Morgunblaðið - 17.09.2000, Page 51

Morgunblaðið - 17.09.2000, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ i ! i ! ÍDAG BRIDS (inisjón Gnðmundur Páll Arnarsun ENGLENDINGAR stóðu sig mjög vel á OL í Maas- tricht; urðu efstir í sínum riðli, felldu svo Belga í 16 liða úrslitum og Norðmenn í 8 liða úrslitum. En ítalir reyndust oflarlar þeirra í næstu umferð og síðan töp- uðu Englendingar fyrir Bandaríkjamönnum í stutt- um leik um bronsið. Fjórða sætið varð því hlutskipti þeirra í þetta sinn. Hér er spil frá leik Englendinga og ítala: Noj-ður * AG94 ¥64 ♦ KD1085 + D10 Vestur Austur • KD1083 + 65 ¥ G2 ¥ K85 ♦ 96 ♦ Á432 + K976 + G542 Suður + 72 ¥ ÁD10973 ♦ G7 + Á83 Á báðum borðum varð suður sagnhafi í fjórum hjörtum og útspilið var spaðakóngur. Englending- urinn Liggins drap strax á ás og spilaði svo hjarta á tíuna og gosa vesturs. Nú er spilið vonlaust og Liggins endaði tvo niður. Hinum megin sat Duboin í sagnhafasætinu og byrjaði á því að dúkka spaðakónginn. Vestur skipti þá yfir í tígul- níu og austur drap með ás og spilaði aftur tígli. Þetta var þægileg byrjun fyrir Duboin, sem tók slaginn í borði, svín- aði hjartadrottningu, tók ás- inn og spilaði enn hjarta. Samningurinn var nú í húsi - tígullinn frír og spaðaásinn í borði sem innkoma. Höfundar mótsblaðsins veltu fyrir sér bestu spila- mennsku og vörn. Það er ör- ugglega rétt að dúkka spaða- kónginn og sennilega er besta vörnin að spila spaða áfram og taka þar innkomu blinds á tígulinn. En samt er til vinningsleið. Sagnhafi svínar spaðagosa, síðan hjartadrottningu og tekur ásinn. Spilar svo tígh á kóng- inn. Ef austur dúkkar má henda síðari tíglinum heima niður í spaðaás og þá þarf bara að hitta í laufið til að ná í tíu slagi. Drepi austur strax og spili laufi, svarar sagnhafi með því að taka á laufás, spila tígli og henda laufum niður í spaðaás og þriðja tíg- uhnn. SKAK Umsjðn Hclgi Áss Grðtarsson Hvítur á leik. STAÐAN kom upp á Penta- media-stórmeistaramótinu sem lauk fyrir skömmu í Kelambakkem á Indlandi. Hvítt hafði indverski stór- meistarinn Dibyendu Barua (2502) gegn landa sínum Devaki Prasad (2431). 20.Bxh6! gxh6 21.Hxh6 De5 22.Hg6+ Kf7 23.Dh7+ Ke8 24.Hdl Bc8 24...HÍ7 bauð ekki heldur upp á haldbæra vörn sökum 25.Hg8+ Ke7 26.Dh4+. 25.Hg7 ogsvartur gafst upp. Árnað heilla ÁRA afmæli. Mánu- daginn 18. septem- ber verður sextug Margrét Kristinsdóttir, Ólvisholti, Flóa. Eiginmaður hennar er Kjartan Runólfsson. Þau taka á móti frændfólki og vinum í félagsheimilinu Þingborg, Hraungerðis- hreppi, fóstudaginn 22. sept- ember frá kl. 20. pf /AÁRA afmæli. Á morg- eJU un, mánudaginn 18. september, verður fimmtug- ur Ivar Magnússon, Sveig- húsum 3, Reykjavík. í til- efni afmælisins tekur hann og eiginkona hans, Sigrún Kjærnested, á móti ættingj- um og vinum í Rafveitu- heimihnu þann 29. septem- ber nk. frá kl. 20-24. Hlutavelta Morgunblaðið/Porkell Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu 6.003 kr. til styrktar Rauða krossi Islands. Þær heita Natalie Don, Sandra Karen Magnúsdóttir og Ellen Ásta Wanbeek. Með morgunkaffinu það þyrfti að hressa svolítið upp á þig. LJOÐABRCT HAUSTVÍSUR Land kólnar. Lind fólnar. Lund viknar. Grund bliknai-. Svell frjósa. Fjöll lýsast. Fley brotna. Hey þrotna. Dug hættir. Dag styttir. Drótt svengist. Nótt lengist. Sól þrýtur. Sál þreytist. Sær rýkur. Snær fýkur. SYSTURMINNING Fyrir vestan fjöll og höf fullkomnað er skeiðið; systur minni’ er grafin gröf, gleymist bráðum leiðið. Páii Ólafsson. STJORNUSPA cftir Frances Drakc MEYJA Afmælisbam dagsins: Þú ert einstaklingur sem kannt að njóta lífsins og leiðir skuggahliðar mannlífsins hjá þér. Hrútur (21. mars -19. apríl) Þú hefur lagt hart að þér og ert þreyttur og vilt helst að aðrir taki við ábyrgðinni. Reyndu samt að halda þínu striki hvað sem tautar og raular. Naut (20. apríl - 20. maí) Það eru kaflaskipti í aðsigi og þú sem hefur haft í meiru en nógu að snúast átt nú allt í einu lausa stund. Njóttu hennar sem best þú getur. Tvíburar (21. maí - 20. júní) WA Það getur verið gott að fá aðra í lið með sér þegar verkefnin gerast flókin. Mundu bara að þiggja að- stoðina með jákvæðum huga. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Orð þín hafa meiri áhrif en þú heldur þvi þótt þér finn- ist ekki aðrir hlusta á þig þá falla orð þín ekki í grýttan jarðveg. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þú ert ragur við að bera áætlanir þínar undir aðra en gerðu það nú samt því það er þinn gróði þar sem betur sjá augu en auga. Meyja (23. ágúst - 22. sept.) <SÍL Það er allt í lagi að baða sig í aðdáun annarra ef henni er tekið með réttu hugarfari. Að öðrum kosti kann að fara hla fyrir þér. Vog m (23. sept. - 22. okt.) Þú vekur athygli annarra fyrir dugnað og orðheppni og engu líkara er en allir séu að berjast til þess að ná athygli þinni. Sþorðdreki (23. okt. - 21. nóv.) Ekki gefast upp þótt þér fmnist útlitið svart nú um stundir. Ræddu málin við lánadrottna og þú munt undrast hversu auðvelt reynist að lagfæra hlutina. Bogmaður m ^ (22. nóv. - 21. des.) íBO Þér er illa við breytingar einkum þær sem þú hefur ekki séð fyrir. Láttu þetta samt ekki heltaka þig því hver hlutur hefur sinn tíma. Steingeit „ (22. des. - 19. janúar) Það er upplagt að eyða smá tíma í það að sýna sig og sjá aðra. Mundu samt að ganga hægt um gleðinnar dyr svo ekki fari allt í vitleysu. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú dregur að þér athygli annarra og bregst við af djörfung og festu. Þú ert hrókur alls fagnaðar en mundu að dramb er falli næst. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú ert eitthvað laus í rásinni og átt erfitt með að einbeita þér að þeim verkefnum sem fyrir liggja. Taktu þér tak og hristu af þér slenið. Stjömuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2000 51 ^ffmœlisþakkir Hjartans þakkir til allra ættingja og vina, sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og heilla- óskum á sjötugsafmœli mínu 31. ágúst. Ruth Krístjánsdóttir, Sœviðarsundi 100. Tannlæknastofa Hef opnað tannlæknastofu Þangbakka 8, Mjódd, Breiðholti. Viðtalstími 8.30 til 17.00 virka daga og 9.00-12.00 laugardaga. Lúðvík K. Helgason, tannlæknir sími 557 5708. GSM 698 6872. Einkatímar • sími 694 5494 •Námskeið Með dáleiðslu getur þu sigrast a kviða og ójafnvægi og aukið getu þína og jákvæða uppbyggingu á öllum sviðum. Hnngdu nuna Leiðbeinandi: Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur. Mikið úrval af brúðarkjólum fyrir áramótin Einnig alltfyrir herra Fataleiga Garðabæjar, sími 565 6680. Opið virka daga frá kl. 10 til 18, laugardaga kl. 10 til 14. M BRIDSSKOLINN Námskeið á haustönn Byrjendur: Hefst 26. september og stendur yfir í 10 þriðjudagskvöld, þrjár klukkustundir í senn, frá kl. 20-23. Á byrjendanámskeiði Bridsskólans er ekki gert ráð fyrir neinni kunnáttu og ekki er nauðsynlegt að hafa með sér spilafélaga. Það geta allir lært að spila brids, en það tekur svolítinn tíma að ná tökum á grundvallarreglum Standard-sagnkerfisins. Það er fólk á öllum aldri og af báðum kynjum sem sækir skólann. Kennslubók fylgir námskeiðinu. *Framhald: Hefst 28. september og stendur yfir í 10 fimmtudagskvöld, þrjár klukkustundir í senn, frá kl. 20-23. Standard-sagnkerfið verður skoðað í smáatriðum, en auk þess verður mikil áhersla lögð á varnarsamstarfið og spilamennsku sagnhafa. Ný bók, Nútíma brids, eftir Guðmund Pál Arnarson, verður lögð til grundvallar. Kjörið fyrir þá sem vilja tileinka sér nútímalegar aðferðir og taka stórstígum framförum. Ekki er nauðsynlegt að hafa með sér spilafélaga. Nánari upplýsingar og innritun í síma 564 4247 milli kl. 13 og 18 virka daga. Bæði námskeiðin eru haldin í húsnæði Bridssambands (slands, Þönglabakka 1 í Mjódd, þriðju hæð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.