Morgunblaðið - 17.09.2000, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 17.09.2000, Blaðsíða 12
12 B SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ 4 Atján eld á Strön Fimm knáir kajakræöarar reru meö Hornströndum, kveiktu átján elda og lögóu aö baki 160 km á sex dögum. Pétur Blöndal Gíslason skráói feróasöguna ogSpessi Ijósmyndari tók myndir í ævintýralandinu nyröra. ÞAÐ SKORTIR ekki eldivið á Ströndum. Þökk sé skóg- arhöggsmönnum nyrst í Rússlandi, og náttúrlega hafstraumum. í júlíbyrjun fórum við fímm félagar, undirritaður, Spessi ljósmyndari, Halldór Svein- bjömsson útgefandi, Baldur Pétursson stálsmiður og Eyþór Páll Hauksson prentari, í draumaferð kajakræðarans. Farið var frá Isafirði á miðjum mið- vikudegi. Homstrandaferjan Anna kom okkur fyrsta spölinn, eða í Hom- vik. Innst í Homvíldnni heitir Höfn og þar vomm við ferjaðir upp í sandinn með allt okkar hafurtask. Það fer alltaf góður tími í að pakka í bátana í upphafi. Framundan fimm til tíu daga ferðalag og markmiðið að komast allavega í Ingólfsfjörð á Ströndum. Það er ekki ólíklegt að hver bátur hafi mátt þiggja minnst 50 kg af farangri því í kajakferðum er lúxus. Ekkert þurrfæði. Það var milt veður, hægur andvari og þurrt. Vindur var nýgenginn niður og úti var hæg undiralda. Það var tals- verð spenna í hópnum að komast af stað því í fyrsta áfanga var sjálft Hombjargið með einhvem töfrahljóm í sjálfu nafninu. Það em straumar og rastir og brimkast og þverhnípt bjarg og milljónir fugla og það var að koma kvöld. Þegar dótið hafði íúndið sér leið ofan í lestir bátanna eða inn í þurrpoka á dekkinu, var dmkkinn bolli af espr- essó-kaffi meðan pappakassar og aðrar umbúðir brannu í fjömnni. Undir fæðukistu forfa'ðarinnar Kajakamir minntu helst á drekk- hlaðin loðnuskip þegar loks var ýtt á flot. Stemmningin sveif yfir Homvík- inni. Framundan tæpir 14 kílómetrar af bjargi, næsta landtaka hugsanlega í Látravík. Við remm út Homvíkina með stefnuna á Hom, vestasta hluta bjargsins. Þar er röst sém reyndist þó ekki nokkur farartálmi í þessu hæg- viðri. Það var tignarleg stund þegar við komum fyrir Hom og sáum bjargið blasa við í allri sinni dýrð. Við héldum hópinn en samt var hver og einn eins og í eigin heimi dáleiddir af bjarginu. Nán- ast hver einasta sylla í bjarginu hefur sitt ömefni. Fæðukista fortíðarinnar, margsigrað á skinnskóm með hamp- köðlum, ekki laust við að mann langaði íegg. Alveg inn undir bjarginu, í liðlega fimm metra löngum kajak sem fleytir kannski 30 sentímetra yfir hafflötinn, finnur maður vel fyrir smæð sinni í ver- öldinni. Maður horfði upp, 500 metrar þverhmpt og fuglamir rótuðu niður smásteinum sem lentu með byssukúlu- smelli í sjónum þannig að maður forð- aði sér utar í öryggi úthafsins. Lifi byttingin Kálfatindar, Hólmur, Eilífstindur, Skófnaberg, Forvaði, Fjalimar, Brýni og fyrr en varði vomm við komnir í Látravík. Hombjargsvitinn stóð tign- arlegur á kletti og við tókum land í gijótinu fyrir neðan. Leifar af rennu til að draga vistir upp klettinn ásamt hálf- um stiga sögðu til um velmegtartíma vitavörslunnar. í dag em það sólarraf- hlöður og sjálfvirkur tölvubúnaður sem leysa af hetjur einsemdarinnar, vitaverðina, Óla komma og þá alla. Við lásum okkur upp klettinn eftir kaðli sem kominn var í stað stigans foma. Vitavarðahúsið var tómlegt á að líta inn um gluggana, en samt stóð það opið okkur til mikillar furðu. Við æddum inn en fengum fljótlega á okkur dimm- raddað „Hver er þar?“ innan úr einu herberginu. Þar var komin gamla hetj- an, Óli kommi, nú ekki lengur vitavörð- ur heldur landvörður í norðurhluta Homstranda. Óli var fijótur að jafna sig á innrásinni og dreif okkur inn í kaffi, sýndi okkur vitann, sólarrafhlöð- umar og sjálfvirka búnaðinn sem leysti hann af hólmi, sagði okkur frá fyrri tíð ogbauðkex. Síðastliðinn vetur var Spessi með ljósmyndasýningu í New York. Þar komst hann yfir kaskeiti sem, sam- kvæmt áreiðanlegum heimildum, sjálf- ur Maó formaður hafði borið, fagur- grænt með rauðri stjömu. Þótti við hæfi að enda heimsóknina með mynda- töku fyrir utan vitann, og fékk Óli það hlutverk að bera kaskeitið. Spessi sá það strax í gegnum linsuna að þarna var kaskeitið komið heim. Hann bað Óla að þiggja gripinn og gamli byltingarefurinn ljómaði. Þegar við remm áfram inn í nóttina fannst okkur r Hrikalegt Hornbjargið gnæfir yfir, þessi fyrrverandi matarkista Homstrendinga. Næstum hver sylla og steinn á sitt nafh og sögu. við sjá vitann blikka í austur ekki sjálf- virkt heldur manúalt. Við remm suður á bóginn fyrir Smiðjuvíkurbjarg og þaðan fyrir Barð og inn Barðsvíkina. Þar tókum við land í sandinum neðan við slysavamaskýlið. Sumir kveiktu bál, aðrir komu kolun- um til og allir borðuðu sig sadda. Gall- amir hengdir til þerris og tjöldin sett upp eða útisvefnpokamir, sem sumir völdu frekar, breiddir út. Við sofnuðum hamingjusamir. Á tjaldstæðinu í Barðsvíkinni hittum við fyrir „hálendishópinn" frá Hinu húsinu sem var að ganga úr Ingólfs- firði í Homvík. Áttum við með þeim fjömga morgunverðarstund og síðan skoðuðum við bakpokana þeirra og þau fengu að skoða bátana okkar. Þau ýttu okkur síðan á flot áður en þau þrömm- uðu sína leið í stuttbuxunum. Fallegur hópur. Sumir deyja Við dóluðum út með Straumnesinu og svo inn með því sunnan megin. Þar heitir Bolungarvík. Innst í Bolungar- víkinni er hvít sandströnd. Þar var kaffitími og gott sólbað. Eitt lítið bál, og síðan aftur í bátana. Við þveraðum, eða „krossuðum", eins og við köllum það, Fumfjörð yfir í þar sem heitir Kanna, klettur yst á nesi því sem skilur að Furufjörð og Þaralátursfjörð. Kanna er réttnefni. Kletturinn er alveg eins og nýmóðins hraðsuðukanna, með handfangi og allt. Kannan var mynduð í bak og fyrir, og síðan róið áfram. Krossuðum Þaralátursfjörð, út með Þaralátursnesi. Örh'tið sólbað þar yst og síðan inn Reykjaijörðinn. Eyþór á ættir að rekja í Reykjafjörð og þar stoppuðum við heilan sólahring. Þar er myndarleg þjónusta við ferða- fólk. Við fóram í heita laugina, dmkk- um kaffi hjá Lillu frænku, fengum nýbakaða snúða og okkur langaði eig- iniega ekkert burt. Um nóttina þegar við sátum við bálið trítlaði minkur eftir fjömnni og gerði kríumar vitlausar. Stuttu síðar ýtti Ragnar bóndi út skektu. Hann var vopnaður. Hann reri út í sker og stuttu síðar ómaði eitt búmm, og Ragnai- reri til baka með þennan óvin númer eitt í varpinu. Af stuttu færi og það vantaði afturhelm- inginn á dýrið. „Hann drepur ekki fleiri kollur þessi,“ sagði Ragnar ánægður, og við hjálpuðum með skektuna upp á fjömkambinn aftm-. Þar sem við remm út Reykjafjörð, þar sem heitir Sigluvík, urðum við vitni að undarlegu háttalagi náttúrunnar. Hátt í klettinum var álftapar með hreiður. Þau dembdu sér til flugs bæði með stuttu millibili og ekki veit ég hvort við voram sökudólgamir, en allavega fannst ungunum vissara að drífa sig líka. Þeir létu sig allir gossa fram af. Við fómm í land til að athuga með þá. Aðeins einn af ijómm var með lífsmarki. Hann jafnaði sig furðu fljótt og dreif sig syndandi á eftir foreldmn- um. Við reram áfram hálf daprir, blanda af samviskubiti og pirringi út í kæruleysi foreldranna. Ljóslifandi saga Áfram fyrir Geirólfsnúp og inn í Skjaldabjarnarvík. Ekki kann ég sög- una nógu vel til að hafa hana eftir en þar er leiði eitt og hvílir þar fyrrver- andi ábúandi, Hallvarður Hallsson. Það var búið að leggja okkur lífsregl- umar með það að fara ekki þama framhjá án þess að heimsækja leiðið og helst snyrta aðeins í kring. Einhver hafði verið þar rétt á undan okkur og málað krossinn og grindveridð í kring. Við reyttum smá arfa og kveiktum ör- lítinn eld. Espressó eða kakó og síðan áfram. Þar sem við remm inn með Randar-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.