Morgunblaðið - 22.08.2000, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000 57
HESTAR
Töltið var ekki alveg- á lausu hjá Föxu frá Gaverstad þegar Freyja Gísladóttir fékk hana í Egill Þórarinsson fór mikinn í töltinu á Glaumi frá Vallanesi en sá rauði var nokkuð þungur
hendur en allt kom þetta og fór hún vel í töltúrslitum unglinga. til að byrja með en var allur að koma til í mjúkum höndum Egils.
Það var létt yfir íslenska liðinu í lokin í hinum fagra Qallasal Seljord en fremst í fylkingunni standa frá vinstri Freyja A. Gísladóttir, Rosemarie Þorleifsdóttir, Vignir Jónasson, Olil Amble ogt
Sigfús Brynjar Sigfússon.
hún tæki þátt í þeirri grein og fór
hún á 22,7 og 22,8 sek. Hvort þessi
tvö pör verða valin í íslenska lands-
liðið eftir tæpt ár ræðst að sjálf-
sögðu ekki einvörðungu af frammi-
stöðu á þessu móti. Til þess að hljóta
náð fyrir augum landsliðseinvalds
þurfa þau að vera í góðu formi á
næsta keppnistímabili og vinna góða
sigra fram yfir úrtökuna.
Góður andi yfír vötnum
Góðir hestar og snjallir knapar
ei’u það sem þarf til að góður árang-
ur eigi að nást á alþjóðlegum mót-
um. En það þarf meira til því liðs-
andi og stemmning í kringum
íslenska liðið getur ráðið úrslitum
um hvernig til tekst. Eins og oft vill
verða getur myndast mikil spenna
innan liðs því menn lifa saman í
þröngu samfélagi í viku til hálfan
mánuð og það sem meira er er að
þótt um lið sé að ræða er þetta fyrst
og fremst einstaklingskeppni. Liðs-
menn eru því hvorttveggja í senn,
samherjar og keppinautar. Dæmi
eru um að liðsandi hjá íslenskum lið-
um sem keppt hafa á Norðurlanda-
og heimsineistaramótum hafi orðið
þrúgandi. Óhófleg áfengisneysla og
skemmtanafíkn einstakra liðsmanna
átti þar oft ríkan hlut að máli en á
síðustu fimm árum hefur orðið alger
breyting þar á. Nú þykir það sjálf-
sagt mál að frá því að liðsmenn
mæta á mótsstað og þar til móti hef-
ur verið slitið sé áfengi, hverju nafni
sem það nefnist, sett til hliðar og
menn einbeiti sér að því einu að ná
árangri á vellinum. Bindindi ís-
lensku liðanna þessi síðustu ár hefur
vakið athygli meðal keppinautanna
því íslenskir hestamenn á erlendri
grund hafa gert garðinn frægari fyr-
ir margt annað en bindindi. Liðsand-
inn hjá íslenska liðinu nú var sérlega
góður. Andrúmsloftið afslappað og
þægilegt enda vel ljóst til hvers
menn voru komnir til Seljord.
Það má reyndar fljóta með að hóf-
semi í áfengisneyslu á mjög vel við í
héraðinu Þelamörk því íbúar þar eru
mjög íhaldssamir í áfengismálum og
jaðrar við að neysla áfengra drykkja
sé litin hornauga. Þegar heims-
meistaramótið var haldið þarna fyrir
þremur árum var mjög hörð um-
ræða í staðarblöðum um það hvort
leyfa ætti sölu áfengra drykkja á
mótssvæðinu. í fyrirsögn á forsíðu
eins blaðs mátti til að mynda lesa:
„íslandshestamenn geta ekki haldið
HM edrú“.
Ekki er hægt að skilja svo við
Norðurlandamótið í Seljord að ekki
sé getið um frábæra veislu sem
Norðmenn héldu á laugardagskvöld-
ið fyrir úrslitadaginn. Eins og alltaf
á þessum mótum er haldin veisla
þetta kvöld með mat, drykk og
dansi. Ósjaldan hafa þessar veislur
verið hálfmisheppnaðar og maturinn
lítt girnilegur. Að þessu sinni var
breyting orðin á. Sérlega góð
skemmtiatriði voru þar sem þátt-
tökuþjóðimar lögðu sinn skerf til
málanna og Danir voru að sjálfsögðu
bestir. Maturinn var frábær, elgs-
kjöt í brúnni sósu með tilheyrandi
meðlæti. Stóðu frændur vorir Norð-
menn afar vel að þessu sem og öllu
mótinu og eiga skilið mikið lof fyrir
að lyfta Norðurlandamótum á hærra
plan en þau hafa verið á til þessa.
Sannir höfðingjar heim að sækja.
AFSLATTUR
Flymo L47
Létt lottpúðavél. Atvinnutæki fyrir
brekkur, stórar lóðir og erfiðar
aðstæður. 4 hp tvígengismótor.
MTD GE45
3,75 hp B&S bensínmótor. :
Sláttubreidd 45 sm.
80 lítra safnkassi.
AFSLÁTTUR
Husqvarna 245R vélorf
Atvinnutæki sem slær kanta, grasbrúska og illgresi. 2.7 hp benstnmótor, 8.6 kg.
Flymo E330
Turbo Light
Létt loftpúðavél fyrir litlar
lóðir. 1150 W rafmótor.
MTD bensínvél
3.5 hp bensínmótor. Sláttubreidd 51 sm.
Stál sláttudekk.
AFSLATTUR
Verð áðurkr. 17.900,
©Husqvarna
G 5
AFSLÁTTUR