Morgunblaðið - 17.09.2000, Side 14

Morgunblaðið - 17.09.2000, Side 14
14 SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2000 KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ Breiðablik og KR eigast við í úrslitum bikarkeppni kvenna á Laugardalsvelli í dag Eitraður sóknarleikur gæti skilað markaleik Breiðablik - KR Líkleg byrjunarlið á Laugardalsvellinum, 17. sept. 2000 kl. 14 BIKARÚRSLITALEIKUR kvenna fer fram á Laugardalsvelli f dag en þar leiða saman hesta sína Breiðablik og KR og hefst leikur- inn kl. 14. Blikar fögnuðu fyrirtveimur vikum íslandsmeistaratiti inum en KR var í fyrra tvöfaldur meistari. Þarna eru án efa á ferð- inni tvö sterkustu lið íslands um þessar mundir í kvennaknattspyrnu. Mikil spenna er í lofti vígstöðva beggja liða en þau hafa undirbúið sig með nokkuð ólíkum hætti fyrir leikinn. Sigfríður Sophusdóttir Sigrún Gunnarsdóttir Jigrun Óttarsdóttir Bára Gunnarsdóttir Helga Ósk Hannesdóttir 4-4-2 Eva Sóley 5 Guðbjörnsdóttir. Anna Berglind Jónsdóttir Margrét Óiafsdóttir Rakel. ^ Ögmundsdóttir Olga Færseth Laufey Óiafsdóttir Erna Björk Sigurðardóttir Elín Jóna Þorsteisndóttir Hrefna. Jóhannesdóttir Embla Grétarsdóttir Ásthildur Helgadóttir Guðrún Jóna Kristjánsdóttir Sólveig Þórarinsdóttir Guðrún S. Gunnarsdóttir Snædís Hjartardóttir Ásdis Þorgilsdóttir Sigríður F. Pálsdóttir 4-4-2 I_______........ Liðin hafa kynnt leikinn þónokk- uð vel í sínum hverfum og vonast eftir að slá áhorfendamet með því að fá yfír 1.000 stuðnings- Eysteinsdóttir Tenn á leikinn. skrifar Asamt því að fá glæsilegan bikar að launum fær sigurliðið að auki 300.000 krónur frá Vífilfelli en liðið sem bíður ósigur fær 150.000 krón- ur fyrir að komast alla leið í úr- slitaleikinn. Breiðablik hefur sjö sinnum unnið titilinn síðan keppt var fyrst árið 1981 en Blikastúlkur hafa keppt tíu sinnum til úrslita. Undir- búningur fyrir leikinn hefur staðið yfir allt frá því að þær hömpuðu Islandsmeistaratitlinum. Breiða- blik mætir með fullskipað lið frá því í síðasta leik en þrjá fastamenn vantar í Iiðið frá því fyrr í sumar. Það eru markvörðurinn Þóra Helgadóttir, Eyrún Oddsdóttir og Hjördís Þorsteinsdóttir en allar eru þær farnar til Bandaríkjanna í háskólanám. „Frá því að deildin kláraðist tók- um við það rólega fyrstu vikuna og svo höfum við bara keyrt upp hraða og reynt að ná góðri keyrslu á æfingum. Ég tel að við séum í góðu líkamlegu ástandi og að það hafi skilað okkur miklu í sumar og nú er bara lykillinn að halda vel á spöðunum hvað það varðar,“ sagði Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari Breiðabliks, og bætti við að síðustu dagarnir fyrir leik væru notaðir í taktískar æfingar. „Við einbeitum okkur að okkar leik og hugsum ekki of mikið um KR. Styrkleiki okkar í sumar hef- ur mér fundist vera samheldni inn- an liðsins og það hefur verið góð stemmning og eins hafa stelpurnar líka verið í finu formi og líkamlega frískar,“ sagði Jörundur sem er á því að leikmannamissirinn hafi ekki of mikil áhrif á liðið. „Við höf- um mjög góða breidd. Við misstum þrjá leikmenn út og það koma nýir í staðinn og þeir passa vel inn í og þekkja sín hlutverk," sagði Jörundur. Markvörður Blika er þó kannski undantekning þar á. Þegar Þóra fór til Bandaríkjanna brugðu Blik- ar á það ráð að kalla til hinn gamalkunna markvörð Sigfríði Sophusdóttur. „Hún hefur verið mjög vaxandi á æfingum," sagði Jörundur sem bætti við að hann ætlaði að halda sig við sömu leik- aðferð og liðið lék í sumar. „Það eru engin leyndarmál í fótbolta. Ég sé ekki ástæðu til þess að breyta mikið fyrir þennan leik.“ í úrslitaleik sem þessum telja margir að þær reynslumestu í hverju liði séu mikilvægastar en Jörundur hefur sína skoðun á því. „Ailar ellefu eru lykilmenn í leikn- um. Lykillinn að sigri er að allir ellefu leikmennirnir séu með hug- ann við efnið og séu vel einbeittir að vinna að sama markmiði, að vinna fyrir liðið sitt og kannski hugsa minna um sjálfan sig og það er eitthvað sem hefur verið viðloð- andi okkur í sumar,“ sagði Jörund- ur sem þekkir flestar þær tilfinn- ingar sem fylgja því að leika slíkan úrslitaleik. „Þetta er stærsti leikur sumarsins og upplifun að taka þátt í svona leik. Frá því að ég tók við liðinu höfum við bæði unnið og tapað bikarúrslitaleik og það er ól- íkt skemmtilegra að vinna svona leiki og þær vita það og vilja ekki upplifa það að tapa,“ sagði Jörund- ur. Guðlaug skilur eftir skarð í KR-liðinu KR hefur einu sinni unnið bikar- meistaratitilinn en það var einmitt í fyrra þegar liðið sigraði Breiða- blik í baráttuleikleik sem endaði 3:1. KR-stúlkur hafa æft vel að undanförnu og fóru auk þess til Borgarness til að stilla nánar sam- an strengi sína. Magnús Pálsson er þjálfari KR-stúlkna en hann þekk- ir Blikastúlkur vel frá fyrri viður- eignum þeirra í sumar. A Blika- velli sigraði KR, 2:1, en á KR-velli hafði Breiðablik betur, 3:1. „Helsti styrkleiki Breiðablikslið- sins er að þær eru með sterka miðjumenn, Margréti Ólafsdóttur og Laufeyju Ólafsdóttur, og ef þær fá að ráða miðjunni þá eru þær mjög hættulegar. Eins og kom í ljós á KR-vellinum þá lentum við í smávandræðum á miðjunni því þá voru þær að fá skotfæri og enduðu á því að skora þannig að við þurf- um að stoppa þær þarna. Ég held að ef við náum að vinna miðjuna þá tökum við mikið úr þeirra leik og þá er allt opið í þessu,“ sagði Magnús sem ætlar einnig að halda sig við sömu leikaðferð og KR hef- ur gert fyrr í sumar. Mikill missir fyrir liðið er þó að Guðlaug Jóns- dóttir landsliðskona leikur ekki með vegna leikbanns. „Guðlaug hefur spilað mjög framarlega á Morgunblaðið/Brynjar Gauti Ásthildur Helgadóttir og Hrefna Jóhannesdóttir verða í eldlínunni í bikarúrslitaleiknum í dag. hægri kantinum. Nú er hún ekki með þannig að við þurfum út frá því eitthvað að breyta til og það er á teikniborðinu ennþá. Auðvitað skilur Guðlaug eftir sig stórt gat. Þetta er náttúrulega leikmaður Landssímadeildarinnar í fyrra. Hún er mjög öflug og hefur verið maðurinn á bak við sóknarleik okkar að vissu leyti, ásamt Asthildi Helgadóttur og Olgu Færseth," sagði Magnús en þríeykið hefur skorað saman 58 mörk í sumar. „Við þurfum að fara aðrar leiðir. Sóknarleikurinn okkar er sterkur, enda höfum við skorað 76 mörk í sumar, það er okkar styrkleiki. Við fáum okkar tækifæri og svo er bara spuming hvort við nýtum þau. Vörnin hefur ekki verið höf- uðverkur hjá okkur enda erum við með mjög öflugt lið en sóknin hef- ur verið okkar aðall,“ sagði Magn- ús sem hefur ekki áhyggjur af varnarleiknum þar sem landslið- skonan Guðrún Gunnarsdóttir er eldfljót í öftustu varnarlínu. „Lykilmenn sem verða náttúr- lega að standa sig eru Olga og Ast- hildur. Ég veit að hinar koma til með að standa sig en af því að Guðlaugu vantar þurfa þessar tvær að vera sérstaklega góðar. Olga getur nánast skorað upp úr engu og á góðum degi getur Ást- hildur haft leikinn í hendi sér,“ sagði Magnús sem var fullur til- hlökkunar fyrir leikinn. ■ LIVERPOOL hefur gengið frá kaupum á bakverðinum Gregory Vignal, ungum Frakka sem leikið hefur með U-18 ára landsliðinu. Hann kemur frá Montpellier og greiddi Liverpool 60 milljónir króna fyrir leikmanninn. ■ BELGÍSKI landsliðsmaðurinn Luc Nilis verður frá knattspyrnu- iðkun í allt að eitt ár en Nilis tvífót- brotnaði í leik með Aston Villa gegn Ipswich um síðustu helgi. Nil- is er á sjúkrahúsi í Ipswich og hef- ur þegar gengist undir þrjár að- gerðir. ■ ÍTALINN Claudio Ranieri hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Chelsea í stað landa síns Gianluca Vialli. Ranieri er fyrrverandi þjálf- ari Fiorentina á Ítalíu og spænsku liðanna Valencia og Atietico Madr- id. ■ MARK Bosnich, einn markvarða Manchester United afþakkaði boð Middlesbrough um að fá hann að láni í nokkurn tíma. Bosnich segist vilja berjast fyrir sæti sínu í liði meistaranna frekar en leika með einhverju öðru félagi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.