Morgunblaðið - 17.09.2000, Page 1
STOFNAÐ 1913
213. TBL. 88. ÁRG.
SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuters
Thorpe sigursæll
Bretland
Konung-
leg- for-
dæming
ÓLYMPÍULEIKARNIR í Sydney í
Ástralfu voru settir á föstudag og
hófust leikamir sfðan í gær m.a.
með keppni í 400 metra skriðsundi.
Það var Ástralinn Ian Thorpe
sem þar fór með sigur af hólmi og
setti hann heimsmet í greininni er
hann synti vegalengdina á 3,40:59
mínútum. Thorpe hlaut þá einnig
önnur gullverðlaun á Ólympíuleik-
unum í gær og voru þau verðlaun
fyrir 4x100 metra boðsund karla,
en í þeim flokki setti ástralska
sveitin heimsmet.
Eldsneytisdeilan talin í rénun
Mikil ásókn
í eldsneyti
í Bretlandi
London. AFP.
BIFREIÐAEIGENDUR í Bret-
landi eltu í gær flutningabíla með
eldsneyti í von um að geta fyllt á
tanka sína að því er AFP-frétta-
stofan greindi frá. Um það bil einn
fjórði allra bensínstöðva í landinu
var starfhæfur og var ásóknin í
eldsneyti slík að dælur bensín-
stöðva tæmdust jafnóðum og þær
voru fylltar.
„Vandinn er sá að strax og það
er búið að fylla tanka bensínstöðv-
ar þá er búið að tæma þá á ný,“
sagði talsmaður Shell-olíufyrirtæk-
isins. „Flutningabílunum er fylgt
eftir langar leiðar af stórum hópi
ökumanna til að sjá hvert næsta
sending fari.“ Læknum, sjúkra- og
slökkviliðsbílum var þó veittur for-
gangur og hvatti breska lögreglan
í gær fólk til að sýna stillingu.
í Svíþjóð safnaðist hópur flutn-
ingabílstjóra við ferjuna í Hels-
ingjaborg til að mótmæla háu
verði á díselolíu og hindruðu mót-
mælendur flutningabfla, sem ekki
báru lyf eða fersk matvæli, í að
halda leiðar sinnar. Fleiri höfðu þá
safnast saman í Málmey til að
hindra umferð milli Svíþjóðar og
Þýskalands að því er TT-frétta-
stofan greindi frá og sagði tals-
maður sambands flutningabflstjóra
að búast mætti einnig við svipuð-
um aðgerðum í bæði Trelleborg og
Gautaborg.
I Þýskalandi, á Irlandi og Spáni
var hins vegar allt með kyrrum
kjörum eftir mótmælaaðgerðirnar
á föstudag og var ekki tilkynnt um
að neinna frekari aðgerða væri að
vænta á næstunni.
í Noregi tilkynntu flutningabíl-
stjórar og samtök ökumanna hins
vegar að þeir hefðu hug á að
standa fyrir aðgerðum og hindra
aðgang að fimm stærstu olíustöðv-
um landsins á mánudag.
Filippseysk stjórnvöld grípa til aðgerða í gíslamálinu
Ráðist gegn upp-
reisnarmönnum
Manila, Jolo. AP, AFP, Reuters.
ELISABET Bretadrottning og
Karl Bretaprins hafa fordæmt
Patrick Jephson, fyrrum að-
stoðarmann
Díönu prins-
essu, fyrir að
hafa hug á að
gefa út bók
sem fjallar um
hjónaband
þeirra Karls
og Díönu.
„Drottning-
in og prinsinn
af Wales
harma innilega þá ákvörðun
Jephsons að gefa út bók sína,“
sagði í yfirlýsingu frá höllinni.
„Hvert sem innihald bókarinn-
ar kann að vera þá er hún lfldeg
til að vekja á ný upp getgátur
um líf prinsessunnar sem munu
ekki þjóna öðrum tilgangi en að
valda prinsunum William og
Harry og fjölskyldu prinsess-
unnar sárindum.“
Utkoma bókarinnar hefur
vakið töluvert umtal í Bretlandi
og sagði í dagblaðinu Daily
Telegraph í gær að það eitt að
drottningin haf! séð ástæðu til
að skipta sér persónulega af
málinu, gefi skýrt til kynna hve
alvarlegum augum bókin sé lit-
in af konungsfjölskyldunni.
FILIPPSEYSKAR hersveitir réðust
í gær gegn uppreisnarmönnum músl-
ima á Jolo-eyju í því skyni að reyna að
bjarga 19 gíslum sem þar hafa verið í
haldi. Arás hersveitanna hófst
snemma í gærmorgun að staðartíma
og var í gærdag ekki vitað um örlög
gísla eða uppreisnarmanna þar sem
fjarskiptasamband við eyjuna lá
niðri. Að sögn Reuters-fréttastofunn-
ar hafði hersveitum þó tekist að taka
18 uppreisnarmenn höndum er þeir
reyndu að flýja eyjuna.
Þúsundir hermanna tóku þátt í
árásinni á Jolo og hafði undirbúning-
ur vel vopnaðra sveita staðið undan-
fama viku. „Hersveitimar era nú
þannig staðsettar að þær geti náð
sambandi við þau svæði þar sem gísl-
unum er haldið,“ sagði Ricardo Puno,
talsmaður Joseph Estrada, forseta
Filippseyja. Puno neitaði að ræða
einstök atriði aðgerðarinnar en sagð-
ist búast við að málinu lyki fljótlega.
Símasambandslaust var við eyjuna
en að sögn íbúa Jolo hafði fjöldi fólks
flúið frá árásarsvæðum til höfuðborg-
ar eyjarinnar. Fólk fylkti sér þar inn í
verslanir til að njóta húsaskjóls en
samgöngur við Jolo hafa einnig verið
rofnar meðan á aðgerðum hersins
stendur. íbúar sögðu vitað að nokkrii-
hefðu farist og margir særst í árásum
hersins. Slíkar upplýsingar hafa þó
ekki fengist staðfestar af hemum.
Að sögn Estrada íyrirskipaði hann
árásina eftir að uppreisnarliðar þeir
sem kenna sig við Abu Sayyaf tóku
þrjá nýja gísla sl. sunnudag. „Nú er
mælirinn fullur. Við munum ekki líða
mannræningjum og öðram glæpa-
mönnum að hæðast að lögum okkar
og ógna lífi fólks,“ sagði Estrada.
Njóta stuðnings
Stuðningur við að gripið yrði til að-
gerða gegn uppreisnarmönnum hef-
ur vaxið töluvert frá gíslatökunni sl.
sunnudag. En áður höfðu uppreisnar-
menn Abu Sayyaf heitið að taka ekki
fleiri gísla á meðan á samningavið-
ræðum stæði. Uppreisnarmennimir
hafa áður hótað að taka gísla sína af
lífi ef á þá yrði ráðist og hefur Jacqu-
es Chirac Frakklandsforseti lýst yfir
áhyggjum af örlögum tveggja
Frakka sem era meðal gíslanna.
Lafði Diana
S
I viðjum vanans
Spáð I gerd spila
BRAKANDI,
TEYGJANLEGT
OGBRAGÐGOTT
Noregur
Yfir þriðj-
ungnr styð-
ur Hagen
YFIR þriðjungur allra kjósenda í
Noregi, 34,2%, styður nú Framfara-
flokk Carls I. Hagens, samkvæmt
niðurstöðum skoðanakönnunar sem
Aftenposten birti nýlega. Verka-
mannaflokkur Jens Stoltenbergs
forsætisráðherra mælist hins vegar
aðeins með 22% fylgi.
Ef kosið yrði nú, myndi sam-
kvæmt könnuninni Framfaraflokk-
inn og íhaldsflokkinn Hoyre aðeins
skorta eitt þingsæti til að fá hreinan
meirihluta á Stórþinginu. Þingflokk-
ur Framfaraflokksins myndi næst-
um tvöfaldast að stærð. Athygli vek-
ur einnig, að samkvæmt sérstakri
könnun sem gerð var meðal meðlima
í norska alþýðusambandinu styðja
nú 39% þeirra Framfaraflokkinn,
sex prósentustigum fleiri en segjast
myndu styðja Verkamannaflokkinn.
í könnuninni vora stuðningsmenn
Framfaraflokksins einnig spurðii-
sérstaklega um helztu ástæður fyrir
vali sínu. 32% gáfu upp stefnu
flokksins í heilbrigðismálum og mál-
efnum aldraðra og 28% óánægju
með aðra flokka. Þrátt fyrir áber-
andi mikla óánægju með hátt benzín-
verð að undanfömu gera þó aðeins
13% aðspurðra stuðningsmanna
Framfai'aflokksins skattheimtu af
eldsneyti að veigamesta atriðinu.
MORGUNBLAÐH) 17. SEPTEMBER 2000
511690900 090000