalda hlutina, svo auðveld- ara sé að selja þá, sé eitt einkenni markaðslögmála nútímans. Þær menningarborgir sem hafa náð mestum árangri að hans mati eru því þær sem hafa séreinkenni sín í fyrir- rúmi við skipulagninguna. Landry lagði á það áherslu að á undanförnum árum hafi lífsmáti okkar breyst til muna, menntun sé t.d. orðin að stöðugu ferli í samtím- anu, í stað þess að tilheyra einungis ungdómsárum einstaklingsins. I kjölfar þessara breytinga þurfum við að breyta hugsunarhætti okkar. Eitt af því sem einkenndir borgar- samfélag nútímans, sagði Landry, er aukinn hlutur vitsmunalegrar starf- semi af ýmsu tagi, „Bókin mín fjallar um viðhorf okkar og hugsun varð- andi menninguna og byggir á þeirri grundvallarsannfæringu minni að menningin sé það sem á eftir að vera þungamiðjan í borgarsamfélaginu í framtíðinni." Menningarborgir þurfa því að huga vandlega að því hvaða arfleifð þær skilja eftir sig og ekki síður að því hvernig sú mikla fjárfesting sem ráðist hefur verið í skilar sér til sam- félagsins. Það má ekki horfa fram hjá allri þeirri reynslu og þeim upp- lýsingum sem safnast saman í kring- um verkefni á borð við menningarár og hvernig hægt er að halda áfram að nýta þá þekkingu. Endurskilgreining á hugtakinu „menningarborg“ Landy varpaði fram þeirri hug- mynd að kannski mætti endurskil- greina hugtakið „menningarborg" og þær vonir sem við bindum við slíka viðburði. Hann sagði t.d. um- hugsunarvert hvort skipuleggjendur vildu nota alla þá fjármuni, sem þeir hafa til ráðstöfunar, á menningarái’- inu sjálfu eða geyma hluta þeirra til seinni tíma til að fylgja framtíðar- markmiðum eftir og nýta betur þá þekkingu sem safnast. „Sumar borgir, eins og t.d. Berg- en, hafa tekið þá stefnu að slá upp einni allsherjar menningai-veislu, og það er engin ástæða til að gagnrýna það ef vel er að verki staðið. Samt sem áður myndi ég fara öðruvísi að ef mér væri falið að skipuleggja menningarár. Ég myndi reyna að fá meira út úr því með því að tengja það langtímamarkmiðum. Eitt markmið gæti hreinlega verið innblástur eða andleg hvatning til borgarbúa. Ann- að gæti falist í tilraun til að ná betri tengslum við umheiminn. I fyrh’- brigðinu menningarár felst raun- hæfur möguleiki til að breyta innra eðli borgarinnar sjálfrar til framtíð- ar. “ „Ef maður lítur á hátíðarhöld af þessu tagi í víðum skilningi, þá er hægt að ná ýmsu fram sem er mun mikilvægara en það að efna til veislu. Okkui’ hætth’ kannski til að gera of lítið úr þeim möguleikum sem slík hátíðarhöld bjóða upp á. Menningar- ár getur skilið eftir sig mikilvæga arfleifð," sagði Charles Landry áður en hann hélt út í sólina til að njóta menningarnætur í Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.