Morgunblaðið - 17.09.2000, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 17.09.2000, Qupperneq 4
4 B SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ BROTLENT á Báróarfoungu Um þessar mundir eru 50 ár liðin frá því að Geysir, millilandaflugvél Loftleiða, brotlenti á Vatnajökli, meö sex manna áhöfn, sem öll lifði af þótt ótrúlegt megi heita. Leitin sem þá fór af stað mun vera sú umfangsmesta sem gerö hefur verið á og við ísland, fyrr og síóar, og markaöi slysið tímamót í sögu björgunarmála á íslandi. Sigurður Ægisson rifjar hér upp þessa sögu, sem hefur verið kölluð „eitthvert undarlegasta og stórbrotn- asta ævintýri, sem þjóðin hefur lifað“. í UPPHAFI er þó rétt að kanna bakgrunninn, til að átta sig betur á þeim atburði sem um ræðir. Um þetta leyti voru tvö flugfélög starfandi í landinu. Annað er Flugfé- lag Islands, endurskipulagt árið 1940 upp úr Flugfélagi Akureyrar, sem hafði verið stofnað árið 1937. Hitt er Loftleiðir, sem stofnað hafði verið 1944. Millilandaflug hófst á íslandi þeg- ar heimsstyrjöldinni síðari lauk, og átti fyrsta ferðin sér stað 11. júlí 1945. Flogið var frá Reylqavík til Largs Bay í Skotlandi og var far- kosturinn Catalina-flugbátur Flug- félags íslands, TF-ISP. Sú flugvéla- gerð var hins vegar ekki talin heppileg til millilandaflugs, svo að félagið tók árið 1946 á leigu þrjár flugvélar af gerðinni Liberator B-24 af skosku flugfélagi. Þetta voru fyrr- verandi sprengjuflugvélar, en nú út- búnar farþegasætum. Geysir kemur til landsins Hitt íslenska flugfélagið, Loftleið- ir, hugði einnig á millilandaflug og keypti í því skyni árið 1947 flugvél af gerðinni Skymaster DC-4 (öðru nafni C-54), sem hlaut nafnið Hekla. Hófust nú áætlunarferðir til Norður- landa, með viðkomu á Bretlandseyj- um. í júnílok árið 1948 keyptu svo Loftleiðir þá flugvél, sem átti eftir að enda ævi sína á hábungu Vatnajök- uls, 14. september 1950. Það var Geysir. Hún var sömu gerðar og Hekla, en smíðuð árið 1944 og tók í fyrsta skipti á loft 10. desember það ár. Var hún því yngsta millilanda- flugvél Islendinga. Hún var keypt í Oakland í Kaliformu, af bandaríska flugfélaginu Transoeean Airlines. Bandaríkjaher hafði átt hana þar á undan, hafði eignast hana nýja, 22. desember 1944. Geysir kom til íslands 8. júh' 1948. í endaðan ágúst 1948 fór hann í fyrsta íslenska áætlunarflugið til Ameríku, fullskipaður farþegum. Áfangastaður var New York, en millilent á Gander á Nýfundnalandi. Leigður bandarísku flugfélagi í mars árið 1950 felldi íslenska rík- isstjórnin gengið um 42,6% og dró þá mjög úr flugstarfsemi Loftleiða vegna gjaldeyriserfiðleika; skulda- byrðin varð yfirþyrmandi og dagleg- ur skortur á rekstrarfé. Var þá ekki um annað að ræða en leggja Heklu, því menn höfðu ekki handbært fé til að láta gera á henni lögboðna aðal- skoðun. Fyrsta millilandaflugvél Loftleiða beið því í aðgerðaleysi í meira en hálft ár, af þessum sökum. Um haustið 1950 komust Loftleiðir að samkomulagi við bandaríska vöruflutningafélagið Seaboard & Westem um að sjá um lögboðna að- alskoðun og gera jafnframt umtals- verðar breytingar á flugvélinni, og skyldi allur kostnaður greiðast með leigu Heklu til bandaríska flugfé- lagsins. Litlu síðar er ákveðið að leggja niður um sinn allt millilandaflug Loftleiða og fer því eins fyrir Geysi og Heklu, að vélin er leigð Seaboard & Westem, með áhöfn. Aðfaranótt 14. september 1950 hélt Geysir frá íslandi og flaug til London, þar sem nokkrir farþegar stigu frá borði. Síðan var haldið áfram til Lúxemborgar og þar var flugvélin hlaðin. Farmm-inn var sitt lítið af hverju, vefnaðarvara, blúndu- slæður og silkihanskar, postulín, vél- arhlutir og margt fleira smálegt, ás- amt 18 lifandi hundum í rimlakössum; ennfremur var þar rammlegur trékassi úr óhefluðum viði, sem hafði að geyma líkkistu úr eik. Á málmplötu á loki hennar var skráð: Ester Perry, 1904-1950. Allt þetta átti að flytja vestur um haf, með viðkomu í Reykjavík. Þetta var fyrsta ferð Geysis á vegum Seaboard & Westem. Ahafnarmeðlimir voru Magnús Guðmundsson flugstjóri, Dagfinnur Stefánsson flugmaður, Einar Runólfsson vélamaður, Guð- mundur Sívertsen loftsiglingafræð- ingur, Bolli Gunnarsson loftskeyta- maður og Ingigerður Karlsdóttir flugfreyja. Ferðin örlagaríka Geysir lagði af stað frá Lúxem- borg kl. 16.30 að íslenskum tíma, fimmtudaginn 14. september 1950. Gert var ráð fyrir að fljúga aðeins austur af venjulegri leið, sem var norðvestur yfir North Ronaldsay á Orkneyjum, síðan norður yfir Fær- eyjar, þaðan beina stefnu á Island og yfir Vestmannaeyjar og til Reykja- víkur. Þar átti svo að taka eldsneyti og skipta um áhöfn, og átti Jóhannes Markússon að fljúga vélinni til áfangastaðar hennar í Bandaríkjun- um. Áætlaði Magnús flugstjóri að lenda í Reykjavík 10 mínútum eftir miðnætti, 15. september. Milli Fær- eyja og íslands var þá djúp lægð, og því mjög hvasst suðvestan, bæði við jörð og hátt í lofti. Eftir að komið var í nánd við Færeyjar var eðlilegt loft- skeyta- og talsamband við Geysi frá Reykjavíkurflugvelli. Kl. 21.30 taldi áhöfnin sig vera skammt frá Færeyj- um og allt var með felldu. Flogið var í 8.000 feta hæð og bjóst flugstjórinn við að koma til Reykjavíkur lítið eitt á undan áætlun. Kl. 22.25 kemur skeyti til flugmálastjórnarinnar í Reykjavík um áætlaðan komutíma kl. 23.30, eða 40 mínútum á undan áætlun. Kveðst flugstjórinn ætla að hafa samband við flugturninn kl. 23.10, þá verði flugvélin komin í nánd við Vestmannaeyjar. Úti var niða- myrkur og allmikil snjókoma, og töluverð ísing fór að hlaðast á flug- vélina. Um kl. 22.45 bað Magnús þá Dagfinn og Einar að koma afísingar- búnaðinum í gang. I þann mund tók Bolli að stilla loftskeytatæki sín og ætlaði að fara að kalla í flugturninn í Reykjavík og Guðmundur var byij- aður að reikna nýja staðarákvörðun. Þetta var á milli kl. 22.45 og 22.50. Þá er eins og Geysir verði fyrir risa- höggi, vinstri vængurinn rekst í eitt- hvað, vélin sviptist fyrst upp og stingst síðan fram á við. Hún virðist kastast langar leiðir, þungur dynur hreyflanna hljóðnar og þögnin tekur við. Neyðarástandi lýst yfir Kl. 22.52 sendi flugturninn í Reykjavík eftirfarandi skeyti til Geysis: „Fljúgið í 8.000 fetum á loft- þrýstingi 2844 tommmur. Látið okk- Atburðarásin í réttri tímaröð í septeffiter 1950 Umkl. 16.30: Ceysir hefur sig til flugs frá Luxemborg. ' /s Um ki. 17.30: Geysir yfir Amsterdam. Um kí. 20.30: Áhöfnin telur sig vera yfir Færeyjum. Um kl. 21.00: Vélin kemur inn á íslenskt flugstiórnarsvæði. KÍ. 22.2S: Geysismenn kalla flugturn í ReyKjavík og áætla að verða yfir Vestmannaeyjum kl. 23.10, og í Reykjavík 23.30. Um kl. 22.30: Menn í Papey og Álftafirði heyra fluqvélardyn. Sextán ára piltur á Geithellnum sér flugvélarljós. Um kl. 22.50: Geysir brotlendir á Vatnajökli (Bárðarbungu i Dyngjujökli). Þá er hríðarveður og 10 vindstig. Kl. 00.05: Lýst yfir neyðarástandi vegna TF-RVC (kallmerki Geysis og einkennisstafir). Kl. 00.53: Ein flugvéla bandaríska hersins á Keflavíkurflugvelli hefur leitarflug. Um svipað leyti: Menn frá Kirkjubæjarklaustri farnir af stað til að leita á söndunum. Aðrir á þeim slóðum fara í kiölfarið. Kl. 02.13: Catalina-flugbáturinn Vestfirðingur hefur leit. Um kl. 04.00: Fregnin um hvarf Geysis berst tií Hornafjarðar. Menn þaðan hefja leit strax í birtingu, á sjó og landi. Um morgun: Alls 11 flugvélar farnar til leitar, atta íslenskar op þrjár frá hernum á Keflavíkurflugvelli. Bóndinn á Starmyri í Alftafirði lætur flupturninn í Reykjavík vita af flugvélardyninum kvöldið aður. Litlu seinna beðinn um að manna leitarflokk inn Álftafjörð og upp, sem hann og gerir. Lónbúar fara einnig af stað, og eins menn í Öræfum op Suðursveit. Sömuleiðis leitað um fjalllendið vestan jökulsár í Fljótsdal allt suður að jaðri Vatnajökuls ocj þar um kring. Átta Reykvíkingar a fjórum vel útbúnum jeppum, en veðurtepptir í Gæsavötnum, heyra í útvarpi um hvarf Geysis. Um miðjan dag: Menn fra Geithellnum og Múla fara til leitar um Geithellnadal og Múlafjallgarðinn vestan hans. Um kl. 18.00: Menn frá Djúpavogi leita um Hamarsdal og fjöllin í grennd. Um kvöld: Reykvíkingamir ákveða að halda til byggða og bjóða fram aðstoð við frekari leit. 17» Um morgun: Halda áleiðis að Mýri í Bárðardal. Ferðin tekur allan daginn. áÉi Um hádegi: Koma að Mýri. Ná sambandi við flugturninn í Reykjavík. Slæmt símasamband, en boðið þegið. Beðnir um að undirbúa sig undir ferð og leit í Dyngjufjöllum. Upp úr hádegi: Loftskeytamaðurinn á varoskipinu Ægi, sem þá er statt út af Skálum á Langanesi, nær merkjasendingu Geysismanna. Um miðjan dag: Reykvíkingarnir koma að Fosshóli í Bárðardal. Sjö úr hópnum fara til Akureyrar að sækja vistir og láta smyrja bílana, en einn leiðangursmanna, Þórarinn Björnsson, verður eftir í Fosshóli. Hefur aftur samband við flugturn. Fyrri beiðni staðfest. Áætlað að leggja af stað daginn eftir. Kl. 16.30: Þórarinn Björnsson heyrir að Geysir sé ekki í Dyngjufjöllum, heldur í Dyngjujökli. Lætur félaga sína vita. Kl. 16.43: Catalina-fíugbáturinn Vestfirðingur tilkynnir að Geysir sé fundinn og allir á lífi. Litlu síðar: Akureyringar beðnir um að undirbúa leiðangur. Reykvíkingarnir bjóða fram aðstoð sína. Hún þegin. Um kl. 20.30: Reykvíkingarnir sjö ieggia af stað frá Akureyri á jeppunum fjórum og koma i Fosshól í Bároardal um kl. 21.30. Um kl. 21.00: Fimmtán Akureyringar á fimm jeppum oq einum vörubíl leggja af stað frá Akureyri. Koma í Fosshol um kl. 22.00. Um mlðnætti: Leiðangursmennirnir 23 koma í Reykjahlíð. Kl. 05.15: Leiðangursmennimir halda af stað frá Reykjahlíð og fara þaðan eystri leið upp eftir, yfir Lindaá. Kl. 10.00: Áð í Herðubreiðarlindum. Litlu síðar haldið inn að Urðarhálsi. Kl. 13.30: Komnir að Vaðöldu. Um kl. 17.00: Komnir í Kistufellskrika. Kl. 18.08: Skíðaflugvél Bandarikjahers lent á jöklinum. Um kvöld: Leiðangursmenn frétta að búið sé að bjarga áhöfninni, en þeir samt beðnir um að halda áfram og bjarga verðmætum farmi. Um kl. 04.00: Átta Akureyringar og einn Reykvíkingur halda áfram för upp á *** jökulinn. Um kl. 13.00: Leiðangursmenn sjá bandarísku flugvélina. Um kl. 14.00: Leiðangursmenn koma að flaki Geysis. Um kl. 16.00: Björgunarflugið hefur misheppnast, skíðaflugvélin ekki náðst á loft. Mennleggja gangandi af stað heimleiðis. Bandarísku flugmennirnir verða eftir. Um kl. 17.00: Beiðni um að senda tvo menn til baka og fylgja bandarfsku flupmönnunum niður af jöklinum. Það er gert. Um kl. 18.00: Tvímenningarnir við flak Geysis öðru sinni. Um kl. 19.00: Tvímenningarnir og bandarisku flugmennirnir leggja af stað niðurafjöklinum. Um kl. 00.10: Fyrsti hópur (áhöfn Geysis (nema Ingigerður), Sigurður jónsson og einn Akurevringur) kemur í tjaldbúðirnar við Kistufell. Um kl. 04.00: Annar hópur (sex Akureyringar og Ingigerður) kemur í tjaldbúðirnarvið Kistufell. Um kl. 06.00: Þriðji hópur (tvímenningarnir og bandarísku flugmennirnir þnr) kemur niður í tjaldbúðirnar. Um kl. 07.00: Fjórir Reykvíkingar, sem hafa farið með sleða úr tjaldbúðunum að sækia farangur áhafnar Geysis, sem var í kvos sunnan Kistufeíls, koma til baka og eru síðastir af jökli. Umkl. 08.00: Lagt af stað til bygqða. Um kl. 09.00: Tvær flugvélar lenda í uppþornuðum árfarvegi jökulsár, norðan við Urðarháls. Um kl. 10.00 Áhöfn Geysis flogið til Reykjavíkur, en aðrir leggja af stað akandi heim. Um kl. 11.00: Áhöfn Geysis komin til Reykjavíkur. Um kl. 16.00: Hinn sameiginlegi björgunarleiðanqur Akureyringa og Reykvíkinqa kominn f Herðubreiðarlindir. Umkl. 01.30: Akureyri. ur vita þegar þið eruð yfir Vest- mannaeyjum." Þegar Geysir svaraði ekki eftir ítrekuð boð, varð mönnum Ijóst að eitthvað hafði komið fyrir. I fyrstu var talið að senditæki flugvél- arinnar hefðu bilað. í þeirri von að móttökutækin væru í lagi, tók flug- tuminn að senda út blint, þ.e. að senda með jöfnu millibili veðurskeyti og upplýsingar um flugskilyrði. Jafnframt hóf útvarpsstöðin á Vatnsenda að senda stöðugan tón, ef vera kynni að flugvélin gæti miðað sig eftir honum. Þannig liðu mínút- urnar ein af annarri, án þess að nokkuð spyrðist til Geysis. Nokkrum mínútum eftir miðnætti, fostudaginn 15. september, þótti sýnt, að eitt- hvert slys hefði hent Geysi og var nú lýst yfir neyðarástandi á flugleið vél- arinnar og öllum flugumferðarstöðv- um við norðanvert Atlantshaf til- kynnt um hvarf hennar. Víðtæk leit hafin Björgunarflugvél frá Keflavíkur- flugvelli varð fyrst til að hefja leitar- flug; það var kl. 00.53. Um svipað leyti var flokkur manna frá Kirkju- bæjarklaustri lagður af stað til leitar niður á sanda, en landssímastöðin hafði fljótlega upp úr miðnætti verið beðin að reyna að vekja upp á sím- stöðvum á suður- og suðaustur- strönd landsins til að biðja um að senda út leitarflokka. Kl. 02.13 fer svo Catalina-flugbátur Loftleiða í loftið, með þeirri áhöfn, sem átti að taka við af áhöfn Geysis og fljúga áleiðis til New York. Nokkru á eftir Vestfirðingi eru Gullfaxi og aðrar flugvélar byrjaðar leit. Upp úr því eru fjölmargir leitarflokkar komir af stað víða, og þau skip sem stödd eru á hafinu á því svæði, sem talið var að Geysir hefði verið, eru beðin um að svipast um eftir vélinni. Menn vissu að Geysir hafði eldsneyti, sem nægja átti til flugs til kl. 05.00, en flestir ótt- uðust þó að vélin hefði farist. Og þeg- ar umræddur tími rann út, þótti aug- ljóst að flugvélin gat ekki verið á lofti, og jafnframt talið líklegast, að Geysir hefði annaðhvort hrapað í sjóinn eða rekist á fjall. í birtingu fóru átta íslenskar flug- vélar af stað og þrjár björgunarvélar af Keflavíkurflugvelli. Veður var sæmilega bjart, en þoka yfir austan- verðu hálendinu og niður í hlíðar Vatnajökuls og því erflð leitarskil- yrði. Itarlegri flugleit varð því ekki komið við þar, en þess í stað leituðu menn á suðurströndinni, við hana og langt á haf út, alls 95 þúsund ferkíló- metra svæði, allt austur til Færeyja og þaðan 60 sjómílur suður af venju- legri flugleið til íslands og 100 sjó- mílur norður af eðlilegri flugleið. Á sama tíma og upp úr því og síðar eru enn fleiri leitarflokkar komnir af stað á landi til að ganga fjallasvæðin. Leitin stendur allan daginn, en án árangurs. Dynur í lofti Kvöldið sem Geysir týndist, þ.e. 14. september, töldu menn í Papey og á mörgum bæjum í Álftafirði eystra sig hafa heyrt í flugvél, og sextán ára drengur á Geithellnum, Ólafur Einarsson að nafni, taldi sig hafa séð bregða fyrir ljósglætu all- hátt í lofti, á að giska yfir miðjum botni Álftafjarðar, og kveðst hafa fylgt Ijósbjarmanum með augunum um stund. Þetta mun hafa verið um kl. 22.30. Þegar svo hvarf Geysis fréttist þar um morguninn, lætur El- ís Þórarinsson, bóndi á Starmýri, flugturninn í Reykjavík vita af þessu. Fannst mönnum syðra þetta ótrúlegt. Engin flugvél önnur átti að hafa verið á lofti á þessu svæði um- rætt kvöld, og hefði þetta verið Geysir, merkti það að hann hefði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.