Morgunblaðið - 22.08.2000, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000 33
LISTIR
AUGUST Strindberg er einn allra
kunnustu rithöfunda Svía. Það er
einkum fyrir leikrit, og mega ís-
lendingar hrósa happi yfir að hafa
fengið myndarlegt tveggja binda safn þeirra
í þýðingu Einars Braga. Auk þess eru
nokkrar skáldsögur hans kunnar, en því hef-
ur verið haldið fram, að hann nái hæst í
bréfum sínum. Rökin eru þau, að þar sé
hann alfrjáls með tilliti til ritskoðunar, og
vissulega bera bréfin þess oft vitni að hann
hafi skrifað þau af mikilli
ánægju, sleppt sér laus-
um, eftir langan vinnudag
- við skriftir! Hann er og
talinn með allra stórvirk-
ustu bréfriturum, talið er
að hann hafi skrifað um
fimmtán þúsund bréf, en
varðveitt eru tíu þúsund,
og fylla þau tuttugu bindi
í ritsafni hans. Ævisaga
Strindbergs eftir Olof
August
Strindberg
Lagercrantz byggist mjög mikið á heildar-
safninu. En augljóslega verða fáir til að lesa
öll þau ósköp, og er því þakkarvert að fá úr-
val þeirra. Og á síðasta ári birtust tvö úrvöl
bréfa Strindbergs auk kvers, 150 bls. í litlu
broti, sem valið er úr eftirlátnum drögum
Strindbergs. Það eru allskonar athuga-
semdir og hugmyndir, sem hann hefur krot-
að hjá sér á ferðalögum, eða annarsstaðar,
þegar hann fékk hugmyndir, sem hann hafði
ekki aðstöðu til að vinna úr þá þegar. Munu
flestir þeir sem skrifa kannast við slíkt í eig-
in fórum, og satt að segja finnst mér fátt
markvert í þessu, nema þá helst hugmyndir
um sviðsetningu leikrita.
Bréf
Bréfaúrvölin eru gerð út frá mjög mismun-
andi sjónarmiðum. Víkjum fyrst að því
skrítnara, sem heitir „Vinsamlega, Ágúst
Strindberg". Þar eru 365 bréf, eitt fyrir hvern
dag ársins, en frá mismunandi árum, spanna
alla þá hálfu öld sem hann skrifaði. Eitt
fyrsta bréfið skrifaði hann 1858, tíu ára gam-
all, til að segja eldri bróður sínum, stöddum í
París, frá andláti móður þeirra. Og hann
Bréf Strindbergs
Því hefur verið haldið fram að August Strindberg nái
— ___
hæst í bréfum sínum. Orn Olafsson tekur undir þau rök
að þar sé hann alfrjáls með tilliti til ritskoðunar, bréfín
beri því vitni að hann hafí skrifað þau af mikilli ánægju.
skrifaði alveg fram undir andlát sitt, vorið
1912. Þetta úrval er þannig til komið, að þessi
bréf voru flutt daglega í útvarpi. Hverju bréfi
fylgir því formáh, og er nokkuð um endur-
tekningar milli þeirra, enda þess ekki að
vænta að hlustendur muni allar slíkar upp-
lýsingar, eða heyri hverju sinni. Kosturinn
við þetta bréfaúrval er þá sá, að hvert bréf
verður að vera svo bitastætt, að það standi
undir sér. En tímaramminn virðist hafa verið
nokkuð fastur, og því er miklu sleppt úr sum-
um bréfum. Og röðin er alveg fráleit, engin
leið að fá innsýn í líf mannsins eða aðstæður
bréfanna, þegar sífellt er stokkið fram og aft-
ur í tíma.
Hitt bréfaúrvalið heitir „Minn eldur er
mestur", og er það fræg tilvitnun í bréf hans
til verðandi fyrstu konu sinnar, þegar hann
var að fá hana frá þáverandi eiginmanni
hennar. Þetta eru mun færri bréf, 272 alls.
En hér er hvert bréf birt í heild, og þau
standa í tímaröð. Þeim fylgja ágætar skýr-
ingar, en í heild verður þetta þó of tætings-
legt til að samhengi náist. Það er þá frekar
að hafa í fyrrnefndri ævisögu, en hér eru
mörg prýðisbréf. En stundum koma svo
ómerkileg og stutt bréf, að það verður ekki
skýrt með öðru en viðleitni til að gefa heild-
armynd af bréfasafninu, fremur en að halda
sig við hið merkasta. En þar bera af leið-
beiningar hans síðustu árin, til leikara um
framsögn.
Bréfaúrvöl þessi skarast nokkuð, og getur
ekki tilviljun ráðið, heldur hitt, að sum bréf-
in eru löngu orðin fræg. Mér virðist þó frá-
leitt að setja þau ofar skáldritunum, og ekki
síður fráleitt að hér birtist höfundurinn
ódulbúinn. Hann leikur margskonar hlut-
verk hér, ekki síður en í sjálfsævisögulegum
skáldritum sínum.
Hugðarefni
Auk þess að vera eitt kunnasta skáld Svía
er Strindberg nú mikils metinn sem ljós-
myndari og myndlistarmaður. En á síðasta
áratug 19. aldar leit hann á sig sem vísinda-
mann fyrst og fremst, og setur það mikinn
svip á allar þessar þrjár bækur. Hann þóttist
hafa fundið aðferð til að gera gull úr járni,
sannað að golfstraumurinn væri ekki til, og
að tunglið væri skynvilla. Þá lét hann málvís-
indin til sín taka, taldi basknesku felumál fyr-
ir frönsku, og vildi rekja öll orð allra tungna
til hebresku, að hætti 17. aldar manna, sömu-
leiðis afhjúpaði hann þá bábilju að til væru
tóntegundir. Og ekki vantaði þjóðfélagsvís-
indin, löngu fyrr komst hann að þeirri niður-
stöðu að iðnverkamenn væru arðræningjar.
Auðvelt er að hlæja að öllu þessu rugli, en
gæti það ekki hafa haft þýðingu fyrir skáld-
þroska Strindbergs, að hann taldi sér trú um
að hann hefði yfirsýn um heiminn í heild
sinni?
Strindberg var víst fyrsti atvinnurithöf-
undur Svía, og fram á síðustu ár barðist
hann við ógurleg fjárhagsvandræði, en seg-
ist raunar hafa farið gáleysislega með fé
þegar hann fékk eitthvað. Annar rauður
þráður í bréfaskriftunum er að hann vingast
við rithöfunda, einkum unga og byrjandi. En
oftast verða svo vinslit með miklum hvelli,
fjTÍr koma þó sættir á ný um stund. Knut
Hamsun efndi til fjársöfnunar handa Strind-
berg, þegar hann átti í miklum erfiðleikum.
En Strindberg fannst tónninn í boðsbréfinu
gera sig að betlara, og skrifaði Hamsun
vinslitabréf með miklum þjósti. Skiljanlegra
er að hann reiddist Björnstjerne Björnson,
þegar hann sá atriði úr einkabréfi sínu til
hans í blaðagrein sem sakaði Strindberg um
hugleysi, fyrir að fara ekki heim til Svíþjóð-
ar til að mæta fyrir rétti, sakaður um guð-
last: Strindberg skrifar Björnson: „Það ert
þá þú, huglausi úlfur, sem af öfund lastar
mig gegnum ritstjóra Verslunarblaðsins,
sem þú fyrirlítur." Strindberg rekur svo að
hann hafi þrátt fyrir margar viðvaranir farið
til Svíþjóðar, en „hvernig var það með þig,
mikilmennið, þegar þú varst ásakaður í vor?
Þú varðst kyrr í París, skrifaðir yfirlýsingar
og þáðir náðun konungs!"
Strindberg fer hér oft á kostum, einkum á
árunum 1880-90. Það er voðalegur munn-
söfnuður á honum þegar hann ber sig saman
við fjandmann sinn, Ibsen, eða talar um
fyrrverandi vini sína, eiginkonur og ástkon-
ur, og hvernig þetta lið ofsækir hann, leynt
og ljóst. Ég er hræddur um að það þætti
ekki prenthæft í Mbl. Oft hefur verið talað
um ofsóknaróra Strindbergs, og hann tók
undir það tal sjálfur, og skýrði í bréfi (13. 4.
1898) til geðveikrar systur sinnar: „Hvað
varðar hugmyndir þínar um að þú sért of-
sótt, þá líkjast þær mínum þegar ég var
veikur, og þær eru alveg tilhæfulausar,
nema hvað maður ofsækir sig sjálfur. Ef þú
lest bók mína, Inferno, geturðu séð ástæð-
urnar fyrir ofsóknarórum mínum, það voru
einkum sjálfsásakanir. Og þú sérð þá líka
leiðina sem ég leitaði til að sætta mig við að-
stæður.“
VSnligen August Strindberg. Ett ár-ett liv i
brev. Prisma 1999, 342 bls.
Min eld ár den största. Brev 1858-1912. Ord-
front 1999, 298 bls.
Köra och vánda. Strindbergs efterlámnade
papper i urval. A. Bonniers förlag. 1999, 149
bls.
uo
>
£
£
TOivunnm 2000
Þ e k k i n g í þ í rt a þ á g u
Kerfi/frœdi
Kerfisfræði TV er tveggja anna diplómnám
sem stendur frá septemberbyijim til loka maí.
Námið er sniðið að þörfum þeirra sem vilja
sjá um rekstur og viðhald upplýsingakerfa,
þjónustu við notendur og kerfisgreiningu og
-gerð hjá litlum eða meðalstórum fyrirtækjum.
Að loknu námskeiði eiga þátttakendur að
geta séð um rekstur lítillar tölvudeildar, séð
um innkaup og rekstur tölvukerfa, leyst algeng
forritunar- og greiningarverkefiíi og mótað
tölvustcfhu.
Helstu námsgreinar:
• Stýrikerfi. Umsjón og rekstur algengra
stýrikerfa.
• Gagnagrunnar og forritun.
Kerfisgreining, hönnun, Access
gagnagrunnar, VBA og Visual Basic
forritun.
• Netfræði. Uppsetning og rekstur
Windows NT, Windows 2000 og
Intemetþjóna.
• Internetið og vefsíðugerð. Gerð, viðhald
og rekstur vefja ásamt notkun vafra og
tölvupósts. HTML forritun.
• Notendaforrit. Word, Excel og
PowerPoint.
• Oflunarferli. Val á búnaði og innkaup.
• Lokaverkefni. Metið til lokaeinkunnar.
Prófað er í öllum greinum.
Forkröfur: Almenn þekking á tölvum og
góð enskukunnátta.
Lengd: 400 kennslustundir eða 267
klukkustundir.
Tímar: Tvisvar í viku kl. 16:15-19:15 og
einu sinni í hveijum mánuði á laugardegi.
Staðgreiðsluverð: 349.900,-
llelum/jófl|
nútímorclt/lri
Þetta geysivinsæla námskeið er sniðið að
þörfum þeirra sem vilja sjá um netrekstur í
fyrirtækjum eða skapa sér ný tækifæri á
vinnumarkaði.
Námskeiðið er sérsniðið fyrir þá sem vilja
verða góðir netstjórar með mikla þekkingu á
eðli neta og stjómun þeirra en einnig fyrir þá
sem vilja vita meira um tölvur og tölvutækni
og notkun neta sem em í nær öllum
fyrirtækjum og stofnunum landsins.
Helstu námsgreinar:
• Netfræði og búnaður. Ethemet,
kapalkerfi, beinar, netþjónar,
notendatölvur, netbúnaður og hönnun
neta.
• Windows 98. Netvinnsla með Win98,
uppsetning útstöðva og lykilatriði
stýrikerfisins.
• Netstýrikerfi. ítarleg kennsla á
netstýrikerfin Windows 2000 og Windows
NT.
• Internet- og Intranctþjónar. Uppsetning
og rekstur Intemetþjónustu og innranets
fyrirtækja.
Innifalið í námskeiðinu er eitt Microsoft
Certified Professional (MCP) próf.
Forkröfur: Almenn þekking á tölvum og
ensku.
Lengd: 120 kennslustundir eða 81
klukkustund.
Tfmar: Tvisvar í viku ffá kl. 16:15-19:15,
alls 27 skipti.
Staðgreiðsluverð: 139.900,-
IIICIE
Ulindoui/ 2000
Tölvuum/jón [
núlímnreMri
Microsoft Certified Systems Engineer
(MCSE) er ávísun á vel launaða og spennandi
vinnu á sviði netumsjónar og -rekstrar.
Gráðan er viðurkennd alls staðar í heiminum
og fæst að loknum ströngum Microsoft
prófúm sem aðeins er hægt að taka hjá
viðurkenndum pófúnarmiðstöðvum eins og
Tölvu- og verkffæðiþjónustunni.
I samvinnu við Pygmalion Group, sem er
Microsoft Certified Technical Education
Centre (CTEC), bjóðum við nú Windows
2000 MCSE nám.
Námið fer þannig ffam að nemendur sækja
6námskeið sem samanlagt eru fimm vikur
að lengd ’* og nýta tímann á milli þeirra til
sjálfsnáms og æfinga.
Öll kennsla fer fram á ensku og allir kennarar
hafa MCP eða MCSE og MCT (Microsoft
Certified Trainer) gráður.
Innifalin í námskeiðinu eru Microsoft
kennslu-bækur og geisladiskar með forritum.
Hægt er að taka MCP/MCSE próf hjá okkur.
Forkröfur: Góð þekking á tölvum og ensku.
Lengd: 262 kennslustundir eða 175
klukkustundir.
Tímar: Ein vika í mánuði ffá kl. 8:30-16:15,
alls 6 vikur á sex mánaða timabili.
Staðgreiðsluverð: 649.900,-
Þetta námskeið er vinsælasta námskeið okkar
ffá upphafi. Það er sniðið að þörfúm þeirra
sem sjá um tölvur í fyrirtækjum,
umsjónarmanna tölvuvera eða þeirra sem
vilja bara vita meira um tölvur.
Þátttakendur verða kröftugir notendur með
mikla þekkingu og yfirsýn yfir möguleika
einkatölvunnar í rekstri fyrirtækja og
hagnýtingu nýjustu tækni.
Helstu námsgreinar:
• Stýrikerfi. Windows 98 og vélbúnaður.
• Notendaforrit Word, Excel, Access,
PowerPoint og Outlook.
• Vefsíðugerð. FrontPage og Intemetið.
• Netstýrikerfi. Umsjón Windows NT
tölvuneta og Windows 98.
Námið er mjög ítarlegt og fjöldi íslenskra
handbóka fylgir.
Forkröfur: Grunnþekking á tölvum.
Lengd: 145 kennslustundir eða 99
klukkustundir.
Tímar: Tvisvar í viku ffá kl. 19:15-22:30,
alls 33 skipti, eða á tímanum kl. 13:00-
16:00, tvisvar í viku.
Staðgreiðsluverð: 119.900,-
* (Hægt er að kaupa einstök námskeið)
Mikið úrval styttri og lengri námskeiðal
Nánari uppiýsingar á http://vstww.tv.is
Gronsásvegi 16
108 Reykjavik
Sfml: 520 9000
Fax: 520 9009
Nettang : tv @t v.ls
p ö n t u n a r s í m i
Pj55Tí rr i Raðgrciðslulán til allt að 36 mánaða.
Lfc»J Hagstæð námslán hjá Sparísjóði Hafnarfjarðar.