Morgunblaðið - 17.09.2000, Side 15

Morgunblaðið - 17.09.2000, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2000 15 'aT ^ot>o OQP Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson Eydís Konráðsdóttir var fyrsti íslendingurinn sem hóf keppni á Ólympíuleikunum í Sydney. Hjalti Guðmundsson í 100 m bringusundi f Sydney. Rúnari brást bogalistin gg geri mér ekki alveg grein fyrir Ivar Benediktsson skrifar frá Sydney af hverju svona fór, en líklegast þykir mér að ég hafi ætlað mér um of, verið of spenntur. Það hefur aldrei komið fyrir mig áður að falla í tvígang af hestinum," sagði Rúnar Alexandersson fimleikmaður, eftir keppni á Ólympíuleikunum í gærmorgun. Þar gekk Rúnari ekki eins og best var á kosið, brást al- gjörlega bogalistin í sinni sérgrein, æfingum á bogahesti. Hann féll í tvígang af hestinum á meðan á æf- ingunum stóð og varð í 79. sæti af 80 keppendum, fékk 7,975 í einkun. Alls fékk Rúnar samtals 52,149 í einkun fyrir æfingar á sex áhöldum og varð í 50. sæti af 97 keppendum, en rétt er að geta þess að aðeins 53 tókst að Ijúka öllum æfingunum. Þetta þýðir að Rúnar hefur lokið keppni á Ól- ympíuleikunum, draumurinn um að komast í úrslit á bogahesti eru að engu orðnir og einnig möguleikinn á að vera með í íjölþrautarkeppninni á miðvikudaginn. Þar fá aðeins 36 þeir stigahæstu úr keppninni í gær að spreyta sig. Þetta eru gríðarleg vonbrigði og margra mánaða og ára vinna fór fyr- ir lítið. Eg ætlaði mér að komast í fjölþrautarkeppnina og einnig í úr- slita á bogahestinum, en það brást. Þar með er keppni minni á Ólympíu- leikunum lokið, fyrr en ég hafði ætl- að mér,“ sagði Rúnar sem ekki hefur fengið lakari einkunn fyrir æfing- arnar sex en nú. „Æfingar hafa gengið vel upp á síðkastið og það benti ekkert til þess á síðustu dög- um að svona færi,“ bætti Rúnar við og var greinilega afar óánægður með frammistöðu sína. Eins og fyrr segir varð Rúnar í 79. sæti í æfingum á bogahesti. I æfing- um á slá fékk hann 9,575 í einkunn og varð í 39. sæti og í tvísláræfingum hlaut hann 9,462 og varð 36. Stökkið tókst ekki sem skyldi og einkunnin varð eftir því, 8,600 og 79. sæti. í æf- ingum í hringjum varð Rúnar í 74. sæti með 8,312, en það var næsta grein á eftir bogahestinum og greinilegt var að vonbrigðin skinu í gegnum æfingar í hringjunum eftir áfallið á bogahestinum. Loks varð Rúnar í 71. sæti í gólfæfingum með 8,225 í einkunn en þar mistókst hon- um einnig nokkuð. Vildi hann kenna um einstaklega hörðu gólfi. Það er því óhætt að segja að fyrsti keppnisdagur íslendinga á Ólymp- iuleikunum hafi verið dagur von- brigða. Þrír íþróttamenn spreyttu sig og tókst ekki betur til en svo að allir eru þeir úr leik og verða að njóta keppni Ólympíuleikanna næstu tvær vikurnar úr áhorfend- astúkunni. Miklar vonir voru bundn- ar við frammistöðu Rúnars á leikun- um og sagði Ami Arnason, formaður Fimleikasambands Islands, eftir að Rúnar hafði lokið keppni að framm- istaða pilts væri ekki einungis áfall fyrir Rúnar heldur einnig Fimleika- sambandið. TVEIR fyrstu íslensku sundmennirnir féllu úr keppni strax eftir undanrásir í fyrrinótt á Ólympíuleikunum í Sydney. Eydís Kon- ráðsdóttir varð í 39. sæti af 50 keppendum í 100 m f lugsundi á 1.03,27 mínútum og Hjalti Guðmundsson hreppti 52. sætið af 66 sundmönnum í 100 m bringusundi. Hjalti fékk tímann 1.05,55 sem er rúmlega sekúndu frá íslandsmetinu sem hann á sjálfur. Eydís var hins vegar um þriðjungi frá íslandsmeti sínu. Þar með hafa Eydís og Hjalti lokið þátttöku sinni á leikunum en hvorugt þeirra er skráð til leiks í fleiri greinar. gydís varð fyrst íslenskra íþrótta- Ivar Benediktsson skrifar frá Sydney manna til þess að taka þátt í leikunum er hún stakkk sér til sunds í 100 m flugsundi. Var hún í þriðja riðli af sjö og ljóst að hún myndi eiga við ramman reip að draga. Eftir 50 metra var tíminn 29,52 sekúndur og hún kom í mark á 1.03,27 en íslandsmet hennar í greininni er 1.02,93 sett í Mónakó í maí sl. Af átta keppendum í riðlinum var Eydís í sjöunda sæti. Þrátt fyrir að vera aftarlega á merinni og nokk- uð frá íslandsmetinu var Eydís ánægð með árangurinn að keppni lokinni. Mandy Loots, S-Afríku, varð sextánda til þess að komast í úrslit, hún synti á 59,94. Foreldrar Eydísar í Sydney KONRÁÐ Guðmundsson og R:ign- heiður Ásta Magnúsdóttir, for- eldrar Eydísar Konráðsdóttur sundkonu, voru á meðal þeirra sem fylgdust með íslensku sund- mönnunum í kcppni á fyrsta degi Ólympíuleikanna. Að sögn Eydís- ar hafa þau hjón dvalið í Ástralíu undanfarnar þrjár vikur og ætla að vera fram yfir leika og fylgjast með nokkrum greinum. „Það var ofsalegur styrkur af því að vita af þeim á áhorfendapöllunum,“ sagði Eydís en auk Konráðs og Ragn- heiðar er Hanna Björg systir Eydísar með í för. „Þau hafa ferð- ast hringinn f kríngum Ástralfu og líkað vel það sem fyrir augu hefur borið,“ sagði Eydfs um ferðalag foreldra sinna. „Ég er virkilega sátt við sundið mitt og árangurinn þar af leiðandi," sagði Eydís. „Einkum vegna þess að það er örugglega eitt af best útfærðu sundum mínum á ferlinum, ég hélt það út og náði að vera virkilega sterk á síðari hlutanum sem hefur verið mín veikari hlið. Þetta var mitt sund frá upphafi til enda, ég var við stjórnina þannig að þetta var gott. Ég naut þess virkilega að taka eitt í einu,“ sagði Eydís sem keppir ekki meira á leikunum. „Þetta var mín grein,“ segir hún og brosir við. Eydís sagði framhaldið hjá sér í sundinu vera óráðið. Nú ætli hún að koma heim og hefja nám í Háskóla Islands. „Það er aldrei að vita hvað gerist í framhaldinu, hvað sundið varðai-. Að minnsta kosti þarf ég smá tíma til að þorna áður en ég tek ákvörðun um hvort ég haldi áfram af krafti eða fer að draga saman seglin.“ Óhætt er að segja að Hjalti hafi aldrei náð sér á strik í 100 m bringu- sundi. Allan kraft vantaði í sundið frá upphafi og greinilegt var að spenna var í pilti. Hjalti synti í 4. riðli af níu. Hann varð í fjórða sæti eftir 50 metra á 30,28 og kom í mark sjötti af átta sundmönnum í riðlinum á 1.05,55 eða 98/100 frá eigin íslands- meti sem hann setti á Evrópumeist- aramótinu í Istanbúl í fyrrasumar. Sextán þeir bestu komust í úrslit og var Remo Luetolf frá Sviss sá sex- tándi á 1.02,54. Greinilegt var eftir sundið að Hjalti var óánægður með frammi- stöðu sína en því miður tókst Morg- unblaðinu ekki að ná tali af Hjalta þrátt fyrir ítrekaða bið og leit að honum og landsliðþjálfaranum Brian Marshall. Þar með hafa tveir af níu sund- mönnum íslands lokið keppni og hvorugum þeirra tókst að setja Isl- andsmet. Éngin íslandsmet voru sett í sundi á síðustu leikum fyrir fjórum árum í Atlanta. Altt annað að keppa núna „MÉR fannst mikill munur á því að keppa núna á Ólympleikunum eða fyrir fyrir fjórum árum. Nú vissi ég að hverju gekk og við hverju mætti búast auk þess sem ég þekki aðstæður i Sydney eftir að hafa búið hér um nokkurt skeið og verið við æfingar," sagði Eydís Kon- ráðsdóttir sundkona aðspurð um muninn að keppa nú á Ólympíuleik- um eða fyrir fjórum árum þegar hún tók þátt fyrsta sinni. „Þar af leiðandi var engin spenna í mér sem oft vill vera í keppend- um sem spreyta sig í fyrsta sinn á Ólympíuleikum." Eydís sagði und- irbúning íslenska liðsins vera allan annan og betri en fyrir fjórum ár- um, einkum er varðaði hlut Iþrótta- og ólympíusambands Islands. „Það er alveg gjörólíkt hvað mikið betur var staðið að málum nú, umgjörðin er frábær svo undirbúningurinn heima. Hvernig staðið var ferðatilhögun og æfingabúðum hér ytra var einstakt auk þess sem skilmerkilega var farið yfir öll atriði ferðarinnar og þátttökunn- ar á ítarlegum fundum með keppendum áður en lagt var af stað. Sé tekið mið af reynslu minni frá síðustu leikum þá er mun fag- mannlegar staðið að öllum hlutum hjá ÍSÍ heldur en nokkru sinni áð- ur. Vissulega hefur meiri fjármunum verið varið til þátttöku okkar á leikunum en áður en ég tel engan vafa leika á að það skili sér,“ sagði Eydís Konráðsdóttir. Aftarlega

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.