Morgunblaðið - 17.09.2000, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 17.09.2000, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2000 39 MINNINGAR GUÐMUNDUR R. BJARNLEIFSSON + Guðmundur Rúnar Bjarn- leifsson fæddist í Reykjavík 28. maí 1945. Hann lést á líknardeild Land- spítalans 6. septem- ber siðastliðinn og fór útför hans fram frá Bústaðakirkju 14. september. Góður félagi er fall- inn frá. Félagi okkar Guðmundur Rúnar Bjarnleifsson var hægur maður, yfir- vegaður og viðræðugóður. Hann var mikill áhugamaður um pólitík og fylgdist vel með í þeim efnum og fórnfús er til hans var leitað. Guðmundur starfaði frá unga al- dri innan verkalýðshreyfingarinn- ar og Alþýðubandalagsins. Hann sat m.a annars í miðstjórn flokks- ins. Hann var maður sátta og vildi leggja mikið á sig og aðra í sátta- umleitunum innan flokksins. Hann var einlægur sameiningar- sinni og einn af stofnfélögum bæði Birtingar og Framsýnar, félaga sameiningarsinna og frjálslyndra alþýðubandalagsmanna. Hann átti sér þann draum að sjá stóran flokk félagshyggjufólks verða til. Flokk sem gæti veitt Sjálfstæðisflokkn- um aðhald og verið launafólki á ísl- andi skjól í köldum heimi frjáls- hyggjunnar. Guðmundur sá hluta þess draums rætast með þátttöku í stofnfundi Samfylkingarinnar í maí sl. Með Guðmundi er genginn góð- ur félagi sem naut traust félaga sinna. Um leið og við félagar hans á langri pólitískri vegferð sendum fjölskyldu hans okkar dýpstu sam- úðarkveðju, þökkum við samfylgd- ina og minnumst með hlýju þeirra tíma sem Guðmundur gaf í barátt- unni fyrir sameiningu jafnaðar- manna og félagshyggjufólks. Hafðu þökk fyrir. Arthur Morthens, Bryndís Hlöðvers- dóttir, Gísli Gunn- arsson, Helgi Hjörvar, Kristinn Karlsson og Krist- ján Valdimarsson. Það var með ótrú- legri reisn sem vinur okkar, Guðmundur Rúnar Bjamleifsson, tilkynnti okkur að hann yrði ekki gamal- menni og að hann væri að undirbúa brotthvarf sitt. Fyrirvarinn sem gefinn var taldist aðeins í mánuðum. Sjúkdómurinn sem á hann herj- aði var illvígur og Guðmundi var það greinilega efst í huga að hafa sitt á hreinu þegar kallið kæmi. Fyrir fjölskyldu að takast á við svo óskaplega ótímabært fráfall er eitt og sér nógu erfitt. Guðmundi kynntumst við fyrst fyrir tíu árum. Hann var ávallt mikill aufúsugest- ur, hreinskiptinn og glaðvær en um leið kurteis og traustur. Hann kom gjarnan í morgunkaffi og hjálpaði sér alltaf sjálfur. Guðmundur studdi knattspyrnufélagið Fram og R-listann og var hlýtt til gömlu So- vétríkjanna, sem hann kunni góð skil á, auk þess að kunna nokkuð í rússneskri tungu. Guðmundur var fastur á meiningunni og það var gaman að rökræða við hann hin ólíku málefni, alls ekki alltaf sam- mála, en alltaf var kvaðst í góðum vinskap. Við sendum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur til allra ætt- ingja og vina sem nú finna til mik- ils saknaðar. Um leið þökkum við fyrir hin ánægjulegu og mannbæt- andi kynni. Minningin um góðan dreng mun lifa og vissan um end- urfundi hjálpar á erfiðum stundum. Halldór og Esther. GUÐRUN HAFDIS ÁGÚSTSDÓTTIR + Guðrún Ilafdís Ágústsdóttir fæddist á Siglufirði 7. maí 1915. Hún lést á Heilsugæslustofn- un Sigluljarðar 28. ágúst síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Siglufjarð- arkirkju 9. septem- ber. „Ýmist ber menn áfram eða aftur á bak; ýmist er heitt eða kalt; styrkur og veik- leiki skiptast á; ham- ingjan veltur á endum.“ Þannig mælti hinn kínverski spekingur Lao-tse. Ég held að lífsgangan hennar Gunnu frænku hafi verið í líkingu við þetta. Gunna lést á Heilbrigð- isstofnun Siglufjarðar í ágúst sl. Hún hélt sinni reisn til hinsta dags eins og hún svo oft hafði óskað sér. Hún var dóttir Steinþóru Barða- dóttur og Ágústs E. Sæby, sem ávallt áttu heimili á Siglufirði. Gunna var þríðja í röð fimm systk- ina og kært var með þeim. I æsk- uminningunni heyri ég jafnan föð- ur minn segja „hún Gunna systir". Samgangur og samheldni var mik- ill milli heimilanna. Gunna var söngelsk, söng í kirkjukór Siglu- fjarðar um árabil og spilaði á orgel á sínum yngri árum. Eiginmaður Gunnu var Stefán Þórarinsson sem er látinn. Þau eignuðust fjögur börn, Sigríði, Sjöfn, Ágúst og And- rés. Sigríður lést á besta aldri frá eiginmanni og þremur börnum og var sárt saknað. Heimili Gunnu og Stebba var lengst af við Vallargötu 1. Hún Gunna var stórbrotin pers- BERTHA KARLSDÓTTIR + Bertha Karls- dóttir fæddist í Reykjavík 16. maí 1921. Hún Iést á heimili sínu 5. sept- ember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fella- og Hólakirkju 15. sept- ember. Elsku besta amma mín, þá ertu farin frá okkur. Þrátt fyrir að ævi þín hafi spannað 79 ár erum við sem eftir lifum harmi slegin yfir sviplegu andláti þínu. Þannig höfðum við það á orði eftir síðustu heimsóknina til þín að þú ættir mörg ár eftir meðal okkar. Svo hress og kát varstu. Ekki ór- aði okkur fyrir að lífsvagninn þinn væri kominn á leiðarenda. Lífið er hverfult og í hugum okkar hrann- ast upp minningar og söknuður. Minningar úr bernsku minni og frá unglisárunum, er ég heimsótti ykkur afa Magnús og eftir að afi dó, þig eina í Suðurhóla, skjóta upp kollinum. Af hversu miklum hlýhug þú ávallt tókst mér fæ ég aldrei gleymt. Við töluðum um allt milli himins og jarðar og er mér minnisstæð frásagnarhæfni þín og hversu vel þú glæddir frásagnir þess tíma er þú sem ung kona ólst upp í hinni ört vaxandi Reykjavík. Lýsingar þínar á íþróttaviðburðum á Melavellinum gamla standa þar upp úr. Einnig sá ég Laugaveginn í nýju ljósi eftir að hafa ekið með þig niður hann. Ekki má gleyma jólaboðunum er þú hélst ár hvert óna, var hrein og bein og sagði skoðanir sín- ar umbúðalaust. Hún kunni m.a. þá list, að hvetja nærstadda til góðra hluta. Mér er í minni sá tími þegar ég var í Gagnfræða- skóla Siglufjarðar og kom til hennar í kaffi. Þar beið dúkað borð, allar mögulegar kræs- ingar og ekki hvað síst öll hvatningarorð- in hennar, hún jós lát- laust úr viskubrunnin- um. Glaðværð og snyrtimennska einkenndi heimilið í Vallargötunni. Flest sem mann- inn snertir bar þar á góma og urðu umræðurnar oft fjörugar því ekki var gefið að allir hefðu sömu skoð- anir á hlutunum. Ég held að Gunna hafi átt hamingjuríka ævi. Hennar gæfa var eiginmaðurinn, börnin og afkomendur þeirra sem umvöfðu hana alla tíð. Hún sáði vel og uppskar ríkulega. Á kveðjustund er ég þakklát fyrir stundirnar er ég átti með Gunnu sem barn og unglingur og geng ríkari af þeim fundum. Ég votta börnum hennar og öll- um öðrum ættingjum samúð mína. Auður Vilhelmsdóttir. OSWALDS simi 551 3485 ÞJÓNUSTA ALLAN SÓLARHRINGINN ADALSTRÆTI 4B • 101 RKYKJAVÍK Ditvíð Iitgei' Olafur Otfítrimtj. I Itfiirimtj. I 'tfnrnrstj. LÍKKISTUVINNUSTOFA EYVINDAR ÁRNASONAR 1899 O ÚTFARARÞJÓNUSTAN Persónuleg þjónusta Höfum undirbúið og séð um útfarir fyrir landsmenn í 10 ár. Sími 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is utfarir@utfarir.is EHE með miklum myndar- brag og hversu mikla áherslu þú lagðir á að allir mættu, ekki til þess eins að njóta veitinga, heldur til að ættingjarnir mættu eiga stund saman. Við áttum vel sam- an þú og ég elsku amma mín. Ég kunni einstaklega vel að meta það jafnaðargeð er þú sýndir mér og ávallt var stutt í hlát- urinn þótt lífið hafi ekki alltaf verið dans á rósum. Þú fylgdist einstaklega vel með öllu sem var í kringum þig, hvort heldur þjóðfélagsumræðunni sem fólkinu þínu. Fluttir þú mér fréttir af frændfólki mínu, einkum honum Magga litla sem þér fannst líkjast mér að mörgu leyti. Þú varst stórglæsileg kona, hvernig þú barst þig að er þú mát- aðir fyrir mig og Helen kjólinn, £ kápuna og húfuna færðu okkur sannindi þess. Ekki komstu heldur til dyra án þess að vera vel tilhöfð. Sem vott um smekkvísi þína varstu að íhuga að fá þér nýja dragt fyrir áttræðisafmælið. Þú hefðir litið glæsilega út í henni. Elsku amma mín, við söknum þín mikið. Nú er komið að leiðar- enda en minningin um þig mun lifa í hjörtum okkar um aldur og ævi. Og dagurinn leið í djúpið vestur, og Dauðinn kom inn tÖ þín. Þú lokaðir augunum - andartak sem ofbirta glepti þér sýn. Og um varir þér brá fyrir brosi þeirra, sem bíða í myrkrinu og þrá daginn - og sólina allt í einu í austrinu rísa sji (Tómas Guðm.) Anton Björn Markússon og fjölskylda. Frágangur afmælis- og minningargreina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur f veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/ sendanda fylgi. Um hvem látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða Ijóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfúndar em beðnir að hafa skímamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN SIGURGEIRSSON frá Helluvaði, sem lést mánudaginn 11. september, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 19. september kl. 13.30. Ragnhildur Jónsdóttir, Jón Gauti Jónsson, Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Geirfinnur Jónsson, Hlíf Sigurjónsdóttir, Sólveig Anna Jónsdóttir, Edward Frederiksen, Herdís Jónsdóttir, Steef van Oosterhout og barnabörn. Blómaskreytingar við öll tilefni Opið til kl. 19 öll kvöld Blómastofa Friðfinns, V*" ik' Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099, fax 568 4499. Rúnar Gcirmundsson Sigurður Rúnarsson útfararstjóri_________________útfararstjóri Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar. Vesturhlíð 2 Fossvogi Sími 551 1266 www.utfor.is Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins með þjónustu allan ^ sólarhringinn. Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja t f UTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.