Morgunblaðið - 17.09.2000, Page 28

Morgunblaðið - 17.09.2000, Page 28
28 SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ Bjami Kristófer Kristjánsson. Þijár útgáfur íslenskra homsfla. Afbrigði homsfla úr Galtabóli. Annað rennilegra með háa gadda. Hitt kubbslegra með sveigða gadda. / Otrúlegur breytileiki íslenskra homsíla í hugum flestra íslendinga eru hornsíli lík- lega ekkert annað en nytsamir sakleysingj- ar sem börn dunda sér við að setja í krukk- ur. Rannsóknir vísindamanna sýna hins vegar að hornsílið íslenska er ekki allt þar sem það er séð. Guðmundur Guðjónsson ræddi við Bjarna Jónsson, fískifræðing á Norðurlandsdeild Veiðimálastofnunar á Hólum í Hjaltadal, og varð margs vísari. ANNSÓKNIRNAR sem Bjarni hefur staðið fyrir ásamt Bjarna Kristófer Kristjánssyni, sem unnið hefur að mastersverkefni um aðlögum hornsfla við Guelph-há- skólann í Ontario, hófust í byrjun árs 1998. Er um að ræða sam- starfsverkefni Norðurlandsdeildar Veiðimálastofnunar, sem Bjarni veitir forstöðu, Líffræðistofnunar Háskóla íslands og erlendra há- skóla sem koma að rannsóknunum með nemendaverkefnum. Um er að ræða grunnrannsóknir á vistfræði íslenskra hornsfla, fisktegundar sem hefur verið gríðarlega mikið rannsökuð víða erlendis en ekkert hér á landi þar til nú. Það sem að Bjarni segir einna mest heillandi við íslensku hornsíl- in er hinn gífurlega mikli breyti- leiki innan tegundarinnar. Það megi tala um sjávarsfli, straum- vatnssfli, síli sem ganga til sjávar og aftur í ferskvatn eða hálfsalt til hrygningar, sfli með mismikilli brynvörn eftir umhverfi, síli sem ala allan sinn aldur í stöðuvötnum og fleira og fleira. Ailt sé þetta sama tegundin þótt útlitsmunur geti verið umtalsverður. Sjávarsílið sé hins vegar „forfaðirinn“ eins og Bjarni kemst að orði, en þau hafa fundist úti á rúmsjó, milli íslands og Noregs. Skrautlegt lífshlaup Talið er að hornsfli nái vart meira en þriggja ára aldri, en þótt lífshlaupið sé stutt miðað við mannsaldur er óhætt að segja að það gangi á ýmsu. Þótt sflin séu af- ar breytileg í útliti og velji sér mjög svo breytileg búsvæði er ákveðin grundvallarhegðun þeim þó sameiginleg. Hrygningin er mikilvægasti tíminn í lífi hornsfla. Lengst af halda kynin saman og ganga í torfum um ætisslóðina hvort heldur hún er í söltu, hálf- söltu eða ósöltu vatni. Á bilini júní til júlí fer hins vegar að bera á kunnuglegum fiðringi. Hængarnir draga sig þá frá torfunni og breyt- ast talsvert í útliti. Má þar einkum nefna rauða litinn sem verður mjög áberandi hjá kynþroska hængum og gæti verið til þess ætlaður að falla í kramið hjá hrygnunum. Minna fer fyrir breytingum á hrygnunum en þær dökkna þó lítið eitt. Hængarnir velja sér svæði sem þeir taka til við að verja af talsverðri hörku og hóta þá beit- ingu horna sinna. Jafnvel mun stærri fiskar á borð við laxa- og sil- ungaseiði gætu þurft að forða sér undan vígmóðum hornsílahængum. Þegar friður ríkir byggja hæng- arnir hreiðurkúlur og nota til þess jurtaleifar sem límdar eru saman með slími sem fiskarnir framleiða í nýrunum. Þetta eru haganlega gerðar kúlur með gati í gegn í miðju og þeir vita hvað þeir eru að gera, karlarnir. Þegar hreiðurkúlan er tilbúin hefst óborganleg atburðarás sem segja má að flestar dýrategundir geti heimfært upp á sig sjálf, hvert á sinn hátt. Ekki við eina fjölina felldur Hængurinn gerist nú mjög ••" Morgunblaðið/Ami Sæberg Bjarni Jónsson fískifræðingur. spenntur, því líklegustu hrygnum- ar draga sig einnig út úr torfunni. Tekur þá hængurinn allur að iða eða hlykkjast og ef hann verður þess var að hrygna hafi gefið hon- um auga og auðsýnt það með því að spenna upp hausinn stormar hængurinn að hreiðurkúlunni og dyttar að henni svo að hrygnan sjái hvflíkur hvalreki hann hljóti að vera. Sinni hrygnan ekki hængnum á þessu stigi stígur hann aftur hlykkjudansinn og lýkur honum með því að snerta hrygnuna og þjóta aftur að hreiðurkúlunni. Yfir- leitt lætur hrygnan hér sannfærast um að hér sé sá eini rétti á ferðinni og hraðar sér að kúlunni. Hængur- inn viðhefur því næst sýnikennslu um það hvernig hrygnan eigi að synda inn í kúluna og athafna sig þar. Hrygnan leikur það eftir og kemur sér fyrir í kúlunni þannig að hausinn stendur út öðrum megin, en sporðurinn hinum megin. Síðan hrygnir hrygnan. Þegar hér er komið sögu kemur aftur á móti í ljós að sambandinu er ekki ætlað að endast, enda tím- inn dýrmætur. Skilnaður er í kort- unum, hængurinn rekur hrygnuna með látum út úr kúlunni, hagræðir hrognunum og tekur til við að sverma fyrir næstu hrygnu. Þannig geta þeir endurtekið leikinn með allt að sjö til átta hrygnum í sömu kúlunni. En þetta er ekki búið. Hængur- inn hefur í nógu að snúast. Þegar nógu margar hrygnur hafa hrygnt í kúluna tekur hængurinn til við að mynda vatnsstreymi í gegnum kúl- una með því að tifa uggunum. Þetta gerir hann til að nægt súr- efni leiki um fjölskylduna. Hann heldur uppteknum hætti uns hrognin klekjast, en það getur tek- ið allt frá 6-8 dögum upp í 40-50 daga, allt eftir hitastigi vatnsins. Hraðast gengur það fyrir sig í hlýrra vatni. Þegar klakið byrjar tætir hængurinn kúluna í sundur, en leyfir samt seiðunum, sem klekjast með kviðpoka, ekki að synda burt. Hann æðir um, tekur óstýrilát börnin sín í munninn og spýtir þeim aftur að leifunum af kúlunni. Þar kemur þó að seiðin eru svo mörg og áköf að karlinn ræður ekki við neitt lengur og gefst hann þá upp og, ef tími er til, hefur störf við nýja hreiðurkúlu. Við góð skilyrði getur hængurinn lokið þessari hringrás nokkrum sinnum. Að hrygningartíma lokn- um deyja fjölmörg hrygningarsfli, en þau sem skrimta halda aftur á ætisslóðina ásamt seiðunum og blandast torfunni á nýjan leik. Breytileikinn mikli I sama vatninu geta verið tvö af- brigði sem eru útlitslega mjög ólík og fer það eftir því svæði sem við- komandi afbrigði hafa helgað sér.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.