Morgunblaðið - 17.09.2000, Side 2

Morgunblaðið - 17.09.2000, Side 2
2 SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ferðamálastjóri segir um þróun ferðaþjónustu í höfuðborginni Skortur á gistirými kann að hamla uppbyggingu ÞRÁTT íyrir aukin umsvif í ferða- þjónustu hér á landi og að miklum fjármunum sé veitt í markaðssetn- ingu á Islandi erlendis eykst gistirými ekki í Reykjavík að sama skapi. Magnús Oddsson ferðamálastjóri telur að þessi þróun geti skapað vanda innan fárra ára. Þetta kom fram í ávarpi hans á ferðakaupstefn- unni Vest Norden sem haldin var hér á landi og lauk í gær. „Stóraukin umsvif í ferðaþjónustu hljóta að krefjast uppbyggingar í móttöku ferðamanna. Svo virðist sem ekki muni koma inn stórir nýir gist- istaðir á höfuðborgarsvæðinu á allra næstu árum eins og áformað hafði verið. Það var til dæmis gert ráð fyrir að hótelið Dalur yrði opnað við Suð- urlandsbraut á þessu ári en þar verð- ur skrifstofubygging í staðinn. Þá voru uppi áform um að stækka hótel Mar við Brautarholt og stækka Grand Hótel á næsta ári. Olíklegt er að af því verði á settum tíma. Enn fremur voru ráðgerðar stækkanir á öðrum hótelum síðar og það er spum- ing hvenær af þeim verður.“ Annað með íjármuni Magnús segir að þegar til kom hafi ekki tekist að fjármagna þessar hótel- byggingar eða stækkanir þ.s. fjárfest- ar hafi séð sér hag í að fara annað með fjármuni sína. „Það er ekki hægt að neita því að þetta ástand vekur nokkum ugg með okkur sem störfum í ferðaþjónustu og við teljum að það geti orðið þröskuld- ur í ferðauppbyggingu innan örfárra ára. Það má ekki gleyma því að þó uppbygging sé mikil á landsbyggðinni þá er Reykjavík ákveðin dreifingar- miðstöð fyrir landið. Þetta helst allt í hendur þannig að aukið gistirými í Reykjavík skapar frekari forsendur fyrir aukinni nýtingu á landsbyggð- inni.“ Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson Vonbrigði í Sydney FIMLEIKAMAÐURINN Rúnar Alexandersson er úr leik á Ólympíuleikunum í Sydney. Æf- ing hans á bogahesti mistókst, en það er hans besta grein. Rúnar datt tvívegis af hestinum og fékk næstlægstu einkunn keppenda. Hann varð í 50. sæti af 97 keppendum en 36 efstu komust áfram í keppni í fjölþraut og átta efstu í einstökum greinum komust áfram í úr- slit. Rúnar sagði að hann hefði orðið fyrir gríð- arlegum vonbrigðum og hefði engar skýring- ar á því hvernig fór nema helst þá að hann hefði ætlað sér um of. Sundmennirnir Eydís Konráðsdóttir og Hjalti Guðmundsson voru einnig Iangt frá sfnu besta í sinum greinum og eru úr leik. ■ Aftarlega/15 Gistinótt- um fjölgaði um rúm 9% í fyrra HAGSTOFAN hefur gefið út ritið Gistiskýrslm- 1999. Ritið hefur að geyma margvíslegar upplýsingar í töflum og myndum um fjölda gisti- nátta, gestakoma, gistirými, nýtingu þess og streymi ferðamanna til lands- ins. Upplýsingarnai- eru sundurliðað- ar eftir tegund gististaða, landsvæð- um, rfldsfangi gesta og tímabilum. Af niðurstöðum úr ritinu má m.a. nefna eftirfarandi. Gistinóttum fjölgaði um 144 þús- und á milli áranna 1998 og 1999, úr 1.541 þúsundi í 1.685 þúsund, eða um rúmlega 9%. Þar af var fjölgun gisti- nátta á hótelum og gistiheimilum um 83 þúsund (8% fjölgun), eða tæplega 58% heildaraukningarinnar. Um 70% gistinátta árið 1999 voru í þessum flokki. Gistinóttum fjölgaði í nær öll- um tegundum gistingar á milli ár- anna 1998 og 1999. Heildarfjöldi gistinátta hefur auk- ist jafnt og þétt allt frá því gisti- náttatalning Hagstofunnai- hófst. Frá árinu 1996 til ársins 1999 hefur gisti- nóttum fjölgað um rúmlega 336 þús- und eða um tæplega 25%. Þar af fjölgaði gistinóttum á hótelum og gistiheimilum um tæplega 288 þús- und (32%) sem eru tæplega 86% heildaraukningarinnar. Ai-ið 1996 voru 66% gistinátta á hótelum og gistiheimilum og 20% á tjaldsvæðum. Arið 1999 eru hlutföllin 70% á hótel- um og gistiheimilum og 17% á tjald- svæðum. Val á gistingu hefur því færst frá tjaldsvæðum yfir í hærra þjónustustig, s.s. hótel og gistiheimili. Hótel og gistiheimili voru 254 árið 1999, einu fleiri en árið 1998. Her- bergjum fjölgaði milli áranna 1998 og 1999 um 193 (3% fjölgun) og rúmum um 441 (4%). Árið 1999 var fjöldi gistinátta á hótelum og gistiheimilum 1.183 þús, sem er fjölgun um tæplega 8% frá fyrra ári. Hlutfallsleg aukning var mest í febrúar, 14%, en aukningin var líka töluverð í apríl (13%) og júlí (12%). Samdráttur varð hins vegar í nóvember (1%). Nýting gistirýmis batnaði á hótelum og gistiheimilum á milli áranna 1998 og 1999. Vatn á Hólma- vík laust við kampýlóbakter FYRSTU niðurstöður rannsókna á sýnum, sem tekin voru úr vatnsból- um á Hólmavík í vikunni, benda til þess að vatnið sé laust við kampýló- bakter, að sögn Antons Helgasonar, heilbrigðisfulltrúa á Vestfjörðum. Von er á endanlegum niðurstöðum um helgina. Ibúar voru þó áfram beðnir um að sjóða neysluvatn og starfsemi fiskvinnslu- og sláturhúss lá ennþá niðri í gær. Anton segir að fáist niðurstöður staðfestar um að vatnið sé hreint af bakteríunni, taki fiskvinnslan og sláturhúsið að öllum líkindum til starfa eftir helgi. Kampýlóbakter greindist í vatns- bólum Hólmavíkur á mánudag og í ágúst fannst kampýlóbakter í vatns- bólum á Patreksfirði og Bfldudal. Anton segir að grannt sé fylgst með öllum vatnsbólum á svæðinu. Alþingi verður sett 2. október ALÞINGI íslendinga, 126. löggjafarþing, verður sett mánu- daginn 2. október næstkomandi. Áformað er að fjárlagafrumvarpi verði dreift þá um daginn en fyrsta umræða um frumvarpið fer síðan fram fimmtudaginn 5. október. Stefnuræða forsætis- ráðherra og umræða um hana fer fram þriðjudaginn 3. október. Formenn þingflokka áttu fund á föstudag með forsetum þings- ins og náðist þar sátt um fyrir- komulag þinghalds nú í haust. Dagskrá þingsetningarfundar verður með hefðbundnu sniði en þingfundur hefst kl. 13.30 að lok- inni athöfn í Dómkirkjunni. Ald- ursforseti þingsins, Páll Péturs- son, stýrir fundi í upphafi en síðan fer fram kosning forseta, varaforseta og nefnda, auk þess sem hlutað verður um sæti þing- manna. Stefnuræða forsætisráðherra verður flutt þriðjudaginn 3. október, eins og áður sagði, en venjuleg þingstörf hefjast síðan á miðvikudegi. Að sögn Guðmundar Árna Stefánssonar, starfandi forseta Alþingis, er dagskrá haustþings hefðbundin að öðru leyti en því að sátt náðist um það markmið að ljúka af- greiðslu fjárlagafrumvarps fyrr en venja er. Stefnt er að því að ljúka umræðu um fjárlögin 8. desember. Framkvæmdir á Vatnsendalandi 50-60 athugasemd- ir um hvora tillögu BIRGIR Sigurðsson, skipulags- stjóri í Kópavogi, segir að u.þ.b. 50-60 athugasemdir hafi borist vegna fyrirhugaðra byggingar- framkvæmda á svokölluðum F-reit í Vatnsendalandi og álíka margar athugasemdir hafi borist vegna framkvæmda á svæðinu milli vatns og vegar. Hann segir að að veru- legu leyti sé um að ræða athuga- semdir frá sömu aðilum við báðar skipulagstillögurnar. Birgir segir að strax eftir helg- ina verði byrjað að fara yfir at- hugasemdir og ábendingar sem borist hafa. Fundur verði um málið í skipulagsnefnd Kópavogsbæjar nk. þriðjudag. Samkvæmt lögum beri að semja umsagnir um at- hugasemdirnar og þegar þær liggi fyrir verði málið aftur lagt fyrir skipulagsnefnd. í framhaldi af því fari málið til bæjarráðs og bæjar- stjómar. Birgir sagði að samkvæmt aðal- skipulagi þyrfti skipulagsnefnd að hafa lokið umfjöllun sinni innan átta vikna frá því að frestur til að senda athugasemdir rennur út. Hann segist hins vegar gera ráð fyrir að reynt verði að hraða vinn- unni eins og hægt er, en menn muni eftir sem áður fara vandlega yfir málið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.