Morgunblaðið - 17.09.2000, Qupperneq 58
58 SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Ljósmyndaskóli
Sissu
Ný
námskeiö
aö
hefjast
sími 562-0623
www.simnet.is/
Ijosmyndaskoli.sissa
Veldu fjóra!
Regnbogaskírteini Sinfóníunnar er máliö.
Fernirtónleikar að eigin vali með finum afslætti.
Fáðu þér Regnbogaskírteini og sætið er tryggt.
SINFÓNÍAN
Munið námsmannaafsláttinn
- miöar á hálfvirði samdægurs
Háskólabíó v/Hagatorg
Slmi 545 2500
www.sinfonia.is
"WID® BUE«SÍ*
“aMRMwtDtHtw.
♦ •*■*•**
ft«”'»9enankutstifterf
%r et
"Wmást 50«
m PttSbK."
1
Á myndbandi 19. september
ÆGISSÍDU 123
.1X1: S51-929Z
NÚPAUND 1 KÓP.
LAUGAVEGUR 184
flMþ S52-8333
MOSFELLSBÆ
FURUGRUND 3 KÓP.
SÍW) 584-1817
*MR SEIfl NÝJUSTU MYNDIRNAR FÁST“
Kynning á nýju haust- og
vetrarlitunum LÉGENDE
BOURJOIS
i 9 m VT§ 4f®li P 4
FÓLK í FRÉTTUM
Gyðjum líkar
glæsimeyjar
TÍMIMEYJUNNAR er
senn liðinn þetta árið en
þær fara samt ekkert þegj-
andi og hljóðalaust stúlk-
umar því nokkrar feg-
urstu gyðjur hvíta
tjaldsins eru einmitt fædd-
ar í meyjarmerkinu.
Leikkonan Jada Pinkett
verður tuttuguogníu ára á
morgun en hún er líklega
frægari fyrir að vera kon-
an hans Will Smith heldur
en fyrir kvikmyndaafrek-
in. Hjónakornin eiga af-
mæli í sömu vikunni og
ganga því kannski milli-
veginn og halda sameigin-
lega upp á afmælin sín.
Will er fæddur 25. septem-
ber 1968 og er því rétt á
merkjamótunum en vogar-
skálin hallar örlítið lengra
í haustátt og því er piltur
vog. Meyjan vill hafa báðar
fætur kirfílega á jörðinni
og á því stundum erfitt
með að skilja loftkennda
draumóra vogarinnar sem
hefur höfuðið langt uppi í
skýjunum. Þeim Jadu og
Will virðist þrátt fyrir
þennan grundvallar-
persónugerðarmun ganga
vel í hjónabandinu og er
Jada nú ófrisk að öðru
barni þeirra hjóna.
Átjánda september 1905
fæddist svo í Stokkhólmi
ein só kvikmyndastjarna
sem skærast skein en
hrapaði fljótt af stjörnu-
himninum að cigin ósk og
áætlan. Þetta var Greta
Lovisa Gustafsson sem síð-
ar á lífsleiðinni tók upp
listamannsnafnið Greta
Garbo. Andlit hennar var
svo undurfrítt að fólk
heillaðist samstundis af
henni og kvikmyndahúsin
fylltust af aðdáendum sem
þyrsti í næstum yfir-
náttúrulega fegurð henn-
ar. Frægðin heillaði samt
aldrei og Garbo yfirgaf
glysheiminn án eftirsjár
og settist að í New York
þar sem hón sinnti garð-
yrkju fjarri augum for-
vitinna aðdáenda sem
fengu aldrei nóg af Gretu
sinni, konunni með sorg-
mæddu augun og fjarhega
fasið. Garbo lést 15. apríl
1990.
Kattareygða, ftalska of-
urskutlan Sophia Loran
verður 66 ára á þriðjudag.
Sophiu verður seint lýst
sem feiminni, jarð-
bundinni meyju þvi sterk
útgeislun hennar og ógr-
ynnin öll af næstum geis-
lavirkum kynþokka gera
það að verkum að karl-
menn á öllum aldri fá fiðr-
ing í tærnar og fleiri staði þegar
þeir sjá drottninguna. Sophia hefur
samt alltaf látið sér nægja að brosa
kankvislega til vonbiðlanna því hún
á sér mann og maðurinn er hann
Carlo Ponti, lítill og sköllóttur og
meira en tuttugu árum eldri en eig-
inkonan. Sophia var bara stelpuk-
ind þegar hún hitti Ponti fyrst, en
örlögin (eða fjárfúlgurnar hans
Ponti) voru búin að gera upp hug
sinn og kirkjuklukkumar hringdu
inn hjónabandssáttmálann. Lífið
hefur ekki alltaf verið dans á rósum
hjá gyðjunni en hún hefur glansað í
gegnum alla erfiðleika, jafnvel þeg-
ar hún eyddi nótt í ítölsku fangelsi
hér um árið vegna vangoldinna
Reuters
Jada Pinkett
skatta. Svo margir tónlistarmenn
og leikarar eiga afmæii 21. septem-
ber að við fyrstu sýn virðist eins og
listinn sé nafnakall á risastórri tónl-
istarhátið eða árshátíð kvikmynda-
vers. Liam Gallagher verður 28,
Leonard Cohen 66, sveitasöngkon-
an Faith Hill 88. Dallashrellirinn
Larry Hagman verður 69, Ethan
Coenbróðir 43, Bill Murray fimmt-
ugur og Ricky Lake 32 ára. Degi
siðar verður ástralski öndvegis-
maðurinn Nick Cave 43. og spænski
ástríðublossinn Julio Iglesias fagn-
ar 57 ára afmæli f faðmi fagurra
fijóða eins og hans er von og visa.