Morgunblaðið - 17.09.2000, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 17.09.2000, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2000 27 Morgunblaðið/Guðrún Guðlaugsdóttir Vél sem spil voru litprentuð í áður fyrr. Morgunblaðið/Guðrún Guðlaugsdóttir Gömul vél sem notuð var við spilagerð fyrr á tímum. Síðan voru stenslarnir settir ofan á blaðið og liturinn pressaður í spilin í gegnum þessar raufar. Þessar teikn- ingar voru yfirleitt gerðar af hverj- um framleiðanda fyrir sig. Með því að nota stensiltækni í framleiðslu spila þurfti oft upp í fimm liti í mann- spilin en í tölusettu spOin þurfti bara einn lit, rauðan eða svartan. I hillu í sýningarsalnum var einmitt krukka með rauðum ítölskum leir, sem not- aður var til þess að lita rauðu spilin. Steinprentið lagði undir sig heim- inn á 19. öld. Grunnur tækninnar var vel þekkt efnafræðilegt lögmál - fita og vatn ganga ekki saman. Með því að nota steinprent var litprentun líka möguleg. Fyrir hvem lit þurfti prentarinn sérstakan stein og sér- staka prentumferð. Með steinprent- un var hægt að prenta hraðar og ódýrar miðað við fyrri tækni. Hágæðapappi sem er mikdvægur tU að búa til spU var ekki tU fyrr en um aldamótin 1900. Framleiðendur bjuggu sjálfir til pappann. Þeir límdu saman arkir af blöðum tU að reyna að fá rétta þykkt og styrk. Annað hvort límdu þeir framhlið eða bakhlið, mjög þunnt lag, bæði að aftan og fram og síðan var ódýrari pappír á mUli. Límið var unnið úr kartöflum eða innmat, gelatín, en það er lyktar- laust og bragðlaust prótein sem myndast við suðu á sinum og kjöt- beinum. Eg velti því fyrir mér hvort íslendingar hefðu sjálfir fengist við slíka spilagerð á fyrri tímum? Nógan höfðu þeir a.m.k. innmatinn. Spilaöskjur voru eftirsóttar og fátíðar TU að fá glans á spilin voru hin prentuðu spjöld nudduð með sápu, hituð og fægð í höndunum með steini. Síðan þurfti að skera arkirnar, fyrst var það gert með stórum skær- um, en um 1850 tóku vélar að vinna þetta verk og fór þá skurðurinn fram í tveimur áföngum. í fyrst var spUunum einfaldlega pakkað inn í umbúðapappír en á 20. öldinni komu fram litlar pappaöskjur utan um spilin, eða öskjur úr leðri eða plasti. Þær voru í fyrstu fátíðar og eftirsóttar. Þess má geta að um miðja 18. öld framleiddi þjálfaður verkamaður um 60 pakka af .32 spUum á venjulegum vinnudegi, sem reyndar var 13 klukkutímar og var þá miðað við að hann legði hart að sér og hefði greið- an aðgang að pappír og öðrum nauð- synjum. Arið 1910, eftir iðnbylting- una, voru framleiddir í verksmiðjunni Tumhout í Belgíu 13- 18 þúsund spilastokkar á dag. Nú er framleiðslutalan komin upp í yfir 600 þúsund stokka á dag. Eitthvað ættu menn því að geta spilað. Lyktin gaus alltaf upp þegar fólkið fór að spila íslendingar hafa löngum verið sólgnir í aUs konar spil, eftir að þeir á annað borð kynntust spUum. Það getur hver maður sagt sér sjálfur hver afþreying spUin hafa verið á löngum og köldum vetrarkvöldum í einangrun hins íslenska strjálbýUs. Ekki er vitað hvaða spil menn spil- uðu við dreng einn í Borgarfirði sem á 19. öld var að dragast upp úr lang- vinnum sárum og meinum sem ógur- leg lykt var af. Meðan hann lá bana- leguna urðu margir til að sitja hjá honum og spila við hann, honum til afþreyingar, því hann hafði ákaflega gaman af að spUa. En eftir að hann var dáinn fannst alltaf sama lyktin gjósa upp og lagði af sárum hans, þegar fólk fór að spUa á bænum og var því á endanum algerlega hætt. Svo gaman geta menn sem sagt haft af því að spila að þeir Uggja ekki kyrrir í gröf sinni. Flestir eiga margvíslegar minningar tengdar spilum Þegar ég skoðaði öll gömlu spilin sem voru á sýningunni á Jodenstraat 22 gat ég ekki annað en hugsað um allar þær hendur sem handleikið höfðu þessi gömlu spil. Margvísleg örlagarík atvik hafa tengst spUum í aldanna rás. I fyrsta lagi eru margir tapsárir og oft hafa hlotist af spila- mennsku áflog og ilUndi, og jafnvel langvinnar deUur. Þá hafa menn gjaman spilað upp á ólíklegustu hluti, svo sem fjármuni og jafnvel fólk. Til eru sögur um menn sem spil- uðu frá sér konur sínar og fengu þær aldrei til baka. Fjölmargar sögur eru og tU um menn sem tóku líf sitt eftir að hafa tapað öllum eigum sínum og vel það í spilum. Já, spUin í hillunum í safninu á Jodenstraat 22 gætu sagt frá svo mörgu að það var nánast hroUur í mér þegar ég fór aftur út í sólskinið. En þegar ég gekk um hin- ar gömlu götur þessa elsta þorps Hollands og sá brosleit andlit bam- anna sem þar vom á ferli minntist ég allrar þeirrar gleði sem hafa má af spUum. Og víst er að fáir em þeir sem komnir em til vits og ára á Isl- andi sem ekki eiga margvíslegar minningar sem tengjast spilum. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Úr safnl Ragnars Fjalars. Efst f.v. spil Louisu Matthíasdóttur og Geysis- spilin. Spilastokkamir tveir eru fornmannaspil Tryggva Magnússonar. Lengst til hægri hand- og heimagerðu íslensku spilin frá 1817. Við hlið þeirra tveir stokkar, sá minni eru málsháttaspil gömul, svo fyrstu Eimskipafélagsspilin, þar næst spil Ástu Sigurðardóttur. Neðst t.v. stjómmálaspilin og svo ÍR-spilin í stokkum. hann forvígismenn í íslensku stjórn- mála- og þjóðlífi þess tíma á mann- spilin og hefur hver flokkur sinn lit. Sjálfstæðisflokkurinn er í spaðasort- inni, Kommúnistaflokkur Islands er í hjarta, Framsókn í laufi og Alþýðu- flokkurinn tígli. Þessi spU komu aldrei út.“ Goðafræðispil Sigurlinna, spil Ríkarðs Jónssonar og spil Pilkingtons „Árið 1958 komu út goðafræðispil, teiknuð af Sigurlinna Péturssyni, þau em að verða mjög fágæt,“ held- ur Ragnar áfram og breiðir úr um- ræddum spilum. „Og nýlega komu út tvær gerðir af spUum, önnur eftir teikningum Ríkarðs Jónssonar myndhöggvara sem teiknaði þau ár- ið 1915. Þau em með íslenskum týp- um á mannspilunum en kóngurinn er þó með kórónu. Már Guðlaugsson gaf þau út 1997, þau fást í Löngubúð á Djúpavogi. Sama ár komu einnig út spil sem Brian Pilkington teiknaði fyrir SÍBS, á þeim era goðin gömlu, Oðinn, Baldur, Freyja, Freyr o.s.frv. Allir þeir sem spiluðu í happdrætti SÍBS en höfðu ekki fengið vinning það ár fengu þessi spU í jólagjöf." Spil með myndum fyrirtækja á bakinu „Loks hafa ýmis fyrirtæki gefið út spil með merkjum sínum á baki spil- anna. Líklcga hafa komið út allt að þrjú hundmð slík spU.“ Ég spyr Ragnar hvort ekki hafi verið erfitt að ná þessu öllu saman. „Víst hefur það stundum verið. Erfitt er t.d. að ná saman öUum spU- um sem gefin hafa verið út með merkjum fyrirtækja á bakinu. Það er ekki til nein skrá um slíka út- gáfu.“ Loks kemur svo röðin að út- lendu spilunum. Fágæt útlend spil „Ég seldi stórt safn spUa árið 1980 eins og fyrr segir. Ég fékk nokkuð gott verð fyrir safnið, 100 þúsund mörk, sem jafngildir líklega nær fimm mUljón krónum nú. En við söl- una hélt ég þó eftir nokkmm fágæt- um erlendum spUum.“ Árið 1590 komu út frönsk spU sem era stensl- uð, eins og Ragnar kaUar það, hann sýnir mér skrautleg spU mjög á stíf- um pappa. „Svo em hér spU frá tím- um stjómarbyltingarinnar í Frakk- landi, kóngur, drottning og gosi era með myndum af merkum heimspek- ingum, t.d. Rousseau. Þetta vom spU borgaranna og þar sem búið var að hálshöggva konung ríkisins og drottningu mátti ekkert minna á tíl- vist slíkra, ekki einu sinni spiUn. Kóngamir fengu því hatta og drottn- ingar blóm í hárið eða jafnvel hatt líka. Menn gátu samt ekki stillt sig um að spila og þess vegna var þessi leið farin. Þegar hins vegar Napó- leon kom til valda kvað strax við annan tón, kóngar og drottningar fengu kórónumar sínar aftur og jafnvel var teiknuð mynd af sjálfum Napóleon á einn spilakónginn árið 1811. Öll þessi spU em stensluð, nema ein frá árinu 1850 sem era handmáluð." Innbundin spil í örkum Næst kemur Ragnar með bók með „Pictorial Cards“, þau em handmáluð og era enn í örkum. „Ein örk kom út í mánuði, svo var hægt að skera arkimar niður og þá vom komin spU. Það er samt mjög gaman að eiga arkimar innbundnar í bók,“ segir safnarinn Ragnar og horfir ástúðlega á bókina. Hóf spilasöfnun 1957 Skyldi söfnunin halda áfram enn? „Já, ég safna enn. Nú hef ég verið að bæta við dönskum spilum, sumum man ég eftir frá því ég var drengur. Ég byrjaði að safna 1957. Vinur minn Guðbrandur Magnússon vai- meðhjálpari í kfrkjunni hjá mér á Siglufirði. Hann sýndi mér eitt sinn gömul spil og ég mundi eftir að pabbi hafði átt slík spil innan um gömul spU sem hann hafði aldrei fleygt. Ég bað pabba að gefa mér spilin og það var velkomið. Þannig fengum við Guðbrandur gott búsílag." Spitaði áður - en ekki lengur En skyldi Ragnar spila mikið sjálfur? „Nei, nú spila ég aldrei. Á Siglufirði spUaði ég brids og hafði mikið gaman af, en svo fluttd ég frá spUafélögunum og þá hætti ég að spila," svarar hann að bragði. Hætt er við að mörgum spilamanninum þætti það mikUl sjálfsagi miðað við það spilaumhverfi sem hann lifir og hrærist í. En það em margar hliðar á hverju máli og spU geta haft marg- þætt hlutverk í lífi fólks. Sumir spUa á þau, aðrir spá í þau, enn aðrir framleiða þau og loks era þeir sem safna þeim og rannsaka þau eins og séra Ragnar Fjalar Lárasson. Hann á heiður skilinn fyrir það, annars er ekki víst að þessi þáttur í íslenskri menningu væri jafnvel varðveittur ograunbervitni. +
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.