Morgunblaðið - 17.09.2000, Page 19

Morgunblaðið - 17.09.2000, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2000 1 9 LISTIR Hafnarfjarðarleikhúsið Morgunblaðið/Ásdís Hafnarljarðarleikhúsið 5 ára. Hilmar Jónsson, Gunnar Helgason, Erl- ing Jóhannesson, Ámi Ibsen. Finnur Amar Arnarson (og sonur), Björk Jakobsdóttir, Ólafur Haukur Símonarson, Unnur Ólafsdóttir. Rússneskar heimildar- myndir KVIKMYNDASÝNIN GAR MÍR hefjast að nýju eftir sumarhlé í bíó- salnum á Vatnsstíg 10, í dag, sunnu- dag. Sýndar verða tvær rússneskar heimildarmyndir gerðar með rúm- lega 70 ára millibili; kl. 15: „Fall Rom- anov-ættarinnar“ (1927) og kl. 16.30: „Þrælasala", ný mynd. Kvikmyndin „Fall hinnar keisara- legu Romanovættar" var þögul og gerð undir stjóm Esfír Shubs, en út- gáfan sem nú er sýnd er frá árinu 1967, tónsett, og stóð Sergei Jútkevits að útgáfunni. „Þrælasala“ er ný heimildarmynd um mannrán, gíslatökur og illvirki tsjetsjneskra glæpahópa. Kvikmynd- in er gerð í samvinnu við rússnesk stjómvöld. Enskur texti er með báð- um myndunum. Aðgangur er ókeypis. Fyrirlestur í Listahá- skolanum HANS Christian Dany heldur fyrir- lestur í Listaháskólanum í Laugar- nesi í stofu 002, á morgun, mánudag, kl. 15. H.C. Dany er myndlistarmaður, rithöfundur, útgefandi tímaritsins „Starship" og bókarinnar „Against, Within - Strategy of Self-Organiza- tion Since 1969“. Fyrirlesturinn nefnist „Division of Labour“ (Verka- skipting). Myndlistarheimurinn er enn skipulagður í kerfi sem skiptir starfinu í: hráefni, framleiðslu, dreifingu og neyslu. Rætt verður um hvers vegna þetta samrýmist ekki nútímaskilningi á vinnunni og settar verða fram hugmyndir um hvernig þessu gæti verið öðmvísi farið. Tvö ný leikrit frumsýnd í vetur HAFNARFJARÐARLEIKHÚSIÐ fagnaði fimm ára afmæli sínu á fimmtudagskvöldið og af því tilefni tilkynnti Hilmar Jónsson leikhús- stjóri um verkefnaval leikársins. Nú standa yfir æfingar á Vitleys- ingunum, nýju leikriti Ólafs Hauks Símonarsonar og er fmmsýning fyrirhuguð um miðjan október. „Þetta er gamansamt leikrit um fólk á fertugsaldri; pör sem em á kafi í lífsbaráttunni og íslenska lífsgæða- kapphlaupinu, “ segir Hilmar sem jafnframt er leikstjórinn. Leikend- ur eru Björk Jakobsdóttir, Dofri Hermannsson, Gunnar Helgason, Erling Jóhannesson, Jóhanna Jón- as, Halla Margrét Guðmundsdóttir, María Ellingssen. Leikmynd gerir Finnur Arnar Amarson. Á jólaföstunni er ætlunin að bjóða hafnfirskum börnum upp á Jólaand- akt sem verður jólasýning í öðmm dúr en þau eiga kannski að venjast. „Við ætlum að bjóða þeim hingað til okkar í leikhúsið að eiga fallega stund með okkur. Hlusta á tónlist, syngja jólalög, heyra jólasögu og fleira gott,“ segir Hilmar. Eftir áramótin verður fmmsýnt nýtt leikrit eftir Hávar Sigurjóns- son. Það nefnist Englabörn. Að sögn Hilmars er þetta fyrsta fmm- samda leikrit Hávars fyrir leiksvið en hann hefur áður samið leikgerðir og skrifað framhaldsleikrit fyrir Út- varpsleikhúsið. í hófi sem leikhúsið efndi til á af- mælisdaginn lét Þorsteinn Njáls- son, forseti bæjarstjórnar Hafnar- fjarðar, svo um mælt að Hafnfirðingar væru stoltir af Hafn- arfjarðarleikhúsinu og því starfi sem þar væri unnið. „Við eigum okkur draum um að hér á norður- bakka hafnarinnar rísi í framtíðinni menningarmiðstöð. Ég bið ykkur að taka þátt í að gera þann draum að vemleika.“ Á afmælisdaginn vom nákvæm- lega 5 ár liðin þann 14. september frá framsýningu Himnaríkis, fýrsta verkefnis Hafnarfjarðarleikhúss- ins, eftir Áma Ibsen. Árni þakkaði Hafnarfjarðarleikhúsinu fyrir þá einurð sem það hefði sýnt í að hvika ekki frá upphaflegri stefnu sinni að sýna eingöngu ný íslensk leikverk. „Stóm leikhúsin, Þjóðleikhúsið og Borgarleikhúsið, em að bregðast þessari skyldu sinni í vetur með því að fmmsýna aðeins fjögur ný ís- lensk leikrit samtals. Þar af eru tvær leikgerðir. Hafnarfjarðarleik- húsið stendur eitt undir merkjum að þessu leyti, “ sagði Árni Ibsen. Síðustu sýn- ingar á Sjálf- stæðu fólki í TILEFNI af gestaleik Þjóð- leikhússins á EXPO 2000 í Hannover verða örfáar sýn- ingar á Sjálfstæðu fólki á Stóra sviðinu. Þetta em allra síðustu sýningar og þær verða allar á löngum leikhúsdögum, þegar báðir hlutar verksins verða sýndir á sama degi. Sýn- ingardagar era fyrirhugaðir 17. september, 23. september, 30. september og 7. október. 2000 17. september NORRÆNA HÚSIÐ KL. 17 CAPUT Síöari tónleikar örhátíðar CAPUT þar sem fram koma skoski píanóleikarinn James Clapperton og kanadíski fiðlu- leikarinn Sharleen Harshenin. Tón- leikarnireru ísamvinnu við Bergen - menningarborg Evrópu árið 2000. Á efnisskrá eru verk eftir Ruben Sverre Gjertsen, Salvatore Sciarrino, James Ciapperton, Atla Ingólfsson og lannis Xenakis. USTASAFN REYKJAVÍKUR - HAFNARHÚS KL.14 cafe9.net Gestgjafartaka á móti fólki frá kl. 14. Meðal viðburða eru WWCA CONTin- ENT, gagnvirk sýning listaverka eftir 20 listamenn frá Frakklandi, Finnlandi ogBeigíu. Umræður verða haidnar og er mögulegt að koma með fyrirspumir frá öðrum borgum inn í þær. LiSTASAFN REYKJAVÍKUR - HAFNARHÚS KL.16 cafe9.net Þóroddur Bjamason þýður í kaffi og með því um leið og hann kynnir verk- efni sitt „ Þing fljótandi umræðu" - www. discussion. is. www.cafe9.net www.reykjavik2000.is - wap.olis.is 18. september LISTASAFN REYKJAVÍKUR - HAFNAR- HÚS KL. 15 cafe9.net Gestgjafar taka á móti fólki frá kl. 15. www.cafe9.net www.reykjavik2000.is - wap.olis.is rfuhúsnæði/hótel á frábærum stað? sýnis í ðag, sunnudag, frá kl. 14-17! Vantar þig skril bessieigner FASTEIGNASALA Skúlagata 51 - Til leigu eða sölu strax! Þetta landsþekkta hús er til leigu í mismunandi stórum einingum, allt frá 210 fm eða til sölu í heilu lagi, 2.636 fm. 35 bílastæði. Stór hluti af húsinu er til afhendingar nú þegar (allt til afhendingar 1. des. nk.) Eignin hefur sterkt auglýsingagildi og liggur við allar helstu umferðaræðar borgarinnar. Húsið er byggt á súlum og því auðvelt að breyta skipulagi innandyra og aðlaga það nákvæmlega að þínum þörfum. Viltu vita meira? Já, við erum ekki hissa - og bjóðum þér að sjálfsögðu að heilsa upp á fríska sölumenn Hóls, sem ætla svo sann- arlega að taka vel á móti þér í opnu húsi í dag milli kl. 14-17. Ekki missa af þessu einstaka tækifæri!! Hóll fasteignsala, Skúlagata 17, sími 595 9000, opið allar helgar frá kl. 2-4. Eigandi: Kirkjuhvoll ehf. Eignarhaldsfélagið Kirkjuhvoll ehf. er traust fasteignafélag sem sérhæfir I útleigu atvinnuhúsnæðis. „Þjónustulipurð við viðskiptavini okkar'' eru einkunarorð félagins. / - Hóll er til fyrir þig - Sími 595 9000 Söluaðili: Hóll fasteignsala. Hóll er kraftmikil fasteignsala sem vinnur af fagmennsku og trúnaði fyrir viðskiptavini sína

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.