Morgunblaðið - 17.09.2000, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 17.09.2000, Qupperneq 34
34 SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, GUÐJÓN JÓNATANSSON, Melabraut 29, Seltjarnarnesi, verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju mið- vikudaginn 20. september kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim, sem vilja minnast Guðjóns, er bent á Björgunarsveitina Ársæl. Bára Vestmann, Jónatan Guðjónsson, Ottó Vestmann Guðjónsson, Elín Kolbeins, Valborg G. Guðjónsdóttir, Wim Verheul, Guðjón Sig. Guðjónsson, Hrefna Þórðardóttir, Ásta Kristjónsdóttir, Rósbjörg Jónatansdóttir, Elín Jónatansdóttir, Jóhann Jónatansson, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, JÓN J. JAKOBSSON húsa- og bifreiðasmíðameistari, Berjarima 23, Reykjavík, lést fimmtudaginn 7. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þórarinn J. Jónsson, Jóhanna Gunnarsdóttir, Jakob J. Jónsson, Jón Bragi Jakobsson, Helga Þ. Jakobsdóttir, Jónas Þ. Jakobsson. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN SIGURGEIRSSON frá Helluvaði, sem lést mánudaginn 11. september, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 19. september kl. 13.30. Ragnhildur Jónsdóttir, Jón Gauti Jónsson, Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Geirfinnur Jónsson, Hlíf Sigurjónsdóttir, Sólveig Anna Jónsdóttir, Edward Frederiksen, Herdís Jónsdóttir, Steef van Oosterhout og barnabörn. + Eiginkona mín, móðir okkar og systir, HALLDÓRA JÓHANNESDÓTTIR, Stúfholti, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 20.september ki. 10.30. Jarðsett verður í Hagakirkjugarði í Holtum sama dag. Kjartan Ólafsson og fjölskylda, Sturlaugur Jóhannesson. + Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför okkar ást- kæru, MARGRÉTAR KRISTRÚNAR SIGURÐARDÓTTUR, Austurströnd 4, Seltjarnarnesi, sem lést mánudaginn 28. ágúst sl. Kærar þakkir til starfsfólks Landspítalans við Hringbraut og í Fossvogi, sem annaðist Margréti á sjúkrabeði. Sérstakar þakkir til Sigurðar Björns- sonar, krabbameinslæknis. Dóra Sigurðardóttir, Guðmundur Einarsson, Svala Sigurðardóttir, Þorbjörn Karlsson, Guðbjörg Hannesdóttir, Emilía Ágústsdóttir, Yuzuru Ogino, Guðbjörg Yuriko Ogino, Bogi Ágústsson, Jónína María Kristjánsdóttir, Ágúst Bogason, Þórunn Elísabet Bogadóttir, Jónína Guðný Bogadóttir. SÓLRÚN MAGNÚSDÓTTIR + Sólrún Magnús- dóttir fæddist á Saurbæ í Skeggja- staðahreppi, N-Múlasýslu 11. apr- íl 1945. Hún andað- ist á heimili sínu í Eyrarholti 3 í Hafn- arfirði 10. septem- ber siðastliðinn. Sól- rún var dóttir hjónanna Járnbráar Einarsdóttur, f. 13.4. 1918, og Magn- úsar Jónasar Jó- hannesarsonar, f. 20.10. 1913. Járnbrá er af þingeyskum ættum, dóttir Einars Ofeigs Hjartarsonar, f. 11.5. 1896, d. 11.4. 1963, bónda, síðast á Saurbæ, og konu hans, Stefaníu Jónsdóttur, f. 23.3. 1892, d. 12.5. 1960. Járnbrá var símstöðvarstjóri á Bakkafirði í 35 ár og flugvallarstjóri að auki meðan áætlunarflug var stundað þangað. Magnús er af vestfirzk- um ættum, sonur Jóhannesar Kjartanssonar, f. 1.12. 1882, d. 29.3. 1918, siðast bónda á Hrís- nesi á Barðaströnd, og konu hans Guðrúnar Guðmundsdótt- ur, f. 19.4. 1874, d. 20.11. 1954. Magnús var útgerðarmaður og sjómaður á Bakkafirði frá því að þau fluttu þangað 1947 og odd- viti þar 1958-74. Þau hjón hafa unnið inikið að félagsmálum. Systkini Sólrúnar eru Gunnar Jóhannes, f. 29.4. 1942, áður sparisjóösstjóri á Laugum, kvæntur Ólínu Ingibjörgu Há- konardóttur húsmóður og eiga þau einn son; Stefnir Einar, f. 30.9. 1943, útgerðarmaður og sjómaður á Bakkafirði, kvæntur Kristbjörgu Khorchai frá Taí- landi og eiga þau tvö börn; Björg, f. 3.4. 1947, húsmóðir og starfsmaður Landsbankans í Reykjavík, gift Þórði Sigurgeirs- syni rafeindavirkja og eiga þau fjögur börn og tvö barnabörn; Freydís Sjöfn, f. 12.8. 1951, hús- móðir, gift Eliasi Ingjaldi Helga- syni útgerðarmanni á Bakkafirði og eiga þau fimm börn; Rósa Björk, f. 27.7. 1957, húsmóðir og stöðvarstjóri Is- landspósts á Bakka- firði, gift Ólafi Birni Sveinssyni og eiga þau fjögur börn. Sólrún giftist eft- irlifandi eiginmanni si'num, Grétari Bjarnasyni húsa- smíðameistara frá Bolungarvík, 30. júlí 1966. Hann er fæddur 15.6. 1943 í Aðalvík og er ættaður úr Landeyjum í Rangárvallarsýslu og af Hornströndum. Börn þeirra eru: 1) Sindri, slökkviliðs- maður, f. 15.1. 1967, kvæntur El- ínu Björgu Ragnarsdóttur fram- leiðslustjóra og er sonur þeirra Jón Bjarni, f. 25.9. 1997. Stjúp- sonur Sindra og sonur Elínar er Hermann Örn Sigurðsson, f. 1.8. 1985. 2) Óskírð, f. 27.8. 1968, d. sama dag. 3) Harpa Hrönn, f. 15.6. 1972, d. 15.12. 1973. 4) Harpa Hrönn, leikskólakennari, f. 1.11. 1974, býr með Hannesi Jóni Marteinssyni flugmanni. 5) Erna Mjöll, flugumferðarstjóri, f. 12.1. 1976, býr með Guðlaugi Jóni Þórðarsyni málara. Sólrún var í Héraðsskólanum á Laugum 1961-63 og Hús- mæðraskólanum Ósk á Isafirði 1964-65. Sólrún vann með heim- ilisstörfum lengst af ýmis störf á vegum Pósts og síma, en þeirri stofnun var hún tengd frá barns- aldri og vann hjá henni frá ungl- ingsárum og tók próf frá skóla P&S. Nokkur ár vann hún hjá Skattstjóranum í Reykjanesum- dæmi, en síðustu árin vann hún aftur hjá P&S og Landssíman- um. Utför Sólrúnar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði mánu- daginn 18. september og hefst athöfnin klukkan 13.30. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þótt svíði sorg mitt hjarta þá sælteraðvitaafþví, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Eg þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um huga minn fer. Þótt þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Guð blessi þig og þína fjölskyldu með þökk fyrir allt. Pabbi og mamma. Það er sárt að kveðja eins góða konu og hún Sólrún okkar var. En lífið hefur sinn gang og nú var hennar þörf annars staðar. Eftir lifa í minningunni yndislegar sam- verustundir eins og öll þau fjöl- mörgu skipti sem við Harpa vor- um tímunum saman heima hjá þeim Sólrúnu og Grétari á Öldu- slóðinni, þar sem við sátum og spjölluðum um allt og ekkert. Það var svo gott að tala við Sólrúnu, hún vissi svo margt og hún mundi allt. Það var hægt að bera hugsan- ir sínar undir Sólrúnu því hún hafði góð ráð á reiðum höndum. Hann var heldur ekki slæmur ilm- urinn úr eldhúsinu hennar Sólrún- ar, hún var ekki lengi að setja nokkar dýrindis vöfflur á eldhús- borðið ef svo bar undir. Eg gleymi heldur aldrei stór- kostlegri ferð okkar Hörpu og Sól- rúnar upp á Síðujökul í febrúar 1994. Sólrún hafði ótakmarkaða ánægju af náttúrunni og að skoða jökulinn í ham var ógleymanleg upplifun. Ferðin til Grænlands var ekki síðri, það var svo gaman að geta farið þangað saman með for- eldrum og tengdaforeldrum. Ótal minningar koma upp í hugann og víst er að Sólrúnu mömmu mun ég seint gleyma. Það er mér dýrmætt að hafa fengið að kynnast þér Sólrún, ég þakka fyrir það. Guð blessi og varðveiti þig. Hannes Jón. Elsku mamma. Þú lifir í minningu minni sem sterk og sjálfstæð kona. Besta mamma í heimi sem kenndir mér svo margt og gafst mér svo falleg- ar minningar. Eg er svo þakklát fyrir allar minningarnar sem ég á um þig og allt sem þú gerðir fyrir mig. I mínum huga er ekkert sem var þér ómögulegt, þú kunnir allt og gast allt. Þú kenndir mér að njóta náttúrunnar og þekkja land- ið. Þú vissir allt og mundir allt, ef einhver á heimilinu vissi ekki eitt- hvað var viðkvæðið „spurðu mömmu“ og þú gast svarað eða vissir hvar svars var að leita. Mér er ómögulegt að koma orðum að öllu því sem mig langar að segja. Það er af svo mörgu að taka svo ég verð bara að geyma það allt í hug- skoti mínu og segja svo bamabörn- unum þínum frá þér seinna meir. Kannski ertu bara engill sem okkur var lánaður tímabundið til að halda okkur á réttum kili, koma okkur til manns og kíma yfir vit- leysunni í okkur. Það er sárt að kveðja en það er + Gunnar Stefánsson bóndi fæddist á Hamri í Kollafirði, Strandasýslu, 23. apríl 1909. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 3. scptember siðastliðinn og fór út- för hans fram frá Bessastaða- kirkju 11. september. Eg minnist Gunnars Stefánssonar sem góðs manns og Magneu konu hans og barna, allt frá því ég var krakki. Það var fagnaðarefni að koma huggun harmi gegn að systur mín- ar taka á móti þér. Þín dóttir, Harpa Hrönn. Elsku mamma, takk fyrir öll árin sem þú varst hjá mér. Eg veit að systur mínar taka vel á móti þér og þér mun líða vel þar hjá þeim. Horfið er nú sumarið og sólin, í sálu minni hefur gríma völd. í æsku léttu ís og myrkur jólin; Nú einn ég sit um vetrarkvöld. Því eitt sinn verða allir menn að deyja. Eftir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma það, en samt ég verð að segja, að sumarið líður alltof fljótt. (Vilhjálmur Vilhjálmsson.) Takk fyrir allt mamma. Þín dóttir, Erna Mjöll. Elsku Sólrún okkar. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. á heimili þeirra úr sveitinni að vestan. Guð blessi ykkur öll. Ég vil svo á þessari kveðjustund votta ættingjum og aðstandendum dýpstu samúð. Ég kveð svo nafna minn með þessum Ijóðlínum; Arinh'ðadagardvína Dáinnernúvinurkær. Sólin skín á milli lína Sjáliur Ðrottinn kemur nær. Gunnar Ó. Jónsson. Elsku Sólrún, nú er stríði þínu við erfiðan sjúkdóm lokið og komið að kveðjustund. Margs er að minn- ast frá uppvaxtarárunum og sam- skiptum á fullorðinsárum. Skap þitt var Ijúft og milt, en það gat blossað upp og gustað, þegar þér þótti mæl- irinn fullur. Þegar þú varst þriggja ára tók mamma það til bragðs að snoð- klippa þig, svo hárið yrði þykkra, þín viðbrögð voru; „Þetta er gott, nú er ekki hægt að toga í hárið á mér.“ Gunnar man hvernig gekk að koma Grétari til Bakkafjarðar, svo hægt væri að kynna hann fyrir væntanlegum tengdaforeldrum. Gamli jeppinn festist í snjó á Hellis- heiðinni og Grétar þurfti að ganga niður að Ketilstöðum eftir aðstoð. Rósa minnist þess þegar hún var viðstödd brúðkaup ykkar Grétars í Bolungarvík, ein systkinanna, og síðan „brúðkaupsferð“ í Trabantin- um til Bakkafjarðar. Þú hafðir yndi af útivist. Björg man ferð, sem hún og Þórður fóru með ykkur Grétari á Esjuna. Það var sama hvort leiðin lá upp fjallið eða niður; sami hraði, áreynslu- laust. Björg átti hins vegar fullt í fangi með að fylgja ykkur eftir og harðsperrurnar daginn eftir voru slæmar. Ferðirnar í Atlavík voru þér mikils virði og þú hefðir gjarn- an viljað fara þangað oftar. Freydís minnist þess með þakk- læti, að hún bjó hjá ykkur einn vet- ur og flutti með ykkur milli bæjar- félaga. Um nokkurt árabil hittumst við á „systramóti" um verslunarmanna- helgina á ýmsum stöðum á landinu. Talsvert þurfti að leggja á sig svo þetta væri hægt, en alltaf var glatt á hjalla á þessum samkomum. Við fjölskyldan dáumst að og þökkum Grétari og börnunum ykk- ar fyrir þá umhyggju, sem þau GUNNAR STEFÁNSSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.