Morgunblaðið - 17.09.2000, Page 56
56 SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Þórhallur Sverrisson leikur aðalhlutverkið í kvikmyndinni Islenska draumnum
Helgarpabb-
ar og draum-
óramenn
*
Islenski draumurinn er vinsælasta kvik-
myndin í bíóhúsum landsins þessa dagana.
Birgir Örn Steinarsson hitti Þórhall Sverr-
isson, aðalleikara myndarinnar, og spjallaði
m.a. við hann um helgarpabba, frumlegar
vinnuaðferðir og fótbolta.
OLL höfum við einhvem
tímann átt okkur draum
um það að búa í góðu hús-
næði, keyra um á flottum
bílum eða klasðast fínustu fotunum.
Þegar svo kemur að því stoppi á líf-
sleiðinni þar sem göngustígurinn
endar og hlaupabrautin tekur við,
þegar við áttum okkur á því að þessir
hlutir eru engan veginn sjálfgefnir,
verða viðbrögðin misjöfn.
Það eru til menn sem hita upp og
setja sig svo í startholurnar. Það eru
einnig til menn sem sjá sjarmann af
endamarkinu dofna og enn aðrir sem
ákveða að stíga af hlaupabrautinni
og halda röltinu áfram á sínum eigin
hraða. Hvort sem þeir eru sporfarar
eða fara áður ótroðnar slóðir. Þetta
er viðfangsefni kvikmyndarinnar ís-
lenski draumurinn eftir Róbert
Douglas en hann hefur margoft unn-
ið til verðlauna á Stuttmyndadögum
í Reykjavík.
Islenski draumurinn kemur eins
og ferskur blær inn í íslenskt kvik-
myndalíf því hún er ekki aðeins
frumraun leikstjórans við kvik-
myndagerð í fullri lengd, heldur not-
ast hún við nýjar vinnuaðferðir og
kynnir ný andlit.
Þórhallur er ekki Tóti
„Það er náttúrulega mjög margt
ólíkt með okkur,“ segir Þórhallur
Sverrisson, áður óþekktur leikari
sem fer með aðalhlutverkið í mynd-
inni. „Eg er t.d. ekki að gera mér
vonir um frægð og frama í viðskipt-
um. Eg er ekki helgarpabbi. Það er
ekkert að því þannig séð en bara með
því að vera héma þá upplifír maður
það að helmingur þjóðarinnar eru
helgarpabbar. Persónan mín er eins
konar „steríótýpa" af nútíma íslend-
ingi.“
Persóna Þórhalls í myndinni er
nefnd eftir honum. Það gerir það að
verkum að auðvelt er fyrir áhorfand-
ann að ímynda sér að persónugerð
leikarans svipi til persónu myndar-
innar. Staðreyndin er víst önnur.
„Hann er mjög tengdur mér með
því að heita sama nafni og ég. Enda
Þórhallur Sverrisson, alltaf í boltanum.
Morgunblaðið/Ami Sæberg
hef ég kallað hann Tóta en sjálfan
mig Þórhall svona til þess að aðskilja
okkur.“
Astæðan fyrir því að persóna Þór-
halls ber sama nafn og hann er af
öðrum og eldri toga.
„Eina leiðin til þess að leika hann
var bara að vera hann. Þegar við
gerðum stuttmyndina á sínum tíma
þá kom þessi persóna eiginlega upp
óboðin og strax nokkuð vel mótuð.
Það var bara eins og hann hafi viljað
koma fram.“
Stuttmyndin sem Þórhallur talar
um hét „Island er draumurinn“ og
var upphafsneistinn að kvikmynd-
inni. Hana gerðu þau Róbert Doug-
las og Ingibjörg Magnadóttir fyrir
Stuttmyndadaga. I þeirri mynd hétu
allar persónumar í höfuðið á þeim
leikurum sem léku þær.
„Það sem var sniðugt við það var
að áhorfendur vissu ekki hvort hún
var leikin eða raunveruleg," segir
Þórhallur.
Persónan sem braust út úr Þór-
halli í þeirri stuttmynd heillaði að-
standendur stuttmyndarinnar það
mikið að þeim fannst ástæða til þess
að framlengja ævidaga hennar yfir í
fulla kvikmyndalengd.
Nýjar vinnuaðferðir
Mikið var lagt upp úr því við gerð
myndarinnar að öll samtöl og við-
brögð yrðu sem eðlilegust. Til að ná
því fram notaðist Róbert Douglas við
allsérstæða vinnuaðferð. Þar fengu
leikaramir að leggja persónum sín-
um orð í munn. Atburðarásin var
lyrir fram ákveðin án þess að búið
væri að skrifa niður nákvæmlega
hvað hver ætti að segja. Þannig að
þegar Tóti fer inn í sjoppu í mynd-
inni í þeim tilgangi að reyna að selja
vöra sína var Þórhallur í raun og
vera sendur inn í sjoppu með fyrir-
mælum leikstjórans um að haga sér
eins og raunveralegur sölumaður.
Það kom jafnvel fyrir nokkram sinn-
um að afgreiðslufólkið fékk engan
fyrirvara um komu myndatöku-
mannsins eða leikarans.
„Það var reynt að fá eðlilegt flæði,
íslenskan átti að vera eins og hún er
töluð í dag.“
Þórhallur og blaðamaður vora
sammála því að leikstjóranum hafði
tekist með þessari vinnuaðferð að
færa persónumar nær raunveraleik-
anum.
„Þegar leikstjóri er að reyna koma
því nákvæmlega inn í leikarann
hvernig er best að koma einhverju til
skila getur eitthvað tapast á leiðinni.
Það er líka alltaf erfitt ef einhver
segir þér nákvæmlega hvemig þú átt
að vera. Þá verða leikaramir
kannski stressaðir. Þú ert kannski
Maestro ÞITT FÉ HVAR SEM ÞÚ ERT
VILT ÞU BESTU FRAMKÖLLUNINA?
Fujifilm Ijósmyndapappír endist 334% lengur en sá næst besti
IIFUJI FRAMKOLLUN
UM LAND ALLT
Ljósmyndavörur, Skipholti 31 • Úlfarsfell, Hagamel 67 • Barna og fjölskylduljósmyndir, Núpalind 1 • Ljósmyndastofa Grafarvogs • Framköllun Mosfellsbæjar* Framköllunarþjónustan, Borgarnesi
Ljósmyndavörur, Akureyri • Myndsmiðjan, Egilsstöðum • Ljósey, Höfn • Filmverk, Selfossi • Fótó, Vestmannaeyjum • Geirseyrarbúðin, Patreksfirði • Myndastofan, Sauðárkróki.
mmmm