Morgunblaðið - 17.09.2000, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR17. SEPTEMBER 2000 55 -
FÓLK í FRÉTTUM
maC5C5F=!BLJOI
mýndbönd
Fávitarnir/ldioterne
★★%
Eins og við mátti búast nýtir sér-
vitringurinn Lars von Trier sér
Dogma-formið út í ystu æsar.
Djörf og ögrandi hneykslisrann-
sókn en ekki nógu heilsteypt.
Hvaö varð eiginlega um Haroid
Smith?/Whatever Happened to
Harold Smith?
★★★
Fortíðardýrkunin er hér allsráð-
andi og í þetta sinn áttundi ára-
tugurinn á mörkum diskósins og
pönksins. Klikkuð og bráð-
skemmtUeg bresk eðalmynd.
Hústökuraunir/Scarfies
★★★
Enn einn óvænti glaðningurinn
frá Nýsjálendingum. í þetta sinn
pottþétt spennumynd í anda Shall-
ow Grave. Fylgist með höfundin-
um Sarkies í framtíðinni.
Fucking Ámál/Árans Ámál
★★★%
Einfaldlega með betri myndum
um líf og raunir unglinga. Allt í
senn átakanleg, trúverðug og góð
skemmtun. Stúlkumar tvær vinna
kláran leiksigur.
Risinn sigraður/Kill the Man
★★%
Lúmskt fyndin gamanmynd sem
setur Davíð og Golíat-minnið inn í
nútímaviðskiptaumhverfí. Nokkrir
frábærir brandarar gefa myndinni
gildi.
Ég gerði það ekki/
C’est pas ma faute ★★%
Vönduð og skemmtileg barna-
mynd sem lýsir ævintýrum óheilla-
krákunnar Martins og leikfélaga
hans.
RK0 281
★★★
Afar fagmannlega gerð mynd
um meintar tilraunir blaðakóngs-
ins Wilhams Randolphs Hearst til
að koma í veg fyrir gerð meistara-
verksins Citizen Kane.
Snaran/Noose
★★V4
Nokkuð sterkt lítið glæpadrama
um átök meðal írskættaðra smá-
krimma í Boston. Denis Leary er
sterkur.
Uppljóstrarinn/THe Insider
★★★★
Michael Mann hefur náð ótrú-
legum tökum á sérstæðum stíl sín-
um og skilar sinni bestu mynd til
þessa. íréttlátum heimi hefðiþessi
sópað að sér Oskarsverðlaununum
- og öllum hinum líka.
Magnólía/Magnolia
★★★★
Mikið og magnað snilldarverk
Phils Thomas Anderson sem rök-
styður með árangursríkum hætti
aðílífínu séu cngar tilvHjanir. Tom
Cruise fer fyrir hópi frábærra leik-
ara.
Réttlátur maður/
A Reasonable Man
★★★
AldeiUs óvænt og áhugavert
réttardrama frá Suður-Afríku og
raun löngu tímabært uppgjör við
Funny People og Gods Must Be
Crazy-böm aðskilnaðarstefnunn-
ar. Pessa verður að leigja.
•Jim Carrey sýnir magnaðan
leik í Man on the Moon.
Stúlkan úr borginni/Xiu Xiu:
The Sent Down Girl
★★★
Stúlkan úr borginni er mögnuð
harmsaga sem gerist á tímum
menningarbyltingarinnar í Kína.
Töfrar/Paljas
★★%
Lágstemmd og rólyndisleg suð-
urafrísk kvikmynd sem byggir
smám saman upp hjartnæmt fjöl-
skyldudrama.
Greenwich-staðartími/
Greenwich Mean Time ★★%
ForvitnUeg mynd um gleði og
sorg í lífí nokkurra vina. Góð tón-
Ust kryddar myndina.
Efnalaugín/Nettoyage á sec
★★%
Bældar hvatir eru megininntak
þessa áhugaverða franska drama
um flókinn ástarþríhyming.
Herbergi handa Romeo Brass/A
Room for Romeo Brass
★★★
AldeUis fersk og skemmtileg
mynd frá hinum mjög svo athyglis-
verða Shane Meadows. OIúi öllum
öðmm á leigunum í dag.
Fíaskó ★★★%
Fíaskó er sérlega skemmtileg og
vel gerð íslensk gamanmynd með
hrollköldum undirtóni. Ragnar
Bragason á hrós skilið fyrir þessa
frumraun, sem og aðrir sem að
myndinni standa.
Berið út þá dauðu/Bringíng
Out the Dead ★★★★
Þessi myrka borgarmynd leik-
stjórans Martins Scorsese kaUast á
áhugaverðan hátt á við meistara-
verk hans Taxi Driver frá áttunda
áratugnum. Áhrifarík kvikmynd.
Amerísk fegurð/American
Beauty ★★★%
Hárbeitt, bráðskemmtileg og
ljóðræn könnun á bandarísku mið-
stéttarsamfélagi. Kevin Spaceyfer
á kostum.
Annars staðar en hér/
Anywhere But Here ★★★
Vel leikið drama um samskipti
mæðgna sem horfa gjörólíkum
augum á lífíð. Blessunarlega Jaus
við væmni, þökk sé leikstjóm
Waynes Wang.
Karlinn í tunglinu/
Man on the Moon ★★★%
Milos Forman bregður hér upp
sérlega Ufandi og áhugaverðri
mynd af grínistanum Andy Kauf-
man. Jim Carrey túlkar Kaufman
af mikUU Ust.
Vofan: Leið samúræjans/Ghost
Dog: The Way of the Samurai
★★%
Hvað gerist þegar lífsgildi sam-
úræjans eru heimfærð upp á harða
lífsbaráttuna í skuggahverfum
stórborgarinnar? Jim Jarmusch
kannar það i nýjustu mynd sinni.
Vígvöllur/War Zone ★★★
Atakanlega opinská lýsing áeinu
mesta böU samfélagsins. Enn og
aftur er Ray Winstone magnaður -
sem ogreyndar allir ímyndinni.
Aska Angelu/Angela’s Ashes
★★★
Yndislega Ijúfsár mynd um
eymdarleg uppvaxtarár Franks
McCourts í fátækrahverfí Limer-
ick á írlandi.
Skattmann/Taxman *★%
Gamansöm glæpamynd sem
kemur verulega á óvart, ekM síst
vegna hlýrrar kímnigáfu oggóðrar
persónusköpunar.
í Kina borða menn hunda/l Kina
spiser de hunde ★★%
Danir á Tarantino-slóðum.
Fersk og fcikikröftug en yfírgengi-
legar blóðsúthellingar menga út-
komuna.
Þrír kóngar/Three Kings ★★★%
Mögnuð kvikmyndagerð. A yfír-
borðinu hörkuhasarmynd en þegar
dýpra er kafað kemur fram hár-
beittur ádeUubroddur sem stingur.
Heiða Jóhannsdóttir
Ottó Geir Borg
Skarphéðinn Guðmundsson
Reuters
Er þetta hjónasvipur?
Draumafjöl-
skylda Jennifer
SJÓÐHEITA suður-ameríska
heilladísin Jennifer Lopez hyggur
senn á bameignir, en ekki fyrr en
glóir á gull á baugfingri.
„Ég er kominn á þann aldur að
mig langar í fjölskyldu," segir Jenni-
fer, „en alls ekki fyrr en ég er orðin
gift kona því annars myndu foreldr-
ar mínir gera út af við mig. Málið er
nú í höndum kærastans míns.“
Jennifer segir einnig að hún sé eins
skotin í Puffy sínum vegna þess að
þau eiga sama bakgrunn og dreymir
sömu stóru draumana. „Það halda
allir að að Puffy sé einhver harðjaxl
en þrátt fyrir alla vankanta sem
hann kannski hefur, þá er hann
draumamaðurinn minn.“
mitopa
Elskum^1%
óhikað
Segjum sei
við vímuefnaneyslu
barna og unglinga
www.islandaneiturlyfja.is
E-vítamín
er öflug vörn fyrír
frumur líkamans
n 6
iJUe
náttúrule§a!
ilsuhúsið
Skólavörðustíg, Kringlunni & Smáratorgi
flottir bolir og skyrtur
frá Ralph Lauren, Joráan o.fl
Leðurjakka frá 5.900 kr;• Leðurpils 3.900 kr.■
Leðurbuxur 3.900 kr.- Tískukápur frá 3.900 kr,-
Stretchbmr, gallabmr og margt fleira