Morgunblaðið - 17.09.2000, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 17.09.2000, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2000 37 . MINNINGAR MARGRET KRISTRÚN SIGURÐARDÓTTIR + Margrét Krist- rún Sigurðar- dóttir fæddist í ganda Mýrarhúsa- skóla á Seltjarnar- nesi 20. mars 1931. Hún lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 28. ágúst síðast- liðinn og fór útför hennar fram frá Seltjarnarneskirkju 6. september. Elsku frænka mín og nafna, Margrét Kristrún Sigurðardóttir, er látin og hennar á ég eftir að sakna mikið. Það er erfitt að sætta sig við það að hún sé farin. Eg var skírð í höfuðið á henni og það fannst mér alltaf sér- stakt. Hún var eins og amma mín. Eg var mikið hjá Möggu frænku þegar ég var lítil. Hún passaði mig oft og stundum vorum við mörg hjá henni í einu og þá var nú fjör. Mér eru minnisstæð fyrstu skiptin er ég, Siggi, Anna og Iða frænka fengum að gista hjá henni. Við fórum í föt.af Möggu og Gústa og settum á svið ýmsa leiki, ærsluðumst saman og komumst upp með ýmislegt. Seinna bættist Agúst í þann hóp og síðar Tóta og Nína. Magga var dugleg að kenna mér allar kvöldbænirnar og sá til þess að ég færi með þær áður en ég færi að sofa. Það var alltaf gaman að vera hjá Möggu og Gústa. Við lékum okkur í garðinum og tíndum kartöflur og radísur með henni. Ég eignaðist meira að segja minn eigin part af matjurtagarðinum. Þegar líða tók að hausti fór ég sérstakar ferðir til að tína berin af trjánum. Garður Möggu og Gústa var sannkallaður ævintýra- garður í augum okkar krakkanna. Þar var andapollurinn, lautin og steinabeðið sem svo gaman var að leika sér í og öll fallegu blómin og rósarunnamir. Tíð voru fjölskylduboðin hjá henni og alltaf var hún jafn myndar- og rausnarleg. Það var alltaf sannkölluð nammiveisla fyrir okkur krakkana þegar hún og Gústi náðu í nammið sem þau höfðu keypt í útlöndum. Ég fór líka mikið í ferðalög með Möggu og Gústa. Við fórum saman í veiðiferðir, sumarbústað og berja- mó. Og stundum fléttaðist þetta allt saman. Við keyrðum saman út í bæ til að sækja orma fyrir Gústa í veiðiferð- imar, fómm í Tívolí í Hveragerði og fleiri ferðir af ýmsu tagi. Ég og Agúst frændi slógumst oft í för með þeim og skemmtum okkur vel enda vomm við bæði svo mikið hjá þeim. Við vomm eiginlega tvær kynslóðir af Möggum og Gústum. Á síðustu ámm fór Magga að missa sjónina og þurfti þá að reiða sig meir á aðra. Ég keyrði hana oft í erindisferðir og það var alltaf gaman að vera með henni. Við fómm upp í kirkjugarð að leiði Gústa og heim- sóttum svo Emmu í blómabúðina á eftir. Svo fór ég með henni að versla og þá þekkti hún annan hvern mann. Eftir að Gústi dó var Magga hjá okkur um jól og áramót og við skemmtum okkur vel. Næstu jól eiga eftir að vera tómleg án hennar. Það er erfitt að kveðja Möggu svona fljótt, við áttum eftir að gera svo margt saman. Við ætluðum allt- af að fara til Parísar, ég, hún og mamma. En við gemm það bara þegar við hittumst aftur. Þá verður hún búin að hvíla sig og komin með sjónina aftur. Ég veit að Magga er núna hjá Gústa sínum og líður vel. Þau hafa ömgglega nóg fyrir stafni við að hitta ættingja og vini sem á undan em gengnir. Ég kveð Möggu með trega og söknuði en þó umfram allt með þakklæti í brjósti fyrir okkar yndislegu stundir. Blessuð sé minn- ing Margrétar frænku minnar. Margrét Rúna Guðmundsdóttir. „Þegar þú ert sorgmæddur skoð- aðu þá huga þinn og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín“ (Spámaðurinn, Kahlil Gibran). Það em sannarlega góðu minn- ingamar um þig, elsku Magga frænka, sem koma támnum fram í augum okkar núna og ekki síður vegna þeirra minninga sem ekki fengu að verða. Gleði- og sorgar- stundir innan fjölskyldunnar þar sem vem þinnar verður sárt saknað. í sorginni er þó gott að geta omað sér við góðar minningar um yndis- lega frænku. Fyrsti vetrardagur haustið 1975 er mér í fersku minni og verður um aldur og ævi, ekki vegna þess að þá átti ég fjögurra ára afmæli og amma Þurí hafði saumað á mig síðan kjól, heldur vegna þess að við dönsuðum saman allt kvöldið á stofugólfinu á Tjarnarbólinu og mér fannst það svo ofboðslega skemmtilegt. Én þannig varstu ein- mitt, elsku frænka, svo skemmtileg, alltaf stutt í hláturinn og svo ofboðs- lega hlý og góð. Minningar úr æsku er við systkinin voram í pössun hjá þér og Gústa á Nesbalanum og þú varst svo óþreytandi að leika við okkur. Leyfðir okkur að leika með fötin þín og skartgripi og æfa okkur + Bárður Gunnars- son fæddist f Rcykjavík hinn 24. maí 1931. Hann lést á heimili sínu aðfara- nótt 4. september síð- astliðins. Foreldrar hans voru Gunnar Ól- afur Kristófersson sjómaður og Jóhanna Sæunn Sigurðardótt- ir húsmóðir. Bræður Bárðar voru 1) Gunn- ar, látinn. Hann átti fimm börn. 2) Óskar, látinn. Hann var barnlaus. Jóhanna Sæunn átti fyrir hjónaband soninn Sigurð Magnússon, látinn. Hann átti Qögur böm. Á æskuheimili Bárðar ólst auk þess upp bróður- dóttir hans, Dagný Gunnarsdótt- ir. Bárður útskrifaðist úr Loft- skeytaskólanum árið 1954 og vann lengst af sem loftskeytamað- ur á togurum Utgerðarfélags Ak- Elsku afi minn, mig langaði að kveðja þig með nokkrum orðum og þakka þér fyrir allar góðu stund- irnar sem við áttum saman fyrir norðan hjá ykkur. Ég man hvað mér fannst gaman þegar við fórum saman í ferðalög á húsbílnum, þeg- ar við fórum á hverjum morgni í sund, líka alla bíltúrana um Akur- eyiá með þér og ömmu. Ég þakka þér einfaldlega fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og ég er þakk- lát fyrir að hafa fengið að kynnast þér. Þín Eva Halldóra. Sunnudagurinn 3. þ.m. var við- burðaríkur dagur á Akureyri. Veðrið eins og best verður í Eyja- ureyringa og síðar á skrifstofu félagsins. Bárður kvæntist Halldóru Guðmunds- dóttur frá Raufar- höfn hinn 6. septem- ber árið 1958. Böm þeirra em: 1) Guð- mundur, f. 14. jan- úar 1959, kvæntur Steingerði Steinars- dóttur. Börn þeirra eru Andri, f. 4. októ- ber 1980, og Eva Halldóra, f. 12. jan- úar 1988. 2) Jó- hanna, f. 22. desem- ber 1963. Hún giftist Kristjáni Ásmundssyni. Þau slitu samvistir. Þeirra sonur er Ásmundur, f. 18. júní 1986. Sambýlismaður Jó- hönnu er Guðni Þóroddsson og þeirra sonur er Bjarki Þór, f. 4. september 1996. títför Bárðar fer fram frá Gler- árkirkju 18. september og hefst athöfnin klukkan 14. firði, heiðskírt, logn og hlýindi. Þennan dag skírði Anna Kristjáns- dóttir, ekkja Vilhelms Þorsteins- sonar, framkvæmdastjóra UA, Samherjaskipið Vilhelm Þorsteins- son EA 11. í tilefni þessa var mörgum boðið að vera viðstaddir, þar á meðal Bárði Gunnarssyni, loftskeytamanni. Bárður, sem var uppalinn Hafn- firðingur, átti ættir sínar í Skafta- fells- og Barðastrandasýslum, fluttist til Akureyrar árið 1956, er hann gerðist loftskeytamaður á b.v. Svalbak EA 2. Frá því ári og fram til dánar- dægurs hans stóðu okkar kynni. Hann var ákaflega fjölhæfur mað- ur, vélstjóri á yngri árum og mús- íkant, loftskeytamaður 1954-1972, radíóamator í mörg ár, skrifstofu- maður 1972-1997, kennari við sjó- mannadeildina á Dalvík um tíma, eldhugi um mörg mál, eins og íþróttir, veiðiskap og fleira. Hann var einstaklega bóngóður maður. í huga mínum er þó efstur heiðar- leiki hans, ég hef vart kynnst heið- virðari manni um mína daga. Ég vil með þessum fáu orðum minnast þessa góða drengs og sam- starfsmanni um árabil og þakka samfylgdina. Ég bið þann er öllu ræður að blessa ekkju hans, Halldóm Guð- mundsdóttur, börnin Guðmund og Jóhönnu og fjölskyldur þeirra. Jón E. Aspar. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netf- ang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Formáli minning- argreina ÆSKILEGT er að minning- argreinum fylgi á sérblaði upplýsingar um hvar og hve- nær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dá- inn, um foreldra hans, systk- ini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. BÁRÐUR GUNNARSSON að ganga á háhæluðu skónum þín- um. Inni í geymslu var svo allt nammið sem Gústi kom með af sjón- um, útlenskt nammi sem við höfðum aldrei séð áður, að ógleymdum koj- ak-sleikibrjóstsykrinum. I garðinum ykkar sem þú varst svo dugleg að vinna í ræktaðir þú m.a. radísurnar góðu sem við fengum aldrei nóg af. Þið ferðuðust mikið saman, þið Gústi, og ég man hvað það var gam- an að fá ykkur aftur heim. Öll fjöl- skyldan fór út á flugvöll að sækja ykkur og það þurfti að skipta ykkur niður í bílana. Svo hittumst við öll heima hjá ykkur á Nesbalanum og gerðum okkur glaðan dag. Jólin 1996 dó Gústi. Hann hafði verið hjartveikur í mörg ár og oft orðið al- varlega veikur en alltaf náð sér aftur og án efa hefur umhyggja þín og natni átt stóran þátt í bata hans. Lát Gústa hafði mikil áhrif á þig og þú sem aldrei hafðir kennt þér meins öll þessi ár varst allt í einu orðin veik. Fyrst var það sjónin sem tók stóran skerf af sjálfstæði þínu. Verst þótti þér að eiga á hættu að ganga fram hjá einhverjum sem þú þekktir án þess að heilsa enda hafðir þú alla tíð verið mjög félagslynd, áttir marga vini og kunningja. Það var svo gaman að fara með þér í bæinn, þú þekktir alltaf svo marga og alltaf enduðu ferðirnar á kaffihúsi þar sem við nutum góðra veitinga. Svo var það krabbameinið sem fyrst var svo lítið að nútímalæknavísindi virtust auðveldlega geta ráðið við það en c var síðan allt í einu orðið óviðráðan- legt. Lyfjameðferðin var þér erfið en þú gast samt séð spaugilegar hliðar á tilvemnni jafnvel þá, eins og þegar þú fékkst Dúddu frænku til að bmna með þér á Bæjarins bestu til þess að fá þér eina með öllu þegar matarlystin kom aftur. Það var svo miðvikudaginn 9. ágúst að þú varst lögð inn á spítal- ann. I heimsóknum til þín á spítalann vildir þú ræða allt annað en veikindi þín og það var, þrátt fyrir erfiðar stundir, alltaf gott að koma til þín. Þú lést á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn 28. ágúst. Ferðir okkar saman í kirkjugarðinn að leiðum Gústa, Grétars, Rutar, Einars og ömmu og afa verða ekki fleiri. Næst verður farin ferð til að huga að þínu leiði. Það er huggun harmi gegn að nú emð þið Gústi saman á ný og allir ástvinir þínir sem á undan þér fóm. Elsku frænka, takk fyrir allt. Þín er sárt saknað. Þín Anna. HELGI STEINSSON + Helgi Steinsson fæddist í Reykjavík 27. desember 1928. Hann lést á heimili si'nu 4. ágúst síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 11. ágúst. I minningu Helga Steinsson sem var vinur minn og fyrsti lærifaðir þegar ég byrjaði sem háseti um borð í skipi hjá Eimskipafélaginu, vil ég þakka honum góð kynni og votta aðstandendum hans fyllsu samúð með virðingu fyrir hinum látna. Dvelur í draumsins muna sölum djúpt inn í hafs og himnadölum Drottinn lát þér ganga vel, skemmtan var á skipsins Qölum skammdegi og sólskins þel. Gunnar Ó. Jónsson. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður. afa og langafa, ÓLAFS S. ÓLAFSSONAR rennismiðs, Álfheimum 29, Reykjavík. Sóley Tómasdóttir, Jakob H. Ólafsson, Steinunn Theódórsdóttir, Jón V. Ólafsson, Kristín Elva Bragadóttir, Jóhannes Ó. Ólafsson, Ingveldur Pálsdóttir, Borgar V. Ólafsson, Hildur Eyjólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og út- för okkar ástkæru, LOVÍSU MARGRÉTAR ÞORVALDSDÓTTUR, Snorrabraut 56, Reykjavík. Einar Páll Stefánsson, Guðfinna Ingólfsdóttir, Sólveig Stefánsdóttir, Snorri Loftsson, Bjarghildur Stefánsdóttir, Jón Kárason, Davíð Stefánsson, Inger Stefánsson og fjölskyldur. t Innilegustu þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju við fráfall og útför ástkærrar móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓHÖNNU AÐALSTEINSDÓTTUR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á C-gangi Hlíðar fyrir alúðlega umönnun. Guð blessi ykkur öll. Magnús Aðalbjörnsson, Ragna Magnúsdóttir, Svana Aðalbjörnsdóttir, Páll Pálsson, barnabörn og barnabarnabörn. j I
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.