Morgunblaðið - 17.09.2000, Síða 64
V fÐSKIPTAH UCBÚN AÐUR
A HEIMSMÆUKVARÐA
SAP
r
NÝHERJI
S: 569 7700
w PÓSTURINN
Einn heimur - eitt dreifikerfi!
VAVvv@postur.is j§
MORG UNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Forystumenn kennarasamtakanna á kjaramálaráðstefnu í Reykjavfk í gær
, Hagurallra
að kjör kenn-
ara verði bætt
FORYSTUMENN kennararsam-
takanna lögðu á það mikla áherslu,
á kjaramálaráðstefnu Kennarasam-
bands íslands í gær, að óhjákvæmi-
legt væri að kjör kennara í landinu
yrðu bætt. Það væri hagur allra að
laun kennara yrðu bætt enda væri
mikilvægt fyrir allt þjóðfélagið að
^góðir kennarar fengjust til starfa.
Eiríkur Jónsson, formaður KÍ,
sagði að þrátt fyrir góð orð ráða-
manna á tyllidögum um mikilvægi
skólastarfs virtust viðsemjendur
æði oft hafa það markmið eitt að
draga lappirnar þegar kæmi að
launaviðræðum við kennara.
Eiríkur sagði það óviðunandi
ástand að við upphaf hvers skólaárs
þyrftu skólastjórar að hafa úti öll
veiðarfæri til að reyna að ráða
kennara til starfa. Benti hann á að
fcáhyggjur í ráðningarmálum væi-u
ekki einkamál skólanna, það skap-
aði verulega óvissu fyrir nemendur
og foreldra þegar útlit væri fyrir að
enginn fengist til að kenna bömun-
um.
Fleiri lögðu áherslu á samlegðar-
áhrif þess að kennurum væru
greidd sómasamleg laun. Guðrún
Ebba Olafsdóttir, formaður Félags
grunnskólakennara, gerði það m.a.
að umtalsefni að það væri hagur
allra að kjör kennara yrðu bætt.
Sagðist Guðrún Ebba oft spurð að
því hvort til verkfalls kennara
myndi koma nú í haust. Hún svaraði
því iðulega til að hún vonaði ekki.
„Ekki vegna þess að ég haldi ekki
að það verði samþykkt í allsherjar-
atkvæðagreiðslu," sagði hún. „Ég er
sannfærð um að við fengjum nánast
100% þátttöku og 100% já. Og við
eigum digran vinnudeilusjóð sem
getur haldið okkur lengi í verkfalli."
Hins vegar kæmi þetta einungis
til ef fulltrúar í launanefnd sveitar-
félaga héldu til streitu því sem kalla
mætti þráhyggju varðandi breyt-
ingar á vinnutímanum með það að
yfirlýstu markmiði að ná meiri
kennslu út úr kennurum og afnema
kennsluafsláttinn.
Þarf meðvitandi
pólitiska ákvörðun
Elna Katrín Jónsdóttir, formaður
Félags framhaldsskólakennara og
varaformaður KÍ, brýndi kennara
einnig áfram, en samningar aðildar-
manna í Félagi framhaldsskóla-
kennara eru lausir 1. október. Hún
sagði að í komandi samningagerð
þyrfti alvöru samstarf milli samn-
ingsaðila um skilgreind viðfangs-
efni, víðtæka upplýsingagjöf og
þátttöku meðal almennings í land-
inu.
„En mest af öllu þarf þó meðvit-
aða pólitíska ákvörðun um það að
fjármagna nýja kennarasamninga
sem færa okkur laun og kjör sem
eru líkleg til þess að unga fólkið vilji
koma inn í skólana, og þeir, sem
eldri eru, vilji vera þar,“ sagði Elna
Katrín.
Morgunblaðið/Golli
Fjölmenni var á kjaramálaráðstefnu Kennarasambandsins í gær.
Rannsókn á þunglyndissjúkdómum
300 þúsund vinnu
stundir tapast
Norskt fyrirtæki byrjar rafræn viðskipti með
físk og ætlar sér storan hlut í Evrópumarkaði
Hyggst opna skrif-
stofu hér á landi
INÝRRI rannsókn Tinnu Trausta-
dóttur lyfjafræðings kemur fram að
um 300 þúsund vinnudagar tapast
árlega vegna þunglyndissjúkdóma
hér á landi. Beinn og óbeinn kostn-
aður samfélagsins vegna þunglynd-
issjúkdóma er a.m.k. sex milljarðar
króna, að mati Tinnu.
T Tinna, sem lauk kandídatsprófi í
lyljafræði við Háskóla Islands sl.
vor, Iagði spurningalista fyrir 2.000
Islendinga sem fæddir voru á ár-
unum 1973-1980. Niðurstaðan var
sú að 17,2% ungs fólks hefðu fundið
fyrir þunglyndisröskunum. Hlut-
fallið var heldur hærra meðal
kvenna en karla. 4% höfðu notað
þunglyndislyf, sem er tífalt hærra
hlutfall en í rannsókn frá 1984.
47% þátttakenda sögðust hafa
fundið fyrir sjálfsvígshugsunum og
rúmlega 5% höfðu reynt að stytta
sér aldur. I rannsókninni kemur
fram að samband er á milli þung-
lyndisraskana og áfengis- og vímu-
efnaneyslu.
■ Rétt greining/20
HÓPUR stórra fyrirtækja í norsk-
um fiskiðnaði hefur tekið höndum
saman um stofnun fiskmarkaðar á
Netinu. Starfsemin er að hefjast
og gera áætlanir ráð fyrir að við-
skipti verði við íslenska fiskfram-
leiðendur og útflytjendur. Frá
stofnun þessa fyrirtækis var ný-
lega greint í Financial Times.
Alexander Woxen hjá fyrirtæk-
inu Growth Factory í Noregi, en
hann er einn af forsvarsmönnum
FishMarket, eins og netfiskmark-
aðurinn heitir, segir að FishMark-
et eigi að verða leiðandi í sölu á
fiski í Evrópu. Einnig verði horft
til markaða í Ameríku og Asíu.
Undanfarið hafa verið gerðir
samningar milli fiskkaupenda og
-seljenda og er samanlögð velta
fyrirtækja sem hlut eiga að máli
um 144 milljarðar ÍSK. Meðal selj-
enda er Hydro Seafood, stærsti
framleiðandi á eldislaxi í Noregi,
og meðal kaupenda er fyrirtækið
Pieters í Belgíu, samkvæmt því
sem fram kemur í FT. Meðal
þeirra sem standa að fyrirtækinu
eru Jan Henry T. Olsen, fyrrver-
andi sjávarútvegsráðherra í Nor-
egi.
Woxen segir að ráðgert sé að
opna skrifstofu á Islandi innan tíð-
ar en nú þegar eru komnar upp
skrifstofur í Björgvin og Ósló. „Við
erum að reyna að koma á tengsl-
um við íslenska markaðinn, annað-
hvort beint við íslenska fiskútflytj-
endur eða sjávarútvegsfyrirtækin
sjálf. Saman gætum við markaðs-
sett sjávarafurðir úr Norður-
Atlantshafi á evrópskan og alþjóð-
legan markað. Við gerum ráð fyrir
því að einkum verði seldur frosinn
fiskur frá íslandi en aðallega
ferskur fiskur frá Noregi.
Saman eru Noregur og Island
stærstu fiskútflytjendur á markað
Evrópusambandsins. Bæði norskir
og íslenskir fiskútflytjendur eru
framarlega á sviði sölumála og
þetta er afar mikilvægt vegna þess
að í mörgum Evrópuríkjunum er
sú staða að koma upp að kaupend-
ur hafa tekið saman höndum og
skapað sér góða vígstöðu við kaup
á fiski og landbúnaðarafurðum.
Það er mikilvægt að þama náist
betra jafnvægi milli kaupenda og
seljenda,“ segir Woxen.
Hann var hér á landi í vikunni
til að kynna þessa nýju söluaðferð
og koma á tengslum við íslensk
fyrirtæki. Engin viðbrögð hafa enn
borist frá íslenskum sjávarútvegs-
fyrirtækjum, að sögn Woxens,
enda segir hann að nú sé verið að
þróa fyrirtækið og kynna starf-
semina.
í frétt á heimasíðu FishMarket
segir að fyrirtækið muni draga úr
kostnaði við sölu og markaðssetn-
ingu afurða og bæta markaðssetn-
inguna með betri tengslum við
seljendur og kaupendur. Mikil
hagkvæmni sé jafnframt fólgin í
rafrænum aðferðum við pantanir,
skráningu og bókhald.
Bestu ár Irfsþíns...
www. namsmannalinan. is
Geisladiskataska 3 Skipulagsmappa 1 Penni
Námsmannalínudebetkort 3 Bilprófsstyrkir
Námsmannalínureikningur 3 Netklúbbur
Framfærslulán 3 Lægri yfirdráttarvextir
Námsstyrkir 3 Námslokalán 3 Tölvukaupalán
ISIC afsláttarkort 3 Heimilisbankinn
@B0NAÐARBANKINN