Morgunblaðið - 17.09.2000, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 17.09.2000, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2000 7 Formaður og varaformaður útvarpsráðs um rekstur Ríkisútvarpsins Myndlistar- nemar mála mannlífið NEMAR við Myndlistarskólann á Akureyri hafa verið á ferð og flugi síðustu daga í þvi skyni að fanga mannlif þessara fögru haustdaga á strigann. Við skól- ann starfar nú gestakennari frá Kanada, Aaron Mitchell, og liður í kennslu hans er að leita að við- fangsefnum úti í náttúrunni. Myndlistarnemarnir Jóna Bergdal Jakobsdóttir og Ingunn St. Svav- arsdóttir höfðu komið sér fyrir í miðbænum og máluðu það sem þar bar fyrir augu, en meðal þess sem þær hafa verið að starfa við síðustu daga er að mála gömul hús, smábáta, gróðurinn og mannlífið. Jóna og Ingunn mála í miðbæ Akureyrar. Morgunblaðið/Knstján Samið á Selfossi KJARASAMNINGAR náðust í fyrrinótt í kjaradeilu verka- lýðsfélagsins Bárunnar-Þórs á Arborgarsvæðinu og samn- inganefndar ríkisins eftir að ríkissáttasemjari lagði fram innanhústillögu. Samningurinn verður kynnt- ur á þriðjudag og borinn undir atkvæði í framhaldi af því. Félagið samþykkti sl. mánu- dag að boða tÚ verkfalls 29. september nk. Ekkert verður af verkfalli ef samningurinn verður samþykktur. Ríkisútvarpið verði sett á fjárlög í stað afnotagjalda FORMAÐUR og varaformaður út- varpsráðs telja báðir að RUV eigi að fara hægt í að auka kostun á sjónv- arpsefni. Forstjóri íslenska út- varpsfélagsins segir að einkareknu sjónvarpsstöðvarnar kepgi ekki á jafnréttisgrundvelli við RUV meðan stofnunin njóti afnotagjalda. Gunnlaugur Sævar Gunnlaugs- son, formaður útvarpsráðs, segist í hjarta sínu ekki vera sérstaklega hrifinn af kostun á sjónvarpsefni, samanber álit í skýrslu sem unnin var fyrir nokkrum árum um fram- tíðarrekstur RÚV. En málið sé ekki svo einfalt, það verði að horfa á raunveruleikann eins og hann er. „Við viljum ekki skerða dagskrár- efnið. Stofnunin hefur verið rekin með tapi og þær áætlanir sem hafa verið kynntar fyrir næsta ár benda til áframhaldandi taps. Sjónvarpið verður því að leita leiða til að afla sér sértekna. Ekki eru líkur á að af- notagjöld verði hækkuð en auðvitað verða menn að fara varlega í þessu. Vissir þættir verða aldrei kostaðir, eins og fréttir og fréttatengt efni. Veðurfréttir eru ekki fréttir sem slíkar heldur veðurlýsing og -spá,“ segir Gunnlaugur. Aðspurður hvort aukin kostun veiki ekki rökin fyrir afnotagjöldum Ríkisútvarpsins segir Gunnlaugur það ávallt vera til skoðunar hvort ríkið eigi að „vasast í þessum rekstri sem öðrum.“ Hann segist hafa að- hyllst þá skoðun að leggja afnota- gjöldin niður og fjármagna rekstur- inn með öðrum leiðum, t.d. með því að setja Ríkisútvarpið á fjárlög. Af- notagjöldin séu í raun fráleit, inn- heimta þeirra kosti um 60 milljónir á ári. Ríkið geti notað aðrar leiðir við að sækja peninga í vasa fólks. „Þetta myndi veita stofnuninni ákveðinn frið því eins og við vitum eru ekki allir ánægðir með að borga afnotagjöldin með þessum hætti,“ segir Gunnlaugur Sævar. RUV þarf að kunna sér hóf Utvarpsráð fjallaði nýlega um kostun veðurfregna og ákvað að setja sig ekki á móti því. Einn ráðs- maður sat þó hjá, Gissur Pétursson, varaformaður. Gissur segir í samtali við Morgunblaðið að Ríkisútvarpið þurfi að kunna sér hóf. Alkunn sé sú staðreynd að því meira sem fjölmiðl- ar verði háðir auglýsingamarkaðn- um því meiri áhrif geti það haft á efnisval og umfjöllun. „Menn þurfa að ganga hægt um gleðinnar dyr. Þetta er orðið þannig að þriðjungur af tekjum stofnunar- innar koma af auglýsingum. Við hljótum að nálgast hratt punkta þar sem við segjum, hingað og ekki lengra,“ segir Gissur en auglýsinga- tekjur RÚV eru árlega um 800 millj- ónir af um 2,7 milljarða tekjum. Að- spurður segir Gissur tekjur af kostun dagskrárefnis ekki vera nema um 45 milljónir króna, en fari vaxandi. Stofnunin er rekald Hvort hann sé sammála formanni útvarpsráðs, að það beri að leggja niður afnotagjöld og setja RÚV á fjárlög, segir Gissur að það sé alls ekki fráleit hugmynd. Stofnunin þurfi að fara að ákveða hvað hún ætli að verða. Málið þarfnist um- ræðu, sem þurfí að fara fram á Al- þingi og fleiri stöðum. Jafnvel sé það athugandi að Sjónvarpið hætti með auglýsingar. „Stofnunin á ekki að vera í sam- keppni við aðra miðla. Hún á að vera að gera eitthvað annað, til dæmis að sinna meira menntun, upplýsingu og þess háttar. Það verður að móta ein- hverja stefnu. Stofnunin er bara rekald,“ segir Gissur og vitnar til er- lendra skýrslna um að ríkisfjölmið- lun sem lifir á afnotagjöldum og auglýsingum leiði menn í ógöngur. Slíkt sambýli sé erfitt. Fá að vera á takkaskóm Hreggviður Jónsson, forstjóri ís- lenska útvarpsfélagsins, er ósáttur við samkeppnisgrundvöllinn eins og hann er á sjónvarpsmarkaðnum, „þeir hafa lögvemdaðan rétt til að vera á takkaskóm en við ekki“, og vísar þar til Sjónvarpsins. Hann segir að um 70% tekna Sjónvarpsins séu lögbundnar mánaðarlega með afnotagjöldunum. Sífellt sé verið að herja á sameiginlegan auglýsinga- markað, litlu skipti hvort það heiti kostun eða venjulegar auglýsingar. „Við viljum einfaldlega fá að keppa á jafnréttisgrundvelli þannig að okkar áskrifendur geti ákveðið það í hverjum mánuði hvort þeir vilja kaupa vömna eða ekki,“ segir Hreggviður og telur málin ekki leys- ast nema með afnámi afnotagjalda, og að RÚV verði rekið á markað- slegum forsendum. Vísað til reynslunnar af BBC Arni Þór Vigfússon, sjónvarps- stjóri Skjás 1, segir að lítið sé í raun hægt að segja við aukinni kostun dagskrárefnis hjá Sjónvarpinu. Að- almálið sé stefna og skipulag Ríkis- útvarpsins. Það eigi fyrst og fremst að einbeita sér að öflugri fréttaþjón- ustu fyrir landsmenn, styrkja hana með umræðuþáttum og menningar- efni. Vísar Árni Þór til BBC í þessu sambandi, sem berjist ekki á auglýs- ingamarkaði heldur sinni frétta- og fræðsluhlutverki sínu afar vel með fjármögnun í gegnum nefskatt. Ef Sjónvarpið einbeitti sér að þessu og t.d. hætti að kaupa erlent afþreyingarefni þá væri samkeppn- isstaðan jafnari á markaðnum. Veðurstofustjóri um kostun Nýjar forsendur samnings MAGNÚS Jónsson veðurstofu- stjóri telur samning þann sem er í gildi milli Veðurstofunnar og Sjónvarpsins um flutning veður- fregna fá nýjar forsendur verði af áformum forráðamanna RÚV að kosta veðurfregnimar, líkt og Morgunblaðið greindi frá nýlega. Magnús sagðist ekki hafa til þessa litið á veðurfregnir sem tæki til fjáröflunar, frekar en aðr- ar fréttir sem Sjónvarpið flytti. Að öðru leyti vildi Magnús ekki tjá sig um þessi áform. Forseti Finnlands til Islands á þriðjudag FORSETI Finnlands, Taija Halon- en, mun á fyrsta degi opinberrar heimsóknar sinnar til Islands næst- komandi þriðjudag eiga viðræður við forseta íslands, Olaf Ragnar Gríms- son, heimsækja Alþingi og um kvöld- ið verður hátíðarkvöldverður á Bess- astöðum til heiðurs forsetanum og eiginmanni hennar, Pentti Arajárvi. Áætlað er að flugvél Finnlandsfor- seta lendi í Keflavík kl. 11 og verður þá strax haldið til Bessastaða. Þar munu forsetamir ræðast við og snæða hádegisverð að viðræðunum loknum. Jan-Erik Enestam, vamar- málaráðherra og samstarfsráðherra Finnlands, er í fylgdarliði forsetans og býður Siv Friðleifsdóttir sam- starfsráðherra honum og fylgdarliði tO hádegisverðar í Iðnó. Síðdegis heimsækir Finnlandsforseti síðan Al- þingi og tekur Guðmundur Ami Stef- ánsson, fyrsti varaforseti þingsins, á móti henni þar. Dagskrá miðvikudags 20. septem- ber hefst með viðræðum Törju Hal- onen og Davíðs Oddssonar forsætis- ráðherra og verður síðan haldið til gróðursetningar í Vinaskógi. Að því loknu verður haldið til Þingvalla. For- sætisráðherrahjónin bjóða síðan til hádegisverðar í Þjóðmenningarhús- inu og verða sýningar þar einnig skoðaðar. Kl. 14.40 heimsækir forset- inn Höfða í boði Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra og síðar Hafnarhúsið þar sem kynna á sam- starfsverkefni menningarborganna Helsinki og Reykjavík. Um kvöldið bjóða Tarja Halonen og Pentti Ara- járvi til móttöku í Norræna húsinu til heiðurs forseta íslands. Síðasti dagurinn á Akureyri Síðasti dagur heimsóknar Finn- landsforseta verður á Akureyri og hefst með heimsókn í Háskólann á Akureyri. Þorsteinn Gunnarsson rektor kynnir starfsemi skólans og rannsóknastofu norðursvæða og Ní- els Einarsson, forstöðumaður Stofn- unar Vilhjálms Stefánssonar, kynnir hana. Þá flytur Tarja Halonen fyrir- lestur um norðurskautssvæðin og fer hann fram á ensku. Eftir skoðunarferð um Akureyri heldur forsetinn ásamt fylgdarliði til Útgerðarfélags Akureyringa og Sam- heija og verður síðan snæddur há- degisverður í boði Akureyrarbæjar í mötuneyti ÚA með starfsfólkijiess. Klukkan 14 hefst athöfn í Iþrótta- höllinni með ávarpi Sigurðar J. Sig- urðssonar, forseta bæjarstjórnar, flutt verða tónlistaratriði frá Tónlist- arskóla Akureyrar og atriði frá leik- skólabömum á Akureyri. Ráðgert er síðan að forsetinn haldi frá Akureyri í flugvél sinni kl. 15. ----------------- Kona á sjötugsaldri í gæsluvarðhaldi Rannsókn á viðkvæmu stigi RANNSÓKN efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra í máli tæplega sjötíu ára gamallar konu úr Reykja- vík er á mjög viðkvæmu stigi að sögn Jóns Snorrasonar hjá efnahags- brotadeildinni. Eins og greint var frá í Morgun- blaðinu á föstudag hefur héraðsdóm- ur Reykjavíkur úrskurðað konuna í gæsluvarðahld til 25. september nk. vegna gruns um tugmilljóna króna fjársvik gagnvart nokkrum einstakl- ingum. Rannsókn málsins beinist m.a. að því hversu umfangsmikið það sé, hverja konan hafi hugsanlega svikið, um hve háar fjárhæðir sé að ræða og hvað gert hafi verið við þær fjárhæðir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.