Morgunblaðið - 17.09.2000, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 17.09.2000, Blaðsíða 20
2Q0 B0 SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ Billy Bob > gerir bíó- myndir Bandaríski leikarinn, leikstjórinn og handritshöfundurinn Billy Bob Thornton stendur í ströngu þessa dagana við gerð '•» bíómynda. Fyrsta myndin sem hann gerði var Sling Blade en síðan þá hefur vegur hans farið mjög vaxandi að sögn Arnaldar Indriðasonar, sem skoðar hvað Thornton er að fást við. Reuters Leikarinn Jon Voight (t.v.) gerir sig líklegan til að sraella kossi á kinn dóttur sinnar Angelina Jolie, sem gift er Billy Bob Thomton (t.h.). Angelina Jolie hefur dvalist á Islandi undanfarið vegna töku á nýrri kvikmynd. Billy Bob Thornton hefur tvívegis verið tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn. Hlaut verðlaunin eftirsóttu fyrir handrit myndarinnar „Sling Blade“ árið 1996. Billy Bob Thornton í Armageddon. max-kvikmyndafyrir- tækið gerði samning við Billy Bob um framleiðslu þriggja mynda á sínum tíma en Miramax sá fljótt að í leikstjórann var spunnið og keypti á sín- um tíma Sling Blade fyrir tíu millj- ónir dollara. Fyrir- tækið framleiðir ásamt Sony All the Pretty Horses, sem gerð er eftir sögu Cormac McCarthy, en að sögn banda- ríska kvikmynda- tímaritsins Prem- ieré þoldi Billy Bob ekki eftir- litskerfið sem fylgir gerð stórmynda á vegum kvik- myndaver- anna og hætti af- skiptum sínum af BILLY Bob er frá Arkans- as og ólst upp við fátækt í Suðurríkjunum og stund- aði ýmis störf áður en hann fékk áhuga á leiklist 28 ára gamall. Hann tók að þróa Karl Childers, hina treggáfuðu aðalpers- ónjr í Sling Blade, árið 1987 en það tók hann næstum áratug að fá myndina um hann gerða. I millitíð- inni lék Billy Bob í aumustu mynd- um á borð við Chopper Chicks in Zombietown en tók einnig þátt í gerð afbragðsmyndarinnar One False Move; skrifaði handritið við annan mann og fór með eitt aðal- hlutverkanna. Eftir að Sling Blade var frumsýnd og vann til óskar- sverðlauna fyrir handrit varð Billy Bob frægur á svipstundu í kvik- myndasamfélagi heimsins og síðan þÁfcefur hann verið í áberandi hlut- verkum í myndum á borð við Prim- ary Colors, Armageddon og A Simple Plan. Árekstrar Fljótlega á næsta ári verður frumsýnd myndin The Gift sem gerð er eftir handriti Billy Bob og segir frá konu með miðilshæfileika er aðstoðar lögregluna við leit að týndum kvenmanni. Hann gerði handritið ásamt gömlum vini og samstarfsmanni, Tom Epperson, en sagt er að móðir Billy Bob sé kunnur miðill í sínu héraði og byggir hann söguna nokkuð á hennar lífi (hún mun hafa séð það ívnlr til dæmis að sonur sinn ætti eftir að starfa með æskuhetju sinni, Burt Reynolds, og það rættist þeg- ar þeir léku saman í nokkrum þátt- um af Evening Shade!). Einnig hef- ur hann leikstýrt myndinni Daddy and Them með kærustunni sinni á þeim tíma, Laura Dern, í aðalhlut- verki (hann á mörg hjónabönd að baki og kvæntist nú síðast leikkon- unni Angelina Jolie í Las Vegas). Billy Bob hefur átt í nokkrum útistöðum við stóru kvikmyndaver- in vestra að undanförnu. Hann hef- ur hingað til verið það sem kallað er óháður kvikmyndagerðarmaður en Sony, eigandi Columbia/TriStar, fékk hann til þess að gera tvær stíýynyndir, annars vegar AU the Pretty Horses með Matt Damon í aðalhlutverki og The Shipping News, sem byggð er á Pulitzer - verðlaunasögu Annie Proulx, og átti Billy Bob einnig að fara með aðalhlutverkið í henni. Síðan hefur það gerst að vegna deilna við leik- stjórann hefur framleiðslan á AU the Pretty Horses tafist nokkuð og hann hætti á síðustu stundu við að stýra The Shipping News. Hann lenti fljótlega í árekstrum við yfirmenn Sony vegna hennar. Billy Bob vildi gera litla, ódýra mynd sem var meira í ætt við óháða bandaríska kvikmyndagerð en Hollywood-myndir. Kvikmynda- verið vildi hins vegar stór- mynd með stórstjörnum. Meg Ryan og Julia Roberts fóru á fund Billy Bobs vegna annars aðal- hlutverksins en hann vildi fremur fá kærustuna sína, Lauru, í myndina. Honum var bent á að það gengi ekki alltaf vel þegar sam- býlisfólk eða hjón ynnu við sömu myndina (Nicole Kidman og Tom Cruise í Eyes Wide Shut, Annet- te Bening og Warren Beat- ty í Love Affair). Einnig vildi hann notast við sitt eigið kvik- myndatök- ulið, menn sem höfðu unnið með honum áð- ur, en ef það átti að ganga upp hefði þurft að fresta fram- leiðslunni og Sony var nóg boðið. Skildu leiðir fljótlega eftir það. Mira- Billy Bob Thornton í hlutverki sínu í „U-Turn“. eftirvinnslu hennar. Sony hafði þá skipað honum að stytta myndina verulega en hann hafði gert hana þriggja tíma langa. Hann fór að leika í myndinni Wakin’ Up in Reno og skildi „Horses“ eftir í uppnámi. Sáttir náðust í málinu nokkru síðar, Billy Bob varð að gefa eftir, og er stefnt á frumsýningu í haust. „Ég fór í keilu eitt kvöldið og það endaði með giftingu,“ sagði Billy Bob einu sinni í viðtali um fyrsta af mörgum hjónaböndum sínum (þau eru fimm eða sex talsins). „Þetta var eitt af þeim tilfellum," bætti hann við. Það var árið 1975. Hann hætti háskólanámi í Arkansas og hélt að framtíðin lægi í rokkinu og ilutti til New York en það stóð stutt. Hann sneri heim aftur. Nokkrum árum síðar hélt hann ásamt vini sínum Tom Eppson til Los Angeles og fór um síðir að sækja leiklistarnámskeið. Hann hafði lítið á milli handanna og sagt er að hann hafi nær dáið úr nær- ingarskorti; lifði ekki á öðru en kartöflum. Enn sneri hann heim að safna kröftum en flutti aftur til Los Ang- eles og þá fóru hlutirnir að ganga betur fyrir sig. Hann fékk hlutverk í ódýrum trylli sem hét Hunter’s Blood. Hún fór reyndar beint á myndbandaleigurnar en fleiri ódýr- ar og lélegar myndir fylgdu í kjöl- farið og loks ein sæmileg, Maður- inn sem sleit þúsund keðjur. Við tökur á henni fór Billy Bob að þróa fyrst eins og upp úr þurru sveita- manninn trega Karl Childers, sem hann seinna lék í Sling Blade. Hann gerði nokkra leikþætti þar sem hann fór með hlutverk Karls og á sama tíma fór hann að fikta við handritsgerð og skrifaði ásamt öðr- um ágætt handritið í One False Move. Óstöðvandi Framleiðendur tóku að fá áhuga á Karl Childers sérstaklega eftir að Billy Bob gerði um hann stutt- mynd. Þeir báðu hann um að gera mynd um Karl í fullri lengd en Billy Bob tregaðist við. Hann sagði í viðtali á þeim tíma að hann hefði loks fallist á það „svo að verkefnið lenti ekki í höndunum á einhverjum leikstjóra með mikilmennskubrjá- læði“. Eins og kunnugt er vakti myndin gríðarlega athygli. Billy Bob hreppti óskarsverðlaun fyrir handritið og hann var ekki seinn á sér að nýta sér frægðina og hefur eiginlega verið óstöðvandi síðan, leikið í hverri myndinni á fætur annarri og undantekningarlaust hlotið góða dóma. Billy Bob er að íhuga að leik- stýra mynd hjá Miramax á næst- unni sem heitir Cindarella Man en hún fjallar um boxara og sagt er að bæði Brad Pitt og Nicolas Cage hafi áhuga á henni, auk Ben Affl- ecks. Hann sýndi á tímabili áhuga á að leikstýra The Gift en hann lét sér á endanum nægja að skrifa handritið og Sam Raimi gerðist á endanum leikstjóri myndarinnar. Með aðalhlutverkin fara Cate Blanchett, Hilary Swank og Giov- anni Ribisi. Þá er Universal-kvik- myndaverið að þróa gamanmynd fyi'ir Billy Bob og Matt Damon sem heitir Starker, Texas. Billy Bob Thornton er skemmti- leg og frískleg viðbót í kvikmynda- samfélagið í Hollywood. Hann hef- ur sett svip sinn á kvikmyndirnar að vestan þótt ekki hafi hann verið lengi að. Hann var t.d. óborganleg- ur sveitalubbi í spennumyndinni A Simple Plan; einnig sem bifvélavir- kinn í U-beygju Olivers Stones; sérlega reffilegur í Armageddon og líklega það besta við þá mynd, og fyndinn í hlutverki stjórnmálaráð- gjafa í Primary Colors. Verður fróðlegt að sjá hvað hann dregur upp úr hatti sínum í næstu mynd- um hvort sem hann er í hlutverki leikarans, leikstjórans eða hand- ritshöfundarins. Maestro ÞUT FÉ HVAR SEM ÞU ERT \ /

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.